Morgunblaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Brunnir bílar á Bíladögum Bílar á morgun ÚR VERINU LEYFILEGUR afli helstu kvóta- bundinna fiskitegunda á næsta fisk- veiðiári verður ígildi samtals 354.000 tonna af þorski. Það er hið sama og gildir fyrir þetta ár. Áætlað útflutningsverðmæti sjávarafurða á árinu 2006 er130 milljarðar króna, háð gengi, en gert er ráð fyrir því að það verði 122 milljarðar króna í ár. Hækkunin er fyrst og fremst vegna verðhækkana erlendis. Sjávarútvegsráðherra hefur und- irritað reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2005/ 2006 sem hefst þann 1. september nk. Leyfilegur heildarafli verður í öllum aðalatriðum í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinn- ar. Þannig verður heildarafli í þorski 198 þús. tonn, í ýsu 105 þús. tonn, ufsa 80 þús. tonn, karfa 57 þús. tonn, grálúðu 15 þús. tonn, steinbít 13 þús. tonn, keilu 3.500 tonn, íslenskri sumargotssíld 110 þús. tonn, úthafsrækju 10 þús. tonn og rækju í Arnarfirði 300 tonn. Frávik frá ráðgjöfinni eru þau að leyfilegur heildarafli í skrápflúru verður 3.500 tonn, 1.500 tonn um- fram ráðgjöf, í skarkola 5.000 tonn, 1.000 tonn umfram ráðgjöf, í sand- kola 4.000 tonn, 1.500 tonn umfram ráðgjöf, í löngu 5000 tonn, 500 tonn umfram ráðgjöf, í þykkvalúru 1.800 tonn, 200 tonn umfram ráðgjöf, í skötusel 2.500 tonn, 300 tonn um- fram ráðgjöf, í langlúru 2.400 tonn, 200 tonn umfram ráðgjöf, og í humri 1.800 tonn, eða 200 tonn umfram ráðgjöf. Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, sagði á blaðamannafundi í gær að við þessa ákvörðun hafi hann meðal annars tekið mið af fiskifræði sjómanna, en þó ekki þannig að gengið væri í berhögg við tillögur fiskifræðinga. Nauðsynlegt væri að taka mið af raunveruleik- anum úti á sjó og það væri líka þannig að sjómönnum og fiskimönn- um bæri nú orðið meira saman en áður. Miklar sveiflur slæmar Árni sagði að flatfisktegundirnar væru mikið í blandaðri veiði, meðafli með öðru, þannig að það skipti máli að vera ekki að búa til óþarfa þrýst- ing. Það væri einnig slæmt að vera með miklar sveiflur milli ára og því hefði hann heimilað meiri afla en fiskifræðingar hefðu ráðlagt. Hvað humarinn varðar sagði Árni að aukning þar helgaðist af því veið- arnar hefðu í ár gengið óvenju vel. Stofninn virtist vera sterkur og þrátt fyrir að kvótinn væri 1.500 tonn myndu að öllum líkindum veið- ast 1.800 vegna þess hve miklar aflaheimildir hefðu verið fluttar frá síðasta fiskveiðiári yfir á þetta. Fyrst menn væru á því að stofninn þyldi 1.800 tonna veiði á þessu ári og hann væri á uppleið, hlyti að vera óhætt að veiða jafnmikið á næsta fiskveiðiári. Litlar líkur á brottkasti Aðspurður um það hvort mikil aukning á ýsukvótanum á næsta fiskveiðiári gæti leitt til brottkasts á öðrum tegundum sagði Árni að svo gæti verið. Það gæti myndað ósam- ræmi milli tegunda. Hins vegar væri staðan sú með þorskinn að það væri það góð stærð á þeim fiski sem væri inni í veiðinni að menn hlytu að vera tregir til að henda honum. Ef minni árgangar væru að koma inn í þorsk- veiðina væri hættan meiri. „Ég held að menn geri allt sem þeir geti áður en þeir henda þorski af þeirri stærð sem er í veiðinni núna og verður væntanlega á næsta ári,“ sagði Árni. Hann sagði einnig að hann hefði ekki tekið afstöðu til hugmynda Hafrannsóknastofnunar um að breyta aflareglunni, en það væri mál sem þyrfti að skoða nánar. Aflaregl- an kveður á um að ekki skuli veidd meira en 25% af veiðistofni þorsks- ins, en Hafrannsóknastofnun telur það of hátt hlutfall. Lækkun hlut- fallsins mun minnka leyfilegan afla. Sami fiskafli næsta fiskveiðiár Útflutningsverðmæti áætlað 8 milljörðum meira en í ár 41+5(  6,   * , ,6  017 + (   1( ( ( 1 " 1 , 1  ,   017  , # $   %  & ' ( ) *! +,! %  -  *   *.  - )  * /)  $ )  * 0! 1#  !,. 