Morgunblaðið - 15.04.2005, Síða 18
18 B FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
„ÞEIR munu draga okkur uppi, því
miður. Keppnistímabilið er langt og
þeir vita hvað til þarf. Ég er því sann-
færður um að þeir munu verða aftur í
fremstu röð,“ segir Alonso. „Hins
vegar kvíði ég engu og mitt lið er stöð-
ugt að bæta bílinn og í pípunum eru
frekari umbætur á honum. Því er ég
fullur sjálfstrausts,“ bætir hann við.
Alonso vann síðustu tvö mót í röð – í
Malasíu og Barein – og er sem stend-
ur efstur í stigakeppninni um heims-
meistaratitil ökuþóra. Hefur tíu stiga
forskot á næsta mann, Jarno Trulli
hjá Toyota, en þeir voru liðsfélagar
hjá Renault undanfarin tvö ár.
Heimsmeistarinn Michael Schumach-
er hjá Ferrari hefur hins vegar af að-
eins tveimur stigum að státa. Mætir
því til leiks í San Marínókappakstur-
inn á heimavelli Ferrari í Imola eftir
rúma viku 24 stigum á eftir Alonso.
Hann neyddist til að hætta keppni í
Barein á dögunum vegna bilunar í
nýjum keppnisbíl sínum en bilanir í
Ferrarifáknum hafa verið sjaldgæfar
í seinni tíð. Því er spurt hvort það hafi
verið óðagot af Ferrari að taka nýja
bílinn í notkun mánuði fyrr en til stóð.
Að minnsta kosti örvæntingarfull til-
raun til að reyna að laga stöðu sína
þar sem bíllinn frá í fyrra – sem not-
aður var í fyrstu tveimur mótunum –
stóðst bílum helstu keppinautanna
ekki snúning.
„Eiga sæg af ljósmyndum
af bílnum okkar“
Hvað sem því líður er Alonso á því
að hann verði að notfæra sér yfirburði
Renaultbílsins meðan þeir eru fyrir
hendi til að eiga möguleika gegn
Schumacher í keppninni um heims-
meistaratitilinn. „Það er svigrúm til
að betrumbæta bílinn okkar, en
minna en hjá hinum liðunum. Allir
reyna að kópíera það besta úr okkar
bíl, það er gangurinn í formúlunni.
Þegar menn mæta til fyrsta mótsins
finna þeir út nýjungar hjá keppinaut-
unum og draga af því lærdóm. Hin lið-
in eiga til dæmis núna sæg af ljós-
myndum af bílnum okkar og eðli
málsins samkvæmt munu yfirburðir
okkar minnka með hverju mótinu
sem líður. Við munum ekki verða und-
ir en forskotið á hin liðin mun minnka.
Vonandi höldum við þeim þó aftan við
okkur eitthvað áfram.
Sem stendur hef ég engar áhyggj-
ur. Við unnum heimavinnu okkar í
vetur mjög vel og erum með afar öfl-
ugan og samkeppnisfæran bíl milli
handa,“ segir Alonso. Og bætir við að
Renaultbíllinn muni skarta nýjum og
„einkar athyglisverðum“ loftaflsbún-
aði í kappakstrinum í Imola. Ásamt
því fær hann nýja uppfærslu af
keppnismótornum í heimamóti sínu;
Spánarkappakstrinum í Barcelona 8.
maí. „Liðið leggur því hart að sér til
að halda velli og ég veit því ekki hvort
hin liðin muni draga okkur uppi,“ seg-
ir Alonso. Hann segist enn álíta að
Schumacher sé líklegastur til að
verða heimsmeistari í ár – annaðhvort
af annálaðri hógværð sinni eða til að
setja meiri pressu á Ferrari. Og dragi
ríkjandi meistari Renaultþórinn uppi
mun keppnin standa milli annars veg-
ar verðandi konungs og yngsta meist-
ara formúlunnar og hins vegar núver-
andi meistara sem lagt hefur að velli
alla þá sem gert hafa sig líklega til að
hrifsa af honum heimsmeistaratign-
ina á öldinni. Öruggt er að forystan í
stigakeppni ökuþóra verður í höndum
Alonsos þegar formúlusirkusinn
mætir til leiks á heimavelli hans í
Barcelona. Og jafnvel einnig í Món-
akó hálfum mánuði seinna, ef ekki
lengur. Alúðlegi Spánverjinn – ein-
arður stuðningsmaður Real Madrid í
fótboltanum þótt frá Oviedo í Astúríu
sé – er þó varfærinn og segir að júlí-
mánuður muni miklu ráða um gæfu
og gengi í keppni ökuþóra.
„Miklu varðar að standa sig í júlí,
þá fara fram fjögur mót. Eftir það eru
ekki nema sex mót eftir af vertíðinni.
Og ég er fullur sjálfstrausts því liðið
mun þróa bílinn og bæta jafnt og þétt.
