Morgunblaðið - 23.06.2005, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 31
MINNINGAR
✝ Dóra Fríða Jóns-dóttir fæddist á
Ísafirði 1. janúar
1932. Hún lést á
Grensásdeild Land-
spítalans 16. júní síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Jón
Kristinn Finnsson,
lögregluþjónn og
kennari, f. 1899 á
Hvestu í Arnarfirði,
d. 1955, og Guðný
Guðjónsdóttir, hús-
freyja, f. 1904 á
Ferjubakka í Borgar-
firði, d. 1997. Fóstur-
systir Dóru er Ólafía Aradóttir, f.
1938. Hálfbróðir Dóru, samfeðra,
er Guðjón Á. Jónsson, f. 1930.
Dóra giftist 30. júlí 1955 Sigurði
Sigurðssyni lækni, f. 20. ágúst
1933 á Álfgeirsvöllum í Skaga-
firði. Foreldrar hans voru Sigurð-
ur Jónasson frá Álfgeirsvöllum, f.
1903, d. 1933, og Magndís Guð-
mundsdóttir frá Sveinseyri við
Tálknafjörð, f. 1906, d. 1997. Börn
Dóru og Sigurðar eru: 1) Jón
Magni, vélstjóri, f. 1953 í Reykja-
vík. Kona hans er Guðjóna Ás-
grímsdóttir, f. 1958. Þeirra börn:
a) Sigurður Örn, f. 1980, sambýlis-
kona Berglind Rut Valgeirsdóttir
og eiga þau tvær dætur. b) Stein-
unn, f. 1985. 2) Sigurður Pálmi,
endurskoðandi, f. 1956 í Reykja-
vík. Kona hans er Anna Jóna
Lýðsdóttir, f. 1958. Þeirra börn: a)
Dóra Sif, f. 1982. b) Hrafnhildur,
f. 1987. c) Sólrún, f. 1990. 3)
Guðný Dóra, skrifstofustjóri, f.
1960 í Reykjavík. Hennar maður
er Gísli Rafn Guðfinnsson, f. 1959.
Þeirra börn: a) Pétur Orri, f. 1984.
b) Dóra Hrund, f.
1989. c) Sigrún
Perla, f. 1996. 4)
Rannveig, hjúkrun-
arfræðingur, f. 1962
á Siglufirði. Hennar
maður er Albert Páll
Sigurðsson, f. 1961.
Þeirra börn: a) Sig-
urður Jens, f. 1995.
b) Þorsteinn Ívar, f.
1999. c) Guðlaug
Eva, f. 2003. Auk
þess á Albert Ingi-
björgu, f. 1990. 5)
Magndís María,
markaðsfulltrúi, f.
1965 á Siglufirði. Hennar maður
er Kjartan Steinsson, f. 1964.
Þeirra börn: a) Steinn Arnar, f.
1995. b) Hrafnhildur, f. 1997. 6)
Ágúst Orri, lögfræðingur, f. 1970
á Siglufirði. Sambýliskona hans er
Gerður Rún Guðlaugsdóttir, f.
1972.
Dóra ólst upp í foreldrahúsum á
Ísafirði til 17 ára aldurs. Þá fór
hún suður til náms og lauk prófi
frá Uppeldisskóla Sumargjafar
árið 1952, síðar Fósturskóli Ís-
lands. Á árunum 1950 til 1962
vann Dóra sem leikskólakennari í
Reykjavík. Árið 1962 fluttu Dóra
og Sigurður til Siglufjarðar þar
sem þau bjuggu til ársins 1972 er
þau fluttu aftur til Reykjavíkur. Á
þessum árum var Dóra heima-
vinnandi húsmóðir, eða allt þar til
árið 1985 er hún fór aftur út á
vinnumarkaðinn og hóf störf í
Skógarborg í Fossvogi þar sem
hún starfaði til ársins 1998.
Útför Dóru fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Með örfáum orðum langar mig að
minnast elskulegrar tengdamóður
minnar Dóru F. Jónsdóttur. Hún
kvaddi þegar íslenskt sumar skartar
sínu fegursta, mildir dagar, stilltar
og bjartar nætur. Sú umgjörð fellur
vel að þeirri persónu sem hún var.
Dóra starfaði mestan hluta ævi
sinnar sem leikskólakennari og því
starfi sinnti hún alla tíð af áhuga og
alúð. Hún fylgdist vel með nýjung-
um og þróun í leikskólastarfi. Það
var aðdáunarvert hve fallega hún
talaði um litlu skjólstæðinga sína og
hversu vænt henni þótti um þá.
