Morgunblaðið - 23.06.2005, Síða 1

Morgunblaðið - 23.06.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 167. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Á framandi slóðum Tónlistarmaðurinn Antony Hegarty bíður spenntur eftir Íslandsförinni | 52 Viðskipti, Íþróttir og Málið Viðskipti | Bankaútibúum mun fækka  Áhættusækinn öldungur Íþróttir | Detroit Pistons sýnir hjarta meistarans Árni Þór til Hauka Málið | Línuskautar  Gallabuxur að eilífu  Gott að borða gulrótina Tókýó. AFP. | Þeir sem láta sig dreyma um að ræða við fræga fólkið, sögufræga einstaklinga og aðra sem hafa sett mark sitt á mannkynssög- una geta nú tekið gleði sína því að Japanir hafa fundið lausnina. Smíðuð hefur verið gína í fullri lík- amsstærð, sem hlotið hefur nafnið „Rabbi“. Hún er búin innbyggðri sýningarvél sem getur líkt eftir and- liti og rödd ýmissa manna. Andlit hennar er aðeins auður skjár þar til kveikt er á honum og DVD- myndir birtast á skjánum. Séu menn í skapi fyrir góðar sam- ræður kveikja þeir á þar til gerð- um hátölurum. „Þetta er tæki sem sýnir andlit, yfirbragð og munnhreyfingar manna,“ segir talsmaður fyrirtæk- isins sem þróaði gínuna. „Það kallar fram myndir sem eru svo raunveru- legar að það er engu líkara en manneskjan sé holdi klædd að ræða við þig.“ Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segist vilja framleiða sögufrægar persónur á borð við Kleópötru, drottningu Egyptalands. „Rabbi“ er ekki enn seldur á al- mennum markaði heldur þarf að sérpanta hann, en framleiðendurnir binda vonir við að hann verði eftir- sóttur í skemmtigarða og sýningar- sali. „Rabbi“ til þjónustu reiðubúinn Kleópatra Madríd. AP. | Öldungadeild Spánarþings felldi í gær tillögu um lögleiðingu hjónabands samkyn- hneigðra. Minnihlutastjórn sósíalista vill að samkyn- hneigðum verði leyft að ganga í hjónaband og ætt- leiða börn. Tillagan hafði þegar verið samþykkt í fulltrúadeildinni en íhaldsmenn í Þjóðarflokknum (PP), sem er í stjórnarandstöðu, og þjóðernissinn- ar frá Katalóníu sameinuðust um að fella tillöguna með 131 atkvæði gegn 119. Nú þarf ríkisstjórnin að taka málið aftur fyrir í fulltrúadeildinni og tryggja því framgang þar. Lokaniðurstöðu er að vænta í næstu viku en til- lagan verður að öllum líkindum samþykkt að nýju og víst er talið að henni muni fylgja svokallað „samviskuákvæði“ það er að segja, borgardómur- um verði gefið það olnbogarými að þeir megi segj- ast alls ekki geta, samvisku sinnar vegna, sam- einað samkynhneigða í hjónaband. Þá skuli þeir vísa parinu til annars dómara. Samþykki fulltrúadeildin tillöguna verður Spánn þriðja Evrópuríkið til að lögleiða hjónaband samkynhneigðra á eftir Hollandi og Belgíu. Sam- kynhneigð pör á Spáni myndu þá einnig öðlast sama rétt til ættleiðingar og gagnkynhneigð pör. Tillaga felld um hjónabönd sam- kynhneigðra Í KRINGUM sjötíu unglingar frá Vinnuskóla Reykjavíkur vinna að því í sumar að fegra umhverfið á einu helsta útivistarsvæði íbúa höfuðborgarsvæðisins, Heiðmörk. Að sögn Sigmars Hjartarsonar, yfirleiðbeinanda hjá Vinnuskólanum, vinna krakkarnir við að snyrta til, tína rusl og leggja göngustíga en auk þess stendur til að gróðursetja um 150 þúsund plöntur. Sigmar segir