Morgunblaðið - 15.08.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.08.2005, Blaðsíða 36
36 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ -Steinunn/ Blaðið  -S.V. Mbl.  HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF ÞÚ KÆMIST AÐ ÞVÍAÐ ÞÚ VÆRIR AFRIT AF EINHVERJUM ÖÐRUM? SUMAR RÁÐGÁTUR BORGAR SIG EKKI AÐ UPPLÝSA Þrælskemmtileg rómantísk gamanmynd um dóttur sem reynir að finna draumaprinsinn fyrir mömmuna. „The Island, virkilega vel heppnuð pennumynd, skelfileg en trúleg framtíðarsýn!!“  S.U.S XFM „The Island er fyrirtaks afþreying. Ekta popp og kók sumarsmellur. “ -Þ.Þ. Fréttablaðið. l i i . ll . - . . r tt l i . Frábær Bjölluskemmtun fyrir alla. Sýn HER HER THE KICK      He Frá Herbie Fully Loaded kl. 5 - 7.10 - 9.15 og 11 The Island kl. 5.30 - 8 og 10.40 b.i. 16 Dark Water kl. 8 og 10.15 b.i. 16 Madagascar - enskt tal kl. 5 - 7 og 9 Batman Begins kl. 6 og 8.30 b.i. 12 Kicking and Screaming kl. 6 UPPTÖKUR á nýjustu mynd Popp- oli kvikmyndafélags standa yfir um þessar mundir en að sögn Ólafs Jó- hannessonar, leikstjóra mynd- arinnar, fjallar hún um búddamunk- inn Robert sem kom hingað til lands árið 1994. Myndin hefur verið í und- irbúningi í tíu ár en Ólafur og félagar hans, þeir Ragnar Santos og Helgi Sverrisson, hafa fylgst með Robert síðan þá. Aðspurður segir Ólafur að Robert sé raunverulegur maður og það sé saga hans einnig en þó sé ekki um heimildamynd að ræða – enda séu þær löngu dauðar. Þannig sé myndin eins konar millistig á milli hefðbundinnar kvikmyndar og heim- ildamyndar. „Þetta er eins konar millistig sem enn á eftir að finna nafn á. Mér finnst merkilegra að gera bíómyndir með heimildalegu ívafi frekar en að gera bíómynd eða heimildamynd,“ segir Ólafur en leiða má líkur að því að myndin sverji sig í ætt við mynd hans Africa United hvað þetta varð- ar. Kuflinum kastað „Við byrjuðum að taka myndir af búddamunkinum Robert [búddanafn hans er Dhammanando] fyrir tíu ár- um en þá vorum við að vinna að ann- arri mynd. Robert er því til í raun og veru en hann er fyrsti búddamunk- urinn sem kom hingað til lands. Það var árið 1994 þegar hann var að heimsækja íslenskan pennavin en hann er mikill áhugamaður um Ís- lendingasögurnar. Hann var hins vegar beðinn að vera eftir og svo fór að hann stofnaði Búddistafélag Ís- lands.“ Robert dvaldist hér á landi fram til ársins 2000 en hann hafði þá verið munkur í sextán ár. Ólafur segir að það ár hafi hann hins vegar söðlað um og „kastað kuflinum“. „Hann gifti sig og hætti að vera munkur og við náðum að fylgja því ferli eftir. Hjónabandið varði hins vegar ekki lengi og eftir það fór hann á kvennafar. Þá breyttist líf hans enn frekar – tók enn dramatískari stakkaskiptum sem ég get ekki greint nánar frá að svo stöddu.“ „Fiskur á þurru landi“ Að sögn Ólafs hefur hinn kunni rússneski geimfari, Júrí Gagarín, haft töluverð áhrif á líf Roberts og var í raun og veru ástæða þess að hann hætti að vera munkur. „Hann langaði til þess að sjá geim- stöðina í Kasakstan þar sem Júrí var skotið upp. Í Kasakstan kynntist hann konunni sem verður þess valdandi að hann hættir að vera munkur og þar kemur geimfarinn til sögunnar. Hann er þarna [í mynd- inni] vegna þess að hann er ástæða þess að Robert hætti að vera munk- ur. Þegar litið er á Júrí á myndinni er hann sem fiskur á þurru landi og það sama gildir í raun og veru um Robert þegar hann verður venjulegur mað- ur. Þá er hann kominn inn í heim sem einkennist af samkeppni. Hann þarf að borga reikningana sína, ganga í buxum og annað í þeim dúr.