Morgunblaðið - 15.04.2005, Page 3

Morgunblaðið - 15.04.2005, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 B 3 bílar Sími 535 9000 www.bilanaust.is Manista Handþvottaefni sem fagmenn nota: Gert úr náttúrulegum efnum; öflugt en fer vel með húðina. Hand- þvottakre mið sem fagmenni rnir nota! Barrier Cream Ver hendur/húð gegn óhreinindum og áhrifum ýmissa efna. Screen Wash Fyrir rúðu- sprautuna allan ársins hring: Frostþolið efni sem hreinsar, hrindir vatni frá og gerir gler hálla. Inniheldur ekki tréspíra (metanól). Injector Magic Hellt í bensín- geyminn. Losar óhreinindi, heldur innsprautukerfi bensínvélar hreinu, eyðir raka; tryggir eðlilega úðun og endingu spíssa. Árangur: Betri gangur, hámarksafl og sparneytni. Dot 4 Syntetískur bremsuvökvi sem flestir bíla- framleiðendur mæla með fyrir öll bremsu- kerfi, með eða ánABS. Superdiesel Bætiefna- bætt olía: Fyrir meðal- stórar og stærri dísilvélar. Þykktar- flokkun: 15w40. Eurolite Hálf syntetisk olía: fyrir bensín- og dísilvélar. Hár gæða- staðall. Þykktar- flokkun: 10w40. Long Life 100% syntetisk há- gæða olía. t.d. fyrir Audi, Skoda, Golf ofl. Nýjustu staðlar. Þykktar- flokkun: 0w30. Lausapenni Morgunblaðið leitar að lausapenna til að sinna skrifum í Bíla. Umsækjandi þarf að hafa áhuga á bílum og tækni og vera fljótur að setja sig inn í mál. Umsóknir sendist á gugu@mbl.is. LAND Rover er í eigu Ford og gjald- þrot Rover er því Land Rover óvið- komandi. Fjöldi fyrirspurna um stöðu Land Rover hafa borist B&L, um- boðsaðila jeppaframleiðandans, og hafa starfsmenn vart undan að leið- rétta þann misskilning að gjaldþrot Rover MG snerti á einhvern hátt Land Rover. „BMW keypti á sínum tíma Land Rover, Rover og Mini og seldi fljótlega frá sér fyrst Rover og síðan Land Rover, en vel að merkja til sitt hvors aðilans. Af þessum fram- leiðendum hélt BMW því eftir ein- ungis Mini,“ segir Heiðar J. Sveins- son, forstöðumaður sölusviðs B&L. „Þegar eignarhald breytist jafn ört og raun ber vitni, er e.t.v. ekkert að furða þótt einhver misskilningur eigi stað við þessar aðstæður, en öfugt við Land Rover, sem var keyptur af öðr- um bílaframleiðanda, þá keyptu fjár- festingaraðilar Rover MG. Land Rover hefur á hinn bóginn sjaldan gengið betur. Nýi Discovery 3 jeppinn hefur hlotið afar góðar viðtökur, bæði í Evr- ópu og Bandaríkjunum og í sumar koma tveir nýir úrvalsjeppar á mark- að til viðbótar, nýr Range Rover ásamt Range Rover Sport.“ Rover ekki sama og Land Rover Range Rover Sport kemur á markað í sumar. HVERGI í heiminum er búist við eins miklum vexti í bílasölu og í Kína. Þess vegna reyna allir bíla- framleiðendur að koma sér fyrir á markaðnum því þar er eftir miklu að slægjast. Nýjasta útspil Audi heitir A6L. Nýr Audi A6 selst vel á flestum mörkuðum í Evrópu, ekki síst vegna stærðar sinnar, en hann er 4,91 m á lengd, og nálgast því mjög stóra bróður A8 í stærð. Kínverjar eru yfirhöfuð ekki miklu hærri en Evrópumenn, nema síður sé, en engu að síður hefur Audi ákveðið að bjóða lengda útgáfu í Kína, og eingöngu í Kína. A6L heitir hann og L-ið stendur fyrir „Long Wheelbase“, langt hjólhaf. Bíllinn verður framleiddur í Changchun verksmiðjunni í Kína. Audi gefur ekki mikið upp um bíl- inn en þó er ljóst að minnsta gerð- in af A6L verður með 10 cm lengra hjólhafi en venjulegur A6, sem þýðir hjólhaf upp á 2,94 m, sem nýtist einkum farþegum í aft- ursæti í formi meira rýmis. Þar með verður svipað fótarými í aft- ursætum A6L og venjulegum A8, BMW 7 og Mercedes-Benz S. Kín- verjum standa líka til boða fjór- hjóladrifsútgáfur og vélarnar verða allt aðrar en í Evrópu, t.a.m. engar dísilvélar og 3ja l vél úr fyrri gerð A6 í stað 3,2 l vélarinnar sem er í nýjustu gerðinni, og auk þess fjögurra strokka vél sem er að finna í Golf GTI. Lengri Audi A6 fyrir Kína Minnst með 10 cm lengra hjólhafi en venjulegur Audi A6. Svipað fótapláss er í aftursætum og í A8 eða BMW 7-línunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.