þó að þurrkar geti komið í veg fyrir að það markmið náist. Krakkarnir koma alls staðar að úr Reykja- vík og voru að ljúka níunda bekk í vetur. Morgunblaðið/Þorkell Stefna á að gróðursetja 150 þúsund plöntur NOKKUR hætta stafar af gríðar- legum fjölda sílamáva við Kefla- víkurflugvöll en takmarkaðar rannsóknir hafa verið gerðir til að finna leiðir til að fækka þeim. Þetta segir Gunnar Þór Hall- grímsson, doktorsnemi í líffræði við Háskóla Íslands. Gunnar vinnur nú að doktors- verkefni í fuglavistfræði og er megintilgátan að nota megi tófu til að fækka sílamávum við flugvöll- inn. Hann segir að varpinu við völl- inn hafi verið gefinn lítill gaumur þar til árið 1974, en þá varð þota frá Loftleiðum að lenda strax eftir flugtak, þar sem kviknaði í hreyfli hennar eftir að mávur sogaðist inn í hann. Um 37 þúsund mávar yfir sumarið „Þá voru aðeins um eitt til tvö þúsund mávar þarna en nú eru þeir um 37.000 yfir sumartímann og er þetta langstærsta mávavarp á Íslandi. Líffræðistofnun Há- skóla Íslands var eftir þetta fengin til að finna aðferðir til að fækka mávunum. Um miðjan níunda ára- tug síðustu aldar varð síðan ljóst að fuglunum hafði fjölgað gríðar- lega og síðan hefur verið unnið að fækkun þeirra.“ Gunnar segir að menn séu í vinnu allt sumarið við að fækka mávunum með skotveið- um, en þeim hafi þó fjölgað. Hagkvæmt að nýta tófuna Varplendið við völlinn þéttist stöðugt en útbreiðsla þess hefur minnkað og tengir Gunnar það við að tófur hafi í auknum mæli komið inn á svæðið. Hann kannar því hvort nýta megi tófuna gegn máv- unum og segir að það yrði hag- kvæm leið. Þá rannsakar hann einnig hvort tófan hafi áhrif á þéttleika mófugla, en kenningar hafa verið settar fram um það. Nú er refalaust ár og allar tófur skotnar, en Gunnar vonast til að þær verði friðaðar frá næsta vetri svo fylgjast megi með breytingum á fuglalífi í kjölfar þess. Verkefnið hófst í fyrra og mun taka um fimm ár. Það er sam- starfsverkefni Háskólaseturs Suðurnesja, Náttúrustofu Reykjaness, Náttúrufræðistofn- unar Íslands og Líffræðistofnunar Háskólans. Þá hefur Flugmála- stjórn styrkt stofnstærðarrann- sóknirnar. Gunnar er starfsmaður Náttúrustofu en hefur aðstöðu í Háskólasetrinu, en Morgunblaðið fjallaði um opnun húsnæðis þar í síðustu viku. Gunnar segir að rannsóknin hafi gengið mjög vel og að nú þegar hafi fengist mjög góðar vísbendingar um að tófan hafi mikil áhrif á útbreiðsluna. „Við teljum nokkuð líklegt að við getum haldið mávunum frá flug- vellinum. Hins vegar stjórnast stofnstærðin að miklu leyti af fæðuframboði og ég er ekki viss um að tófan nái að halda stofnin- um niðri. Við skulum vona það besta.“ Rannsaka hvort beita megi tófu gegn fjölgun sílamáva á Miðnesheiði Mávar valda hættu við Kefla- víkurflugvöll Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is                     !"# Genf. AFP. | Rafmagnsbilun lamaði í gær allt lest- arkerfið í Sviss og varð til þess að um 100.000 manns komust ekki leiðar sinnar á háannatíma. Þetta er alvarlegasta rafmagnsbilun í sögu sviss- neska lestarkerfisins en rafmagn komst aftur á að þremur klukkustundum liðnum. AP Strandaglópar í Sviss

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.