Morgunblaðið - 21.03.2005, Qupperneq 12
BRYNJAR Pétursson, HK og
Anna Pavliouk, Þrótti Reykjavík,
voru valin bestu leikmenn 1. deildar
karla og kvenna á lokahófi Blaksam-
bands Íslands á laugardagskvöld.
Kristín Salín, Þrótti Neskaupsstað,
og Subaru Takenaka, Þrótti
Reykjavík, voru valin efnilegust.
SUBARU Takenaka var stiga-
hæstur hjá körlunum með 196 stig.
Brynjar Pétursson, HK, skoraði
flest stig úr uppgjöfum, 39 talsins.
Ólafur Viggósson, HK, var með
flestar hávarnir, 30 talsins.
ANNA Pavliouk skoraði flest stig-
in hjá konunum eða 265 stig. Hulda
Elma Eysteinsdóttir, Þrótti Reykja-
vík, skoraði flest stig úr uppgjöfum,
48 talsins og Ingibjörg Gunnars-
dóttir, HK, var með flestar hávarnir
eða 39.
MARK Van Bommel skoraði
þrennu á 15 mínútum þegar PSV
burstaði Ajax, 4:0, í hollensku 1.
deildinni í knattspyrnu í gær. Þetta
var fyrsti leikur Ajax undir stjórn
Danny Blind en hann tók við starfi
Ronald Koeman sem sagði starfi
sínu lausu fyrir skömmu. PSV er
með 67 stig í efsta sæti, sjö stigum á
undan Alkmaar. Ajax er svo í þriðja
sætinu, 14 stigum á eftir PSV.
AVERY Johnson hefur tekið við
sem aðalþjálfari NBA-liðsins Dallas
Mavericks en Don Nelson hefur látið
af störfum og stjórnaði Johnson lið-
inu gegn Charlotte Hornets um
helgina. Johnson sendi leikmönnum
liðsins skilaboð er hann tók aðal-
stjörnu liðsins, Dirk Nowitzki, af
velli eftir að hann gerði sig sekan um
mistök í vörninni. Johnson er ætlað
að bæta varnarleik liðsins en liðið
hefur ekki þótt líklegt til þess að ná
alla leið í NBA-deildinni vegna varn-
arleiksins sem er slakur. Dallas vann
104:93 og sagði Nowitzki að hann
skildi vel hvað væri í húfi og ákvörð-
un þjálfarans hefði verið hárrétt.
„Ég veit að ég þarf að laga hjá mér
varnarleikinn og það þurfa allir leik-
menn liðsins að leggja sitt að mörk-
um,“ sagði Þjóðverjinn.
STEVE Francis, leikstjórnandi
Orlando Magic í NBA-deildinni, hef-
ur verið úrskurðaður í leikbann
vegna atviks sem átti sér stað í Port-
land en þar er Francis sagður hafa
sparkað viljandi í ljósmyndara sem
sat utan vallar og myndaði. Francis
neitar sök en hann mun ekki leika á
meðan forsvarsmenn liðsins hafa
rannsakað málið ítarlega.
MIAMI Heat sigraði í 12. leiknum í
röð um helgina er liðið lagði New
York Knicks að velli 97:82, en þetta
er í fjórða sinn í vetur sem Heat
vinnur New York. En það er fé-
lagsmet þar sem Heat hefur aldrei
sigrað í öllum fjórum leikjum vetr-
arins gegn New York. Shaquille
O’Neal skoraði 33 stig og tók 12 frá-
köst og Dwyane Wade skoraði 30
stig. Heat hefur sigrað í 15 heima-
leikjum í röð og er nú þegar búið að
tryggja sér sæti í úrslitakeppninni
líkt og San Antonio Spurs.
TIRUNESH Dibaba frá Eþíópíu
varð tvöfaldur sigurvegari á heims-
meistaramótinu í víðavangshlaupi í
kvennaflokki en hún sigraði í báðum
vegalengdunum sem keppt var í.
Hún er aðeins 19 ára gömul. Eþíópía
sigraði tvöfalt að þessu sinni þar sem
Kenenisa Bekele sigraði einnig í
báðum vegalengdunum í karlaflokki.
MATTI Hautamäki frá Finnlandi
og Bjørn Einar Romøren frá Noregi
voru í aðalhlutverki er keppt var í
skíðaflugi í Planica en þeir skiptust á
um að setja heimsmet í keppninni.
Romøren setti heimsmet á æfinga-
degi fyrir mótið er hann stökk 234,5
metra en Finninn bætti metið í fyrri
umferðinni, með stökki upp á 235,5
metra. En Romören bætti um betur
og flaug 239 metra.
FÓLK
Fyrsti leikhlutinn var gríðarlegagóður hjá okkur og þá fór nánast
allt ofaní. En það hægðist aðeins á
leiknum þegar á leið en ég er glaður
að við skyldum verja heimaleikjarétt-
inn þrátt fyrir nauman sigur,“ sagði
Bárður Eyþórsson þjálfari Snæfells
við Morgunblaðið eftir leikinn. „Það
gekk mikið á undir lok leiksins og í
framlengingunni voru Nemanja Sovic
og Jeb Ivey komnir útaf hjá Fjölni en
þeir gáfu ekkert eftir þrátt fyrir það.
