Morgunblaðið - 15.08.2005, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.icelandair.is/stokkholmur
Stokkhólmur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
29
01
3
0
8/
20
05
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 9-17, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
Ver› á mann í tvíb‡li á Birger Jarl
18.-20. nóv., 2.-4. des., 27.-29. jan. og 3.-5. mars.
Innifali›: Flug, gisting, morgunver›ur, flugvallarskattar og fljónustugjöld.
Verð frá 34.990 kr.
Flug og gisting í tvær nætur
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Nú geta handhafar Vildarkorts Visa og
Icelandair notað 10.000 Vildarpunkta
sem 5.500 kr. greiðslu upp í fargjaldið.
JÓN Steinar Gunnlaugsson hefur
beðið Morgunblaðið um að birta eft-
irfarandi athugasemd (fyrirsögn er
Morgunblaðsins):
„Í viðtölum við Fréttablaðið 13.
ágúst sl. víkja feðgarnir Jóhannes
Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson
báðir orðum að mér í tengslum við
ákæru á hendur þeim sem blaðið
birti sama dag. Er helst á þeim að
skilja, að ég hafi verið þátttakandi í
einhvers konar samsæri um að
koma á þá tilefnislausum sökum í
tengslum við rekstur Baugs hf.
Í tilefni af ummælum þeirra tel ég
rétt að taka fram eftirfarandi:
1. Sumarið 2002 leitaði Jón Gerald
Sullenberger til lögmannsstofu
minnar vegna viðskiptakrafna, sem
hann taldi fyrirtæki sitt Nordica
eiga á hendur Baugi. Ég tók málið
að mér og stefndi fyrirtækinu þá um
haustið í tveimur málum til greiðslu
þessara krafna. Þeim lauk síðar með
sátt, sem fól meðal annars í sér
greiðslu krafna umbj. míns og
kostnaðar sem hann hafði haft. Með
sáttinni var einnig lokið málaferlum
sem fyrirsvarsmenn Baugs höfðu
efnt til á hendur Jóni Gerald og fyr-
irtæki hans í Bandaríkjunum. Frá
þessu var skýrt í fjölmiðlum á sínum
tíma og einnig staðfesti Jón Ásgeir
Jóhannesson þetta í bréfi til ríkis-
lögreglustjóra, sem hann afhenti
fjölmiðlum og Morgunblaðið birti í
heild 2. júlí 2005.
2. Auk þess að
fá fullnustu þess-
ara einkaréttar-
legu krafna
kvaðst Jón Ger-
ald einnig vilja
kæra fyrirsvars-
menn Baugs fyrir
refsiverða hátt-
semi sem honum
væri kunnugt um
og framin hefði
verið í tengslum við viðskiptin. Ég
vísaði honum með það erindi til Rík-
islögreglustjóra. Er líklegt, þó að ég
muni það ekki, að ég hafi haft sam-
band við lögregluna til að óska eftir
að skjólstæðingur minn fengi að
koma til skýrslugjafar um þetta. Það
er hreinasti heilaspuni að telja mig
hafa átt þátt í að leggja á ráðin með
lögreglunni um rannsóknarúrræði
sem gripið yrði til vegna kærunnar,
hvað þá að ég hafi villt um fyrir rík-
islögreglustjóra og fengið hann til að
æskja húsleitarheimildar hjá hér-
aðsdómi, eins og Jóhannes Jónsson
segir í viðtalinu við Fréttablaðið.
3. Ofangreind störf mín í þágu
Jóns Geralds Sullenbergers voru
ósköp venjuleg lögmannsstörf á
borð við störf sem ég hafði sem lög-
maður tekið að mér í gegnum árin
fyrir fjölda fólks sem til mín leitaði
með erindi sín. Davíð Oddsson þá-
verandi forsætisráðherra kom
hvergi nærri. Kom mér nafn hans
ekki í hug, þegar ég tók störfin að
mér.
