Morgunblaðið - 15.08.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.08.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 23 UMRÆÐAN ÞINGFLOKKUR vinstri grænna hefur ítrekað á und- anförnum árum barist fyrir því að teknir yrðu upp að nýju skipulagð- ir sjóflutningar meðfram strönd- um landsins. Snemma á sl. vetri lögðum við fram þingsályktun- artillögu þar sem samgönguráðherra var falið að vinna að því að: „strandsigl- ingar verði eðlilegur hluti af vöruflutn- inga- og samgöngu- kerfi landsins. Ráð- herra móti stefnu og aðgerðaáætlun og leggi fram laga- frumvörp í þessu skyni ef með þarf, þannig að ríkið geti tryggt reglu- legar strandsiglingar til allra landshluta með því að bjóða út siglingaleiðir. Ráðherra láti meta kostnað við að halda uppi reglu- legum strandsiglingum um allt land miðað við skilgreinda þjón- ustu og geri tillögur um sigl- ingaleiðir sem bjóða á út“. Umsagnir sem bárust um tillög- una voru mjög jákvæðar nema frá stóru flutningafyrirtækjunum sem sjá þann tilgang einan að hámarka arð sinn og hagnað án tillits til al- mannaheilla, flutningskostnaðar eða þjónustu við einstaka byggðir og landshluta, hvað þá að tekið sé tillit til umhverfisþátta. Með því að sömu samsteypurnar hafa einokun á flutningum á landi og sjó, þá geta þær hagað flutn- ingsformi og gjaldtöku að vild, sett viðskiptavinunum afarkosti og gefið stefnu stjórnvalda í sam- göngumálum langt nef. Evrópuríkin styðja við strandflutninga Athyglisvert er að meðan við hér á Íslandi, með gríðarlega langa strandlengju, dreifða byggð og ófullkomið vegkerfi, líðum það að megin flutningar innanlands fara upp á land þá eru önnur lönd eins og Noregur og Bretland að stórauka aðgerðir til að stýra þungaflutningum af vegunum og út á sjó. Framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins hefur fallist á að stoðkerfi sem Bretar hafi komið á til að færa flutninga af vegum yfir í siglingar og hóflegur styrkur rík- isins til slíkra aðgerða brjóti ekki gegn samkeppnisreglum banda- lagsins. Nýlegar fregnir herma að Evrópusambandið sjálft hyggist nú stórauka framlög til að efla sjósamgöngur og auka flutninga á sjó, ám og vötnum og sigl- ingaleiðum til að draga úr losun gróð- urhúsalofttegunda, annarri mengun og létta álagi af vegum. Járnbrautarsam- göngur eru einnig styrktar af sömu ástæðum. Auðvitað eigum við að fara sömu leið, létta álagi á vegakerfið og styrkja samkeppnishæfni strandhéraðanna með skipulögðum sjóflutn- ingum. Stuðningur úr óvæntri átt Samfylkingin hefur því miður í alltof mörgum tilvikum stutt einkavæðingu ríkisstjórnarinnar á almannaþjónustu, stundum viljað að hún væri framkvæmd einhvern veginn öðruvísi. Það var ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokks og Alþýðuflokks í sam- gönguráðherratíð Halldórs Blön- dals sem lagði Ríkisskip niður án þess að tryggja lágmarks fram- tíðar þjónustu í strandflutningum. Nú hefur þessi almannaþjónusta verið lögð af og óskabarni þjóð- arinnar Eimskipum verið slátrað. Tillaga okkar þingmanna Vinstri grænna um strandflutninga fékk óvæntan liðsauka á dögunum, en í fréttum útvarpsins sl. þriðjudag lagði Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, einmitt til að tryggð yrði lágmarksþjónusta í strandflutningum, einstaka leiðir boðnar út og ríkið styrkti þá með svipuðum hætti og nú á sér stað með ákveðnar flugleiðir og sér- leyfi fólksflutninga. Er ánægjulegt að verða vitni að stefnubreytingu hjá þingmanninum en ekki tók hann til máls þegar þessi tillaga okkar var til umræðu á Alþingi, né heldur lýsti neinn þingmanna Samfylkingarinnar stuðningi við hana þá. Batnandi mönnum er best að lifa. Kristján Möller er varafor- maður þingflokks Samfylking- arinnar og er honum ásamt öðrum úr þingflokknum hér með boðið að vera meðflutningsmenn á tillögu okkar vinstri grænna um strand- siglingar þegar hún verður end- urflutt í haust. Þungaflutningar á veikburða vegum mesta ógnin Kristján Þorbjörnsson yfirlög- regluþjónn á Blönduósi vakti með réttmætum hætti athygli á því í útvarpsfréttum nýverið, að veg- irnir væru að fletjast út undan stórauknum