Ég er ekki alveg nógu sáttur við okk-
ar leik. Við erum að fá of mörg stig á
okkur og í sóknarleiknum erum við
ekki nógu einbeittir. Fjölnisliðið kom
mér ekkert á óvart. Þeir eru með gott
lið og við verðum að hafa okkur alla
við til þess að leggja þá að velli. Leik-
urinn á þeirra heimavelli verður sama
baráttan en við höfum sett það sem
markmið að ná einum sigri á þeirra
heimavelli og vonandi tekst það í
næsta leik,“ sagði Bárður en hann
taldi að Hlynur Bæringsson fyrirliði
liðsins hefði átt stórleik með 28 stig
en hann klikkaði aðeins á tveimur
skotum inni í vítateignum. „Banda-
ríkjamaðurinn Mike Ames var einnig
mjög góður og þá sérstaklega í fyrsta
leikhluta,“ bætti Bárður við en Ames
skoraði 25 stig í leiknum.
„Að mínu mati áttum við að taka
þessa viðureign. Ivey fór útaf með
fimmtu villuna á bakinu undir lok
venjulegs leiktíma og Sovic var löngu
farinn útaf. Ungu strákarnir í liðinu
tóku því af skarið í framlengingunni.
Þetta hafðist ekki að þessu sinni en
þeir fengu dýrmæta reynslu. Reynd-
ar hittu leikmenn Snæfells alveg fá-
ránlega í fyrsta leikhluta, hittu úr öll-
um átta þriggja stiga skotum sínum.
Og það var alveg sama hvað við
reyndum að verjast því. Það fór allt
ofaní. Við fengum góð tækifæri til
þess að tryggja okkur sigurinn undir
lok venjulegs leiktíma en okkur var
ekki ætlað að sigra. Við gerum það
bara á þriðjudaginn á heimavelli,“
sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari
Fjölnis.
ÍR-ingar ætla sér titilinn
ÍR hélt áfram að koma á óvart í úr-slitakeppninni er liðið sigraði Ís-
landsmeistaralið Keflavíkur mjög
sannfærandi á úti-
velli 88:80, en 16 stig
skildu liðin að í hálf-
leik, 51:35.
Keflavík tapaði
síðast leik á heimavelli í úrslitakeppn-
inni þann 16. apríl árið 2002 gegn
Njarðvík, en ÍR sigraði síðast í Kefla-
vík árið 1986.
Keflvíkingar hittu illa úr skotum
sínum fyrir utan þriggja stiga línuna
eða 5/30 en þriggja stiga skotin hafa
verið einn aðalstyrkur liðsins á þessu
leiktímabili. Eiríkur Önundarson fór
fremstur fyrir ÍR í fyrri hálfleik en
hann skoraði 18 stig í fyrri hálfleik.
Heimamenn í Keflavík virtust þó
vera að fara að bíta frá sér undir lok-
in. Þeir spiluðu fína vörn og komu
með nokkrar skemmtilegar körfur en
þessi kafli Keflvíkinga kom alltof
seint.
„Þetta var mjög lélegur leikur hjá
okkur, við komum engan veginn til-
búnir til leiks. Það er ekki að ástæðu-
lausu að þetta lið sló út Njarðvík og
við tókum leikinn bara ekki nógu al-
varlega. Við verðum að taka alvarlega
og læra af þessum leik hér í dag og
mæta dýrvitlausir í leikinn á mánu-
dag inn í Seljaskóla,“ sagði Sverrir Þ.
Sverrisson leikmaður Keflavíkur.
„Þetta var mjög fínn leikur hjá okkur.
Okkar stefna er að taka Íslandsmeist-
aratitilinn og var þetta bara eitt skref
í áttina að því. En við verðum að
passa okkur að fagna ekki of lengi og
mæta tilbúnir til leiks á mánudag, en
það verður hörkuleikur,“ sagði Egg-
ert Maríuson þjálfari ÍR.
Háspenna í
Hólminum
SNÆFELL og Fjölnir áttust við í fyrsta leiknum í undanúrslitum Ís-
landsmótsins í körfuknattleik karla, DHL-deild, í gær, en það lið
sem fyrr sigrar í þremur leikjum kemst í úrslit um Íslandsmeist-
aratitilinn í úrvalsdeildinni. Leikurinn í gærkvöld var gríðarlega
spennandi þar sem Fjölnismenn réttu úr kútnum eftir að hafa feng-
ið á sig 41 stig í fyrsta leikhluta. Staðan var jöfn, 93:93, að loknum
venjulegum leiktíma og hafði Snæfell betur í framlengingunni,
103:101. Á laugardag lagði ÍR Íslandsmeistarana úr Keflavík,
88:80, og var það fyrsti sigur ÍR í Keflavík frá árinu 1986. Liðin eig-
ast við í kvöld á ný í Seljaskóla.
