Morgunblaðið - 03.06.2005, Síða 6

Morgunblaðið - 03.06.2005, Síða 6
6 B FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar Götuhjól (roadster) Þessi flokkur hefur verið að vaxa að undan- förnu. Hér er um hin klassísku mótorhjól að ræða, sem eru laus við vindhlífar og eru þess vegna oft með viðskeytið „naked“. Mikið er lagt upp úr útliti þeirra eins og í hippaflokki en þau hafa þó betri ásetu en þeir. Erlendis er þessi flokkur einnig kallaður Café Racer en þau henta vel þeim sem vilja hjóla með hléum, þ.e. stoppa reglulega og spjalla við ferðafélagana. Gott dæmi um nakið götuhjól er Yamaha XJR1300. Sporthjól (racer) Sporthjólin eru svokallaðar R-týpur og oft mjög öflug og létt. Algengt er að þau séu vel yfir 100 hestöfl jafnvel þó að sum þeirra séu aðeins um 600 rúmsentimetrar. Áseta er þannig að ökumaður hallar mikið fram á stýrið til að taka á sig lítinn vind og til að fá meiri þunga á fram- dekkið. Henta vel til brautaraksturs en því mið- ur er engin slík aðstaða hérlendis enn sem kom- ið er. Kawasaki ZX 6RR er ofurlétt og kraftmikið með eiginleika keppnishjóls. Ofursporthjól (supersport) Sífelld keppni framleiðanda um hver getur framleitt öflugasta mótorhjólið bjó til þennan flokk. Hér er um stór sporthjól að ræða með mótor vel yfir 1.000 rúmsentimetrum. Sum þessara hjóla eru með hámarkshraða yfir 300 km á klst. Henta öllum þeim sem á annað borð hafa skynsemi til að ráða við öll þau hestöfl sem næstum jafnlétt og krossari. Flest eru þau með fjórgengisvélum og ljósabúnaði sem gerir akst- ur á vegum mögulegan. Þessi hjól henta vel þeim sem vilja geta komist hvert á land sem er á mótorhjóli, jafnt á vegum sem vegleysum. Eitt af vinsælli torfæruhjólum hérlendis er Yamaha WR426F. Vegahjól (funduro) Þessi mótorhjól hafa fengið þetta nafn vegna þess að þau henta jafnvel á malbiki og möl. Venjulega er hér um frekar stór torfæruhjól að ræða með vindkúpu til að taka mesta vindinn af ökumanni á langferðum. Sum þeirra eru tveggja strokka og vel búin. Þau henta vel til ferðalaga á Íslandi sem sést best á því að margir útlend- ingar sem hingað koma velja sér svona hjól til fararinnar. BMW F650 Dakar er hin almenna útgáfa hjólsins sem vann Dakar rallið. Ferðahjól (tourer) Þessi flokkur fer ört stækkandi og skiptist í nokkra hluta. Venjulega er hér á ferðinni stórt og vel búið hjól með hliðartöskum og tilheyr- andi. Strokkarnir eru oftast 4–6 og sprengirými yf- ir 1.000 rúmsentimetrum. Þau eru hönnuð til að fara vel með tvo farþega og því er aftursæti ekki síður þægilegt á ferðahjólunum. Stærstu hjólin eru þess vegna kölluð sófasett. Henta vel til langferða fyrir tvo ef því er að skipta. Honda ST1300 Pan European er líklega hið fullkomna ferðahjól. Þ etta eru meira en helmingi fleiri hjól en flutt voru til landsins allt árið í fyrra sem þó var fyrir ofan meðallag. Sam- hliða þessu hefur orðið mikil aukning mótorhjólaréttinda og var árið í fyrra metár með 450 próf. Eflaust eru margir að velta fyrir sér mótorhjólakaupum og hvað hæfi sér og því ekki úr vegi að skoða aðeins hvaða flokkar eru í boði. Klifurhjól (trial) Nýjasta dellan á Íslandi eru hin svokölluðu klifurhjól. Þau eru sérlega létt og meðfærileg hjól ætluð til keppni í klifri. Venjulega er mót- orinn um það bil 250 rúmsentimetrar og kílóin í kringum 60. Þau henta aðeins þeim sem hafa mikla færni í akstri og eru vel á sig komnir. Gas Gas er eitt þekktasta merkið í klifurhjól- unum. Krossarar (motocross) Krossarar eru hrein og klár leiktæki og mikið notuð til keppni í torfæruakstri mótorhjóla. Þau eru venjulega tvígengishjól og eru létt og með- færileg með mikla fjöðrunargetu sem hentar vel í þeim hamagangi sem þau eru ætluð fyrir. Þau henta vel yngra fólki sem er líkamlega vel á sig komið. Hægt er að fá krossara jafnvel niður í barna- stærðir eins og þetta Kawasaki KX65. Torfæruhjól (enduro) Torfæruhjól eru í bland ferðatæki og leiktæki enda er hægt að fá torfæruhjól í dag sem eru þarna eru í boði, en þau geta farið upp undir 200. Suzuki GSK1300R Hayabusa er eitt hrað- skreiðasta hjól heimsins með vel yfir 300 km há- markshraða. Hippi (custom/cruiser/chopper) Eins og sjá má á ensku heitunum er hér um stóran flokk að ræða sem fengið hefur samheitið hippi á íslensku. Harley Davidson er hinn upp- haflegi hippi en svo hafa margir komið og reynt að líkja eftir þeim, oft með góðum árangri. Í þessum flokki er einnig að finna chopper hjól en það eru mótorhjól sem eigandinn hefur breytt og lagað að sínum hentugleikum, oft með því að losa þau við óþarfa prjál. Hippi er fyrir alla sem hafa gaman af mótorhjólum en hentar síður til langferða. Hinn upphaflegi hippi er að sjálf- sögðu Harley Davidson og hér er gefur að líta FXSTB Night Train útgáfuna. Fornhjól (old timer) Ekki má fjalla um flokka mótorhjóla og sleppa fornhjólum. Fornhjól telst slíkt þegar það hefur náð 25 ára aldri. Hinn dæmigerði eig- andi fornhjóla er búinn að hjóla í mörg ár og hef- ur gaman af því að vinna sjálfur við uppgerð hjólanna. Sem betur fer er þó aldrei hægt að flokka öll mótorhjól. Gott dæmi um það er til dæmis nýja MT-01 hjólið frá Yamaha sem er nokkurs konar ofursporthjól en með 1700 rúm- sentimetra V2 vél úr hippa frá sama framleið- anda. Þótt búið sé að finna upp hjólið mörgum sinnum er alltaf eitthvað nýtt og spennandi handan við hornið. Njáll Gunnlaugsson Aldrei meira framboð mótorhjóla Yamaha XJR 1300. Triumph Tiger 100 1966. Kawasaki ZX-6RR. Honda ST1300 Pan European. Aldrei hefur meira verið flutt inn af mótorhjólum til landsins en einmitt þessa dagana. Samkvæmt saman- tekt tímaritsins Bílar og sport voru 573 mótorhjól og torfærutæki kom- in til landsins 15. apríl og um 100 stykki í viðbót væntanleg. Suzuki GSX 1300R Hayabusa. Honda-GL1800 2001. Harley Davidson FXSTB-NightTrain. Yamaha WR-126F. Gasgas-klifurhjól. Kawasaki KX65. BMW-F650GS-Dakar. AUDI A6 quattro er besti bíll- inn með drifi á öllum hjólum árið 2005 í flokki lúxusbíla. Í öðru sæti varð svo Audi A8 quattro. Þessi varð niður- staða lesenda þýska bíla- blaðsins Auto bild alles allrad. Rúmlega 34.000 lesendur tóku þátt í könnuninni. A3 quattro, A4 quattro og TT Coupé quattro lentu allir í öðru sæti í sínum flokki. Valið stóð á milli alls 102 gerða bíla íníu flokkum. Fyrir aldarfjórð- ung kynnti Audi Quattro- sídrifið á bílasýningunni í Genf. Quattro-sídrifið hefur síðan þá verið tákn góðs veg- grips og stjórnunar, lipurleika og öryggis. Audi býður nú 74 útgáfur af bílum með drifi á öllum hjólum. Undanfarinn aldarfjórðung hafa rúmlega 1,8 milljónir bíla búnir sídrifi verið smíðaðir hjá Audi. Audi A6 kjörinn bestur 4x4-lúxusbíla Audi A6 quattro.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.