þungaflutningum. Stórir flutningabílar með langa aftanívagna sveiflast til og frá á öldóttum vegunum. Er þar er ekki við sjálfa flutningabílstjórana að sakast sem velflestir sýna mikla tillitssemi í umferðinni við erfiðar aðstæður. En eins og Kristján bendir á eru vegirnir afar mis- hæðóttir og svo mjóir að oft mun- ar einungis hársbreidd að bílar skelli saman er þeir mætast eða þeir fara svo tæpt á vegkantana að bíll og vagn veltur. Ábendingar Kristjáns eru nákvæmlega þær sömu og við þingmenn vinstri grænna höfum hamrað á í um- ræðum um samgöngumál á þingi. Til þessa hafa ríkisstjórnarflokk- arnir lokað eyrunum fyrir mögu- leikum sjóflutninga og skorið nið- ur um milljarða króna það fjármagn til vegamála sem lofað var samkvæmt vegaáætlun. Að óbreyttu stefnir hér í fullkomið óefni. Þingmenn Vinstri grænna munu taka strandsiglingar, um- hverfis- og umferðaröryggismál upp strax og þing kemur saman í haust eins og við höfum gert und- anfarin ár. Í ljósi umræðunnar síðustu daga er von til breiðs stuðnings við til- lögu okkar vinstri grænna um að- gerðir til að koma á skipulögðum sjóflutningum meðfram ströndum landsins. Strandsiglingar í takt við kröfur nýrra tíma Jón Bjarnason leggur til að hafnar verði strandsiglingar ’Auðvitað eigum við aðfara sömu leið, létta álagi á vegakerfið og styrkja samkeppn- ishæfni strandhér- aðanna með skipulögð- um sjóflutningum.‘ Jón Bjarnason Höfundur er þingmaður Vinstri- grænna í Norðvesturkjördæmi. ÉG SIT á mínum skrifstofustól og hef það fínt. Ég er nýkominn úr sumarfríi sem var dásamlegt í alla staði. Ferðaðist um landið mitt og uppgötvaði margt nýtt og skemmti- legt sem okkar ástkæra land hefur upp á að bjóða. Ég er dvergvaxinn og kærastan mín notar hjólastól til að komast sinna ferða. Um þessar mundir eigum við átrún- aðargoð sem er að berjast fyrir því að við getum notið sum- arfrísins enn betur og skoðað hina leyndustu kima okkar ástfagra lands. Leyndustu af- kimar lands okkar eru erfiðir yfirferðar og getum við ekki skoðað þá nema að taka með okkur hjálparliða. Hjálparliði er ein- staklingur sem gerir hreyfihömluðum kleift að ferðast. Hann fær að fara á námskeið sem haldin eru á veg- um Sjálfsbjargar um það hvernig á að bera sig að við aðstoðina og er síðan settur á við- bragðslista og í hann hóað þegar einhver þarf á honum að halda. Hjálparliðinn fær ekki kaup, heldur er allur kostnaður sem hlýst af ferðalaginu borgaður fyrir hann. Þennan kostnað get- um við kærastan mín fengið endurgreiddan af heilu eða hálfu með því að sækja um í Hjálparliðasjóð Sjálfsbjargar. Hjálparliðasjóðurinn var stofnaður árið 1997 og var þá fimm milljónir króna. Síðan hann var stofnaður hafa fjölmargir fengið úthlutað úr sjóðnum og getað öðlast það frelsi að geta ferðast án hindr- ana. Núna árið 2005 kláraðist sjóð- urinn… Árið 2003 sá einn hjálp- arliðinn, Kjartan Jakob Hauksson, fram á ásamt stjórnendum sjóðsins að hann væri að verða uppurinn. Spurði hann þá af mikilli hógværð hvort að áhugamál hans gæti eitt- hvað hjálpað til með að safna pen- ingum í sjóðinn. Áhugamál hans og draumur til lengri tíma var að róa í kringum landið… Nú er hann staddur suður af landinu og er að fara að loka hringnum. Áföllin sem hann hefur lent í eru margskonar og má þar meðal annars nefna að verða fyrir brotsjó og stranda bátnum uppí fjöru, velta næstum bátnum, brjóta árafestingu, brjóta fótspyrnuna, brjóta sæti og ýmislegt fleira. Þetta getur hljómað eins og maðurinn sé algjör klaufi. En svo er ekki. Eins og við Ís- lendingar vitum er sjórinn óútreikn- anlegur, eina stundina er hann fallegur speg- ilsléttur hafflötur og hina stundina er hann öskrandi óargadýr sem enginn ræður við. Margt getur komið uppá og erfiðleikarnir orðið margir en aldrei gefst þessi maður upp! Að gefast upp er ekki til í hans orðabók. Sag- an af Kjartani minnir mig á allar þær sögur sem maður hefur heyrt af sjómönnum hér fyrr á öldum. Sem reru til fiskjar og komust oft í hann krappan. Það má segja að Kjartan rói einnig til „fiskjar“. Engin kvóti. Afli hans er frelsi, frelsi hreyfi- hamlaðra til að skoða