Morgunblaðið - 14.08.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.08.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 17 Kórinn var stofnaður 1995. Í honum starfa um eitthundruð söngkonur á aldrinum 6-18 ára. Kórinn œfir einu sinni í viku og heldur reglulega tónleika bœði innanlands og utan. Kórinn hefur hlotið lof fyrir fagrann söng og fágaða framkomu. Stúlkurnar eru eftirsóttir söngkraftar í leikhúsum borgarinnar og taka þœr þátt í barnastarfi ljósvakamiðlanna. Innritun hefst 22 .ágúst og lýkur 2. september. Upplýsingar og greiðsla námsgjalda fer fram alla virka daga frá 16:00-19:00 á skrifstofu skólans eða í síma 511-3737 / 861-7328 Yngri deild 6 - 10 ára. Eldri deild 11 - 16 ára. Vox junior framhaldsdeild 16 ára og eldri. Domus Vox -Þar sem röddin þín hljómar. Stúlknakór Reykjavíkur Tækifæri • Gleði • Þroski Kennarar: Ástríður Haraldsdóttir Seth Sharp Hanna B. Guðjónsdóttir Maríus Sverrisson Stefanía Ólafsdóttir Agnar Már Magnússon Kórstjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir pelo nas-k reikiö - so no da n_ 10 01 Traust menntun í framsæknum skóla IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Kvöldskóli Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina Allur tréiðnaður. Verk- og fagbóklegar greinar húsgagna, innréttinga og bygginga. Grunnnám rafiðna 1. önn – Rafvirkjun 3.–7. önn Rafmagnsfræði, raflagnir, rafstýringar og lýsingatækni. Listnámsbraut – Almenn hönnun Byrjunaráfangar í kjarna og á kjörsviði almennrar hönnunar auk valáfanga, svo sem skynjun, túlkun og tjáning; samtíma- menning í sögulegu samhengi; tækni og verkmenning fram yfir miðja 19. öld; og form-, efnis, lita- og markaðsfræði. Brautin er öflugur undirbúningur fyrir framhaldsnám í hönnun. Upplýsinga- og fjölmiðlabraut Grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Undirbúningur undir nám í grafískri miðlun, vefsmíði, ljósmyndun, nettækni, prentun og bókbandi. Tækniteiknun Grunnteikning, húsateikning, innréttingateikning og AutoCad. Meistaraskóli Allar almennar rekstrar- og stjórnunargreinar iðnfyrirtækja. Faggreinar byggingagreina 3. önn. ATH. Nemendur skulu hafi lokið sveinsprófi í viðkomandi iðngrein og framvísi sveinsbréfi. Almennt nám Bókfærsla, danska, enska, stærðfræði, eðlis- og efnafræði, félagsfræði, íslenska, spænska, þýska, fríhendisteikning, grunnteikning, vélritun, upplýsinga- og tölvunotkun. Innritun og stundatöflur eru á www.ir.is (sjá kvöldnám). Einnig verður innritað í skólanum 17. og 18. ágúst kl. 16–19. Kennsla hefst miðvikudaginn 24. ágúst samkvæmt stundaskrá. Nánari upplýsingar á www.ir.is og í síma 522 6500. mbl.is ókeypis smáauglýsingar samningi dags. 13. október 1998 frá Colonial, Miami, Flórída í Bandaríkj- unum, en reikninginn hafði við- skiptafélagi ákærða, Jón Gerald Sull- enberger, gefið út að ósk ákærða í þessu skyni, og með því að aðflutn- ingsgjöld voru reiknuð á grundvelli aðflutningsskýrslunnar kom ákærði sér undan því að standa skil á virð- isaukaskatti að fjárhæð kr. 202.510,00 og vörugjaldi að fjárhæð kr. 325.618,00 eða samtals kr. 528.128,00. 