Morgunblaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Safnið er opið í sumar Árleg flughelgi 25. og 26. júní Upplýsingar á www.flugsafn.is Hafnarfjörður | Hellisgerði, sem í áranna rás hefur verið eitt mikil- vægasta útivistarsvæði og sam- komustaður Hafnfirðinga, verður í kvöld vettvangur Jónsmessuhátíð- ar þar sem sambandi okkar mann- anna við álfa og aðrar vættir verð- ur fagnað. Huldufólkið er einmitt sérstaklega sýnilegt þetta eina kvöld ársins og er því meiningin að slá upp góðri veislu fyrir þessa feimnu vini mannanna. Dagskráin hefst kl. 10 í dag, en þá tekur Sigurbjörg Karlsdóttir sagnakona á móti leikskólabörnum og fræðir þau um álfa og dulúð Hellisgerðis. Þá leita börnin að óskasteinum. Í kvöld kl. 20 hefst síðan fjölskylduskemmtun þar sem m.a. koma fram Benedikt búálfur, Kvennakór Hafnarfjarðar undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg, söngkonurnar Jóhanna Guðrún og Kristbjörg Kari, heimstónlistar- diskó með Lázsló Hevesi og hol- lenska reggae-hljómsveitin Five4Vibes. Þá verða án efa ein- hverjir álfar á sveimi og götulista- hópur Vinnuskólans gæðir garðinn litríku glensi og gríni. Tvær álfabyggðir Marín Hrafnsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarð- ar, segir álfa ríkan hluta af menn- ingu Hafnfirðinga. „Við erum nýbúin að opna sýningu með hafn- firskum þjóðsögum þar sem m.a. er fjallað um álfa. Símon Jón Jó- hannsson þjóðfræðingur hefur ver- ið Byggðasafninu innan handar við að finna sér- hafnfirskar álfaþjóðsögur sem eru nú til sýnis í Siggubæ, alþýðubæ frá upphafi 20. aldar, sem er hluti af Byggðasafninu,“ segir Marín. „Erla Stefánsdóttir sjáandi segir okkur að í Hellisgerði sé mikil álfa- byggð og að það séu tveir staðir í Hafnarfirði þar sem sé mikil álfa- byggð, annars vegar Hamarinn þar sem kóngafólkið býr og hins vegar Hellisgerði.“ Í Hafnarfirði eru álfagönguferð- ir einnig vinsælar, en um þær ferð- ir sér Sigurbjörg Karlsdóttir, sem fer tvisvar í viku í skipulagðar gönguferðir og segir þjóðsögur tengdar hinum ýmsu stöðum þar sem komið er við í gönguferðinni. Allir eru velkomnir á hátíðina og segist Marín vona að sem flestir Hafnfirðingar og aðrir gestir láti sjá sig og taki huldufólkinu fagn- andi á Jónsmessu. Álfagleði verður í Hellisgerði á Jónsmessuhátíð Veisla fyrir huldufólk Morgunblaðið/Eyþór Með huldufólki Marín Hrafns- dóttir, menningar- og ferðamála- fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, í góðum félagsskap innan um huldufólkið í Hellisgerði. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI LISTASUMAR er nú haldið á Akureyri í 13. sinn en það var form- lega sett við athöfn í Ketilhúsinu í gær. Það stendur yfir í 10 vikur, lýk- ur með Akureyrarvöku 27. ágúst. Að venju verður fjöldi listviðburða í boði í sumar og fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. heitir fimmtudagar, þar sem leikinn er djass, og föstu- dagshádegi í Ketilhúsinu þar sem boðið verður upp á fjölbreytta tón- list. Þá verða Sumartónleikar í Akureyrarkirkju alla sunnudaga í júlí. Djangódjasshátíðin hefur fest sig í sessi sem einn liður í Lista- sumri og verður að venju í byrjun ágúst. Fjöldi myndlistarmanna tek- ur þátt í Listasumri og verða sýn- ingar opnaðar jafnt og þétt í allt sumar í hinum ýmsu sýningarsölum og galleríum bæjarins. Söfnin taka einnig virkan þátt í Listasumri og bjóða flest hver, auk sýninga, upp á ýmsa viðburði af fjölbreyttum toga. Iðar af lífi „Akureyri mun iða af lífi í sumar,“ sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir formaður menningarmálanefndar bæjarins við setningu Listasumars. Alp Mehmet, sendiherra Breta á Ís- landi, flutti ávarp og setti Lista- sumar formlega við athöfn síðdegis. Hann sagði Akureyri skipa sér- stakan sess í hugum Breta, vegna tengsla sem sköpuðust á stríðs- árunum. 17 breskir hermenn létu líf- ið á Akureyri og fengu þar hinstu hvílu. Nefndi sendiherrann að margt væri um að vera í listalífi ut- an höfuðborgarsvæðisins, Lista- sumar væri eitt dæmi um það. „Há- tíðin setur mikinn svip á bæinn,“ sagði hann. Bæði væri Listasumar vettvangur ungra og upprennandi listamanna og þeir eldri og reyndari tækju einnig fullan þátt og þannig skapaðist skemmtileg blanda, „sem gerir Listasumar að því stórvirki sem það er,“ sagði Alp Mehmet og óskaði bæjarbúum góðs og skemmtilegs sumars. Alþjóðlega leiklistarhátíðin Leikum núna Leikum núna er heiti á alþjóðlegri leiklistarhátíð sem einnig hófst á Akureyri í gær, og var hún sett á Ráðhústorgi. Bandalag íslenskra leikfélaga, samtök áhugaleikfélaga á Íslandi, efna til hátíðarinnar, en hún var síðast haldin á Akureyri árið 2000. Sjö íslensk leikfélög taka þátt í hátíðinni og bjóða upp á tíu sýningar og uppákomur, en þar kennir margra grasa. Ný íslensk verk eru um helmingur sýninganna en einnig hefur tveimur erlendum leikhópum verið boðið til hátíðarinnar, Jonava- leikhópnum frá Litháen og Cirkity Gravikus frá Svíþjóð, en sá hópur nýtir sér trúðleik og sirkuslistir í verkum sínum. Fyrrnefndi hópurinn starfar í anda þeirrar leikhúshefðar sem ríkir í löndunum fyrir botni Eystrasalts. Sýningar verða í Samkomuhús- inu, Ketilhúsinu, Húsinu, Útihúsinu og Freyvangi auk þess sem leik- smiðja verður í KA-heimilinu. Meðal sýninga sem bæjarbúum og gestum þeirra gefst kostur á að sjá má nefna Dýragarðssögu, Patataz, Taktu lagið Lóa, 40% af engu, Kon- ur, Stundarfriður, Memento mori, Davíð Oddsson superstar, Birdy, Allra kvikinda líki og Náttúran kall- ar. Listasumar á Akureyri formlega hafið í 13. sinn Hátíðin setur mikinn svip á bæinn Morgunblaðið/Margrét Þóra Listasumar Fjöldi listviðburða eru í boði á Akureyri nú í sumar, Lista- sumar 2005 var formlega sett í Ketilhúsinu síðdegis, af Alp Mehmet, sendi- herra Breta á Íslandi. Leikum nú Þessir tveir snáðar af leikskólanum Kiðagili tóku þátt í setningu alþjóðlegu leiklistarhá- tíðarinnar Leikum nú. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is kvöldið 23. júní með oktett sinn, sem verður um leið fjölmennasta hljómsveit sem leikið hefur á Heit- um fimmtudegi á Listasumri til þessa. Þessir tónleikar fara fram á Græna hattinum og hefjast kl. 21.30, en aðrir djasstónleikar á dagskrá Listasumars fara fram í HEITIR fimmtudagar er að venju yfirskrift djassdagskrár Lista- sumars í ár, en það er Jazzklúbbur Akureyrar sem skipuleggur viku- lega djasstónleika um tveggja mánaða skeið. Hin unga og vinsæla söngkona Ragnheiður Gröndal mætir fyrst til leiks nú í kvöld, fimmtudags- Grófargili, í Deiglunni eða Ketil- húsi. Oktett Ragnheiðar Gröndal leikur sígildar djassperlur og blús í nýjum útsetningum eftir Hauk Gröndal. Hljómsveitina skipa tónlist- armennirnir Haukur Gröndal á altósaxófón og klarínett, Eyjólfur Þorleifsson á tenórsaxófón, Ólafur Jónsson á tenórsaxófón, Sigurður Flosason á barítonsaxófón og þverflautu og Ásgeir Ásgeirsson á gítar. Á kontrabassa leikur hinn kanadíski Graig Earle og Svíinn Erik Qvick leikur á trommur. Sveitin mun í júlíbyrjun koma fram á hinni víðþekktu djasshátíð „Copenhagen Jazz Festival“ . Fjölbreyttur djass í allt sumar Reykjavík | Níutíu og sex ár eru nú síðan vatni var fyrst hleypt á vatnsveitu Reykjavíkur, en að sögn talsmanna Orkuveitu Reykjavíkur er það talið eitt af stærri framfarasporum sem tekin hafa verið í almannaheilsu í Reykjavík. Í tilefni af afmælinu tók Orkuveita Reykjavíkur á dögunum í notkun nýjan vatnsgeymi á Reynisvatnsheiði. Geymirinn er með miðlunarrými sem er rúmlega 11.000 rúmmetrar. Hann er úr stein- steypu og lagnir úr ryðfríu stáli. Grunnflötur hans er 2.400 fermetrar auk lokahúss. Hann er fyrst og fremst til öryggis, þannig að þótt eitt- hvað fari úrskeiðis í rafmagni geti Orkuveita Reykjavíkur afhent vatn til notenda og til slökkvistarfa innan ákveðinna tímamarka. Nýr vatnsgeymir á Reynisvatnsheiði Seltjarnarnes | Menningarnefnd Seltjarnar- nesbæjar efnir til léttrar Jónsmessugöngu í kvöld. Gangan hefst á Valhúsahæð kl. 20.30 og lýkur um kl. 22.30. Safnast verður saman við út- sýnisskífuna á Valhúsahæð, þar sem Þór White- head sagnfræðingur mun lýsa almennt hern- aðarviðbúnaði á Seltjarnarnesi á stríðsárunum. Síðan verður gengið af stað og skoðaðar stríðs- minjar á hæðinni vestanverðri. Því næst verður gengið niður að dæluhúsi Hitaveitu Seltjarnar- ness, þar sem göngumenn fá hressingu en loks verður haldið að bálkestinum í fjörunni við Sel- tjörn. Harmónikuleikari verður með í för og söngelskir göngugarpar leiða fjörusöng. Jónsmessuganga á Nesi Fiskmerkingar| Útibú Hafrann- sóknastofnunarinnar á Akureyri boð- ar til fundar um hafrannsóknir í Eyjafirði í félagsheimilinu Árskógi í kvöld, fimmtudaginn 23. júní kl. 20. Kynning verður á starfsemi útibús- ins og almennum hafrannsóknum í Eyjafirði. Aðalefni fundar verður samstarf við sjómenn á svæðinu um fiskmerkingar og eru eyfirskir sjó- menn sérstaklega hvattir til að mæta. Sýningarlok | Nú eru síðustu for- vöð að sjá samsýningu bandaríska ofurstirnisins Matthew Barney og Gabríelu Friðriksdóttur sem er fulltrúi Íslands á Feneyja-tvíær- ingnum, en sýningu þeirra lýkur núna á sunnudag í Listasafninu á Akureyri. Sýningin er hluti Listahá- tíðar í Reykjavík sem ber yfirskrift- ina tími, rými, tilvera. Safnið er opið frá kl. 12 til 17. Sýningu lýkur | Sýningu Hugleiks Dagssonar, „I see a dark sail“, á Café Karólínu lýkur á morgun, föstudag, og eru því að verða síðustu forvöð að skoða hana. Þetta er önnur einkasýn- ing Hugleiks en hann hefur tekið þátt í um tuttugu samsýningum. Jónsmessuhátíð| Árleg Jóns- messuhátíð í Kjarnaskógi verður haldin í kvöld, fimmtudagskvöldið 23. júní og ber að þessu sinni yfir- skriftina „Í allra kvikinda líki“. Hátíðin hefst við Kjarnakot (neðra bílastæði) kl. 19, þar sem af- hent verða kort af svæðinu, en 11 stöðvar verða hingað og þangað um skóginn, þ.m.t. á Hömrum. Í boði verða: leikrit, skúlptúrasýn- ing, skógarundur og furðuverur, leikir, föndur, jurtalitun, getraunir, söngur, upplestur, furðusteinar og óskasteinar, H.C. Andersen-sögur, fornar slóðir, Jónsmessubrenna, kakó og grill.             Kópavogur | Ármann Kr. Ólafsson bæjarfulltrúi D- lista var kosinn forseti bæjar- stjórnar á fundi bæj- arstjórnar Kópavogs 14. júní sl. Ármann tekur við af Gunnsteini Sigurðs- syni. Þá var Sigurrós Þorgríms- dóttir kosin fyrsti varafor- seti bæjarstjórnar. Þá var einnig kosið í bæjarráð. Í bæjarráð voru kosin Gunnar I. Birgisson og Halla Halldórsdóttir frá Sjálfstæðisflokki, Hansína Björgvinsdóttir og Ómar Stefánsson, Framsóknar- flokki og Flosi Eiríksson, fulltrúi Samfylkingar. Kosinn forseti bæj- arstjórnar Kópavogs Ármann Kr. Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.