Við munum gera allt til að vinna tit-
ilinn en það skýrist sjaldan fyrr en
undir lokin hverjir hrósa sigri í Form-
úlu 1,“ segir ökuþórinn ungi.
Yngstur til að standa á efsta
þrepi verðlaunapalls
Vegna velgengni Alonsos hafa vin-
sældir formúlunnar stóraukist á
Spáni. „Formúla 1 hafði enga þýð-
ingu, var eins og einhver bandarísk
íþrótt sem sást aldrei í sjónvarpi,“
segir hann. Allt þar til hann varð
yngstur ökuþóra til að hefja keppni af
ráspól – í Malasíu fyrir tveimur árum
– nutu mótorhjólakappakstur og rall
margfalt meiri vinsælda í heimalandi
hans. Og þar til hann kom til sögunn-
ar var annað sæti Alfonsos de Port-
agos á Ferraribíl í Silverstone árið
1956 langbesti árangur sem spænsk-
ur ökuþór hafði náð í Formúlu 1. Það
breyttist er Alonso vann ungverska
kappaksturinn 2003 en þar með varð
hann jafnframt yngsti ökuþór sög-
unnar til að standa á efsta þrepi verð-
launapalls í Formúlu 1.
Nú á jafnvel fótbolti í vök að verjast
í keppninni við Alonso um athygli fjöl-
miðla. Hefur hann ítrekað rutt honum
af forsíðum blaða á mótshelgum, nú
síðast með því að vinna tvö síðustu
mót formúlunnar. Svo mikilli hylli
hefur hann náð að hús foreldra hans í
borginni Oviedo á Norður-Spáni er
umsetið öllum stundum af áhangend-
um hans.
Velgengni Schumachers hafði
samskonar áhrif á vinsældir formúl-
unnar í Þýskalandi. Margt er líkt með
ferli þeirra tveggja. Alonso hóf t.d.
keppni í körtuakstri þriggja ára en
Schumacher fjögurra. Og meðan
heimsmeistarinn býr í faðmi fjöl-
skyldunnar í svissneskri sveit kýs
Spánverjinn ungi einnig kyrrðarlíf
fjarri löndum sínum. Flestir ökuþórar
hafa lifað lífi milljónamæringa í
Mónakó með lystisnekkjur og lúxus-
bíla í hlaðvarpanum en hann hefur bú-
ið sér heimili í ensku háskólaborginni
Oxford. „Það er fullkomið að búa þar.
Ég þekkist kannski einu sinni í mán-
uði, fer áreitislaust í stórverslanir eða
í sjoppuna til að kaupa mér blað. Er
þar í ró og næði en heima á Spáni
hangir fólk við hús foreldra minna svo
þar væri enginn friður. Veðrið er
stærsta vandamálið við England,“
segir Alonso.
Fernando Alonso segist búast við því að Ferrari láti senn aftur til sín taka í keppni í Formúlu 1, eftir afleitt gengi í upphafi keppnistíðar. Ágúst Ásgeirsson skrifar að
Alonso segi að bæði liðið hans, Renault, og hann sjálfur séu reiðubúin að taka þeirri áskorun þegar hún lætur á sér kræla.
Reuters
Alonso á undan Schumacher í Barein. Er myndin táknræn fyrir tímabilið eða gefur Schumacher í?
Alonso tilbúinn að kljást við Schumacher
Alonso fagnað eftir sigur hans í Malasíu í heimabænum Oviedo.
Alonso hafði ástæðu til að brosa því hann sigraði í í Barein 3. apríl sl.
FERÐASKRIFSTOFAN Ísafold efn-
ir til sérferðar fyrir 20–30 manna
hóp á formúlukeppnina á Nürburg-
ring í Þýskalandi helgina 27.–30.
maí. Flogið verður með Flugleiðum
til Frankfurt á föstudegi og til baka
á mánudegi. Áhorfendasvæðið þar
sem hópurinn verður er við svo-
kallaða Dunlopbeygju (Südkurve).
Fylgst verður bæði með undanrás-
unum og keppninni sjálfri, en einnig
skyggnst bak við tjöldin eftir því
sem færi gefast. Gist er á Hotel Ei-
felstern í Bitburg, þar sem hluti af
starfsliðinu við formúluna dvelur
einnig, og tilvalið er að ræða málin
við liðið á kvöldin yfir góðu glasi af
Bit.
Fararstjóri er Jón Baldur Þor-
björnsson, menntaður bíltækni-
fræðingur frá München, sem þekk-
ir mjög vel til í Þýskalandi. Ólafur
Guðmundsson hjá LÍA verður einn
af dómurunum í þessari keppni og
hópurinn mun verða í sambandi við
hann meðan á keppninni stendur.
Enn er óselt í nokkur sæti í ferðina.
Sérferð á F-1 á Nürburgring
TENGLAR
...........................................
www.isafoldtravel.is