Morgunblaðið - 14.08.2005, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
F
lags of Our Fathers seg-
ir söguna á bak við ein-
hverja frægustu ljós-
mynd úr síðari
heimsstyrjöldinni, sem
tekin er af sexmenning-
unum, fótgönguliðunum
fræknu, að reisa bandaríska fánann
eftir langvarandi bardaga við Japana
á litlu eldfjallaeyjunni Iwo Jima árið
1945. Sigurinn kostaði bæði hrikaleg-
ar mannfórnir og ógrynni stríðstóla.
Atburðurinn markaði þáttaskil í
styrjöldinni, Bandamenn náðu að
leggja undir sig japanskt land, sem að
auki var í flugfæri frá Tókýó og öðr-
um grundvallarskotmörkum á föður-
landi óvinarins.
Myndin fangar eitt rómaðasta
augnablik hernaðarsögu Bandaríkj-
anna, hún var og er táknræn fyrir
seiglu og sigurvilja þjóðarinnar sem
öðrum fremur knúði fram sigur á
fræknum óvini. Stríðsmyndir eru
sannarlega ekki í tísku en tímasetn-
ingin ætti ekki að koma á óvart því
Bandaríkjamenn þurfa að bæta
ímynd sína, jafnt heima fyrir sem út á
við. Eastwood er mikilvægur föður-
landsvinur, virtur og dáður um
heimsbyggðina og ekki skaða Óskars-
verðlaunin sem hann vann í ár fyrir
Million Dollar Baby. Hann er á há-
tindi frægðarinnar líkt og framleið-
andi myndarinnar, Steven Spielberg.
Tvímenningarnir eru því lifandi goð-
sagnir sem hvarvetna njóta ómældr-
ar virðingar. Bandaríkin eiga tæpast
völ á magnaðri talsmönnum á tímum
umdeildra stríðsátaka og mistaka
sem hafa skaðað álit þeirra. Dáðir
þeirra í heimsstyrjöldunum eru víðs
fjarri hugarheimi unga fólksins í dag,
sem almennt þekkir hvorki haus né
sporð á hryllingi Kyrrahafsstríðsins
þar sem Bandaríkjamenn féllu í
hrönnum í átökunum við Japana.
Mikilvæg smáeyja úti í miðju hafi
Iwo Jima, er að vísu stærst í Eld-
fjallaeyjaklasanum, en hún er aðeins
um 8 kílómetrar á lengd og 4 þar sem
hún er breiðust. Hvað kom til að þetta
eldvirka og hrjóstruga eyland með
sínum bullandi leirhverum var báðum
aðilum svo dýrmætt og um sinn
þungamiðja sóknar Bandaríkja-
manna á hendur Japönum í miðjum
hildarleiknum?
Iwo Jima var í augum Japana, hluti
föðurlandsins, aðeins í u.þ.b. 1.000
kílómetra fjarlægð frá sjálfri höfuð-
borginni, aðsetri stjórnarinnar og
keisarans. Aldrei fyrr í 5.000 ára sögu
þjóðarinnar höfðu erlendir stríðs-
menn hertekið japanskt land. Í aug-
um Bandaríkjamanna lá mikilvægi
eyjunnar fyrst og fremst í staðsetn-
ingunni, miðja vegu á milli Japans og
aðalbækistöðva bandarísku
sprengjuflugvélanna á Guam-eyju.
Bandaríkjaher hóf að nota lang-
fleygar B-29-sprengjuflugvélar til að
ráðast á Japan um mitt ár 1944 en þá
skorti flugvelli fyrir skammdrægari,
litlar orrustuflugvélar til að vernda
þær. Sprengjuflugvélaranar biðu því
oft og tíðum afhroð í viðskiptum sín-
um við orrustuflugvélar óvinarins.
Staðsetning Iwo Jima, með sínar
þrjár flugbrautir var því ákjósanleg
fyrir léttar og vel vopnaðar fylgdar-
vélar. Að auki var hún vel þeginn
griðastaður fyrir laskaðar sprengju-
flugvélar á heimleið til Guam eftir
loftárásir á Japan.
Ómennskustu átök styrjaldarinnar
Það hafði sýnt sig að Iwo Jima var
ekki unnin úr lofti því Bandaríkja-
menn hófu loftárásir á eyjuna síðla
árs 1944, og tókst iðulega að skemma
flugbrautirnar, en Japanir voru ekki
höndum seinni að lagfæra þær aftur.
Það þurfti því meira til, samhæfðar
loftárásir sprengju- og orrustuflug-
véla og sprengjuregn frá sjóhernum
auk einvalaliðs úr röðum landgöngu-
liða sjóhersins, og þeirra beið verk-
efni sem minnti um margt á martröð.
