Morgunblaðið - 21.03.2005, Qupperneq 6
ÍÞRÓTTIR
6 B MÁNUDAGUR 21. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MARCELO LIPPI, landsliðsþjálfari
Ítala, valdi í gær landsliðshópinn
sem mætir Skotum í undankeppni
HM um næstu helgi og búast má við
að flestir úr þessum hópi mæti Ís-
lendingum í vináttuleiknum sem
fram í Padova þann 30. mars. At-
hygli vekur að Alessandro Del
Piero, framherji Juventus, er ekki í
hópnum og tekur Antonio Cassano,
Roma, stöðu hans. Hópur Ítala lítur
þannig út:
Markverðir: Gianluigi Buffon
(Juventus), Morgan De Sanctis (Ud-
inese), Flavio Roma (Monaco).
Varnarmenn: Andrea Barzagli
(Palermo), Daniele Bonera (Parma),
Fabio Cannavaro (Juventus), Giorg-
io Chiellini (Fiorentina), Fabio
Grosso (Palermo), Marco Materazzi
(Inter Milan), Alessandro Nesta (AC
Milan), Cristian Zaccardo (Palermo).
Miðjumenn: Simone Barone (Pal-
ermo), Manuele Blasi (Juventus),
Mauro Camoranesi (Juventus), Dan-
iele De Rossi (Roma), Ivan Gattuso
(AC Milan), Andrea Pirlo (AC Milan).
Framherjar: Antonio Cassano
(Roma), Mauro Esposito (Cagliari),
Alberto Gilardino (Parma), Vincento
Montella (Roma), Luca Toni (Pal-
ermo), Francesco Totti (Roma).
Ekkert
pláss fyrir
Del Piero
Viktor deildi sigurlaununum í æfing-um á stökki með bróður sínum Ró-
berti Kristmannssyni en báðir hlutu þeir
8,25 stig í einkunn, en í
gólfæfingum fékk hann
7,75 stig og mátti lúta í
lægra haldi fyrir Jónasi
Valgeirssyni úr Ár-
manni sem fékk 7,95 stig fyrir æfingar
sínar.
„Ég er mjög sáttur við fjölþrautina á
laugardag en dagurinn í dag, sunnudag-
ur, gekk ekki nógu vel. Ég er búinn að
vera veikur í síðustu viku, fann ekkert
fyrir því á laugardag en í dag fann ég að
ég var ekki eins og ég átti að mér, átti
erfitt með andardrátt og jafnvægið var
ekki alveg á sínum stað. Engu að síður
get ég ekki verið annað en sáttur við nið-
urstöðuna,“ sagði Viktor sem varð fimm-
faldur Íslandsmeistari í áhaldafimleik-
um á sunnudag.
„Ég hef verið í æfingabúðum í Lett-
landi ásamt Rúnari Alexanderssyni og
lettneska landsliðinu og þær æfingar
skiluðu miklu og það var mjög gott að
æfa með svona mörgum strákum sem
eru betri en ég. Meðal æfingafélaga
minna þarna voru tveir Ólympíumeist-
arar. Að æfa með svona góðum strákum
er manni mikil hvatning og maður legg-
ur sig betur fram.“
Viktor hefur verið duglegur við að
styðja við bakið á bróður sínum, Róberti,
sem kemur sterkur inn í áhaldafimleik-
ana. Viktor segir að hann hvetji hann
mikið en eftir laugardaginn fékk bróð-
irinn að heyra það enda fannst stóra
bróður sá litli ekki standa sig nógu vel.
„Róbert gerði ekki góða hluti á laugar-
dag og hann fékk að heyra það á laug-
ardagskvöld. En hann er að gera nýja
hluti og er búinn að laga margt hjá sér og
hefur vaxið mjög mikið. Honum tókst
líka vel upp á bikarmótinu og ég er mjög
stoltur af honum. Hann er farinn að
narta í hælana á mér og er mér góð
hvatning,“ sagði Viktor Kristmannsson.
Jónas Valgeirsson úr Ármanni varð
fyrir því óhappi í nóvember á síðasta ári
að slíta vöðva í brjóstkassa og hann gat
því ekki beitt sér sem skyldi á mótinu nú
um helgina. „Ég meiddist í æfingum á
hringjum í nóvember og er nýlega farinn
að keppa aftur. Frá því þetta gerðist hef
ég lítið gert annað en að byggja mig upp
að nýju. Ég tók þátt á laugardag ein-
göngu til þess að fá að taka þátt í dag og
var bara sáttur við æfingarnar mínar,“
sagði Jónas en hann fagnaði sigri í æf-
ingum á gólfi bæði á laugardeginum og
sunnudeginum.
„Ég hef aðeins einu sinni keppt í
hringjum frá því ég meiddi mig. Ég tók
þátt í bikarmótinu og það fór svo illa í
mig að ég var rúmliggjandi næsta dag.
En ég finn að ég er allur að koma til og
stefni ótrauður á það að komast í liðið
fyrir Evrópumótið í júní. Möguleikarnir
liggja í því að ná að sýna mig á æfingum
og ef ég næ mínu gamla formi í hringj-
unum þá reikna ég með því að ná inn í lið-
ið,“ sagði Jónas Valgeirsson.
Yfirburðir Kristjönu
í kvennaflokki
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr
Gerplu hafði betur í rimmu sinni við Sif
Pálsdóttur úr Gróttu en þær stöllur hafa
verið fremstar í flokki fimleikastúlkna
undanfarin ár. Sif var óheppin í æfingum
sínum í stökki í fjölþrautinni á laugardag
og mátti horfa á eftir Íslandsmeistara-
titlinum til Kristjönu þrátt fyrir að hafa
sigrað í hinum greinunum þremur.