Þegar ég hugsa til Dóru koma
orðin virðing, væntumþykja og blíða
upp í hugann. Hún hafði einlægan
áhuga á öðrum, spurði margs og var
góður hlustandi en það kunnu vinir
hennar að meta. Haustið var hennar
tími. Þá naut hún þess að kveikja á
kertum og skapa sér og sínum nota-
legt andrúmsloft. Hvaðeina sem
Dóra tók sér fyrir hendur var gert
af alúð og natni. Aldrei heyrði ég
hana hallmæla nokkrum manni.
Hún var mjög listræn, föndur fyrir
leikskólabörnin, prjónaðar eða
saumaðar flíkur fyrir börnin eða
veggteppi var allt gert af stakri
smekkvísi og hógværð.Dóra var
mikið jólabarn og byrjaði snemma
undirbúning jólanna. Hún bakaði
þær fallegustu smákökur sem ég hef
séð og lagði mikið kapp á að skapa
sér og sínum gleðileg jólin. Fallegu
jóladagsboðin í Bjarmalandi voru
ávallt haldin með sama sniði og-
minningarnar um öll litlu smáatriðin
sköpuðu tilhlökkun og fjölskyldu-
hefðir sem eru mikils metnar.
Það var alltaf notalegt að koma í
heimsókn til tengdaforeldra minna á
fallega heimilið þeirra í Bjarma-
landi. Óhætt er að segja að fjöl-
skyldan hafi verið henni allt og tal-
aði hún ávallt með stolti um
afkomendur sína og bar mikla um-
hyggju fyrir velferð þeirra.
Nú seinni árin átti Dóra við veik-
indi að stríða en alltaf bar hún þján-
ingar sínar og veikindi með reisn og
einstöku æðruleysi. Þó heilsan væri
léleg og hvert áfallið af öðru dyndi
yfir sá hún alltaf ljósu hliðarnar og
hafði húmor fyrir sjálfri sér og um-
hverfinu. Í veikindum hennar stóð
tengdapabbi eins og klettur við hlið
hennar. Þessar síðustu vikur sýndi
fjölskyldan mikla samheldni sem
var hennar hjartans mál. Hún var
sátt við að kveðja og fannst hún
skila góðu búi.
Við Dóra þekktumst í nær 30 ár
og bar þar aldrei skugga á. Ég mun
sakna nærveru hennar en veit að
minningin um góða konu mun lifa
áfram.Ég kveð elskulega tengda-
móður mína með hjartans þökk fyrir
allt.
Blessuð sé minning hennar.
Anna Jóna.
Leiðir okkar Dóru lágu fyrst sam-
an þegar ég kynnist eiginkonu minni
Rannveigu fyrir 14 árum síðan.
Dóra var afar fáguð, hæglát og geð-
góð kona. Aldrei heyrði ég hana
byrsta sig eða verða reiða þrátt fyrir
ærslagang barnabarnanna. Alltaf
talaði hún til þeirra rólega og lemp-
aði hlutina til. Dóra hafði mikið yndi
af börnum, sjálf eignaðist hún sex
börn auk þess að starfa sem fóstra.
Hún hafði góða innsýn inn í hugar-
heim barna og gerði alltaf gott úr
hlutunum. Gott var því að leita til
hennar þegar á þurfti að halda í
barnauppeldinu. Segja má að Dóra
hafi tileinkaði líf sitt fjölskyldunni,
enda bera börn hennar þess glöggt
merki að hafa verið umvafin ást og
alúð. Öll voru þau afar hænd að
móður sinni, þau eru samheldin og
samband þeirra náið. Dóra naut sín
einna best í faðmi fjölskyldunnar.
Ég gleymi því ekki hversu vel mér
var tekið í fyrsta sinn sem ég hitti
fjölskylduna. Dóra hafði boðið fjöl-
skyldunni í „smá veislu“ til að kynn-
ast tilvonandi tengdasyni. Umræð-
urnar voru að vanda líflegar og ekki
var maturinn af verri endanum. Ég
fékk strax á tilfinninguna að ég hefði
alltaf þekkt þetta fólk. Dóra var
mikill fagurkeri, hafði dálæti á
handavinnu og bar heimili hennar
þess merki. Dóra skilur eftir sig
ljúfar minningar sem munu lifa með
okkur. Þakka ég henni góða sam-
fylgd og bið guð að varðveita hana.
Albert Páll Sigurðsson.
Það fyrsta sem mér kemur í hug
þegar ég minnist Dóru, móður
Rannveigar tengdadóttur minnar,
er hversu ljúf og yndislega kona hún
var. Dóra var glæsileg, vel gefin
kona og hafði einstaklega fágaða
framkomu. Dóra lætur eftir sig mik-
ið ævistarf, hún ól upp sex börn, auk
þess sem hún sinnti móður sinni og
tengdamóður, sem hún reyndist eins
og besta dóttir. Dóra var mikilhæf
móðir og húsmóðir og bera börn
þeirra Sigurðar foreldrum sínum
fagurt vitni. Hún bjó eiginmanni sín-
um og börnum fallegt og smekklegt
heimili og voru þau hjónin höfðingj-
ar heim að sækja. Við Dóra höfðum
mikið samband þegar börn okkar
dvöldu í Bandaríkjunum við nám og
varð það til þess að við kynntumst
vel.
Dóra var fóstra að mennt og þeg-
ar börnin fóru að fara að heiman, tók
hún til starfa að nýju og vann við
Barnaheimili Borgarspítalans. Hún
var barnelsk og hafði sérstakt lag á
börnum. Dóra átti við mikið heilsu-
leysi að stríða seinni árin. Hún tókst
á við veikindi sín með stillingu og
æðruleysi eins og henni var einni
lagið. Ég þakka samfylgdina. Sig-
urði og fjölskyldu votta ég samúð
mína. Blessuð sé minning hennar.
Guðlaug Ágústa Hannesdóttir.
Amma Dóra var einstaklega ljúf
og einlæg kona sem var gædd mörg-
um kostum. Hún var mjög barngóð,
hafði mikla hlýju að gefa og var
mjög annt um alla í kringum sig. Ég
furðaði mig oft á hversu vel hún
amma fylgdist með því sem við hin
vorum að gera og hversu áhugasöm
hún var um okkar hagi. Amma var
einstaklega smekkleg kona og
glæsileikinn umlék hana og var eitt
af hennar aðalsmerkjum. Hún hafði
sérstaklega gott auga fyrir öllu sem
fallegt er enda var allt svo fagurt í
kringum hana.
Þegar ég hugsa til baka gleðst ég
yfir ljúfum minningum sem ég á frá
fallega heimili ömmu og afa í
Bjarmalandi. Þau tóku alltaf vel á
móti okkur fjölskyldunni, amma eld-
aði dýrindis mat og jólaboðin sem
hún lagði svo mikið upp úr gleymast
seint. Hún bakaði ótal smákökuteg-
undir, kökuhúsið var fagurskreytt
og allt jólaskrautið þurfti að vera á
nákvæmlega sama stað, ár eftir ár.
Heimili ömmu og afa hefur að
geyma góða sál og þar ríkir friður og
ró enda var alltaf jafn notalegt að
heimsækja þau. Þegar ég óx úr grasi
fór ég að koma oftar ein í heimsókn í
Bjarmalandið. Í próflestri sótti ég til
ömmu og afa þar sem ég naut næðis,
hvatningar og umhyggju þeirra. Þá
þykir mér vænt um hve amma var
þakklát þegar ég rétti henni
hjálparhönd við heimilisstörfin síð-
ustu misserin. Við áttum þá góðar
stundir saman og ég lærði margt og
merkilegt af henni.
Við amma vorum miklar vinkonur
og gátum setið tímunum saman og
talað um lífið og tilveruna. Ég naut
þess að hlusta á hana segja
skemmtilegar sögur og þakka fyrir
að eiga allar þessar dýrmætu minn-
ingar um ömmu mína. Ég verð alltaf
stolt af ömmu minni og er stolt að
bera nafn hennar.
Síðustu ár var amma oft mjög
veik og fannst mér erfitt að horfa á
hana þjást. Hún kvartaði þó aldrei
heldur leit á björtu hliðarnar í lífinu.
Nú hefur hún fengið hvíld á æðri
stað þar sem stjörnurnar halda
áfram að skína skært á hana og
englar vefja hana örmum sínum að
eilífu. Ég á eftir að sakna hennar
yndislegu nærveru.
Ég sakna þín sárt, elsku amma
mín.
Þín
Dóra Sif.
Elsku besta amma. Núna ert þú
farin frá okkur og við sitjum eftir
með sorg í hjarta. Við vitum að þetta
var best fyrir þig því þú varst búin
að vera veik svo lengi og það var
ekki hægt að leggja meira á þig.
Auðvitað viljum við þó halda í þá
sem okkur þykir vænt um og okkur
þótti svo sannarlega vænt um þig,
amma. Þú varst ein besta kona sem
við höfum fengið að kynnast. Þú
æstir þig aldrei, skammaðir ekki
neinn heldur tókst á við lífið með ró-
semi eins og þér einni var lagið. Það
hefur alltaf verið gaman að koma í
heimsókn til ömmu og afa í Bjarmó
og ekki síst þegar við vorum yngri
og lékum okkur í dótaherberginu.
Núna verður tómlegt að fara bara í
heimsókn til afa í Bjarmó, en ekki
hafa áhyggjur, amma, því við mun-
um passa vel upp á hann afa.
Þú varst yndisleg kona og við vor-
um litlu lömbin þín, eins og þú kall-
aðir okkur, sem þú hugsaðir svo vel
um. Þó að við förum að gráta núna
og séum sorgmædd þá munu góðu
minningarnar sitja eftir í hjörtum
okkar þegar fram líða stundir. Við
munum aldrei gleyma þér því þú átt-
ir stóran þátt í að gera okkur að
þeim sem við erum. Við vonum inni-
lega að þér líði betur þar sem þú ert
núna því þú átt það svo sannarlega
skilið.
Þín ömmubörn,
Pétur Orri, Dóra Hrund
og Sigrún Perla.
Okkur langar til að minnast
ömmu Dóru hér í nokkrum orðum.
Þó amma okkar sé farin þá eigum
við margar góðar minningar um
hana í hjarta okkar sem við munum
aldrei gleyma. Við minnumst ein-
staklega skemmtilegra jólaboða þar
sem amma lagði sem mest upp úr að
hafa þau sem glæsilegust og
skemmtileg. Við erum heppnar að
hafa átt Dóru fyrir ömmu og erum
við afar þakklátar fyrir allar sam-
verustundirnar sem við áttum sam-
an.
Guð geymi þig, elsku amma.
Þínar
Hrafnhildur og Sólrún.
Í dag kveð ég kæra vinkonu Dóru
F. Jónsdóttur. Dóra var fædd á Ísa-
firði og ólst þar upp, flutti ung til
Reykjavíkur og nam við Fóstur-
skóla Íslands; settist að í Reykjavík
og giftist náfrænda mínum Sigurði
Sigurðssyni lækni. Dóru kynntist ég
um þetta leyti; eða fyrir rúmum
fimmtíu árum, síðan höfum við verið
kærar vinkonur og samskipti þeirra
hjóna og okkar verið mikil og
ánægjuleg. Dóra var falleg kona,
með fallega rauðbrúnt hár, hafði
skemmtilega framkomu og einstak-
lega notalega nærveru. Hún var
greind, vel lesin og víðsýn og gaf sér
góðan tíma til að hlusta. Heimili
þeirra hjóna að Bjarmalandi 13 ber
vott um einstakan listrænan smekk
Dóru.
Margs er að minnast eftir rösk-
lega hálfrar aldar kynni, upp úr
standa Siglufjarðarárin þar sem
Dóra og Sigurður hófu sína lífsbar-
áttu, en við okkar á Akureyri. Hitt-
umst við með börnum okkar eins oft
og kostur var, okkur öllum til mik-
illar ánægju, nutum við þar gestrisni
þeirra hjóna, sem og eftir að þau
fluttu til Reykjavíkur.
Dóra hefur nú kvatt okkur með
einstöku æðruleysi, en hún skilur
eftir ljúfar minningar um einstaka
konu sem reist hefur sér minnis-
varða í börnum sínum, sem nú
syrgja ásamt mökum og barnabörn-
um. Sárastur er þó missir Sigurðar
sem hefur stutt konu sína í hennar
veikindum undanfarin ár af einstöku
æðruleysi.
Vottum við Ævar og fjölskyldur
barna okkar þeim innilega samúð.
Hafðu þökk fyrir öll þín spor,
það besta sem fellur öðrum í arf
er endurminning um göfugt starf.
Moldin er þín.
Moldin er trygg við börnin sín,
sefar allan söknuð og harm
og svæfir þig við sinn móðurbarm.
Grasið hvíslar sitt ljúfasta ljóð
á leiðinu þínu. Moldin er hljóð
og hvíldin er góð.
(Davíð Stef.)
Nú er komið að leiðarlokum, ég
kveð þig, kæra vinkona, með sökn-
uði, virðingu og þakklæti.
