Morgunblaðið - 21.03.2005, Page 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 B 3
ÓLAFUR Stefánsson skoraði 4
mörk fyrir Ciudad Real þegar liðið
sigraði Valladolid á útivelli, 32:28, í
spænsku 1. deildinni í handknattleik
um helgina. Barcelona og Portland
San Antonio unnu bæði leiki sína og
eru efst og jöfn með 40 stig en Ciud-
ad Real og Ademar Leon hafa 37.
KRISTJÁN Andrésson skoraði 3
mörk fyrir GUIF þegar liðið gerði
jafntefli, 28:28, við Sävehof í loka-
umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í
handknattleik um helgina. GUIF
hafnaði í sjötta sæti með 30 stig,
Skövde var deildarmeistari með 43
stig og Sävehof varð í öðru sæti með
42 stig. Átta efstu liðin í deildinni
keppa síðan til úrslita um meistara-
titilinn og mætir GUIF liði Hamm-
arby í 8-liða úrslitunum.
RAGNAR Óskarsson skoraði 3
mörk og Jón Þorbjörn Jóhannsson 1
þegar lið þeirra Skjern sigraði Bjerr-
ingbro, 33:26, í dönsku úrvalsdeild-
inni í handknattleik um helgina.
Skjern er í fimmta sæti með 27 stig.
Kolding er efst með 33 stig, GOG 30
og Århus GF í þriðja sæti með 28.
JÓNA Margrét Ragnarsdóttir
skoraði 5 mörk, Sólveig Lára
Kjærnested 2 og Dagný Skúladóttir
eitt þegar lið þeirra, Weibern, lagði
Oldenburg, 24:22, í B-deild þýsku 1.
deildarinnar í handknattleik. Sylvia
Strass skoraði 7 mörk fyrir Weibern
og Birgit Engl 6 en þær léku báðar
með ÍBV á síðustu leiktíð. Weibern,
sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar, er
í fjórða sæti af sex liðum með 5 stig
eftir sjö leiki.
HHF og Reynir Sandgerði unnu
sér rétt til keppni í 1. deild karla í
körfuknattleik á næsta leiktímabili
með sigrum í undanúrslitum 2. deild-
ar karla. HHF vann HK og Reynir
Sandgerði vann ÍV í undanúrslitun-
um. HHF vann síðan deildarmeistara-
titilinn með sigri á Reyni Sandgerði í
úrslitaleik mótsins. ÍV lenti í þriðja
sæti eftir sigur á HK. HHF stendur
fyrir Héraðssambandið Hrafnaflóki.
SIGURÐUR Jónsson, KR, vann
sigur í meistaraflokki karla á stiga-
móti Coca Cola í gær. Sigurður hafði
betur gegn Matthíasi Stephensen,
3:1, í úrslitaleik, 11:8, 7:11, 11:8 og
11:8. Í meistaraflokki kvenna sigraði
Kristín Hjálmarsdóttir, KR. Hún
lagði Guðrúnu Björnsdóttur, KR, í
úrslitaleik, í þremur lotum, 11:7, 11:8
og 11:7.
JOVANA Stefánsdóttir, dóttir Mil-
an Stefáns Jankovic, þjálfara
Grindavíkurliðsins í knattspyrnu,
gat ekki leikið með Grindavík gegn
Haukum í undanúrslitum 1. deildar-
innar í körfuknattleik í gær. Hún var
ekki leikfær eftir aðgerð hjá tann-
lækni en verður með þegar Grinda-
vík spilar fyrsta leik sinn í úrslitum
en þar mætir Grindavík liði Kefla-
víkur eða ÍS.
FÓLK
ÍBV hafði unnið fjóra leiki fyrirleikinn gegn HK en gengi Kópa-
vogsliðsins hefur farið niður á við
eftir bikarúrslita-
leikinn gegn ÍR,
sem þeir töpuðu.
Jafnt var þó á öllum
tölum í fyrri hálfleik
og hvorugu liði tókst að brjóta hitt
á bak aftur. Þó nokkur harka ein-
kenndi leikinn og til að mynda
þurftu Eyjamenn að dvelja 18 mín-
útur utan vallar í leiknum. Dómarar
leiksins, Arnar Sigurjónsson og
Valgeir Ómarsson, höfðu hins vegar
góð tök á leiknum svo aldrei sauð
upp úr.
Jafnt var í hálfleik en gestirnir
komu talsvert grimmari til leiks
eftir hléið og náðu snemma þriggja
marka forskoti, sem var það mesta
til þessa. Sóknarleikur HK var mis-
jafn og misnotuðu þeir til dæmis
sex vítaköst í leiknum. Um miðbik
hálfleiksins misstu Eyjamenn tvo
menn útaf í tvær mínútur á sömu
mínútunni og hefðu heimamenn þá
getað snúið leiknum sér í vil – stað-
an 20:23.
Þeim mistókst hins vegar að
skora og fengu mark í bakið.
Eftir það varð róðurinn léttari
fyrir gestina sem skoruðu fimm
mörk í röð og gerðu út um leikinn.
Þeir náðu mest sjö marka forskoti
en HK-ingar náðu aðeins að
grynnka á muninum áður en yfir
lauk, lokastaðan sem fyrr 26:31.
Eyjamenn fögnuðu innilega í leiks-
lok enda ljóst að liðið hafnaði í öðru
sæti deildarinnar. Sigurður Braga-
son, fyrirliði ÍBV, var kampakátur í
leikslok.
