Morgunblaðið - 21.03.2005, Blaðsíða 5
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 B 5
„VIÐ spiluðum mjög vel í fyrri
hálfleik en svo vorum við eins og
höfuðlaus her í þeim seinni og
KA-menn fóru að berjast eins og
þeir best geta. Jafntefli eru
kannski sanngjörn úrslit þegar
leikurinn er skoðaður í heild en
auðvitað áttum við að vinna. Við
höfum verið á uppleið í síðustu
þremur leikjum og við sjáum
bara hvað setur í úrslitakeppn-
inni en ég kvíði engu í þeim efn-
um,“ sagði Óskar Bjarni Ósk-
arsson, þjálfari Vals.
„Á hælunum“
Þorvaldur Þorvaldsson, hinn
gamalreyndi varnarjaxl og línu-
maður KA, stóð í ströngu síðustu
sekúndurnar. „Já, ég vildi fá víti
þegar var brotið á mér þarna í
fyrra skiptið en dómararnir
sögðu að ég hefði staðið inni í
teig og þeir hljóta að vita hvað
þeir eru að segja. Mér tókst svo
að fiska víti í lokin og auðvitað
áttum við að skora úr því en
þetta var vel varið,“ sagði Þor-
valdur.
„Við vorum alveg á hælunum í
fyrri hálfleik, alveg ótrúlega lé-
legir. Við sýndum smá karakter í
seinni hálfleik en það nægði ekki
og því miður endum við í sjötta
sætinu. Þetta þýðir að það er orð-
ið tímabært að fara að vinna leik
á útivelli, öðruvísi komumst við
ekki áfram,“ sagði Þorvaldur.
Óskar Bjarni: ,,Vorum eins
og höfuðlaus her“
ÍSLANDS- og deildarmeistarar Hauka etja kappi við sigurvegarann
úr leik Víkings og FH í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í DHL-deild
karla í handknattleik.
Í öðrum leikjum í 8-liða úrslitunum eigast við ÍBV og Fram, ÍR leik-
ur við KA og HK spilar við Val. Tvo sigurleiki þarf til að komast í und-
anúrslin.
Haukar gegn FH eða
Víkingi í úrslitakeppninni
Leikurinn var afar sveiflukennd-ur. Valsmenn byrjuðu með
sterkri 6-0 vörn og
góðri markvörslu
en segja má að KA
hafi hvorki byrjað
með vörn né mark-
vörslu því eftir 5 mínútna leik var
staðan orðin 5:1 fyrir Val. Þá var
Hlynur Jóhannesson m.a. búinn að
verja 2 vítaskot í marki Vals.
Hvorki gekk né rak hjá KA en þó
átti Halldór Sigfússon góða rispu
þegar hann minnkaði muninn úr
6:12 í 9:12 með 3 góðum mörkum í
röð. Valur hélt þó góðri forystu og
hafði fimm mörk yfir í leikhléi,
18:13.
Ekki vænkaðist hagur KA við
það að fyrirliðinn Jónatan Magn-
ússon var borinn meiddur út af
undir lok hálfleiksins.
KA-menn mættu með allt öðru
hugarfari til seinni hálfleiks, skor-
uðu þrjú mörk í röð og áður en
hálfleikurinn var hálfnaður hafði
þeim tekist að jafna metin í 23:23.
Leikurinn var síðan æsispennandi
til loka. Jónatan kom inn á og var
með síðustu sex mínúturnar en
það var mikil dramatík í KA-heim-
ilinu í lokin eftir að Ragnar Njáls-
son skoraði jöfnunarmark KA,
29:29. Valsmenn áttu langa sókn,
Vilhjálmur Halldórsson braust í
gegn en Hafþór Einarsson varði
þegar 40 sekúndur voru til leiks-
loka. KA-menn eygðu sigurmögu-
leika. Brotið var á Þorvaldi Þor-
valdssyni á línunni þegar 4
sekúndur voru eftir og aðeins
aukakast dæmt þrátt fyrir hávær
mótmæli KA, sem enduðu með því
að Halldóri Sigfússyni var vísað af
velli. Það átti eftir að reynast dýr-
keypt. Stillt var upp fyrir Ragnar
Njálsson sem þrumaði á markið.
Pálmar Pétursson varði en Þor-
valdur náði frákastinu og fiskaði
víti þegar leiktíminn rann út. Nú
voru góð ráð dýr því vítaskytta
KA, Halldór Sigfússon, var í
skammarkróknum. Það var fyrir-
liðinn Jónatan Magnússon sem
spreytti sig en Hlynur Jóhannes-
son kom í markið og varði þriðja
vítaskot sitt í leiknum og tryggði
Valsmönnum jafntefli og dýrmætt
stig.
Sofandaháttur KA í fyrri hálf-
leik varð liðinu að falli en þá skor-
uðu Valsmenn m.a. nokkur mörk
með því að vera snöggir að taka
miðju. Halldór Sigfússon var yf-
irburðamaður í liði KA og skoraði
13 mörk. Andri Snær Stefánsson
barðist vel og Þorvaldur Þorvalds-
son lét mikið að sér kveða í seinni
hálfleik. Hjá KA léku markverð-
irnir stórt hlutverk, sérstaklega
Hlynur Jóhannesson. Heimir
Árnason og Vilhjálmur Halldórs-
son voru drjúgir í markaskorun-
inni og þeir Brendan Þorvaldsson,
Kristján Karlsson og Baldvin Þor-
steinsson áttu fínan leik.
Dýrmætt
stig Vals
í drama-
tískum leik
AÐ byrja eða byrja ekki á heimavelli í úrslitakeppninni; þetta var
klípan sem KA og Valur glímdu við á laugardaginn. KA þurfti sigur
en kastaði honum frá sér með því að misnota víti á síðustu sekúndu
leiksins. Leiknum lauk með jafntefli, 29:29, og þegar öll kurl voru
komin til grafar reyndist þetta stig nægja Valsmönnum til að klifra
upp í 4. sætið og tryggja sér heimavallarrétt gegn HK í úrslita-
keppninni. KA endaði hins vegar í 6. sæti og þarf að sækja ÍR heim
þegar úrslitakeppnin hefst.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Þórsarar náðu fjögurra marka for-skoti snemma í leiknum er þeir
skoruðu fimm mörk í röð á tíu mín-
útna kafla. Gestirnir
náðu engum takti við
leikinn og um miðjan
hálfleikinn tók Gunn-
ar þjálfari leikhlé í
stöðunni 7:3. Það virtist bera árang-
ur, því lærisveinar hans skoruðu þrjú
mörk á aðeins einni mínútu og voru
skyndilega komnir aftur inn í leikinn.
Þórsarar náðu samt að seiglast fram
úr á nýjan leik og ná fjögurra marka
forskoti á ný, sem þeir héldu til leik-
hlés.
Í seinni hálfleik snerist dæmið al-
gjörlega við. Þórsarar voru heillum
horfnir og leikur þeirra var hreinasta
hörmung. Víkingar bitu hins vegar í
skjaldarrendur og þjöppuðu sér sam-
an. Á ótrúlegum níu mínútna kafla
skoruðu Víkingar hvorki fleiri né
færri en átta mörk án þess að Þór
næði að svara fyrir sig. Náðu þar með
fimm marka forskoti og þann mun
voru Þórsarar aldrei líklegir til að
vinna upp. Liðið tapaði þar með fimm
síðustu leikjum sínum á Íslands-
mótinu og er þar með komið í sex
mánaða frí. Aigars Lazdins og Árni
Þór Sigtryggsson voru drjúgir í fyrri
hálfleik og þá varði Skabeikis ágæt-
lega. Í seinni hálfleik hrundi leikur
liðsins hins vegar algjörlega.
Með góðum seinni hálfleik sýndu
Víkingar hvað í þeim býr og börðust
af krafti fyrir markmiði sínu. Þeir
höfðu viljann og ákveðnina þegar
mest á reið og eru nú skrefi frá sæti í
úrslitakeppninni. Andri Berg Har-
aldsson hélt þeim inni í leiknum í fyrri
hálfleik með glæsilegum þrumufleyg-
um og þegar Þórsarar settu yfir-
frakka á hann í seinni hálfleik var það
Þröstur Helgason sem raðaði inn
mörkum. Þá varði Reynir Þór Reyn-
isson vel í seinni hálfleik og Benedikt
Árni Jónsson fór mikinn, bæði í
markaskorun og baráttu.
Gunnar Magnússon, þjálfari Vík-
ings, var að vonum í skýjunum eftir
leikinn. „Mér fannst við vera betri all-
an leikinn. Í fyrri hálfleik nýttum við
færin skelfilega illa, misnotuðum 7-8
dauðafæri og tvö víti. Svo kom kafli í
seinni hálfleik þar sem við lokuðum
vörninni gjörsamlega og náðum að
keyra yfir þá. Eftir það var þetta
aldrei spurning,“ sagði Gunnar og var
ánægður með baráttuna hjá strákun-
um.„Við vorum að berjast fyrir til-
veru okkar og vorum ekki tilbúnir að
fara í sumarfrí núna loksins þegar
gamanið færi að byrja. Þar að auki er
þetta síðasta árið sem er úrslita-
keppni, og í Víkingi eru strákar sem
eru búnir að vera í liðinu í 7-8 ár og
aldrei tekið þátt í úrslitakeppni,
þannig að það er núna eða aldrei. Það
eru tíu ár síðan við vorum í úrslita-
keppni og við ætlum okkur þangað
núna. En ég ber fulla virðingu fyrir
FH-ingum, þetta verður hörku-
keppni tveggja góðra liða,“ sagði
Gunnar.
Dómgæslan var slök
Axel Stefánsson, þjálfari Þórs, var
gríðarlega vonsvikinn í leikslok og
vildi meina að hans menn hefðu ekki
notið sannmælis hjá dómurunum.
„Þeir komust upp með grófan
varnarleik, bakhrindingar og brot,
sem dæmt var á hjá okkur. Svona
dómgæsla er fyrir neðan allar hellur,“
sagði Axel og var vægast sagt ósátt-
ur. „En sóknarleikurinn hjá okkur
var auðvitað lélegur í seinni hálfleik
og nýting á færum mjög slæm. Nú
þurfum við að fara yfir málin, ég þarf
að hugsa minn gang og fara yfir það
sem ég hef verið að gera. Ég er auð-
vitað alls ekki sáttur við gengi liðsins
eftir áramót,“ sagði Axel en vildi ekki
taka undir það að liðið væri komið í
sumarfrí. „Nei, núna er bara að hefja
vinnu fyrir haustið, við erum langt frá
því að vera hættir,“ sagði Axel.
Aðspurður hvort þetta hafi verið
síðasti leikur Árna Þórs Sigtryggs-
sonar fyrir Þór svaraði Axel neitandi.
„Ég hef fulla trú á að Árni verði
áfram með okkur,“ sagði Axel.
Víkingar björg-
uðu sér fyrir horn
ÞÓRSARAR luku keppni á Íslandsmótinu í handbolta þegar þeir lutu
í lægra haldi fyrir Víkingi á heimavelli á laugardaginn. Víkingar
fögnuðu gríðarlega í leikslok, enda var leikurinn hreinn úrslita-
leikur um það hvort þeir eða Þórsarar mæta FH í aukakeppni um
áttunda sætið í úrslitakeppninni. Lokatölur urðu 33:30 Víkingi í hag
en í leikhléi höfðu heimamenn hins vegar fjögurra marka forskot,
17:13.
Valur
Sæmundsson
skrifar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haukamennirnir Birkir Ívar Guðmundsson, Vignir Svavarsson fyrirliði og Halldór Ingólfsson höfðu
ástæðu til að fagna eftir sigurinn gegn ÍR.