Morgunblaðið - 15.08.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 218. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Langlífasta
hljómsveitin
Lúdó og Stefán með nýjan hljóm-
disk eftir margra ára hlé | 37
Fasteignir og Íþróttir í dag
Fasteignir | Orlofshús við Stykkishólm Grjót sem garðaprýði
Hagræðing og betri þjónusta hjá Tengi Fullgildir Hólmarar
Íþróttir | Grindavík, Fram og KR á sigurbraut Kjölur og GR sigruðu
Stórliðin unnu í Englandi Þrenna Gunnars Heiðars
UNDIRBÚNINGUR fyrir Reykja-
víkurmaraþon er nú í fullum gangi,
og vonast aðstandendur til þess að
þátttakendafjöldinn nái 4.000 þegar
lagt verður af stað á laugardaginn
en í fyrra var sett þátttakendamet
þegar 3.821 var skráður til þátttöku.
Þegar hafa um 1.000 skráð sig til
leiks en von á margföldum þeim
fjölda í vikunni, sérstaklega ef veð-
urhorfur á laugardaginn verða góð-
ar, segir Hjördís Guðmundsdóttir,
kynningarstjóri Íslandsbanka-
Reykjavíkurmaraþons.
Áhugasamir geta skráð sig á
www.marathon.is út fimmtudag,
eða í TBR-húsinu á föstudag.
Þau eru ófá handtökin sem þarf
að inna af hendi fyrir viðburð á borð
við þennan, og voru þeir Þorri Arn-
arsson (t.v.) og Arnór Steinn Jóns-
son að flokka verðlaunapeningana
og setja límmiða á þá þegar ljós-
myndari leit við á dögunum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Vonast eftir
4.000 þátttak-
endum
í maraþoni
FORSVARSMENN Baugs eru í ákærum ríkis-
lögreglustjóra m.a. sagðir hafa veitt rúmar 846
milljónir króna að láni frá félaginu til m.a. fjár-
festingafélagsins Gaums, sem er í eigu Jóhann-
esar Jónssonar og fjölskyldu, einkahlutafélagsins
Fjárfars, sem Jón Ásgeir Jóhannesson rak og
stjórnaði, oft án skuldaviðurkenninga, trygginga
eða samninga um endurgreiðslur.
Alls fjalla 11 af 40 liðum ákærunnar um lán
Baugs til þessara tveggja félaga, auk eins ákæru-
liðar þar sem Kristínu Jóhannesdóttur, fram-
kvæmdastjóra Gaums, er lánað persónulega og
annars þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Baugs, er ákærður fyrir að hafa
lánað sjálfum sér fé.
Í ákærunum, sem Morgunblaðið birti í heild í
gær, kemur fram að Jón Ásgeir, ýmist einn eða
ásamt Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra
Baugs, hafi veitt lánin á tímabilinu frá október
1998 til maí 2001.
Segja lánin fullkomlega lögleg
Í skýringum ákærðu, sem einnig voru birtar í
Morgunblaðinu í gær, kemur fram að í flestum til-
fellum hafi verið um að ræða viðskiptalán sem
löglegt sé að veita. Lánin hafi auk þess verið end-
urgreidd að fullu, mörg hver með víxli útgefnum
hinn 20. maí 2002, sem greiddur var 5. september
sama ár. Þar segir einnig að samstarf Baugs og
Gaums hafi gjarnan verið á þann veg að Gaumur
hafi farið á undan í áhættusamar fjárfestingar,
sem svo hafi verið færðar yfir til Baugs, sem hafi
hagnast verulega á þeim viðskiptum.
Ákæruvaldið telur að lánveitingarnar stangist á
við 104. grein laga um hlutafélög, en þar segir
Í skýringum Jóns Ásgeirs kemur fram að þarna
sé um að ræða hlutabréf í Flugleiðum sem Bónus
hafði upphaflega keypt en við tilurð Baugs hafi
láðst að yfirfæra þau til félagsins. Þetta hafi upp-
götvast eftir að hlutabréfin höfðu verið seld, og
því hafi andvirði söluverðs bréfanna verið fært
sem krafa á viðskiptamannareikning Gaums í
bókhaldi Baugs. Þetta hafi verið viðskiptalegt lán,
og hafi verið endurgreitt fyrir húsleit ríkislög-
reglustjóra.
Í tveimur ákæruliðum eru Jón Ásgeir og
Tryggvi sakaðir um að hafa látið Baug lána
Gaumi peninga til þess að Gaumur geti keypt
hlutabréf í Baugi, samtals 150,5 milljónir króna.
Auk þess hafi þeir lánað Kristínu Jóhannesdóttur
persónulega tæpar 3,8 milljónir króna vegna
kaupa hennar á hlutafé í Baugi.
Þrír ákæruliðir snúa að því að Jón Ásgeir og
Tryggvi hafi lánað fé frá Baugi til einkahluta-
félagsins Fjárfars, sem Jón Ásgeir stjórnaði, sam-
tals rúmar 200 milljónir króna. Eitt lánanna gekk
til baka tveimur árum eftir að það var veitt, en um
150 milljónir króna hafi verið endurgreiddar eftir
húsleit lögreglu hjá Baugi hinn 28. ágúst 2002.