4. Af viðtölunum í Fréttablaðinu
er ljóst, að feðgarnir vilja blása til
gagnsóknar gegn ákærunum á op-
inberum vettvangi með því að halda
fram samsæriskenningu um að valdi
hafi verið misbeitt við málatilbúnað
gegn þeim. Slíkar kenningar eiga oft
greiðan aðgang að fólki. Ég skil það
vel, að menn sem eru áberandi í fjöl-
miðlum og þurfa að verjast ákærum
um alvarleg refsilagabrot, reyni á
opinberum vettvangi að rétta hlut
sinn. Það er bara mannlegt. Of langt
er hins vegar seilst, þegar smíðaðar
eru svona kenningar sem ekkert
hafa við að styðjast. Úr málinu verð-
ur ekki leyst á grundvelli þeirra.
Þeir ættu fremur að einbeita sér að
því að verjast þeim efnislegu sökum
sem þeir eru bornir á þeim vett-
vangi, þar sem um verður fjallað,
þ.e. inni í dómsalnum. Hafi þeir ekki
framið þau brot sem þeir eru sak-
aðir um ættu þeir engu að þurfa að
kvíða.
Jón Steinar Gunnlaugsson.“
Athugasemd frá Jóni Steinari Gunnlaugssyni
Störf í þágu Jóns Geralds
ósköp venjuleg lögmannsstörf
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Í NÍUNDA og síðasta kafla ákær-
unnar í Baugsmálinu er ákært vegna
tollsvika og rangfærslna í skjölum
vegna innflutnings á bílum til lands-
ins frá Bandaríkjunum.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, Jóhannes Jónsson í Bónus og
Kristín Jóhannesdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjárfestingarfélagsins
Gaums, eru ákærð fyrir að gefa
rangar upplýsingar um kaupverð
bíla og með því samtals komið sér
undan að greiða rúmlega 2,3 millj-
ónir í virðisaukaskatt og vörugjald.
Ákærð fyrir að hafa gefið rang-
ar upplýsingar um kaupverð
Jón Ásgeir er ákærður vegna inn-
flutnings á tveimur bílum á árunum
1998 og 1999 og Jóhannes og Kristín
á sínum bílnum hvort árið 2000. At-
vikalýsingin á hinum meintu brotum
er ætíð á sama veg: Þau eru ákærð
fyrir að hafa gefið rangar upplýsing-
ar um kaupverð á aðflutnings-
skýrslum sem þau framvísuðu hjá
Tollstjóranum í Reykjavík ásamt til-
hæfulausum vörureikningum sem
gefnir voru út af Nordica Inc., fyr-
irtæki Jóns Geralds Sullenberger í
Bandaríkjunum. Á reikningunum
var búið að lækka kaupverðið veru-
lega frá því sem fram kom í kaup-
samningum við bílasölur ytra. Sam-
kvæmt ákæru gaf Jón Gerald út
þessa tilhæfulausu reikninga að ósk
ákærðu.
Ákærðu neita þessum ásökunum,
líkt og öllum öðrum liðum ákærunn-
ar. Í athugasemdum þeirra við
ákærunni segir að lögregla hafi ekki
gert reka að því að rannsaka nánar
sakargiftirnar sem byggjast alfarið á
framburði Jóns Geralds. Ættu þær
við rök að styðjast væri Jón Gerald
augljóslega sekur um hlutdeild í
meintum brotum en engin ákæra
hafi verið gefin út á hendur honum.
Nánari grein hafi verið gerð fyrir
þessum innflutningi í bréfi Jóns Ás-
geirs til ríkislögreglustjóra 5. mars
2004.
Ákærð fyr-
ir 2,3 millj-
óna tollsvik
við bílainn-
flutning
AFBORGANIR af lánum, rekstr-
arkostnaður og annar tilfallandi
kostnaður vegna skemmtibátsins
Thee Viking, samtals rúmlega 40
milljónir króna, voru greiddar af
Baugi hf. á árunum 1999–2002,
þrátt fyrir að rekstur bátsins væri
félaginu óviðkomandi, að því er
segir í ákæru ríkislögreglustjóra í
Baugsmálinu. Þá var gefin út
bankaábyrgð í nafni Baugs að upp-
hæð 12,2 milljónir vegna kaupa á
öðrum skemmtibát en sú ábyrgð
gjaldféll á félagið í október 2002.