38. Ákærði Jón Ásgeir með því að hafa við innflutning á bifreiðinni OD 090, með sendingarnúmer S HEG 10 11 9 CA MTR W004, í nafni hluta- félagsins Baugs, gefið rangar upplýs- ingar á aðflutningsskýrslu dags. 3. desember 1999, innlagðri 7. desem- ber 1999 hjá Tollstjóranum í Reykja- vík, ásamt tilhæfulausum vörureikn- ingi dags. 23. september 1999, útgefnum af Nordica Inc., Miami, Flórída í Bandaríkjunum, sem til- greindi kaupverð bifreiðarinnar ranglega USD 27.600,00 í stað USD 34.400,00 samkvæmt vörureikningi dags. 29. október 1999 frá Automot- ores Zona Franca, Miami, Flórída í Bandaríkjunum, en fyrrnefnda reikninginn hafði viðskiptafélagi ákærða, Jón Gerald Sullenberger, gefið út að ósk ákærða í þessu skyni, og með því að aðflutningsgjöld voru reiknuð á grundvelli aðflutnings- skýrslunnar kom ákærði sér undan því að standa skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 225.900,00 og vöru- gjaldi að fjárhæð kr. 363.229,00 eða samtals kr. 589.129,00. 39. Ákærði Jóhannes með því að hafa við innflutning á bifreiðinni KY 293, með sendingarnr. D 779 28 05 0 US NYC 0160, gefið rangar upplýs- ingar á aðflutningsskýrslu dags. 30. maí 2000, innlagðri sama dag hjá Tollstjóranum í Reykjavík, ásamt til- hæfulausum vörureikningi dags. 11. apríl 2000, útgefnum af Nordica Inc., Miami, Flórída í Bandaríkjunum, sem tilgreindi kaupverð bifreiðarinn- ar ranglega USD 34.850,00 í stað USD 43.400,00 samkvæmt vöru- reikningi dags. 17. maí 2000 frá Auto- motores Zona Franca, Miami, Flór- ída í Bandaríkjunum, en fyrrnefnda reikninginn hafði viðskiptafélagi ákærða, Jón Gerald Sullenberger, gefið út að ósk ákærða í þessu skyni, og með því að aðflutningsgjöld voru reiknuð á grundvelli aðflutnings- skýrslunnar kom ákærði sér undan því að standa skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 231.691,00 og vöru- gjaldi að fjárhæð kr. 293.487,00 eða samtals kr. 525.178,00. 40. Ákærða Kristín með því að hafa við innflutning á bifreiðinni KY 835, með sendingarnr. D 779 28 05 0 US NYC 0159, gefið rangar upplýs- ingar á aðflutningsskýrslu dags. 30. maí 2000, innlagðri sama dag hjá Tollstjóranum í Reykjavík, ásamt til- hæfulausum vörureikningi dags. 11. apríl 2000, útgefnum af Nordica Inc., Miami, Flórída í Bandaríkjunum, sem tilgreindi kaupverð bifreiðarinn- ar ranglega USD 46.780,00 í stað USD 58.200,00 samkvæmt vöru- reikningi dags. 17. maí 2000 frá Auto- motores Zona Franca, Miami, Flór- ída í Bandaríkjunum, en fyrrnefnda reikninginn hafði viðskiptafélagi ákærðu, Jón Gerald Sullenberger, gefið út að ósk ákærðu í þessu skyni, og með því að aðflutningsgjöld voru reiknuð á grundvelli aðflutnings- skýrslunnar kom ákærða sér undan því að standa skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 307.598,00 og vöru- gjaldi að fjárhæð kr. 389.639,00 eða samtals kr. 697.237,00. Brot ákærða Jóns Ásgeirs sam- kvæmt 37. og 38. tölulið ákæru telj- ast varða við 2. mgr., sbr. 1. mgr. 126. gr. tollalaga nr. 55, 1987, og 2. mgr. 158. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Brot ákærða Jóhannesar sam- kvæmt 39. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr., sbr. 1. mgr. 126. gr. tolla- laga nr. 55, 1987, og 2. mgr. 158. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Brot ákærðu Kristínar samkvæmt 40. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr., sbr. 1. mgr. 126. gr. tollalaga nr. 55, 1987, og 2. mgr. 158. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar fyrir framan- greind brot. Skrifstofa Ríkislögreglustjórans, Reykjavík 1. júlí 2005. SAMKVÆMT ákærum þeim sem Morgunblaðið hefur fengið í hendur varða meint brot hinna ákærðu í Baugsmálinu við margvísleg ákvæði hegningarlaga og hlutabréfalaga. Eru refsiviðurlög við þeim háar sektir og allt að sex ára fangelsis- vist. Meðal annars varða meint brot við 247. grein hegningarlaganna frá 1940, þar sem kveðið er á um að maður sæti allt að 6 ára fangelsi, dragi hann sér fjármuni eða önnur verðmæti, sem hann hefur í vörslum sínum, en annar maður er eigandi að, án þess þó að verknaðurinn varði við 246. grein laganna. Þá er kveðið á um í greininni að hafi maður notað peninga annars manns heimildar- laust í sjálfs sín þarfir, þá skal hon- um refsað fyrir það hvort sem hon- um hefur verið skylt að halda peningunum aðgreindum frá sínu fé eða ekki. Misnotkun á aðstöðu og fjármunum annarra Einnig varða meint brot hinna ákærðu við 249. grein almennu hegningarlaganna, þar sem segir: „Ef maður, sem fengið hefur að- stöðu til þess að gera eitthvað, sem annar maður verður bundinn við, eða hefur fjárreiður fyrir aðra á hendi, misnotar þessa aðstöðu sína, þá varðar það fangelsi allt að 2 ár- um, og má þyngja refsinguna, ef mjög miklar sakir eru, allt að 6 ára fangelsi.“ Þá varða meint brot ákærðu við 262. grein hegningarlaganna, þar sem segir m.a.: „Hver sem af ásetn- ingi eða stórfelldu gáleysi gerist sekur um meiri háttar brot gegn 1., 2. eða 5. málsgrein 107. greinar laga um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. og 2. málsgrein 22. greinar laga um tekjustofna sveitarfélaga, 1., 2. eða 7. málsgrein. 30. grein laga um stað- greiðslu opinberra gjalda, sbr. og 11. grein laga um tryggingagjald, og gegn 1. eða 6. málsgrein 40. gr. laga um virðisaukaskatt skal sæta fang- elsi allt að 6 árum. Heimilt er að dæma fésekt að auki samkvæmt þeim ákvæðum skattalaga er fyrr greinir. Sömu refsingu skal sá sæta sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi ger- ist sekur um meiri háttar brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, virðisaukaskatt, bókhald og ársreikninga.“ Stjórnendum óheimilt að fá lán Einnig varða meint brot ákærðu við 104. grein hlutabréfalag frá 1995, þar sem segir m.a.: „Hlutafélagi er hvorki heimilt að veita hluthöfum, stjórnarmönnum eða framkvæmda- stjórum félagsins eða móðurfélags þess lán né setja tryggingu fyrir þá.“ Einnig eru meint brot ákærða sögð brjóta í bága við 153. grein hlutabréfalaga, þar sem segir að það varði sektum eða fangelsi allt að tveimur árum að skýra vísvitandi rangt eða villandi frá högum hluta- félags eða öðru er það varðar í op- inberri auglýsingu eða tilkynningu, í opinberu boði í þátttöku í stofnun fé- lags eða í útboði hluta, í skýrslum, ársreikningi eða yfirlýsingum til hluthafafundar eða forráðamanna félags eða í tilkynningum til hluta- félagaskrár. Einnig varða meint brot ákærðu við 126. grein tollalaga frá 1987, þar sem segir m.a.: „Hver sem af ásetn- ingi, stórfelldu gáleysi eða ítrekað veitir rangar eða villandi upplýsing- ar um tegund, magn eða verðmæti farms eða vöru eða leggur ekki fram til tollmeðferðar gögn sem lög þessi taka til skal sæta sektum sem nema skulu að lágmarki tvöfaldri en að há- marki tífaldri þeirri fjárhæð sem undan var dregin af aðflutnings- gjöldum. Hafi brot skv. 1. málsgrein verið framið með þeim ásetningi að svíkja undan eða fá ívilnun á aðflutnings- gjöldum skal það, auk sekta, varða [fangelsi allt að sex árum] ef miklar sakir eru eða brot er ítrekað.“ Meint brot varða allt að 6 ára fangelsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.