Fékk lánað fyrir 10–11
Fyrsta, og jafnframt hæsta lánið, var veitt í
október 1998, og er Jón Ásgeir er sakaður um að
hafa tekið 200 milljónir króna frá Baugi-Aðföng-
um ehf., dótturfélagi Baugs, og látið afhenda eig-
anda Vöruveltunnar hf., eiganda 10–11 verslana-
keðjunnar, sem greiðslu fyrir kaup Jóns Ásgeirs á
öllu hlutafé í Vöruveltunni. Í maí 1999 samþykkti
stjórn Baugs að kaupa Vöruveltuna, og er Jón Ás-
geir einnig ákærður fyrir að hafa leynt stjórn
Baugs því að hann ætti 70% hlut í Vöruveltunni.
m.a.: „Hlutafélagi er hvorki heimilt að veita hlut-
höfum, stjórnarmönnum eða framkvæmdastjór-
um félagsins eða móðurfélags þess lán né setja
tryggingu fyrir þá.“ Sakborningar benda þó ítrek-
að á að þar sé gerð sú undantekning að þetta eigi
ekki við um „kaup starfsmanna félagsins eða
tengds félags á hlutum eða kaup á hlutum fyrir
þá“.
Flest lánanna veittu Jón Ásgeir og Tryggvi frá
Baugi til Gaums, samtals um 442 milljónum
króna. Í ákærunum kemur t.d. fram að í júní 2001
hafi Jón Ásgeir látið Baug greiða 95 milljónir
króna inn á bankareikning Kaupþings, þaðan sem
fjárhæðinni var ráðstafað til félagsins Cardi Hold-
ing, dótturfélags Gaums Holding, sem bæði voru
skráð í Lúxemborg. Féð var notað sem hlutafjár-
framlag í félaginu FBA-Holding, sem var í eigu
Gaums og þriggja annarra aðila.
Í skýringum ákærða við þá tilteknu færslu
kemur fram að um sé að ræða þóknun sem Gaum-
ur hafi fengið fyrir að falla frá rétti sínum vegna
þátttöku í A-Holding, sem stofnað var utan um
fjárfestingu í Arcadia. Íslandsbanki og KB banki,
sem voru stofnhluthafar í A-Holding, hafi fengið
samskonar þóknun, og með þessu hafi Baugur
sparað um 650 milljónir króna frá þeim samn-
ingum sem þegar hafi verið gerðir.
Afhenti hlutabréf í Flugleiðum
Jón Ásgeir er einnig ákærður fyrir að hafa um
mitt ár 1999 afhent Gaumi tæplega 10,7 milljón
hluti Baugs í Flugleiðum án greiðslu eða skulda-
viðurkenninga, og hafi Gaumur selt hlutabréfin í
ágúst það sama ár fyrir tæplega 49,4 milljónir
króna. Þessi ráðstöfun bréfanna var færð í bók-
hald Baugs í árslok 1999 með færslum frá endur-
skoðanda að fjárhæð 44,8 milljónir króna, sem
voru færðar á viðskiptamannareikning Gaums.
Forsvarsmenn Baugs ákærðir fyrir að lána sjálfum sér og fjölskyldufyrirtækjum
Lánuðu rúmlega 846
milljónir af fé Baugs
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Baugur | 6
Ashgabat. AP. | Saparmurat Niyazov,
forseti Túrkmenístans, óskaði í gær
sjálfum sér og þegnum sínum til ham-
ingju með „Melónudaginn“, sem hann
hefur stofnað til í virðingarskyni við
þennan eftirlætisávöxt landsmanna.
Í tilkynningu frá landbúnaðarráðu-
neytinu sagði, að í Túrkmenístan
væru ræktuð 500 afbrigði af mel-
ónum, þar á meðal Keisaramelónan
til heiðurs Niyazov og önnur, sem
kölluð er Gullöldin. Er það vegna gíf-
urlegrar velsældar meðal landsins
barna undir Niyazov.
„Megi ævi hvers einasta Túrkmena
verða jafnyndisleg og melónurnar
okkar,“ sagði í yfirlýsingu frá Niya-
zov og í forsíðufyrirsögn í dagblaði
stjórnarinnar sagði, að engar mel-
ónur í heimi jöfnuðust á við þær túrk-
mensku.
Niyazov hefur verið völd í Túrk-
menístan frá 1985 og lætur dýrka sig
sem hálfguð. Í höfuðborginni, Ashga-
bat, er af honum mikil, gullin stytta,
sem snýst og horfir alltaf við sólu.
Melónudagur í
Túrkmenístan
Aþenu. AP, AFP. | Tveir menn reyndu
að taka við stjórn kýpversku Boeing
737-farþegaþotunnar rétt áður en
hún hrapaði til jarðar skammt frá
Aþenu í Grikklandi í gær. Er þetta
haft eftir flugmönnum tveggja
grískra herþotna, sem sendar voru
til móts við þotuna eftir að samband
við hana rofnaði.
Grísku herflugmennirnir segja, að
þeir hafi séð aðstoðarflugmanninn
að því er virtist meðvitundarlausan
en ekki komið auga á flugstjórann.
Þá hafi þeir séð tvo menn, hugsan-
lega farþega eða einhverja úr áhöfn-
inni, reyna að taka við stjórninni.
Sáu herflugmennirnir, að súrefnis-
grímur voru notaðar.
Í síðasta viðtali við flugturninn í
Aþenu sagði flugstjórinn, að ólag
væri á jafnþrýstibúnaði en sumir
telja, að meira hafi verið að.
Reyndu að taka við stjórn
Reuters
Grískur lögreglumaður við stélhluta kýpversku Boeing 737-þotunnar á slysstað í gær. Voru lík fólksins um borð
mjög illa farin en haft var eftir björgunarmanni, að svo virtist sem flestir hefðu verið með súrefnisgrímur.
Allir fórust er kýp-
versk þota hrapaði
skammt frá Aþenu
Virtust | 16
Brak úr vélinni á stóru svæði
♦♦♦