Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.08.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2005 11 FRÉTTIR Ármúla 44, sími 553 2035. Hafðu það gott! - Mismunandi stærðir • Allir hlutar STRESSLESS eru vandlega hannaðir til að tryggja þér hámarksþægindi • Sjálfvirk hnakkapúðastilling • Sérstakur mjóbaksstuðningur • Þyngdarstýring • Sterk fjaðrandi stálgrind • Kaldsteyptur svampur • Úrvals nautaleður - yfir 50 litir • Öflug viðargrind - fæst í 6 litum • Borð fyrir fartölvur • Sjálfvirk hnakkapúðastilling veitir bestu mögulegu þægindi - þú velur þína stærð Sjálfvirk hnakkapúðastilling veitir bestu möguleg þægindi ® Sérstakur hæðarstillanlegur hnakkapúði 360° snúningur með fullkomnum stöðugleika VEGAGERÐIN hefur lagt fram nýja tillögu að matsáætlun vegna Gjábakkavegar frá Þingvöllum til Laugarvatns í Bláskógabyggð. Umhverfisráðherra felldi í lok júní sl. úr gildi úrskurð Skipulagsstofn- unar frá 11. nóvember 2004 um að nýr Gjábakkavegur kæmi ekki til með að valda umtalsverðum um- hverfisáhrifum. Landvernd, Nátt- úruverndarsamtök Íslands og Pétur M. Jónasson kærðu úrskurð stofn- unarinnar til ráðherra, sem felldi hann úr gildi. Þarf umhverfismat því að fara fram á nýjan leik. Tillögur um nokkrar leiðir lagðar fram Í greinargerð Vegagerðarinnar með nýju matsáætluninni kemur fram að þessi tillaga sé upphaf að nýju matsferli. ,,Í nýju mati á m.a. að gera grein fyrir endurbyggingu núverandi veg- ar, svokallaðri leið 1, og bera hana saman við aðra kosti. Vegagerðin hafði áður hafnað leið 1 vegna umferðaröryggis og veg- tækni. Jafnframt var kostnaður við leið 1 meiri en við aðrar leiðir. Þar af leiðandi óskaði Vegagerðin ekki eftir úrskurði Skipulagsstofnunar um þá leið. Hins vegar fjallaði Vegagerðin í matsskýrslu um leið 1 að stærstum hluta til jafns við aðrar leiðir og bar þá leið saman við aðra kosti. Vegagerðin mun í nýju mati á um- hverfisáhrifum leggja fram þær leið- ir sem hún telur raunhæfa fram- kvæmdakosti, þ.e. leiðir 2, 3, 7 og 12a. Jafnframt leggur hún fram leið 1, í samræmi við úrskurð ráðherra, til úrskurðar Skipulagsstofnunar,“ segir í greinargerð Vegagerðarinn- ar. Fyrirhugaður vegur er um 15 km langur og liggur um þann hluta Blá- skógabyggðar sem áður hét Laug- ardalshreppur og Þingvallahreppur. Þá sneiðir vegurinn í gegnum land Grímsnes- og Grafningshrepps. Í ná- grenni fyrirhugaðs vegar eru m.a. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Gjá- bakki, Gjábakkahraun, Reyðar- barmur og Laugarvatnsvellir. Vega- gerðin telur að núll-kosturinn, þ.e. óbreytt ástand, sé ekki raunhæfur kostur, þar sem mikil þörf er á sam- göngubótum á þessari leið og auka þarf umferðaröryggi til muna. Spá Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að umferð um óbreyttan veg verði um 250 bílar á sólarhring árið 2010 en um nýjan Gjábakkaveg verði umferðin á bilinu 400 til 500 bílar á sólarhring. Gert er ráð fyrir að fjárveitingu til framkvæmda við lagningu Gjá- bakkavegar í samgönguáætlun fyrir tímabilið 2005 til 2008. Kostnaður við verkið er áætlaður um 570 til 640 milljónir króna eftir því hvaða leið verður valin. Ákvörðun umhverfisráðherra að fella úr gildi úrskurð Skipulagsstofn- unar vakti upp hörð viðbrögð sveit- arstjórnar Bláskógabyggðar, sem hélt því fram að hann gengi þvert á vilja sveitarstjórnar og Vegagerðar- innar. Hin nýja tillaga mun liggja frammi til kynningar frá 12.