Sigurðardóttir lék einnig vel og tók að
venju mikið af fráköstum. Erlurnar,
Þorsteinsdóttir og Reynisdóttir, hafa
oft leikið betur en það kom ekki að sök
að þessu sinni. Svandís var að vonum
sátt í leikslok: „Við erum komnar í
gang. Erum loksins farnar að spila vel
saman, og komnar með góðan útlend-
ing. Það var virkilega sætt að ná að
hefna fyrir tapið í bikarúrslitaleiknum.
Við erum orðnar miklu ákveðnari og
miklu grimmari og ég er því mjög
bjartsýn á framhaldið en stefnan er að
sjálfsögðu að fara alla leið. Það var
heilmikill munur á leik okkar frá því í
fyrri leiknum í Grindavík, en nú héld-
um við stöðugt áfram að bæta við for-
ystuna í stað þess að sætta okkur við
naumt forskot. Ég held að það skipti
ekki máli hvort liðið við fáum í úrslit-
um, við erum farnar að spila vel og
tökum bara því sem að höndum ber,“
sagði Svandís.
Signý fór á kostum
ÍS náði að knýja fram oddaleik í
undanúrslitarimmu liðsins gegn Ís-
landsmeistaraliði Keflavíkur í 1. deild
Grindavíkurstúlkur gáfu tóninnstrax í fyrsta leikhluta og höfðu
ellefu stiga forskot er honum lauk,
14:25. Gestirnir léku
af mun meira sjálfs-
trausti en heimaliðið
og röðuðu niður
þriggja stiga körfum
í fyrri hálfleik. Williams hitti úr öllum
fimm þriggja stiga skotum sínum í
hálfleiknum og setti raunar niður
fyrstu sjö þriggja stiga skot sín í leikn-
um. Í hálfleik var staðan 34:48 og ljóst
hvert stefndi. Bikarmeistararnir kom-
ust heldur aldrei í gang í síðari hálfleik
og náðu einungis að minnka muninn
niður í ellefu stig í síðasta fjórðungi.
Haukastelpur hittu illa í leiknum eins
og stigaskorið gefur til kynna en
gerðu einnig mörg sóknarmistök.
Ebony Shaw var þeirra atkvæðamest í
leiknum með 24 stig en Helena Sverr-
isdóttir stóð einnig fyrir sínu og skor-
aði 16. Eins og fyrr segir gerði Will-
iams gæfumuninn fyrir Grindavík í
leiknum, en þó dró nokkuð af henni í
síðari hálfleik og setja má spurninga-
merki við úthaldið hjá henni. Svandís
kvenna í körfuknattleik, en ÍS skor-
aði 75 stig gegn 54 stigum Keflavíkur.
Liðin áttust við í Reykjavík á laug-
ardag eftir að Keflavík hafði sigrað í
fyrsta leiknum eftir framlengingu,
77:71.
Það var ekki að sjá að einhver
meistarabragur væri á liði Keflavíkur
því Stúdínur gerðu nánast út um leik-
inn á fyrstu 10 mínútum leiksins enda
skoruðu Keflvíkingar aðeins 3 stig í
þeim leikhluta gegn 21 stigi ÍS.
Keflavík náði að minnka muninn í
12 stig í upphafi fjórða leikhluta,
53:41, en lengra komst meistaraliðið
ekki.
Signý Hermannsdóttir fór á kost-
um í liði ÍS en hún varði m.a. 8 skot
frá leikmönnum Keflavíkur, skoraði
23 stig og tók 16 fráköst. Signý lét
ekki þar við sitja þar sem hún átti
einnig 6 stoðsendingar í leiknum.
Angel Mason í liði ÍS var langt frá
sínu besta enda hitti hún aðeins einu
af alls sjö skotum sínum í leiknum og
skoraði hún 5 stig í leiknum og þar af
þrjú af vítalínunni.
Í liði Keflavíkur bar mest á Alex-
andriu Stewart sem skoraði 24 stig og
tók 11 fráköst en aðrir leikmenn liðs-
ins voru langt frá sínu besta enda var
skotnýting liðsins skelfileg.
Liðin eigast við í oddaleik á þriðju-
daginn í Keflavík en þar ræðst hvort
liðið kemst í úrslitarimmuna um Ís-
landsmeistaratitilinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bandaríska stúlkan Rita Williams skoraði 36 stig og fór á kost-
um í liði Grindvíkinga gegn Haukum í gær. Hér er hún í baráttu
við Kristrúnu Sigurjónsdóttur.
Williams skaut
Hauka í kaf
GRINDAVÍK sendi bikarmeistara Hauka í sumarfrí í gærkvöldi, með
öruggum sigri 75:56, í síðari leik liðanna á Ásvöllum, í undan-
úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik. Hin bandaríska Rita
Williams skaut Hauka í kaf í leiknum og skoraði 36 stig, þar af voru
sjö þriggja stiga körfur úr einungis tíu tilraunum. Grindavík sigraði
2:0 í einvíginu og mætir sigurvegaranum úr viðureign Keflavíkur og
ÍS, sem útkljáð verður í oddaleik í Keflavík á þriðjudaginn.
Kristján
Jónsson
skrifar
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar