Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 14

Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 14
14 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ I. FJÁRDRÁTTUR Ákærðu Jóni Ásgeiri, Tryggva, Jóhannesi og Kristínu er gefinn að sök fjárdráttur í eft- irgreindum tilvikum: 1. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa dregið sér og öðrum samtals kr. 40.073.196,54, á tímabilinu frá 30. apríl 1999 til 11. júní 2002, þegar þeir létu, með vitund og liðsinni meðákærðu Jóhannesar og Kristínar, Baug hf. greiða 34 reikninga sem voru gefnir út af félag- inu Nordica Inc. á hendur Baugi hf., samkvæmt fyrirmælum ákærðu Jóns Ásgeirs og Tryggva, vegna af- borgana af lánum, rekstrarkostnaði og öðrum tilfallandi kostnaði sem til- heyrði skemmtibátnum „Thee Vik- ing“ sem var Baugi hf. óviðkomandi. Bát þennan höfðu ákærðu Jón Ás- geir og Jóhannes keypt í félagi við Jón Gerald Sullenberger, eiganda Nordica Inc., í Miami í Flórída í Bandaríkjunum, þar sem báturinn var staðsettur og skráður sem eign félags í eigu Jóns Geralds Sullenber- ger, New Viking Inc., skrásettu í De- laware í Bandaríkjunum. Reikning- arnir voru sem hér greinir: [töflur ekki tiltækar] 2. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Jóhann- esi með því að hafa dregið sér sam- tals kr. 441.254,00 á tímabilinu frá 19. apríl 1999 til 17. desember 2002, þeg- ar ákærðu létu Baug hf. greiða til SPRON í eftirtöldum 17 greiðslum þóknun vegna bankaábyrgðar sem ákærðu höfðu stofnað til og var Baugi hf. óviðkomandi, í tengslum við kaup ákærðu og Jóns Geralds Sullenberger á skemmtibát sam- kvæmt 7. tölulið II. kafla ákæru hér á eftir, svo sem hér greinir: [töflur ekki tiltækar] 3. Ákærða Tryggva með því að hafa dregið sér samtals kr. 1.315.861,27 á tímabilinu frá 11. jan- úar 2000 til 12. febrúar 2002, þegar ákærði lét Baug hf. greiða í 13 skipti reikninga sem gefnir voru út í nafni félagsins Nordica Inc. í Bankaríkj- unum á hendur Baugi hf., sem voru útgjöld Baugi hf. óviðkomandi. Til útgjaldanna hafði ákærði stofnað í útlöndum með úttektum á American Express-greiðslukorti í reikning hins bandaríska félags, Nordica Inc., sem hið bandaríska félag lagði út fyrir og innheimti síðan sem ferðakostnað hjá Baugi hf., samkvæmt fyrirmæl- um ákærða, sem hér greinir: [töflur ekki tiltækar] 4. Ákærða Tryggva með því að hafa dregið sé samtals kr. 99.605,00 hinn 17. maí 2001, þegar ákærði lét Baug hf. greiða Tollstjóranum í Reykjavík eftirgreind aðflutnings- gjöld; virðisaukaskatt kr. 72.479,00, vörugjald kr. 26.087,00 og toll kr. 1.039,00, samtals kr. 99.605,00, þegar hann lét Baug hf. flytja til landsins og tollafgreiða sláttuvélatraktor af gerðinni Craftsmann, sem ákærði hafði keypt til eigin nota í Bandaríkj- unum, ásamt fylgihlutum, fyrir sam- tals USD 2.702,97, samkvæmt vöru- reikningi útgefnum af Nordica Inc., Miami, Flórída í Bandaríkjunum, dags. 4. apríl 2001 á Baug-Aðföng hf. Brot ákærða Tryggva samkvæmt 1., 3. og 4. tölulið ákæru teljast varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940. Brot ákærða Jóhannesar sam- kvæmt 2. tölulið ákæru teljast varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 og brot samkvæmt 1. tölulið ákæru við 247. gr., sbr. 22. gr. sömu laga. Brot ákærðu Kristínar samkvæmt 1. tölulið ákæru teljast varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 22. gr. sömu laga. II. UMBOÐSSVIK Ákærðu Jóni Ásgeiri, Tryggva og Jóhannesi eru gefin að sök umboðssvik með því að hafa misnotað aðstöðu sína hjá Baugi hf. í eftirgreindum tilvikum: 5. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa blekkt og misnotað aðstöðu sína sem forstjóri og aðstoðarforstjóri Baugs hf. þegar þeir fengu, með vitund ákærða Jó- hannesar sem stjórnarmanns, stjórn þess á stjórnarfundi hinn 20. maí 1999 til þess að heimila ákærða Jóni Ásgeiri að ganga til samninga og að kaupa 70% hlutafjár í Vöruveltunni hf. Á stjórnarfundinum leyndu ákærðu stjórn hlutafélagsins því að ákærði Jón Ásgeir var þá sjálfur um- ráðandi 70% hlutafjár og átti stærsta hluta þess og var raunverulegur stjórnandi Vöruveltunnar hf., frá því að hann gerði hinn 7. október 1998 bindandi samning um kaup á öllu hlutafé í Vöruveltunni hf., að nafn- verði kr. 4.600.000,00 fyrir kr. 1.150.000.000,00 og með viðbótar- greiðslu að fjárhæð kr. 100.000.000,00 samkvæmt viðbótar- samningi ákærða við seljendur sem dagsettur er hinn 5. júní 1999. Baug- ur hf. eignaðist með viðskiptunum á árinu 1999 70% hlutafjár í Vöruvelt- unni hf. sem ákærði Jón Ásgeir átti að meginhluta og réð yfir, fyrir kr. 1.037.000.000,00. 6. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa misnotað aðstöðu sína, Jón Ásgeir sem for- stjóri Baugs hf. og Tryggvi sem að- stoðarforstjóri Baugs hf. og stjórn- arformaður Fasteignafélagsins Stoða hf., dótturfélags Baugs hf., þegar Fasteignafélagið Stoðir hf. keyptu fasteignir að Suðurlands- braut 48, Laugalæk 2, Sporhömrum 3, Langarima 21–23 og Efstalandi 26 í Reykjavík, af Litla fasteignafélag- inu ehf., fyrir kr. 354.000.000,00, en í árslok 1998 höfðu ákærðu selt Litla fasteignafélaginu ehf. eignirnar frá Vöruveltunni hf. fyrir kr. 217.000.000,00 með því að einka- hlutafélagið yfirtók skuldir Vöruvelt- unnar hf., auk greiðslu. 7. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Jóhann- esi með því að hafa hinn 30. nóvem- ber 1998, við yfirtöku Baugs hf. á Bónus sf., kt. 670892-2479, misnotað aðstöðu sína hjá Baugi hf., til þess að binda það við erlenda bankaábyrgð í SPRON, að andvirði kr. 12.219.990,00, sem var óviðkomandi rekstri Bónuss sf., en til ábyrgðar- innar höfðu ákærðu stofnað í nafni sameignarfélagsins hinn 17. júlí 1996, vegna lántöku í nafni banda- ríska félagsins Nordica Inc. hjá Ready State Bank, Hialeah í Flórída í Bandaríkjunum, að fjárhæð USD 135.000. Ábyrgðin var stofnuð vegna kaupa ákærðu, í félagi við eiganda hins bandaríska félags, Jón Gerald Sullenberger, samkvæmt sölureikn- ingi dagsettum hinn 16. ágúst 1996, á 37 feta skemmtibát af gerðinni Sea Ray Sundancer sem fékk nafnið „Icelandic Viking“, en með þessu varð Baugur hf., síðar Baugur Group hf., bundið við ábyrgðina sem gjald- féll á hlutafélagið hinn 17. október 2002. Brot ákærða Jóns Ásgeir sam- kvæmt 5., 6. og 7. tölulið ákæru, og Jóhannesar samkvæmt 7. tölulið ákæru teljast varða við 249. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Brot ákærða Jóhannesar samkvæmt 5. tölulið telst varða við 249. gr. sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Brot ákærða Tryggva samkvæmt 5. og 6. tölulið telst varða við 249. gr. sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. III. FJÁRDRÁTTUR OG UMBOÐSSVIK Ákærða Jóni Ásgeiri er gefinn að sök fjárdráttur og/eða umboðssvik í eftirgreindum tilvikum: 8. Með því að hafa hinn 8. október 1998 látið millifæra af bankareikn- ingi, númer 1151 26 000156, í eigu Baugs-Aðfanga ehf., dótturfélags Baugs hf., kr. 