Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 8
8 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikil spenna er á ís-lenskum vinnu-markaði um
þessar mundir og virðist
vera verulegur skortur á
vinnuafli í flestum grein-
um. Fjöldi atvinnuauglýs-
inga í blöðum undanfarið
sýnir ljóslega að fólk vant-
ar til starfa af öllu tagi, til
afgreiðslustarfa, starfa
sem krefjast sérmenntun-
ar, eftirspurn er eftir iðn-
aðarmönnum hverskonar
o.fl. Viðmælendur sem
rætt var við eru þeirrar
skoðunar að framboð
lausra starfa muni aukast veru-
lega þegar skólafólk hverfur úr
sumarstörfunum inn í skólana.
Samkvæmt nýjum upplýsing-
um Vinnumálastofnunar voru alls
1.506 laus störf hjá vinnumiðlun-
um í lok seinasta mánaðar og þó
framboð lausra starfa hafi á þeim
tímapunkti minnkað lítillega frá í
júní voru laus störf um seinustu
mánaðamót nálægt tvöfalt fleiri
en í sama mánuði í fyrra en þá
voru laus störf um 800 talsins.
,,Það er mjög gott atvinnu-
ástand og mikil eftirspurn ennþá
eftir iðnaðarmönnum,“ segir
Finnbjörn Hermannsson, formað-
ur Samiðnar.
Finnbjörn segist hafa góða trú
á vetrinum og að næg verkefni
verði fyrir iðnaðarmenn á næstu
mánuðum. ,,Það er það mikið í
pípunum, mörg verkefni að fara í
gang og ég held því að ástandið
verði nokkuð gott í vetur,“ segir
hann.
Uppgangurinn og stórfram-
kvæmdir bæði sunnanlands og á
Austurlandi gerir að verkum að
mjög erfitt er fyrir einstaklinga að
fá iðnaðarmenn í smáverk um
þessar mundir. Fram kom í við-
tölum við forsvarsmenn bygg-
ingavöruverslana í viðskiptablaði
Morgunblaðsins sl. fimmtudag að
verslanirnar hvetja fólk til að ann-
ast verkin sjálft vegna skorts á
iðnaðarmönnum og gefa leiðbein-
ingar um hvernig best sé að
standa að framkvæmdunum.
Finnbjörn Hermannsson bend-
ir á að töluverður hópur ófag-
lærðra starfsmanna sé farinn að
vinna iðnaðarstörf. „Það verður
vandamál þegar um hægist,“ seg-
ir hann. „Það gerist alltaf í svona
uppsveiflu. Þá taka ófaglærðir
líka að sér svona smáverkefni.“
Ekkert lát hefur verið á inn-
flutningi erlendra starfsmanna að
undanförnu. ,,Það er aukning ef
eitthvað er,“ segir Finnbjörn „Við
verðum töluvert mikið varir við
útlendinga og þeir eru komnir á
einhverskonar þjónustusamninga.
Við höfum engar upplýsingar um
menntun þessara manna. Það
virðast allir fá að vinna iðnaðar-
mannastörf, ef þeir bara tala út-
lensku,“ segir hann. Gefið var út
571 atvinnuleyfi í seinasta mánuði
samkvæmt upplýsingum Vinnu-
málastofnunar. Þetta er mikil
aukning miðað við sama mánuð í
fyrra en þá var gefið út 331 at-
vinnuleyfi í júlí. Ný tímabundin
atvinnuleyfi voru alls 416 í sein-
asta mánuði samanborið við 139 í
júlí árið 2004.
Þungt og flókið ferli
Byggingaverktakar hafa nóg að
gera enda marvíslegar mannfrek-
ar stórframkvæmdir í gangi. Loft-
ur Árnason, framkvæmdastjóri
Ístaks, segir óneitanlega þröngt
um á íslenskum vinnumarkaði um
þessar mundir. Menn hafi leyst
það með því að fá erlent vinnuafl.
Þetta hafi verið sérstaklega erfitt
á sumarorlofstímanum að undan-
förnu. Samkvæmt upplýsingum
Lofts hefur þurft að fá fleiri er-
lenda starfsmenn vegna verkefna
í ár en í fyrra. Það er hins vegar
þungt og flókið ferli sem íslensku
fyrirtækin þurfa að ganga í gegn-
um til að fá atvinnuleyfi fyrir er-
lenda starfsmenn, skv. upplýsing-
um hans. Þar standa íslensku
fyrirtækin ekki jafnfætis erlend-
um verktökum sem hingað koma.
Loftur segir erlendu fyrirtækin
sem taka að sér verkefni hér á
landi geta komið með erlenda
starfsmenn til landsins með stutt-
um fyrirvara og hafið fram-
kvæmdir en það geti tekið 2-3
mánuði fyrir íslensku verktakana
að fá erlent vinnuafl til starfa.
Fréttaskýring | Mikið framboð á störfum
Spennan vex á
vinnumarkaði
„Það virðast allir fá að vinna iðnaðar-
mannastörf, ef þeir bara tala útlensku“
Mikil þensla er á vinnumarkaði.
Stefnir í metfjölda
atvinnuleyfa í ár
Það stefnir í metfjölda at-
vinnuleyfa til útlendinga á þessu
ári. Veittum atvinnuleyfum fjölg-
aði úr 284 í júní í 571 í júlí.
Alls voru gefin út 3.750 atvinnu-
leyfi á árinu 2004 en þau eru orð-
in 2.644 það sem af er þessu ári.
Atvinnuleysi var um 2% í sein-
asta mánuði en atvinnuleysi með-
al ungs fólks (16–24 ára) hefur
þó minnkað. Hlutfall atvinnu-
lausra á aldrinum 60–70 ára hef-
ur hins vegar aukist og var 13%
af heildarfjölda á skrá.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
!
"#$"%
FYRSTA úthlutunin úr Hrafnkels-
sjóðnum fór fram í Þjóðmenningar-
húsinu á laugardag, en þá afhenti
Elías Jón Guðjónsson, formaður
sjóðsstjórnar, Úlfi Viðari Níelssyni
250 þúsund króna styrk til doktors-
náms í hagfræði við Columbia-
háskólann í New York í Bandaríkj-
unum, þar sem Úlfur mun sérhæfa
sig í fjármálum og alþjóðahag-
fræði.
Hrafnkelssjóðurinn var stofnað-
ur árið 1930 af hjónunum Ólafíu
Guðfinnu Jónsdóttur og Einari Þor-
kelssyni til minningar um son
þeirra, Hrafnkel Einarsson, sem
nam hagfræði við Vínarháskóla.
Hann var að hefja undirbúning að
doktorsverkefni sínu þegar hann
veiktist skyndilega og lést.
Tilgangur sjóðsins er að veita ís-
lenskum námsmönnum styrk til
náms við erlenda háskóla, og var
úthlutað úr honum í fyrsta skipti á
laugardag, þegar 100 ár voru liðin
frá fæðingu Hrafnkels, en hann lést
árið 1927.
Morgunblaðið/Þorkell
Úthlutað úr Hrafnkelssjóðnum