„Þetta var glæsilegt. Ég bjóst við
erfiðari leik í heildina en þetta var
bara stórglæsilegt og ég er stoltur
af strákunum. Eftir mjög jafnan
fyrri hálfleik nýttum við breiddina
okkar vel í þeim síðari, spiluðum á
tólf mönnum meðan þeir voru með
sama kjarnann allan tímann. Þetta
er búið að vera gott tímabil, undan-
úrslit í bikar og annað sætið í deild,
en mikið er eftir enn og nýtt verk-
efni framundan. Nú skiptir engu
hvernig leikirnir að undanförnu
hafa endað en með góðum stuðningi
er ég viss um að við förum langt.
Fram er með gott lið og við mætum
ekki með því hugarfari að um
fyrstu deildar lið sé að ræða. Við
ætlum okkur lengra og spilum eftir
því,“ sagði Sigurður og hélt til fagn-
aðar í búningsherbergi liðsins.
Annar svipur var á fyrirliða HK-
liðsins, Hauki Sigurvinssyni, en lið-
ið mætir Val í fyrstu umferð úr-
slitakeppninnar.
„Þetta er nú bara svona, ég veit
ekki alveg hvað varð okkur að falli
en sóknarleikurinn er ágætis blóra-
böggull. Roland var að verja vel og
mörg víti fóru forgörðum hjá okk-
ur. Við nýttum ekki góð tækifæri
sem við fengum til að snúa leiknum
okkur í vil og fengum allt í bakið.
Það er kannski erfitt að finna
ástæður fyrir tapinu núna en við
verðum að komast til botns í þessu
máli áður en úrslitakeppnin
hefst. Við verðum að horfa fram
á veginn, það er nýtt mót að byrja
núna og það eina sem við getum
gert er að líta í eigin barm og laga
þá hluti sem illa hafa farið. Eftir
bikarúrslitaleikinn hafa hlutirnir
ekki verið að ganga upp hjá okkur
og andleg þreyta sem er að segja til
sín, leikmenn eru fljótir að missa
hökuna í gólfið þegar eitthvað bját-
ar á,“ sagði Haukur Sigurvinsson.
Eradze fór
á kostum
ÍBV náði öðru sæti úrvalsdeildarinnar í handknattleik, DHL-deildar
karla, þegar liðið lagði HK að velli, 31:26, í Digranesi á laugardag.
Leikurinn var jafn framan af og jafnt í hálfleik, 15:15, en Eyjamenn
voru talsvert sterkari þegar leið á leikinn og sigur þeirra var nokkuð
öruggur. Roland Eradze átti stórleik í marki ÍBV og varði alls 24 skot,
þar af voru fjögur vítaköst. Eyjamenn unnu sér þar með inn heima-
leikjaréttinn og mæta Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. HK
endaði hins vegar í fimmta sæti og eiga leik við Val að Hlíðarenda.
Andri
Karl
skrifar
Morgunblaðið/Golli
Roland Eradze, sem hér er í
leik með landsliðinu á Ól-
ympíuleikunum í Aþenu,
hefur leikið vel með Eyja-
mönnum í vetur.
Ljósmynd/JAK
Kvennasveit Ægis sem setti nýtt Íslandsmet í 4x100 m fjórsundi:
Auður Sif Jónsdóttir fyrir aftan, frá vinstri Ásbjörg Gústafsdóttir,
Ólöf Lára Halldórsdóttir og Anja Ríkey Jakobsdóttir.
Ljósmynd/JAK
Auður Sif Jónsdóttir setti nýtt stúlknamet í 800 m skriðsundi í 50 m
laug. Hún fagnar hér meti sínu ásamt föður sínum, Jóni Baldurssyni.
Ljósmynd/JAK
Kvennasveit Ægis fagnaði Auði Sif Jónsdóttur eftir að hún lauk
fjórða hluta fjórsundsins og innsiglaði nýtt Íslandsmet sveitarinnar.
ÍSLANDS- og deildabikarmeist-
arar FH-inga lögðu KA-menn,
3:0, í riðli 2 í deildabikarnum í
knattspyrnu í Boganum á Ak-
ureyri um helgina. FH uppskáru
þar með sex stig í heimsókn sinni
norður yfir heiðar en þeir lögðu
Völsunga á föstudagskvöldið.
Jónas Grani Garðasson kom af
varamannabekknum og skoraði
tvívegis fyrir FH á þriggja mín-
útna kafla um miðjan seinni hálf-
leik og þriðja markið skoraði for-
mannssonurinn Heimir Snær
Guðmundsson skömmu fyrir
leikslok.
Hörð keppni er í riðlinum. KR,
Keflavík og FH hafa öll 8 stig,
KR hefur leikið einum leik
minna, og HK er í fjórða sætinu
með 6 stig.
Skagamenn báru sigurorð af
Eyjamönnum, 3:2, í riðli 2 Fíf-
unni. ÍBV náði tvívegis foryst-
unni. Fyrst skoraði Steingrímur
Jóhannesson og síðan Magnús
Már Lúðvíksson fyrir ÍBV en
mörk ÍA gerðu Helgi Pétur
Magnússon, Kári Steinn Reyn-
isson úr vítaspyrnu og Reynir
Leósson sigurmarkið 20 mínútum
fyrir leikslok með skalla eftir
hornspyrnu.
Þór krækti í sitt fyrsta stig
þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við í
Boganum. Sigþór Júlíusson og
Garðar Gunnlaugsson gerðu
mörkin fyrir Val en Ingi Hrannar
Heimisson og Baldur Sigurðsson
svöruðu fyrir Þórsara sem hlutu
þar með sitt fyrsta stig í keppn-
inni en Valur er með 10 stig í
öðru sæti í riðli 1, tveimur stigum
á eftir Breiðabliki.
Jónas Grani með tvö fyrir meistarana
Jónas Grani Garðarsson