Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 16
16 B FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar Amco-Veba bílkranar Soosan fleygar Gazella sendibílar 4x4 Gazella flokkabílar 4x4 Marcolin yfirbreiðslur Fligel vélavagnar FH skotbómulyftarar Linzer keðjur: Belti, rúllur o.fl. Fliegl malarvagnar Fliegl gámagrindur Frystivagnar o.fl. Hraungörðum 2-4, Hafnarfirði, sími 565 2727 www.bilhraun.is Sími 565 2727 H usqvarna kom æðinu af stað. Þeir bera að miklu leyti ábyrgð á því að mótó- kross- og endúróíþróttin varð almenningseign og í kringum 1965 áttu þeir bransann með húð og hári. En á áttunda áratugnum völtuðu japönsku risarnir Honda, Suzuki, Yamaha og Kawasaki yfir sænsku (og síðar ítölsku) Husqvarna- verksmiðjurnar og hefur Husqvarna aldrei borið sitt barr eftir það. Fjár- hagsörðugleikar, slæm framleiðsla og gjaldþrot hafa riðið yfir „Húskann“ síðustu ár. En það eru teikn á lofti um að þetta sé að breytast fyrir alvöru. Aukið fjármagn, góð hönnun, stórbætt gæðaeftirlit og nýir heimsmeistaratitl- ar gefa manni ástæðu til að ætla að Husqvarna sé loks að stimpla sig aftur inn sem alvöru þáttakandi í torfæru- hjólabransanum. Ein afurð ítölsku verksmiðjanna er WR 250-endúróhjól- ið. Tvöföld upprisa Ekki er nóg með að menn þykist sjá teikn þess að Husqvarna-verksmiðj- urnar séu að rísa upp frá dauðum. Gagnstætt æði almennri skoðun manna um annað eru til þær kenning- ar, studdar sölutölum, að tvígengishjól séu langt því frá dauð úr öllum æðum. Tilfellið er nefnilega að eins og kostir fjórgengishjóla eru margir hafa þau aldrei náð sömu snerpu og léttleika og tvígengishjólin og eru margir sem meta þá eiginleika meira en nokkuð annað. Husqvarna WR 250 er tvígeng- ishjól í endúróflokki, útbúið góðum ljósabúnaði þannig að hjólið fær götu- skráningu. Ekki það að það sé líklegt (né skynsamlegt og því síður skemmti- legt) að mann langi í innanbæjarum- ferð á slíku tæki, en þetta gerir manni kleift að ferja gripinn til og frá línuveg- unum og fjallaslóðunum í gegnum byggð án vandræða. Eitt það fyrsta sem maður tekur eftir þegar maður sest á WR-ið er hversu hátt sætið er miðað við önnur hjól eða 965 mm borið saman við 925 mm á KTM 250. Mjög gott fyrir stóra (193 cm) og þunga (0,094 tonn) ökumenn en líklegt að smærri ökumenn þurfi að lækka still- ingarnar á hjólinu. Stýrið var hins veg- ar of lágt og aftursveigt fyrir minn smekk, þannig gekk mér illa að halda olnbogunum uppi og líklegt að maður fengi sér fljótt hærra stýri sem félli betur að annars ágætu umhverfi fyrir ökumanninn. Risastórt vinnslusvið en einum gír of lítið Tvígengisvélin hefur eitt magnað- asta vinnslusvið sem ég hef prófað á tvígengisvél. Alls staðar er heilmikil vinnsla og ekkert dautt svæði, allt frá kjallara lengst upp á húsþak. Það sem hins vegar vantar sárlega er 6. gírinn því mótorinn hefur alla burði til að toga mun lengra og þannig er hámarks- hraði þessa hjóls aðeins um 105 km/ klst. Það sem vegur aðeins á móti er að vinnslusviðið er breitt og þú getur haldið hjólinu lengur á snúningi án þess að skipta um gír. Sjálfsagt mætti gera einhverjar tilraunir með aðra stærð af tannhjólum en þar felast að- eins takmarkaðir möguleikar. Aflið er jafnt og línulegt en það er nóg af því og togið hressilegt þannig að líklegt er að vinnslan henti betur þeim sem eru lengra komnir í sportinu. Það er því svo að maður finnur það fljótt að Hus- qvarna hafði keppni í huga þegar það smíðaði þetta hjól, þannig eru aksturs- eiginleikarnir; léttir og snarpir. Sama keppnishugsun hefur verið uppi þegar öxlarnir í fram- og afturdekkinu voru smíðaðir en þeir eru, eins og maður sér svo gjarnan á keppnishjólum, svokall- aðir „quick release“ og gera manni kleift að rífa gjarðirnar undan á auga- bragði. Ef þú ert kominn vel