“ Barði sér um tónlistina Myndin hefur enn ekki hlotið nafn en tökum á henni lýkur innan skamms og er áætlað að hún verði tilbúin í byrjun næsta árs. Að sögn Ólafs er tónlistin við myndina hins vegar tilbúin en hana vann Barði Jó- hannsson. „Barði sér um tónlistina en hann tók hana upp með stórri sinfón- íuhljómsveit í Búlgaríu. Það er búið að taka hana upp og hún hljómar rosalega vel.“ Ragnar Santos og Helgi Sverr- isson framleiða myndina og Linda Stefánsdóttir er listrænn stjórnandi. Kvikmyndir | Upptökur á nýjustu mynd Poppoli kvikmyndafélags standa nú yfir Búddamunkurinn Robert Einkennilegt einvígi: Karl Emil Karlsson, í hlutverki Roberts, teflir við Júrí. Að sögn Ólafs hafði Robert mikinn áhuga á skák og hér blandast það saman við áhuga hans á geimförum. Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is TÍU ÁRA afmæli Loftkastalans var haldið há- tíðlegt á föstudaginn en starfsemi leikhússins hófst árið 1995 eftir að vélsmiðjunni í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg hafði verið breytt í hefðbundið leikhús með sætum fyrir 400 áhorfendur. Tímamótunum var fagnað með sérstakri afmælissýningu á Tónleiknum BÍTL og komust færri að en vildu. Sigurður Kaiser, leikhússtjóri, segir að það hafi legið beinast við að fagna tímamótunum með þessum hætti – enda væri verið að þakka áhorfendum fyrir samfylgdina á undanförnum árum. Fyrsta verkefni Loftkastalans var söng- leikurinn Rocky Horror í leikstjórn Baltasars Kormáks sem sýndur var yfir 60 sinnum á fyrsta leikárinu. Rúmlega 500 þúsund gestir hafa síðan lagt leið sína á fjölmarga viðburði í húsinu bæði leiksýningar og tónleika en á föstudaginn var 500 þúsundasti áhorfandinn verðlaunaður sérstaklega. Loftkastalinn tíu ára Melissa Haime, Kristín Magnúsdóttir, Eva Hrönn Björnsdóttir og ÁrnýRakel Eyþórsdóttir skemmtu sér vel á afmælissýningunni. Halldór Neyer og Gunnar Andri. Morgunblaðið/Sverrir Sigurður Kaiser og Steinunn Camilla, eigendur Loftkastalans. Fimm systkini, sem fluttu inn ídraumaheimili sitt í sjónvarps- þættinum Extreme Makeover: Home Edition, hafa nú höfðað mál á hendur sjónvarpsstöðinni ABC, verktakafyrirtækinu sem endurgerði draumahúsið og fólkinu sem á húsið. Forsaga málsins er sú að systk- inin, sem eru á aldrinum 15 til 22 ára, misstu foreldra sína með skömmu millibili í fyrra. Hjónin Phil og Loki Leomiti buðu börnunum að búa hjá sér í kjölfarið en þau voru nágrann- ar. Aðstandendur sjónvarpsþátt- arins Extreme Makeover: Home Edition fréttu af góðmennsku Leo- miti-hjónanna og buðu þeim að taka húsið þeirra í gegn til að betur færi um hina stækkandi fjölskyldu. Þátta- stjórnendur mættu á staðinn með fylgdarliði sem af sinni alkunnu röggsemi gerði heimili Leomiti- hjónanna og systkinanna fimm að sannkölluðu draumaheimili. Þegar tökuliðið var á bak og burt hófu Leomiti-hjónin, að sögn systk- inanna, að reyna að bola þeim út af heimilinu með „illkvittnislegri fram- komu og meiðandi athugasemdum“. Að sögn lögmanns systkinanna lof- uðu aðstandendur þáttanna þeim heimili, sem þeir ekki gátu staðið við. Einnig saka þau Leomiti-hjónin um að hafa nýtt sér bágt ástand þeirra til að fá ókeypis lagfæringar á húsi sínu. Talsmaður ABC-fréttastofunnar hefur ekki viljað tjá sig um málið. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.