Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 15

Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 15 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O RK 2 92 03 08 /2 00 5 Ljóstæknifélag Íslands, Orkuveita Reykjavíkur og tímaritið Ljós efna til samkeppni um hönnun á ljóskeri (lampa). Þá verða veittar viðurkenningar fyrir m.a. frumleika, útlit og gæði lýsingar. Sýning verður haldin á innsendum tillögum í Galleríi 100° í höfuðstöðvum OR auk þess sem valdar tillögur verða kynntar í tímaritinu Ljósi. Afhending keppnisgagna og skráning þátttakenda fer fram í afgreiðslu í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 frá 15. ágúst. Nánari upplýsingar um keppnina má finna á www.ljos.org og á www.or.is Markmið samkeppninnar er að auka áhuga á góðri hönnun lýsingar og ljóskerja. Ljósker er gamalt íslenskt orð og haft yfir þann hlut sem geymir ljósgjafa og dreifir ljósinu frá sér. Í samkeppni þessari er þátttakendum frjálst að gera tillögu að ljóskeri til hver kyns nota og er heimilt að notast við hvaða ljósgjafa sem er. Þátttaka er opin öllum og hugmyndum ber að skila inn í samræmi við keppnislýsingu. Skiladagur tillagna er 7. nóvember 2005. Þremur tillögum verður veittur fjárstyrkur til áframhaldandi þróunar á ljóskerinu. 1. verðlaun: 500.000 kr. 2. verðlaun: 400.000 kr. 3. verðlaun: 300.000 kr. Hönnunarsamkeppni um ljósker skiptamannareikning Fjárfestinga- félagsins Gaums ehf. hjá Baugi hf. að fjárhæð kr. 50.529.987,00 vegna kaupa einkahlutafélagsins á hluta- bréfum í Baugi hf. í hlutafjárútboði í félaginu í desember árið 2000 þegar einkahlutafélagið eignaðist bréfin. Ákærðu Kristínu sem framkvæmda- stjóra einkahlutafélagsins gat ekki dulist að lánveitingin, sem var án skuldaviðurkenningar, trygginga og samnings um endurgreiðslu og lána- kjör, var ólögmæt og andstæð hags- munum Baugs hf. Í bókhaldi Baugs hf. var krafan færð á viðskipta- mannareikning einkahlutafélagsins. Eftir bókun kröfunnar stóð við- skiptamannareikningurinn í kr. 145.871.863,00 en skuld einkahluta- félagsins var síðar gerð upp með víxl- inum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru. 16. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 13. febrúar 2001 látið færa kröfu á við- skiptamannareikning ákærðu Krist- ínar í bókhaldi Baugs hf. að fjárhæð kr. 3.786.727,00 vegna kaupa ákærðu Kristínar á hlutabréfum í Baugi hf. í hlutafjárútboði í félaginu í desember 2000 þegar ákærða eignaðist hluta- bréfin. Ákærðu Kristínu gat ekki dulist að lánveitingin, sem var án skuldaviðurkenningar, trygginga og samnings um endurgreiðslu og lána- kjör, var ólögmæt. Arðgreiðsla af hlutabréfum fyrir árið 2001, kr. 397.894,00, var færð til lækkunar á skuldinni hinn 5. júlí 2001 en skuld ákærðu var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru. 17. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að hafa hinn 18. maí 2001 látið milli- færa kr. 100.000.000,00 af banka- reikningi Baugs hf., nr. 0527 26 000720, inn á bankareikning nr. 0527 26 001099 í eigu Fjárfestingafélags- ins Gaums ehf., sem ákærðu Krist- ínu, sem var framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins, gat ekki dulist að var ólögmætt og andstætt hags- munum Baugs hf., enda lánveitingin án þess að einkahlutafélagið legði fram skuldaviðurkenningu, trygg- ingu eða samning um endurgreiðslu eða lánakjör, fyrir fénu, sem ráðstaf- að var samdægurs af bankareikningi einkahlutafélagsins til Nordic Rest- aurant Group AB, sem hlutafjár- framlag einkahlutafélagsins í því fé- lagi. Í bókhaldi Baugs hf. var millifærslan til einkahlutafélagsins færð sem krafa á viðskiptamanna- reikning einkahlutafélagsins, sem eftir bókun millifærslunnar stóð í kr. 262.836.989,00 en skuld einkahluta- félagsins var síðar gerð upp með víxl- inum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru. 18. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 16. maí 2000 misnotað aðstöðu sína þegar þeir lánuðu, án lánasamnings, trygg- inga eða ábyrgða, kr. 64.500.000,00, fyrir hönd Baugs hf. til einkahluta- félagsins Fjárfars, kt. 521198-2149, sem ákærði Jón Ásgeir stjórnaði og rak, vegna kaupa einkahlutafélags- ins á hlutabréfum í Baugi hf., að nafnverði kr. 5.000.000,00. Skuld Fjárfars ehf. við Baug hf., var gerð upp eftir húsleit lögreglu hjá Baugi hf., hinn 28. ágúst 2002. 19. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 30. júní 2000 misnotað aðstöðu sína þegar þeir lánuðu, án lánasamnings, trygg- inga eða ábyrgða, kr. 50.000.000,00 fyrir hönd Baugs hf., til einkahluta- félagsins Fjárfars, sem ákærði Jón Ásgeir stjórnaði og rak, vegna kaupa einkahlutafélagsins á 5% hluta í Baugi.net ehf., kt. 570300-2960, af Baugi hf. að nafnverði kr. 2.500.000,00. Viðskipti félaganna með hlutabréf í Baugi.net ehf. gengu til baka hinn 21. febrúar 2002. 20. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa hinn 13. febrúar 2001 misnotað aðstöðu sína þegar þeir lánuðu, án lánasamnings, trygginga eða ábyrgða, kr. 85.758.591,00 fyrir hönd Baugs hf. til einkahlutafélagsins Fjárfars, sem Jón Ásgeir stjórnaði og rak, vegna kaupa einkahlutafélagsins á hluta- bréfum í Baugi hf., í tengslum við hlutafjáraukningu þess, að nafnverði kr. 7.392.982,00. Skuld Fjárfars ehf. við Baug hf., var gerð upp eftir hús- leit lögreglu hjá Baugi hf., hinn 28. ágúst 2002. 21. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta Baug hf., greiða á tímabilinu frá 5. október 1998 til 2. maí 2002, samkvæmt reikningum, kostnað sem ákærði hafði stofnað til með úttekt- um á Visa- og Mastercard-greiðslu- kortum í reikning Baugs hf. vegna persónulegra úttekta ákærða óvið- komandi Baugi hf., samtals að fjár- hæð kr. 12.553.358,60 svo sem hér á eftir greinir. Voru greiðslurnar í bók- haldi Baugs hf. færðar til eignar á viðskiptamannareikningi ákærða hjá Baugi hf. Skuld ákærða samkvæmt viðskiptamannareikningnum var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru: […] 22. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta Baug hf., greiða sér, á tíma- bilinu frá 2. júní 1999 til 12. júní 2002, í alls átta skipti, samtals kr. 9.536.452,00 úr sjóðum Baugs hf., í fimm skipti með millifærslum af bankareikningum hlutafélagsins nr. 1150 26 77 og 0527 26 720, inn á eigin bankareikning ákærða, í eitt skipti með millifærslu inn á bankareikning nafngreinds manns og í tvö skipti lát- ið afhenda sér í reiðufé. Voru greiðsl- urnar í bókhaldi Baugs hf. færðar til eignar á viðskiptamannareikningi ákærða hjá Baugi hf., svo sem hér á eftir greinir. Skuld ákærða sam- kvæmt viðskiptamannareikningnum var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru: […] 23. Ákærða Jóni Ásgeiri með því að láta Baug hf. greiða, á tímabilinu frá 26. janúar 1999 til 16. júlí 2002, samtals kr. 5.551.474,91, samkvæmt eftirgreindum reikningum, sem voru vegna kostnaðar sem ákærði hafði stofnað til og voru einkakostnaður ákærða, óviðkomandi Baugi hf. Greiðslurnar voru færðar til eignar á viðskiptamannareikningi ákærða hjá Baugi hf. Skuld ákærða samkvæmt viðskiptamannareikningnum var gerð upp með víxlinum sem nefndur er í lok 11. töluliðs ákæru: […] Brot ákærða Jóns Ásgeirs sam- kvæmt 10. til og með 23. töluliðs ákæru teljast varða við 247. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19, 1940, til var við 249. gr. sömu laga og jafn- framt teljast brot samkvæmt tölulið- um 10, 15, 16, 18 og 20 varða við 2. mgr. 104. gr., og brot samkvæmt töluliðum 11, 12, 13, 14, 17, 19, 21, 22 og 23 varða við 1. mgr. 104. gr., sbr. 2. tl. 153. gr., laga um hlutafélög nr. 2 1995. Brot ákærða Tryggva samkvæmt 10., 12., 13. til og með 16. og 18. til og með 20. töluliðs ákæru teljast varða við 247. gr., sbr. 22. gr., almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, til vara við 249. gr. sbr. 22. gr., sömu laga og jafnframt teljast brot samkvæmt töluliðum 10, 15, 16, 18 og 20 varða við 2. mgr. 104. gr., og brot sam- kvæmt töluliðum 12, 13, 14 og 19 varða við 1. mgr. 104. gr., sbr. 2. tl. 153. gr., laga um hlutafélög nr. 2, 1995. Brot ákærðu Kristínar samkvæmt 12., 15. til og með 17. töluliðs ákæru teljast varða við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. V. BROT GEGN LÖGUM UM HLUTAFÉLÖG Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva er gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um hluta- félög í eftirgreindum tilvikum: 24. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa veitt Fjár- festingafélaginu Gaumi ehf., sem var í eigu ákærða Jóns Ásgeirs og fjöl- skyldu hans, lán vegna tveggja eft- irtaldra reikninga frá Baugi hf. vegna útlagðs kostnaðar fyrir einka- hlutafélagið, en kröfurnar voru eign- færðar á árinu 1998 á viðskipta- mannareikning einkahlutafélagsins hjá Baugi hf., samtals að fjárhæð kr. 401.430,00, svo sem hér greinir: [töfl- ur ekki tiltækar] 25. Ákærðu Jóni Ásgeiri og Tryggva með því að hafa veitt Fjár-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.