Aðfaranótt 19. febrúar 1945 var lát-
ið til skarar skríða, sjóherinn var bú-
inn að umkringja eyjuna með 880
herskipum af öllum stærðum og skot-
markið var aðeins þessi litli hólmi.
Eftir klukkustundarlanga og linnu-
lausa stórskotahríð logaði Iwo Jima
enda á milli. Þá hófst annar kafli inn-
rásarinnar og hætt er við að japönsku
hermennirnir hafi litið til himins því
nú steyptu sér á annað hundrað
öskrandi sprengjuflugvélar niður úr
skýjunum og „teppalögðu“ eyjuna
með tugum tonna af öflugum farm-
inum. Þegar þær höfðu lokið sér af
tóku herskipin að spýja kúlnaregni á
nýjan leik.
Þriðji kafli, sjálf innrásin, hófst í
dögun og fyrsta bylgja landgönguliða
flæddi á land. Svört, laus, öskukennd
ströndin gerði þeim erfitt fyrir því
útilokað reyndist að grafa í hana skot-
grafir. Þeir voru því auðveld skot-
mörk fyrir japanska varnarliðið sem
hafði búið um sig upp af ströndinni, í
hellum og steinsteypu, manngerðum
neðanjarðarbyrgjum og skotgröfum.
Landgönguliðarnir stóðu því ber-
skjaldaðir frammi fyrir tugþúsundum
leyniskyttna og voru murkaðir niður í
þúsundatali. Skothríðin gerði það að
verkum að erfitt var að koma skipu-
lagi á liðsflutninga, ástandið á líkum
þaktri, blóði drifinni ströndinni varð á
svipstundu skelfilegra en orð fá lýst.
Þarna börðust um hundrað þúsund
manns á örlitlu eylandi. Í röskan
mánuð var Iwo Jima fjölmennasta
víglína á jörðinni
Hið tæplega 200 metra háa Suri-
bachi-eldfjall á suðurodda eyjunnar
gnæfði yfir hugsanlega lendingar-
staði. Þaðan sáu japönsku hermenn-
irnir hvern lófastóran blett og höfðu
undirbúið sig af kostgæfni, búnir að
birgja sig upp af matvælum, vatni og
síðast en ekki síst skotfærum, tilbúnir
í langvinn átök sem þeir urðu að
vinna – ekki síður en innrásarliðið.
Japanirnir höfðu einnig búið um sig í
járnbentum, neðanjarðarvélbyssu-
hreiðrum á víð og dreif um eyjuna,
einkum á mögulegum lendingarstöð-
um. Himinninn logaði af byssukúlum
tugþúsunda leyniskyttna sem einnig
beittu öllum öðrum tiltækum vopn-
um, líkt og sprengjuvörpum og hand-
sprengjum. Tugþúsundir vélbyssna
beggja liða geltu og spýttu úr sér
kúlnaregni. Herskipin spúðu eldi og
Flags of Our Fathers fjallar ekki aðeins um eina mannskæðustu lykilorrustu síðari heimsstyrjaldarinnar heldur eina þá hroðalegustu
Blóðbaðið á Iwo Jima
Nú eru tökur hafnar á
stríðsmyndinni Flags of Our
Fathers, en hluti hennar
verður tekinn í Reykjanes-
fólkvangnum. Myndin
fjallar um einhver hrottaleg-
ustu stríðsátök sögunnar.
Sæbjörn Valdimarsson rifjar
upp þessa innrás sem skipti
sköpum í heimsstyrjöldinni
síðari og verður nú kvik-
mynduð í leikstjórn Clints
Eastwood. Enginn þarf að
velkjast í vafa um að allt fer
í bál og brand í Krísuvík og
útkoman getur orðið, ef allt
gengur að óskum, ekki að-
eins ein umtalaðasta heldur
metaðsóknar- og Ósk-
arsverðlaunamynd næsta
árs. Mynd ársins.
John Wayne sem liðþjálfinn Stryker í the Sands of Iwo Jima. Myndin er hetju-
saga og skáldskapur sem lauslega er byggður á staðreyndum.
Tony Curtis í hlutverki pima-indjánans Ira Hays í kvikmyndinni The Outsider.
Lánið lék ekki við Hays sem endaði ævina sem drykkjusjúklingur.
Innrásarhernum reyndist erfitt að ná fótfestu á öskukenndri ströndinni og voru
bandarísku hermennirnir því auðveld skotmörk fyrir japanska varnarliðið.
Ein af frægustu ljósmyndum allra styrjalda þykir táknræn fyrir sigurvilja Bandaríkjamanna.
’Hver einasti land-gönguliði, hvar sem
var á eyjunni, var
ætíð í skotfæri Jap-
ana, það kemur ekki
á óvart að Iwo Jima
var kölluð helvíti á
jörðu.‘