200.000.000,00 inn á bankareikning í eigu SPRON, nr. 1151 26 009999, þar sem ákærði fékk útgefna bankaávísun sömu fjárhæð- ar, á nafn Helgu Gísladóttur. Ákærði afhenti eða lét afhenda Eiríki Sig- urðssyni, sambýlismanni Helgu, eig- anda alls hlutafjár í Vöruveltunni hf., bankaávísun þessa til greiðslu sam- kvæmt kaupsamningi dagsettum hinn 7. október 1998, þar sem Helga Gísladóttir seldi ákærða fyrir hönd ótilgreindra kaupenda allt hlutafé í hlutafélaginu Vöruveltunni og var ávísunin innleyst hinn 9. október 1998 og andvirði hennar lagt inn á bankareikning Helgu númer 0327 26 001708. 9. Með því að hafa hinn 15. júní 2001 látið Baug hf. greiða kr. 95.000.000,00 inn á bankareikning Kaupþings á Íslandi, nr. 1100 26 454080, þaðan sem fjárhæðinni var ráðstafað, ásamt láni frá Kaupthing Bank Luxembourg, að fjárhæð kr. 30.000.000,00, til félagsins Cardi Holding, dótturfélags Gaums Hold- ing, sem bæði voru skráð í Lúxem- borg, sem hlutafjárframlag í félagið FBA-Holding. Það félag var í eigu Fjárfestingafélagsins Gaums ehf. og þriggja annarra aðila. Færsla vegna greiðslunnar í bókhaldi Baugs hf. var með fylgiskjali, sem var útskrift tölvupósts með greiðslufyrirmælum ákærða til þáverandi fjármálastjóra Baugs hf., með handskrifuðum at- hugasemdum um númer bankareikn- ings sem greiðslan var færð inn á svohljóðandi skýringum: „eignfæra ráðgjöf v/A Holding. Viðskiptafæra á Baug Holding. Vantar reikning“. Brot ákærða Jóns Ásgeirs sam- kvæmt 8. tölulið ákæru telst varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, en brot ákærða sam- kvæmt 9. tölulið telst varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr., 19, 1940 til vara við 249. gr. sömu laga. IV. FJÁRDRÁTTUR, UMBOÐSSVIK OG BROT GEGN LÖGUM UM HLUTAFÉLÖG Ákærðu Jóni Ásgeiri, Tryggva og Kristínu er gefinn að sök fjárdráttur og/eða umboðssvik og brot gegn lögum um hluta- félög í eftirgreindum tilvikum: 10. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 23. ágúst 1999 látið millifæra af banka- reikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, kr. 100.000.000,00 til Íslands- banka hf., vegna innheimtu bankans á hlutafjárloforðum, sem greiðslu Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., þegar einkahlutafélagið eignaðist 10.000.000 hluti í hlutafjárútboði í Baugi hf. í apríl 1999. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan til Íslands- banka hf., í þágu einkahlutafélagsins, færð á viðskiptamannareikning þess hjá Baugi hf., sem krafa, þannig að eftir bókun millifærslunnar stóð við- skiptamannareikningurinn í kr. 182.782.689,00. Krafa hlutafélagsins á einkahlutafélagið var síðar lækkuð með eftirtöldum greiðslum einka- hlutafélagsins NRP til Baugs hf.; kr. 15.000.000,00 hinn 28. október 1999, kr. 15.000.000,00 hinn 2. nóvember 1999 og kr. 60.000.000,00 hinn 28. júní 2000, þegar einkahlutafélagið NRP eignaðist umrædd hlutabréf Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., en jafnframt var krafa á viðskipta- mannareikningi einkahlutafélagsins hjá Baugi hf. færð niður um kr. 10.000.000,00 hinn 31. desember 1999. 11. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að hafa um mitt ár 1999 án greiðslu eða skuldaviðurkenninga afhent eða látið afhenda Fjárfestingafélaginu Gaumi ehf. 10.695.295 hluti Baugs hf. í Flugleiðum hf., sem einkahluta- félagið seldi hinn 27. ágúst 1999 fyrir kr. 49.360.124,00. Framangreind ráð- stöfun bréfanna var fyrst færð í bók- haldi Baugs hf. með lokafærslum frá endurskoðanda í árslok 1999 að fjár- hæð kr. 44.800.000,00. Færslan var miðuð við 31. desember 1999 og þá færð sem krafa á viðskiptamanna- reikning Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., sem eftir bókunina stóð í kr. 143.068.986,00, en skuld einka- hlutafélagsins var gerð upp með víxli útgefnum hinn 20. maí 2002 sem greiddur var 5. september sama ár. 12. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 11. október 1999 látið millifæra kr. 4.500.000,00 af bankareikningi Baugs hf., nr. 1150 26 00077, á banka- reikning Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., nr. 0527 26 001099, vegna kaupa einkahlutafélagsins á hluta fasteignarinnar að Viðarhöfða 6, í Reykjavík. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan til einkahlutafélagsins færð sem viðskiptakrafa á viðskipta- mannareikning einkahlutafélagsins hjá Baugi hf., sem eftir bókun milli- færslunnar stóð í kr. 187.665.005,00, en skuld einkahlutafélagsins var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru. Ákærðu Kristínu framkvæmdastjóra einka- hlutafélagsins gat ekki dulist að millifærsla fjárhæðarinnar sem gerð var án skuldaviðurkenningar, samn- ings eða trygginga var ólögmæt og andstæð hagsmunum Baugs hf. 13. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa inn 3. des- ember 1999 látið millifæra kr. 8.000.000,00 af bankareikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, til SPRON sem greiðslu Fjárfestinga- félagsins Gaums ehf. fyrir helmings- hluta hlutafjár í eigu SPRON í Við- skiptatrausti ehf. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan færð sem krafa á viðskiptamannareikning einkahluta- félagsins í samræmi við útgefinn reikning, en eftir bókun færslunnar stóð viðskiptamannareikningurinn í kr. 168.031.286,00, en skuld einka- hlutafélagsins var gerð upp með kaupum Baugs hf. á öllu hlutafé í Viðskiptatrausti ehf., sem fært var til lækkunar á viðskiptamannareikningi einkahlutafélagsins hinn 30. júní 2000 fyrir kr. 16.000.000,00. 14. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 14. desember 1999 látið millifæra kr. 35.000.000,00 af bankareikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, á bankareikning Fjárfestingafélagsins Gaums ehf., nr. 0527 26 001099, vegna kaupa einkahlutafélagsins á 186.500 hlutum í Debenhams PLC í Bretlandi. Í bókhaldi Baugs hf. var greiðslan til einkahlutafélagsins færð sem viðskiptakrafa á viðskipta- mannareikning einkahlutafélagsins, sem eftir bókun millifærslunnar stóð í kr. 201.001.430,00 en framangreind skuld einkahlutafélagsins, kr. 35.000.000,00, var gerð upp með greiðslu hinn 22. desember 1999 til hlutafélagsins. 15. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 13. febrúar 2001 látið færa kröfu á við- Ákærur í Baugsmálinu Ríkislögreglustjóri hefur birt eftirfarandi ákærur á hendur þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, Jóhannesi Jóns- syni í Bónusi, Kristínu Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra fjárfestingarfélagsins Gaums ehf., Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, Stefáni Hilmari Hilmarssyni endurskoðanda og Önnu Þórðardóttur endurskoðanda. Ákærurnar voru birtar sakborningunum hinn 1. júlí sl., og hefur Morgunblaðið nú fengið eintök af ákærunum send frá lögmanni eins sakborninga. Þær eru birtar hér í heild sinni með vitund og vilja ákærðu. Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.