–22. ágúst 2005 hjá Skipulagsstofnun. Umdeild lagning Gjábakkavegar milli Laugarvatns og Þingvalla Vegagerð leggur fram nýja tillögu um mögulegar leiðir                                            !"# $       %  &% Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ELDSVOÐI varð í íbúð í þriggja hæða fjölbýlishúsi í Laufvangi í Hafnarfirði um klukkan 1.40 í fyrrinótt. Þegar bílar frá Slökkvi- liði höfuðborgarsvæðisins komu á vettvang hafði lögreglan í Hafn- arfirði slökkt eldinn að mestu með handslökkvitæki. Töluverðar skemmdir urðu í herbergi þar sem eldurinn kom upp og miklar reykskemmdir í íbúðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru þrír stigagangar í húsinu og átta íbúðir í hverjum stigagangi. Stigagangur þess hluta hússins þar sem eldurinn kom upp var rýmdur. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og lauk slökkvi- listarfi um klukkan 2.20. Íbúa íbúðarinnar skaðaði ekki og því þurfti ekki að flytja þá á sjúkrahús. Ekki er vitað um ástæður þess að eldurinn kvikn- aði. Íbúð skemmd eftir eldsvoða HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur yfir litháískum manni sem grunaður er um inn- flutning á tæpum 4 kg af met- amfetamíni til landsins með Nor- rænu 30. júní sl. Í gæsluvarðhaldskröfu lögreglu segir m.a. að hagsmunir almenn- ings krefjist þess að sá sem eigi þátt í jafn stóru og alvarlegu broti sem þessu, sæti gæslu- varðhaldi þar til dómur gangi í málinu. Sé þetta byggt á því magni sem hér um ræðir auk þess sem það myndi vekja athygli og andúð almennings ef hann endurheimti frelsi sitt á þessari stundu. Bæði dómsstig féllust á kröf- una og verður sakborningurinn í áfram í gæsluvarðhaldi til 9. september. Áfram í gæslu- varðhaldi vegna fíkniefna Á FÉLAGSFUNDI VGR 28. júní sl. var samþykkt að haldið yrði forval fyrir sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík. Forvalið verður haldið 1. október nk. og rennur fram- boðsfrestur út kl. 12 föstudaginn 16. september nk. Kosið verður um sex efstu sætin á listanum en stillt verður upp í sætin þar fyrir neðan. Kjörfundur stendur yfir frá kl. 9–21 laug- ardaginn 1. október á skrifstofu flokksins á Suðurgötu 3. Kjör- stjórn mun hafa yfirumsjón með kjörfundi. Nánari reglur um til- högun kjörfundar má finna á slóð- inni http://reykjavik.vg/for- val.htm Kosningarétt hafa allir fullgildir félagsmenn í Reykjavík miðað við 23. september 2005. Forval hjá vinstri grænum BENSÍNORKAN ehf. hyggst opna nýja bensínstöð á Egilsstöðum í októberbyrjun. Hún mun verða við hlið versl- unarmiðstöðvar þar sem eru fyr- irtækin Bónus, BT, Office1, Sím- inn og Hamborgarabúlla Tómasar. Um er að ræða sjálfs- afgreiðslustöð með fimm dælum, þ.á m. hraðdælu fyrir stóra bíla. Verið er að ljúka undirbúnings- ferli að verkinu gagnvart skipu- lagsyfirvöldum sveitarfélagsins og verktaka og geta fram- kvæmdir væntanlega hafist á næstu dögum. Esso og Shell reka bensínstöðvar á Egilsstöðum og Olísstöð er í Fellabæ handan Lag- arfljóts. Orkan opnar bensínstöð á Egilsstöðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.