Morgunblaðið - 14.08.2005, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
BANDARÍSKI herinn hefur samið
við Hringrás um niðurrif Rockville-
ratsjárstöðvarinnar á Sandgerðis-
heiði og tengdra bygginga, m.a. ol-
íutanka, lagna og girðinga. Nið-
urrifið á að hefjast í nóvember og
standa í um fjóra mánuði. Um tíu
manna hópur frá fyrirtækinu mun
vinna við niðurrifið, en kostnaður
við það er mikill, eða 100–110 millj-
ónir króna að sögn Einars Ásgeirs-
sonar, framkvæmdastjóra Hring-
rásar.
Krafa um tvöfalda ábyrgð
Tilboðsgjafi í niðurrifið var Línu-
borun ehf. en Hringrás annast það
sem undirverktaki. Hringrás ann-
aðist áður niðurrif á öðru svæði í
nágrenni Rockville í samstarfi við
og fyrir hönd Íslenskra aðalverk-
taka.
Einar segir um eitt stærsta nið-
urrifsverkefni að ræða sem hann
minnist hérlendis, ásamt fyrra nið-
urrifi á svæðinu. „Við höfum mjög
góðan tækjabúnað, m.a. stórvirkar
gröfur með klippum og annan sér-
hæfðan búnað, og mjög hæfan
mannskap, þannig að þótt verk-
efnið sé stórt á þetta ekki að vefj-
ast fyrir okkur.“
Til að uppfylla skilyrði hersins
þarf fyrirtækið m.a. að leggja fram
um 200 milljóna króna tryggingu.
„Bandaríski herinn gerir miklar
kröfur til verktaka sinna og þarna
er um tvöfalda ábyrgð að ræða,
þ.e. tryggingin nær bæði til verk-
tímans og heils árs að honum lokn-
um. Við þurfum að uppfylla ákveð-
in formsatriði, og það tekur
talsvert langan tíma áður en fram-
kvæmdin getur hafist,“ segir Ein-
ar.
Mörg þúsund rúmmetrar efnis
Mikið af efni fellur til við nið-
urrifið, m.a. steypa, járn, timbur og
spilliefni á borð við asbest. Einar
segir ljóst að um sé að ræða mörg
þúsund rúmmetra af efni. „Við
áætlum að bara af járni falli til
nokkur þúsund tonn, og steypan er
mesta magnið þannig að það er
ennþá meira.“
Einar segir að öll förgun muni
fara fram eftir löglegum aðferðum.
Jarðefni verði urðuð en sem mest
af efninu verði endurunnið. „Sér-
fræðingar munu fást við asbestið,
það er höndlað þannig að tryggt er
að ekki fari rykagnir úr því, m.a.
með því að plastklæða það, og síð-
an er það urðað. Þannig lágmörk-
um við áhættu þessu samfara.“
Að sögn Einars er Hringrás um
þessar mundir að hefjast handa við
niðurrif Kísilverksmiðjunnar í Mý-
vatnssveit en að því loknu tekur
við niðurrif Rockville.
Varnarliðið starfrækti ratsjár-
stöð í Rockville til ársins 1997 en
þá var svæðið afhent íslenskum
stjórnvöldum. Tveimur árum síðan
fékk meðferðarheimilið Byrgið þar
tímabundið aðsetur. Hugmyndir
hafa verið uppi um að nýta bygg-
ingar þar undir herminjasafn, en í
fyrra var tekin ákvörðun um að
rífa þær.
Bandaríski herinn og Hringrás semja um niðurrif Rockville-ratsjárstöðvarinnar
Eitt mesta niðurrif hérlendis
Eftir Sindra Freysson
sindri@mbl.is
STOFNUN Vigdísar
Finnbogadóttur í erlend-
um tungumálum getur
orðið alþjóðleg miðstöð
tungumála í heiminum,
þar sem safnað yrði
gögnum um tungumál og
menningu á stafrænu
formi.
Á nokkrum stöðum í
heiminum eru til stofn-
anir sem fást við tungu-
mál á afmörkuðum svæðum, en tölvutæknin
gerir mögulegt að tengja slíkar stofnanir
saman. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti, sem stofnun Háskóla Íslands í er-
lendum tungumálum er kennd við, segir í
viðtali við Morgunblaðið í dag, að Ísland sé
stikla á milli heimsálfa og hingað gætu
fræðimenn komið og notfært sér gagna-
grunn og rannsóknir um öll heimsins tungu-
mál.
„Íslendingar hafa mikið fram að færa
þegar tungumál eru annars vegar og al-
þjóðamiðstöð á þessu sviði gæfi tækifæri til
að koma menningu og þjóð á framfæri á af-
ar jákvæðan hátt. Um leið legðum við lið
tungumálunum, sem eiga í vök að verjast.“
Vigdís segist vita að sumum þyki í mikið
ráðist, en sjálf hafi hún fulla trú á að þessar
áætlanir eigi eftir að ganga fram.
Öll heimsins
tungumál á
einum stað
Tungumál eru lykillinn
að heiminum | 10
Vigdís
Finnbogadóttir
UM 1.000 manns eru staddir í Ormsteiti á Eg-
ilsstöðum um helgina.
Fólk tók að fjölmenna strax í fyrradag þegar
hátíðin var sett með formlegum hætti. Fjöl-
breytt dagskrá er á hátíðinni fyrir fólk á öllum
aldri, en hátíðin stendur til sunnudagsins 21.
ágúst nk.
Í dag verður sérstakur Hallormsstað-
ardagur. Tónleikar verða í Atlavík með Valgeiri
Guðjónssyni og Jóni Ólafssyni. Ratleikur
Laufsins, hjólabátakeppni, Brúðubíllinn, varð-
eldur og grill niðri við fljót.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fjör í Ormsteiti
ÞAU sex sem ákærð eru í Baugsmálinu svokall-
aða, Jóhannes Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannes-
son, Kristín Jóhannesdóttir, Tryggvi Jónsson,
Stefán Hilmar Hilmarsson og Anna Þórðardótt-
ir, hafa látið vinna athugasemdir sem lögmaður
eins hinna ákærðu sendi Morgunblaðinu ásamt
ákærunum. Eru þær birtar í heild í Morgun-
blaðinu í dag. Þar segir að eðlilegar skýringar
séu á því sem ákært er fyrir. Allir ákærðu neita
öllum sakargiftum í málinu.
Í ákærunum kemur fram að ýmislegt sé at-
hugavert við samskipti Baugs við fjárfesting-
arfélagið Gaum, sem er í eigu Jóhannesar Jóns-
sonar og fjölskyldu hans. Í skýringum ákærðu
kemur fram að eðlilegar skýringar séu á þessum
samskiptum. Í mörgum tilvikum hafi verið veitt
viðskiptalán til þess að flýta fyrir viðskiptum.
Dæmi um þetta eru sögð viðskipti sem tengd-
ust einkaleyfi fyrir Debenhams á Íslandi, en þar
er Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs,
og Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra
Baugs, gefið að sök að hafa í desember 1999
millifært 35 milljónir af reikningum Baugs yfir
til Gaums. Í skýringum ákærðu kemur fram að
samstarf Baugs og Gaums hafi gjarnan verið
þannig að Gaumur hafi farið á undan í leit að
fjárfestingum, og tekið áhættuna af þeim. Fjár-
festingarnar hafi svo verið færðar yfir til Baugs,
sem hagnaðist verulega á viðskiptunum.
Jóni Ásgeiri, Tryggva og Jóhannesi er gefið
að sök að hafa misnotað aðstöðu sína hjá Baugi
þegar Baugur keypti Vöruveltuna, eiganda
verslunarkeðjunnar 10–11. Skýringar sakborn-
inga á því lúta að því að Jón Ásgeir hafi gert
samning við seljendur Vöruveltunnar sem um-
boðsmaður kaupanda sem var ekki tilgreindur á
þeim tíma en skyldi tilgreindur innan 30 daga.
Samningurinn hafi því falið í sér sölutryggingu
fyrir eigendur Vöruveltunnar, sem Jón Ásgeir
ábyrgðist.
Segir í skýringum ákærðu að Íslandsbanki
hafi tekið söluferlið yfir og „aðrir aðilar“ hafi
komið að málinu og verið eigendur 70% hluta-
fjárins, ekki Jón Ásgeir eins og segir í ákæru.
Segir einnig að viðskiptin hafi verið gerð með
vitund og samþykki hluthafa Baugs, sem var
ekki skráð á hlutabréfamarkaði á þeim tíma.
Enginn auðgunarásetningur var til staðar að
mati Jóns Ásgeirs, sem hagnaðist ekki á við-
skiptunum, þótt sakborningar meti það svo að
Baugur hafi hagnast um 3,5–4 milljarða kr.
Nokkur ákæruatriði snúa að snekkju sem Jón
Gerald Sullenberger keypti í Flórída og meint-
um greiðslum Baugs vegna kaupa á snekkjunni.
Segir í athugasemdum ákærðu að fyrirtæki
Jóns Geralds, Nordica, hafi fengið mánaðarleg-
ar greiðslur vegna ráðgjafar og annarrar þjón-
ustu sem veitt hafi verið Baugi við innkaup og
merkingar á vörum, auk flutnings þeirra til Ís-
lands. Segir að vegna taps á rekstri vöruhúss
Nordica hafi greiðslurnar verið nauðsynlegar til
þess að Jón Gerald gæti framfleytt sér og fjöl-
skyldu, en Jón Gerald hafi einn átt snekkjuna.
Sakborningar í Baugsmálinu gera athugasemdir við ákæruliði Ríkislögreglustjóra
Eðlilegar skýringar á öllu
Athugasemdir sakborninga | 18–19
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Á SÍÐUSTU misserum hafa mörg –
ef ekki flest – betri vína sem hér
hafa verið á boðstólum smám sam-
an „dottið út úr vöruúrvalinu og er
nú svo komið að það er vand-
kvæðum bundið að fá hágæðavín
frá mörgum héruðum“, segir Stein-
grímur Sigurgeirsson í vín-
umfjöllun sinni í Tímariti Morg-
unblaðsins.
Hann segir m.a. að „úrvalið sé að
breytast í álíka flatneskju og oft er í
stórmörkuðum austan hafs og vest-
an“. „Hvar eru öll Búrgundarvínin,
Bordeaux-vínin, Rónarvínin, Tosk-
ana-vínin, Piedmont-vínin, aust-
urrísku hvítvínin, þýsku hvítvínin?“
spyr hann.
Vandkvæðum
bundið að fá
hágæðavín
Tímarit | 14