Sakborningar neita sök og í at-
hugasemdum við ákæruna segir
m.a. að greiðslur sem ríkislög-
reglustjóri nefnir tengist ekki á
nokkurn hátt rekstri eða kaupum á
skemmtibátum.
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og
Tryggva Jónssyni er gefið að sök
að hafa „dregið sér og öðrum“
samtals tæplega 40,1 milljón króna
frá apríl 1999 til júní 2002 með því
að láta Baug greiða 34 reikninga
sem gefnir voru út af félaginu
Nordica Inc. á hendur Baugi.
Reikningarnir hafi ekki komið
Baugi við heldur verið vegna af-
borgana á lánum, reksturs o.fl.
Thee Viking sem Jón Ásgeir og
faðir hans Jóhannes Jónsson höfðu
keypt í félagi við Jón Gerald Sul-
lenberger, eiganda Nordica Inc.
Fjárdrátturinn hafi farið fram með
vitund og liðsinni Jóhannesar og
Kristínar Jóhannesdóttur, fram-
kvæmdastjóra Fjárfestingarfélags-
ins Gaums. Báturinn var staðsettur
og skráður í Flórída í Bandaríkj-
unum.
Greitt fyrir ráðgjöf og fleira
Í athugasemdum sakborninga
segir að Nordica, fyrirtæki Jóns
Geralds, hafi fengið mánaðarlegar
greiðslur frá Baugi vegna ráðgjaf-
ar og annarrar þjónustu. Vegna
taps á rekstri vöruhúss Nordica
hafi greiðslurnar verið nauðsynleg-
ar svo að Jón Gerald gæti fram-
fleytt sér og fjölskyldu sinni. Þá
komi það fram að í gögnum sem
hafi verið aflað í Bandaríkjunum að
ráðstöfun þessara fjármuna hafi
verið í samræmi við yfirlýsingar
Jóns Ásgeirs og Tryggva.
Ákærðir fyrir umboðssvik
„Því er vandséð hvaða auðgunar-
brot áttu sér stað. Athygli vekur að
þar sem [ríkislögreglustjóri] telur
að hér hafi verið um lögbrot að
ræða hefði embættinu skilyrðis-
laust borið að ákæra [Jón Gerald]
fyrir hlutdeild í brotunum,“ segir í
athugasemdunum.
Þá eru feðgarnir Jón Ásgeir og
Jóhannes ákærðir fyrir umboðssvik
með því að hafa, við yfirtöku Baugs
á Bónusi í nóvember 1998, misnot-
að aðstöðu sína hjá Baugi hf. til
þess að binda félagið við erlenda
bankaábyrgð að fjárhæð 12,2 millj-
ónir. Ábyrgðin hafi verið vegna
kaupa á skemmtibát sem fékk
nafnið Icelandic Viking árið 1996.
Samkvæmt athugasemdum sak-
borninga við ákærunni er hér um
að ræða ábyrgð sem Bónus gaf út
vegna vöruviðskipta en ekki vegna
báts.
Sýnt hafi verið fram á þetta með
gögnum. Þeir Jón Ásgeir og Jó-
hannes eru einnig ákærðir fyrir að
hafa dregið sér samtals um 440.000
krónur með því að láta Baug hf.
greiða vegna fyrrnefndrar banka-
ábyrgðar. Þessum ásökunum
ákæruvaldsins er sem fyrr hafnað
af hálfu sakborninga og vísað til
þess að ábyrgðin hafi verið vegna
vöruviðskipta. Haustið 2003 hafi
ábyrgðin fallið á Baug „en sak-
borningar telja fráleitt að hún hafi
staðið í tengslum við kaup á bát.
Ef svo væri hefði einnig átt að
ákæra [Jón Gerald] fyrir þessar
sakir,“ segir þar.
Varðandi ásakanir sem tengjast
Nordica inc. er jafnframt vísað til
þess að ítarlega hafi verið gerð
grein fyrir þessum viðskiptum í
tveimur bréfum Jóns Ásgeirs til
ríkislögreglustjóra og birt voru í
Morgunblaðinu eftir að ákærur
voru birtar í sumar.
Ákært vegna milljóna fjárdráttar og umboðssvika vegna skemmtibáta
52 milljónir vegna kaupa
og reksturs bátanna
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn