Morgunblaðið - 21.03.2005, Síða 1
2005 MÁNUDAGUR 21. MARS BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
GRINDAVÍK KOMIÐ Í ÚRSLIT EFTIR SIGUR Á HAUKUM / B12
Keppnin var jöfn og spennandi, sér-staklega í fjölþraut kvenna á
laugardag þar sem Sif Pálsdóttir gerði
harða hríð að ríkjandi meistara Krist-
jönu Sæunni Ólafsdóttur. Sif mistókst í
æfingum á stökki en bætti það upp
með því að ná hæstu einkunn í hinum
greinunum þremur en það dugði henni
þó ekki nema í annað sætið.
Íslandsmeistarinn í áhaldafimleik-
um kvenna, Kristjana Sæunn Ólafs-
dóttir, var sátt við árangurinn um
helgina. „Ég er búin að standa mig
mjög vel að mínu mati. Við vorum
mjög jafnar allar og sigurinn núna
kom mér dálítið á óvart. Mér gekk
mjög vel og það er gaman að sjá hvað
það eru miklar framfarir í fimleikun-
um,“ sagði Kristjana sem er að verða
14 ára og segir að það verði sitt næsta
verkefni að láta ferma sig en svo taka
fimleikarnir við að nýju enda æfa af-
rekskonur eins og hún 24 tíma á viku.
„Mér finnst þetta ekki mikill tími
enda er þetta mjög gaman og ef mað-
ur skipuleggur tímann sinn vel þá
kemur þetta ekki niður á náminu.“
Viktor Kristmannsson stóð í sömu
sporum og svo oft áður, á efsta palli
en flensa hrjáði kappann á sunnudeg-
inum. Það kom þó ekki í veg fyrir að
hann hefði betur en keppinautar
hans.
Íslandsmótið í fimleikum á áhöldum fór
fram um helgina í Laugardalshöllinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerplu, var sigursæl á Íslandsmótinu í fimleikum sem haldið var um
helgina. Hér leikur hún listir sínar í Laugardalshöllinni.
Kristjana
Sæunn og
Viktor
meistarar
ÍSLANDSMÓTIÐ í áhaldafimleikum fór fram í Laugardalshöll um
helgina. Gerpla fagnaði tvöföldum sigri bæði í karla- og kvenna-
flokki þar sem þau Kristjana Sæunn Ólafsdóttir og Viktor Krist-
mannsson hömpuðu Íslandsmeistaratitlunum að nýju en þau fögn-
uðu einnig sigri á síðasta ári.
■ Yfirburðir/B7
KENNY Dalglish, fyrrum leikmaður og knatt-
spyrnustjóri Liverpool, segir að viðureign liðsins
við ítalska liðið Juventus í átta liða úrslitum
Meistaradeildarinnar geti farið úr böndunum
þar sem síðasta viðureign félaganna endaði með
því að 39 áhorfendur létust á Haysel-leikvang-
inum í Belgíu. Stuðningsmenn Liverpool voru ár-
ið 1985 ásakaðir um að hafa komið af stað óeirð-
um sem enduðu með hörmungum og segir
Dalglish að einhverjir stuðningsmenn beggja
liða hafi í hyggju að efna til óeirða á ný er liðin
mætast. Dalglish var í liði Liverpool sem tapaði
1:0 fyrir Juventus í umræddum leik og segir
hann að leikurinn líði seint úr minni. „Það er
eins ég hafi verið á vellinum í gær. Ég tel að
forsvarsmenn og stuðningsmenn liðanna eigi að
einblína á það góða samstarf sem hefur skapast
á milli þeirra eftir atburðinn. Það á ekki að ala
á hatri fyrir leikina, menn verða að einbeita sér
að því að láta verkin tala úti á vellinum,“ sagði
Dalglish.
Dalglish
hefur áhyggjur
ÍTALSKA knattspyrnu-
sambandið hefur ákveðið að
sækja íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu til Zagreb. Ítalir senda
glæsilega langferðabifreið, dag-
inn eftir landsleik Króatíu og Ís-
lands í undankeppni HM, sem fer
fram í Zagreb á laugardaginn.
Landleiðin frá Zagreb til Pad-
ova, þar sem landsleikur Ítalíu
og Íslands fer fram miðvikudag-
inn 30. mars, er ekki nema 348
km, þannig að ferðin tekur í
mesta lagi fimm klukkustundir.
Halldór B. Jónsson, varafor-
maður KSÍ og aðalfararstjóri í
ferðinni, sagði að þessi ferðamáti
væri mun betri en að fara í flugi
frá Zagreb, þar sem það tæki
alltaf sinn tíma að koma lands-
liðshópnum í flug og úr flugi,
með lítt skemmtilegum tösku-
burði. „Strákarnir geta lagt sig á
leiðinni, þannig að ferð okkar í
langferðabifreiðinni verður stutt
og þægileg,“ sagði Halldór B.
Landsliðshópurinn fer eftir
þjóðbraut, E-70, frá Zagreb til
Ljubljana, höfuðborgar Slóveníu,
135 km leið, en þá tekur hrað-
brautin, E-70, við alla leið til
Padova, eða 213 km leið. Komið
verður til Ítalíu fyrir norðan
borgina Trieste, og þaðan liggur
beinn og breiður vegur til Pad-
ova.
Ítalir sækja landsliðið