Morgunblaðið - 19.08.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 19.08.2005, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÁTÖK Á GAZA Nær allir landtökumenn hafa ver- ið fluttir brott frá stærstu gyð- ingabyggðinni á Gaza-svæðinu, Neve Dekalim. Til blóðugra átaka kom í Kfar Darom, en þar þurftu öryggissveitir að berjast við landtökumenn sem höfðu búið sér vígi á þaki bænahúss. Loftbyssur í Leifsstöð 5.000 króna sekt liggur við því að koma til landsins með ólöglegar loft- skammbyssur. Fjölmargir hafa ver- ið stöðvaðir með slíkar byssur í Leifsstöð en þær eru oft keyptar sem leikföng fyrir börn. Ian Blair neitar ásökunum Yfirmaður lögreglunnar í London neitar því að hafa reynt að koma í veg fyrir óháða rannsókn á atburð- unum sem urðu til þess 22. júlí síð- astliðinn að lögreglumenn urðu brasilískum manni að bana í jarðlest við Stockwell-lestarstöðina. Hafa ekki gefið samþykki Lögreglan í Reykjavík hefur ekki samþykkt forgang fyrir stræt- isvagna eftir Lækjargötu. Engu að síður hafa sérstakar akreinar verið merktar fyrir vagna í báðar áttir eft- ir Lækjargötu. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Viðhorf 26 Erlent 16/17 Minningar 28/32 Viðskipti 18 Myndasögur 36 Úr verinu 18 Dagbók 36/39 Minn staður 19 Víkverji 36 Akureyri 20 Velvakandi 37 Austurland 20 Staður og stund 38 Menning 21, 39/41 Af listum 42 Daglegt líf 22/23 Ljósvakamiðlar 46 Forystugrein 24 Veður 47 Umræðan 26/27 Staksteinar 47 * * * Kynningar – Með Morgunblaðinu í dag fylgir kynningarblað Menningarnætur 2005. Blaðinu fylgir einnig vetrarbæklingur Plúsferða. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %         &         '() * +,,,                    RÍKISKAUP telja að skýringar Flugfélags Íslands (FÍ) um að mistök hafi verið gerð hjá félaginu við tilboðsgerð í áætlunarflug inn- anlands geti ekki staðist sé litið til birtrar kostnaðaráætlunar og til- boða annarra bjóðenda, og benda á að óheimilt sé að breyta fram- komnum tilboðum eftir að tilboð hafa verið opnuð. Því er litið svo á að FÍ hafi skil- að inn tilboði um að veita þá þjón- ustu í þrjú ár sem beðið er um í útboðsgögnum. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær kveðast for- svarsmenn FÍ vegna mistaka hafa skilað inn tilboði miðað við árs rekstur, en í útboðslýsingu kom fram að skila átti tilboðum í rekst- ur til þriggja ára. Mat lagt á tilboðin Á næstu dögum verður lagt mat á tilboðin, en lögum samkvæmt þurfa að líða tveir mánuðir frá því tilboð eru opnuð þar til tilboði er tekið, svo að erlendum aðilum gef- ist kostur á að gera athugasemdir, segir í tilkynningu frá Ríkiskaup- um. Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Íslands, segir að nú þegar þessi niðurstaða Ríkis- kaupa liggi fyrir þurfi félagið að skoða hvert framhaldið verði. Í raun eigi félagið tvo kosti, að standa við tilboðið eða falla frá því. Á næstu dögum verði skoðað hvað hvor kostur hafi í för með sér, en forstjóri Ríkiskaupa sagði í Morg- unblaðinu í gær að félli félag frá tilboði gæti skapast skaðabóta- skylda. Á vef Ríkiskaupa má sjá tilboð flugfélaganna í ákveðnar flugleiðir, og var tilboð FÍ lægst í þremur til- vikum af fjórum. Næstlægstu til- boðin komu frá Landsflugi, sem var lægst í einu tilviki. Árni segir að tilboð FÍ hafi í raun átt að vera þrefalt hærra en það sem birt er á vef Ríkiskaupa, en sé sú aðferð notuð er félagið með langhæsta til- boðið í öllum tilvikum nema einu, og yfirleitt langt yfir kostnaðar- áætlun Ríkiskaupa, eins og sjá má í meðfylgjandi töflu. Önnur flug- félög sem buðu í allar eða sumar flugleiðir voru með hærri tilboð en Landsflug og FÍ. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum er verð það eina sem tilboðin eru metin eftir, og því væntanlega lægsta tilboði tekið. Mikilvægt að málið skýrist sem fyrst að mati Landsflugs Rúnar Árnason, framkvæmda- stjóri Landsflugs, sem í dag flýgur á þremur af fjórum útboðsleiðum, segir að mikilvægt sé að þessi mál skýrist sem fyrst, enda þurfi að finna önnur verkefni fyrir tugi starfsmanna haldi félagið ekki þeim flugleiðum sem það er með í dag. Rúnar segir að félagið kjósi helst að FÍ fái að falla frá sínum tilboðum, enda myndu tilboð Landsflugs þá í öllum tilvikum vera lægst. Tekist er á vegna tilboða Ríkiskaupa í áætlunarflug til staða innanlands sem opnuð voru í vikunni Ríkiskaup segja skýr- ingar FÍ ekki standast Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is        !    "#$  %!&'()*('   +('  , (- . ( /  * 0 1 '2  3 ( 0 1 4('  0 1 '2  3 ( 5#'                       +# " 6)#'/  *7 #  1'  #( #  .  1 (7 Tveir mánuðir þangað til ganga má að tilboðum „ÉG HITTI bensínstöðvareiganda á Hawaii sem spurði mig hvað ég væri að gera þar. Ég sagðist vera að skoða svartar sandfjörur og þá svaraði hann: „Já, eins og á Ís- landi,““ segir Kokayi Ampah um þá ákvörðun að taka mynd Clints Eastwoods, Flags of our Fathers, upp hér á landi. Ampah kallast á enska tungu location manager (framkvæmdastjóri á tökustað) en starf hans er í því fólgið að finna stað til að taka upp kvikmyndir. Hann skoðar staðinn með tilliti til handrits myndarinnar, fær öll til- skilin leyfi og sér til þess að svæð- inu sé skilað í góðu ástandi. Vildu svartar sandfjörur Ampah hefur starfað í kvik- myndaiðnaðinum frá árinu 1968 og var fyrsti svarti maðurinn til að verða „location manager“ í Hollywood. Hann hefur unnið mik- ið fyrir Clint Eastwood og starfað við myndir á borð við The Shaw- shank Redemption, The Color Purple og End of Days. Þegar ákveða átti tökustað fyrir Flags of our Fathers segir Ampah að fyrst hafi verið leitað í Banda- ríkjunum. „Í þessu tilviki vorum við að leita að svörtum sand- fjörum og eldfjöllum,“ útskýrir hann en bætir við að þær séu ekki svo ýkja margar í Bandaríkjunum. „Þær sem við fundum hentuðu ekkert sérlega vel. Sums staðar voru pálmatré eða klettar sem pössuðu ekki inn í handritið og jafnvel skjaldbökur,“ segir Amp- ah. Eftir ábendingu bensínstöðvar- eigandans á Hawaii fór Ampah á Netið og komst að raun um að nóg væri af svörtum sandfjörum á Íslandi. „Þegar allt kom til alls var Ísland heppilegasti staðurinn,“ segir Ampah sem kom fyrst til Ís- lands í apríl og hefur komið tvisv- ar síðan. Hann heldur til Skot- lands í dag en gerir ráð fyrir að koma hingað aftur í nóvember til að ganga frá lausum endum. Spurður um áhrif kvikmynda- tökunnar á náttúruna hér á landi segir Ampah að umhverfisstofn- anir hafi verið inni í ferlinu allt frá upphafi. „Við erum hér til að búa til kvikmynd en ekki til að eyðileggja eitt eða neitt.“ Ampah segir að tökurnar hafi gengið vel í alla staði. Sjálfum gekk honum verst að venjast björtu sumarnóttunum. „Meðan það var bjart úti vildi ég bara vera á fótum. Ég sæki ekki bari en lenti oft í því að uppgötva að klukkan var orðin eitt og ég var enn að horfa á sjónvarpið eða í tölvunni en yfirleitt fer ég snemma að sofa,“ segir Ampah og bætir við að það hafi kostað sjálfs- aga að þvinga sig í háttinn á skikkanlegum tíma. Síðasta máltíðin var þjóð- arrétturinn: Ein með öllu Pylsurnar á Bæjarins bestu virðast hafa glatt Ampah álíka mikið og fyrrverandi forseta hans, Bill Clinton. Þegar blaðamaður kveður hann á tíunda tímanum síðasta kvöldið hans á Íslandi er hann í það minnsta á leið niður í bæ til að fá sér eina með öllu fyrir háttinn. „Þær eru ótrúlega góðar með þessum stökka lauk,“ segir hann og hefur greinilega heyrt allt um dálæti Clintons á þessum þjóðarrétti. Bensínstöðvareigandi á Hawaii sendi Clint til Íslands Morgunblaðið/Jim Smart Kokayi Ampah valdi Ísland sem tökustað fyrir Flags of our Fathers. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is Kokayi Ampah ákvað staðsetningu fyrir töku Clint Eastwood-myndarinnar BÓKAVERSLUNIN Iða í Lækjargötu var oftast með lægsta verðið í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði sl. miðvikudag á námsbókum eða í fjórtán tilfellum af tutt- ugu. Aðeins er einnar krónu munur á verði í Iðu og Bók- sölu stúdenta á ellefu náms- bókum af þeim fimmtán sem fengust á báðum stöðum. Iða var hins vegar oftast með hæsta verð þegar verð á orða- bókum var kannað eða í fjór- um tilfellum af fimm. Í flokki orðabóka voru Bóksala stúd- enta og Penninn-Eymundsson oftast með lægsta verðið eða í tveimur tilvikum af fimm. Munur á orðabókum Munur á hæsta og lægsta verði námsbóka var mest rúm 24% á Lífeðlisfræði eftir Örn- ólf Thorlacius. Þegar skoðað er verð á orðabókum kemur í ljós að mesti munur á hæsta og lægsta verði er á Ensk- íslenskri orðabók eða 59%. Bókabúð Máls og menning- ar og Bókabúðin Hlemmi voru oftast með hæsta verðið á námsbókum eða í fimmtán til- vikum. Iða var oftast með lægsta verðið  59% verðmunur | 22 Verðkönnun verð- lagseftirlits ASÍ á námsbókum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.