landið, skoða heiminn og um leið þroska hug- ann, læra og umfram allt lifa og vera til eins og allir hinir… Ég og mín tilvonandi kona vonum í mikilli auðmýkt að Íslend- ingar sjái sér fært að auka aflann hans Kjartans og um leið styrkja sjóðinn á einn eða annan hátt til þess að að- stoða hreyfihamlaða til þess að fá aukið ferðafrelsi. Frelsi sem allir vilja eiga…. Það er hægt að fylgjast með æv- intýraför Kjartans á vefsíðunni sjalfsbjorg.is og hægt að styrkja hann um þúsund krónur með því að hringja í síma 908-2003. Síðan hvet ég alla Sjálfsbjargarfélaga og þjóð- ina til þess að taka vel á móti honum þegar hann kemur til Reykjavíkur. Hann á það svo sannarlega skilið! Afli hans er frelsi annarra Árni Salomonsson fjallar um ferðafrelsi fatlaðra Árni Salomonsson ’Síðan hann varstofnaður hafa fjölmargir feng- ið úthlutað úr sjóðnum og get- að öðlast það frelsi að geta ferðast án hindrana. Núna árið 2005 klár- aðist sjóð- urinn…‘ Höfundur vinnur í móttöku Sjálfsbjargarhússins. NÝLEGA fengu 1.300 öryrkjar bréf frá Greiðslustofu lífeyrissjóða dags. 16.06.2005 þess efnis að ef þeir ekki skiluðu inn þremur skattframtölum sem gátu þess vegna verið margra tuga ára gömul til sjóðsins fyr- ir 15. júlí þá myndu lífeyrisgreiðslur falla niður 1. október nk. Þeir öryrkjar sem undirrituð þekkir best til eru geðfatl- aðir einstaklingar sem veikst hafa snemma á starfsævinni og þeir sem eru svo lánsamir að hafa greitt í lífeyrissjóð hafa gert það í örfá ár og eru það því ekki háar upphæðir sem þeir fá greiddar úr sjóðnum. Til viðbótar fá þeir síðan bætur frá Tryggingastofnun rík- isins. Í ofannefndu bréfi kom fram að starfsmenn lífeyrissjóðanna höfðu ekki gengið eftir því að skattframtölum þriggja síðustu ára fyrir orkutap væri skilað inn þegar sótt var um ör- orkumat. Núna, árum og áratugum seinna, senda þeir viðkomandi einstaklingum bréf þar sem þeir krefja þá um gögn sem láðist að fá á sínum tíma. Flestum ætti að vera ljóst hvaða áhrif það hefur á geðheilsu fólks að fá slík hót- unarbréf frá opinberri stofnun hvað þá held- ur hver áhrifin eru hjá geðfötluðum einstaklingum. Eftir að hafa fylgst með um- ræðunni um fjármál lífeyrissjóð- anna svo sem varðandi áhættu- ávöxtun á fé almennings og óheyrilega kostnaðarsama starfs- lokasamninga starfsfólks lífeyris- sjóðanna skyldi engan undra þó að farið sé að minnka fé hjá sjóðnum og þeir beri kvíðboga fyrir því að standa við skuldbindingar framtíð- arinnar. En þessar seinustu að- gerðir sjóðanna sem beinast að því að rannsaka hvort einhverjir ör- yrkjar fá e.t.v. nokkrum krónum of mikið eru aðgerðir sem bera þess merki að ráðist er á garðinn þar sem hann er lægstur. Sjóður sem hugsaður er sem trygging fyrir afkomuöryggi launþeganna bankar þarna uppá árum og ára- tugum eftir að greiðslur hófust og fer fram á öflun gagna sem marg- ir þessara einstaklinga eru ófærir um að útvega og ef þeir geri það ekki fái þeir sko ekkert 1. okt. Starfsmenn lífeyrissjóðanna sem á sínum tíma afgreiddu þessar um- sóknir áttu hins vegar að sjá til þess að skattframtölum væri skil- að inn, en af einhverjum orsökum telja sjóðirnir sig sem „húsbónda“ þessara starfsmanna ekki ábyrga fyrir þessari handvömm starfs- manna sinna heldur skjóta ábyrgðinni til öryrkjanna. Erum við sem stöndum á bak við greiðslur af laununum okkar til lífeyrissjóðanna sátt við með- ferð þessara fjármuna eða þær að- ferðir sem notaðar eru í sam- skiptum við öryrkja? Ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur Kristín Valgerður Ólafsdóttir fjallar um kröfu yfirvalda á hendur öryrkjum um skil á skattagögnum ’Flestum ætti að veraljóst hvaða áhrif það hefur á geðheilsu fólks að fá slík hótunarbréf frá opinberri stofnun hvað þá heldur hver áhrifin eru hjá geðfötl- uðum einstaklingum.‘ Höfundur er félagsráðgjafi á geðsviði LSH. Kristín Valgerður Ólafsdóttir Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Útsala Opið virka daga kl. 10-18 laugardaga kl. 10-16 Nýbýlavegi 12, Kópavogi sími 554 4433 Fyrir flottar konur Bankastræti 11 ● sími 551 3930

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.