Sigrún Jóhannsdóttir.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem)
Í dag kveðjum við fyrrum vinnu-
félaga okkar í leikskólanum Skógar-
borg, Dóru Jónsdóttur leikskóla-
kennara. Hún skilur eftir dýrmætar
minningar hjá öllum sem henni
kynntust og með henni störfuðu.
Hún auðgaði umhverfi sitt með
góðri greind, hlýju og glaðlegu við-
móti, sem varð til þess að hún var
fljót að eignast samstarfsfólkið að
vinum.
Trúmennska, einlægni og sam-
viskusemi var henni í blóð borin og
því vart hægt að hugsa sér betri
samstarfsmann.
Dóra var sviphrein, hávaxin og
tíguleg, falleg kona til orðs og æðis.
Dagfar hennar var í anda prúð-
mennsku, smekkvísi og glaðværðar,
og hún kunni þá list að bera lof á
samstarfsfólk og hvetja það til
starfa. Ekki síður kunni hún með
hógværð sinni og hlýju að benda á
það sem betur mátti fara og það var
ljúft að mega hlýða hennar ráðum.
Hún hafði metnað fyrir hönd
stéttar sinnar og trúði því að með
vönduðum vinnubrögðum í leik-
skólastarfinu mætti lyfta grettistaki
í fræðslu og umönnun barna.
Dóra taldi að með góðu atlæti og
skilningi á þörfum barna laðaðist
allt það besta fram í börnunum og
jafnframt manneskjunni sjálfri.
Hún fylgdist því vel með hverju
barni og ástundaði gott samstarf við
foreldrana.
Börnin hreif hún með sér um lönd
ævintýra og raunveruleika, hvort
sem var með sögum eða söng.
Dóra var mjög listræn og í leik-
skólanum eru verk hennar, sem nýt-
ast vel í starfinu t.d. leikmyndir og
loðtöflusögur og ekki megum við
gleyma glæsilegu smákökunum
hennar sem hún bakaði og kom með
fyrir hver jól, þær voru svo góðar og
fallegar að eftir er munað.
Enda þótt við vitum að skilnaðar-
stundin búi ætíð í framtíðinni, þá er-
um við henni aldrei viðbúin. Þetta
finnum við nú á kveðjustundu.
Þó sárt sé að horfa á eftir vini, þá
býr einnig í huganum gleði og þakk-
læti yfir því að hafa fengið að eiga
Dóru Jónsdóttur að vinkonu og fé-
laga.
Við samstarfsfólk í Skógarborg
viljum þakka Dóru ljúfa og gleðiríka
samfylgd.
Eiginmanni hennar biðjum við
blessunar Guðs, sem og börnum
hennar og fjölskyldum þeirra.
Bjart er yfir minningu hennar.
Megi sú birta milda hugi þeirra sem
syrgja og sakna.
Við samstarfsfólkið viljum enda
orð okkar með því sem Valdimar
Briem segir í sálminum sínum:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Samstarfsfólk í
leikskólanum Skógarborg.
Þegar pabbi minn fæddist þá varð
hún mamma í fyrsta sinn. Þegar ég
fæddist þá varð hún amma í fyrsta
sinn. Þegar eldri dóttir mín fæddist
þá varð hún langamma í fyrsta sinn.
Ég man hvað mér fannst gaman að
segja henni að hún væri orðin
langamma þegar dóttir mín fæddist.
Ég var svo lánsamur að ná að sýna
henni næsta langömmubarn líka áð-
ur en hún lést. Hún hafði svo gaman
af börnum.
Það eru ófáar veiðiferðirnar sem
við höfum farið með afa og stundum
kom amma líka með. Í fyrstu veiði-
ferðina sem ég man eftir kom amma
með okkur. Ég ætlaði að sýna henni
hvað ég gæti kastað flugunni langt.
Sú sýning fór ekki betur en svo að
ég krækti flugunni í lærið á ömmu.
Alltaf hélt hún ró sinni. Hún var allt-
af svo hlý og góð.
Amma vildi alltaf halda stórar og
flottar veislur við hvert tækifæri.
Ég held að enginn muni gleyma jóla-
boðunum hennar og afmælinu sem
hún hélt alltaf á nýársdag. Henni
tókst að gera allt svo fullkomið.
Mikið sakna ég hennar. Ég á svo
margar góðar minningar um hana.
Aldrei mun ég gleyma henni.
Sigurður Örn Magnason.
DÓRA F.
JÓNSDÓTTIR