„Þetta byrjaði illa hjá mér á laugardag
þegar ég datt í stökkinu en ég gerði eng-
in mistök eftir það og hækkaði í einkunn
eftir hvert áhald. Það munaði líka litlu
þegar upp var staðið. Ég er auðvitað sár
að hafa ekki gert betur í stökkinu en ég
er líka stolt af sjálfri mér að hafa ekki
brotnað niður við þetta mótlæti heldur
tekið mig saman í andlitinu og gert mitt
besta,“ sagði Sif Pálsdóttir og sagði að
það hafi verið ljúfsárt að hafa tekist vel
til með stökkið á sunnudeginum.
Aðspurð um hvort það væri rígur á
milli hennar og Kristjönu sagði hún svo
ekki vera. „Nei alls ekki. Það er er gam-
an að keppa og keppnin er það sem gefur
þessu gildi. Það væri nú lítið gaman að
þessu ef maður gengi að sigrinum vísum.
Það er líka gaman að sjá hvað það eru
miklar framfarir og mikið af ungum
stelpum að koma inn,“ sagði Sif sem vildi
þó ekki lofa neinu um hvort hún ætti
mörg ár eftir í fimleikunum. Sif er sjálf
átján ára og er á toppaldri fyrir fimleika-
konu. „Það er samt allt hægt, Svetlana
Gorkina, sem er besta fimleikakona í
heimi, er 25 ára svo það er hægt að vera í
fimleikum eftir tvítugt. En eins og stað-
an hjá mér er núna þá stefni ég á Evr-
ópumótið og Heimsmeistaramótið í sum-
ar. Eftir það er allt óráðið.“
Krakkarnir eru lengur í fimleikum
Þórólfur Antonsson, frá fimleikadeild
Ármanns, var mótsstjóri að þessu sinni
og hann ánægður með mótið. „Þetta er
búið að ganga vel, tímasetningar hafa
staðist og allt hefur gengið snuðrulaust
fyrir sig. Hópurinn sem tekur þátt í fim-
leikum hefur breikkað og krakkarnir
farnir að vera lengur í þessu. Það g
þessum yngri ákveðna hvatningu. Þ
verður jafnframt til þess að endur
unin er ekki eins hröð og það eru
mörg ný nöfn sem stíga á pall.“
Nú tóku aðeins tvö félög þátt í kep
karlaflokki, Gerpla og Ármann o
kvennaflokki tefldu aðeins Gerpla
Grótta fram liðum. Kanntu einhv
skýringu á þessu?
„Það eru bylgjur í þessu og hjá okk
Ármanni eru að koma upp stúlkur
væntanlega verða hér á næstu tvei
til þremur árum. Það hverfa hópar ú
það getur tekið tíma að byggja up
nýju. Það er ekki alltaf samhang
keðja í þessu,“ sagði Þórólfur Ant
son.
Yfirburðir hjá
Kristjönu og Viktori
Morgunblaðið/Árni Sæb
Viktor Kristmannsson var sigursæll á Íslandsmótinu í fimleikum. Hann var krýndur Íslandsmeistar
fimm áhöldum í gær og hér er hann í æfingum á tvíslánni.
VIKTOR Kristmannsson og Krist-
jana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerlpu
höfðu mikla yfirburði yfir aðra
keppendur í áhaldafimleikum á
sunnudag þegar keppt var í ein-
stökum áhöldum. Á laugardag
urðu þau Íslandsmeistarar í fjöl-
þraut og þau gáfu ekkert eftir á
sunnudag þar sem Viktor sigraði í
fimm greinum af sex og Kristjana í
þremur greinum af fjórum.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
SVEN Göran Eriksson þjálfari enska
landsliðsins í knattspyrnu tilkynnti í
gær hvaða leikmenn hann valdi fyrir
leikina gegn Írum og Aserum í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins en
leikirnir fara fram á Old Trafford í
Manchester og St. James Park í
Newcastle 26. mars og 30. mars. En
það má segja að Eriksson hafi ekki
komið neinum á óvart með vali sínu
að öðru leyti en því að Emile Heskey
frá Birmingham er á ný í landsliðinu.
Andy Johnson frá Crystal Palace og
Stewart Downing Middlesbrough
eru í hópnum að þessu sinni.
Markverðir: Paul Robinson (Tott-
enham), David James (Manchester
City), Robert Green (Norwich).
Varnarmenn: Rio Ferdinand (Man-
chester Utd), John Terry (Chelsea),
Ledley King (Tottenham), Jamie
Carragher (Liverpool), Ashley Cole
(Arsenal), Gary Neville, Wes Brown
og Phil Neville (allir Manchester
Utd.).
Miðjumenn: David Beckham (Real
Madrid), Steven Gerrard (Liverpool),
Frank Lampard (Chelsea), Stewart
Downing (Middlesbrough), Owen
Hargreaves (Bayern München), Joe
Cole (Chelsea), Kieron Dyer (New-
castle), Jermaine Jenas (Newcastle).
Framherjar: Andy Johnson
(Crystal Palace), Michael Owen
(Real Madrid), Jermain Defoe (Tott-
enham), Wayne Rooney (Manchest-
er Utd), Emile Heskey (Birm-
ingham).
Eriksson
valdi
Heskey á ný