2!3  4 5 4 6  4# 7       ! ! "# $% % % $% % &% &% % % '% %' &% %$ % % % & %$  #  # # # # # # # # # # # # # # #  # 81+#    ( 9 5  , LAUN mæld með breytingum á launavísitölu hafa hækkað um 6,6% á síðast liðnum tólf mán- uðum en á sama tíma hækkaði verðlag um 4,3%. Alþýðusam- bandið bendir á að kaupmáttur launa hafi því að meðaltali vax- ið um 3,6%. Skv. upplýsingum Hagstof- unnar mældist launavísitalan 265,9 stig í maí og hækkaði um 0,6% frá því í apríl. Að mati ASÍ er stóra breyt- ingin nú til komin vegna áhrifa ný- gerðra kjarasamninga ríkisins við op- inbera starfsmenn, sem komi inn í mælinguna með miklum þunga. „Gera má ráð fyrir að hækkun launavísitölunnar frá fyrra mánuði skýrist fyrst og fremst með kjara- samningum ríkisins við BHM, BSRB og framhaldsskólakennara.“ ASÍ bendir á að í þessari mælingu gæti ennþá áhrifa af tveimur kjarasamningsbundn- um launahækkunum á almenn- um markaði, þ.e. við gildistöku nýrra kjarasamninga í mars, apríl og maí í fyrra, og 3% um síðustu áramót. „Áhrif launa- hækkana í kjölfar samning- anna í fyrra fara nú dvínandi og má því búast við því að þau hverfi að mestu úr 12 mánaða breytingum vísitölunnar í næstu mæl- ingu. Ekkert í tölum Hagstofunnar bendir til launaskriðs á almennum markaði,“ segir í samantekt ASÍ. ASÍ bendir á að kaupmáttur launa hefur aukist um 3,6% Breytingarnar aðallega vegna hækkana hjá ríki Samningur ríkis og 24 BHM-félaga undirritaður. Morgunblaðið/Árni Sæberg FRAMKVÆMDASTJÓRN Sam- fylkingarinnar hefur komist að þeirri niðurstöðu að vel hafi verið staðið að framkvæmd kosninga á landsfundi flokksins í maí. Gunnar Svavarsson, formaður framkvæmdastjórnar, sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem þetta kemur fram. Þar segir einnig að unnið sé að úttekt á fram- kvæmd landsfundarins. Við skoðun á málinu hafi meðal annars verið rætt við framkvæmdastjóra flokksins, sem hafði yfirumsjón með kosningum á landsfundinum, og fleiri sem sáu um skipulagningu fundarins. „Jafnframt hefur málið verið rætt í framkvæmda- stjórn flokksins á fundum hennar í maí og júní,“ segir í tilkynningu Gunnars sem skrifuð er fyrir hönd framkvæmdastjórnarinnar. Þá segir þar að fullyrða megi að sjaldan hafi verið eins gott eftirlit á landsfundi með innskráningum og af- hendingu gagna. Almenn ánægja sé með það kosningakerfi sem notað var á fundinum, en kosningin var rafræn. Reynt hafi verið að hafa eins gott eft- irlit með rafrænu kosningunni og kostur var og var fylgst sérstaklega með ef menn voru lengur að kjósa en eðlilegt gat talist. „Samkvæmt því sem starfsmenn á fundinum segja var fylgst sérstaklega vel með því sem fram fór í varafor- mannskosningunni vegna þess að það var fyrsta kosningin á fundinum og þ.a.l. skipti máli að vel tækist til og allt gengi vel fyrir sig. Voru um 15 manns í eftirliti og umferðarstjórn í þeirri kosningu. Ekkert tilvik kom upp í varaformannskjörinu þar sem reynt var að kjósa fyrir aðra.“ Vinna úttekt á framkvæmd landsfundar Samfylkingar Segja að vel hafi verið staðið að kosningum TÓLF umsækjendur eru um starf talsmanns neytenda sem viðskipta- ráðneytið hefur auglýst laust til um- sóknar. Umsóknarfrestur rann út hinn 16. júní. Eftirtaldir sóttu um starfið: Drífa Sigfúsdóttir, viðskiptafræð- ingur, Elfur Logadóttir lögfræðingur og viðskiptafræðingur, Gísli Tryggva- son, framkvæmdastjóri, Guðfinna Jó- hanna Guðmundsdóttir hdl., Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunarforstjóri, Ingibjörg Björgvinsdóttir, ferðamála- fræðingur og líffræðingur, Jóhannes Gunnarsson, framkvæmdastjóri, Jóna R. Guðmundsdóttir, sálfræðing- ur, Kristín Færseth, deildarstjóri, Leo J.W. Ingason, forstöðumaður, Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýs- ingafræðingur og Sigurður Sigurðar- son, fararstjóri. Tólf sækja um starf talsmanns neytenda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.