yfir ferm- ingaraldurinn er líklegt að þú kveikir strax á perunni þegar menn tala um evrópska aksturseiginleika. Þar er ver- ið að skírskota til þeirra eiginleika eldri evrópskra hjóla að vera afar góð og stabíl í beinni aksturslínu á mikilli ferð. Þegar kom svo að því að beygja voru þau fjandanum erfiðari í umgengni. Þeir sem ætla að heimfæra þetta upp á evrópsk hjól í dag (s.s. GasGas og KTM) hafa greinilega ekki ekið einu slíku nýverið. Þau láta öll vel að stjórn, í allar áttir, og Husqvarna er þar engin undantekning. Fjöðrunin virðist vera fremur stíf og enn og aftur rennir það stoðum undir þá kenningu að gallharð- ur keppnismaður hafi hannað græjuna. Fjöðrunin vinnur þokkalega úr minni höggum, framendinn á það til að vera lítið eitt fljótandi, en það eru stóru höggin sem fá fjöðrunina til að láta ljós sitt skína. Stórar holur, skurðir og lending eftir stökk – fjöðrunin hlær að þessu öllu. Fjöðrunin hentaði mér mjög vel en líklegt að léttari menn (ná- lægt 75 kílóum) þurfi að vinna eitthvað með hana, jafvel fá sér mýkri gorma ef þeir ætla að fá sem mest út úr fjöðr- uninni. Hvað stöðugleika á ferð varðar virðist hjólið skipa sér einhvers staðar milli keppninautanna í þessum flokki (KTM 250 og GasGas 250) en ég hef ekki nóga reynslu af þeim hjólum til að segja nákvæmlega, aðeins að hjólið virðist ekki gera neitt óvænt á ferð. Husqvarna WR er svolítið líkt Yamaha WR að því leyti að það ber þyngdina dálítið ofarlega og því gætu menn orðið meira varir við kílóin í beygjum en ef þyngdarpunkturinn væri neðar, þó ekki nóg til að halda aftur af manni þegar maður hendir hjólinu til. Sætið er frekar hart og hjólið hlýtur að vera eitt grennsta hjól í sínum flokki. Enn og aftur hentar þetta best snöggum og vönum ökumönnum en síður þeim sem vilja sitja mikið og dóla sér í rólegheit- unum. Bremsurnar eru frá Brembo og virka mjög vel, hafa gott viðbragð og skila góðri tilfinningu. Bremsudiskur- inn að aftan er heill, þ.e.a.s. ekki með holum eða raufum og er mjög óvenju- legt að sjá það í dag. Tilgangur slíks fyrirkomulags er að auka endingu og virkni bremsuborðanna í drullu- og bleytuskilyrðum sem eru íslenskum ökumönnum ekki alveg ókunnug. Hjól- ið kemur ekki með glussakúplingu heldur gamaldags vír og þótt hún sé þar af leiðandi ekki sú léttasta í brans- anum er hún einföld og skilar sínu með sóma og þannig er óhætt að gefa öllum stjórntækjum hjólsins toppeinkunn. Þótt evrópsk hjól hafi ekki sama lýtalausa frágang og þau japönsku er Husqvarna í heildina vel smíðað hjól. Sætið er haganlega fest með einni skrúfu sem losa má með hendinni og kippa sætinu þannig af á augabragði og það virðist í heildina þægilegt að vinna í hjólinu. Ljósin, hraðamælir og flautan góða virkuðu alveg eins og lög gera ráð fyrir en ég var ekki lengi að rífa speglana af. Í heildina er WR 250 heilsteyptur pakki fyrir endúrómenn en eins og Dagbók drullumallara Husqvarna WR250 — gamall konungur rís upp frá dauðum Husqvarna býður upp á mjög breiða línu tvígengis- og fjórgengishjóla og eru endúróhjólin á hvítum götunúmerum. Husqvarna WR 250 er dæmigert keppnishjól, kraftmikið og stíft. Bremsurnar virkuðu vel, meira að segja í vatns- og drullubrölti. Takið eftir því að tannhjól og keðjan eru hægra megin á hjólinu öfugt við önn- ur mótorhjól. Þrátt fyrir að vera ekki alveg ný af nálinni er hönnun hjólsins með ágætum og frágangurinn mjög góður. „Húskinn“ er afar mjór sem hjálpar til við að klemma hjólið með fótunum. Vél: 249cc vatnskæld, tvígengis. Gírar: 5. Bensíntankur: 10,2 lítrar. Sætishæð: 965 mm. Lengd milli hjóla: 1.465 mm. Framfjöðrun: 46 mm Marzocchi. Afturfjöðrun: Sachs. Fram/afturbremsa: 260 mm/220 mm. 2005 HUSQVARNA WR 250cc Ljósmynd/Sigurður Jökull

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.