Morgunblaðið - 30.08.2005, Blaðsíða 16
Akureyri | Þóra Ákadóttir, for-
seti bæjarstjórnar Akureyrar,
mætti vígaleg til leiks er hún
skar síðasta stöðumælinn í mið-
bænum í burtu sl. föstudag.
Þóra var með hjálm, með eyrna-
hlífum og hlífðargleri, rafsuðu-
vettlinga, svuntu og slípirokk
með skurðarskífu að vopni. Það
tók heldur ekki langan tíma fyr-
ir Þóru að skera síðasta stöðu-
mælinn í burtu. Í stað stöðu-
mæla hafa verið teknar í notkun
bifreiðastæðaklukkur og eru
klukkustæðin gjaldfrjáls í til-
tekinn tíma ef rétt stillt bif-
reiðastæðaklukka er í mæla-
borðinu á bílnum.
Morgunblaðið/Kristján
Mætti vígaleg til leiks
Stöðumælar
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Í hátíðarsalnum á Eiðum er nýbúið að
gera loft salarins upp. Að vísu stóð ekki
sérstaklega til að gera það. Sigurjóni Sig-
hvatssyni eiganda Eiða segist svo frá að
einn morguninn hafi Ásmundur Þórhalls-
son staðarhaldari komið í salinn og séð að
búið var að slípa loftið og þunn slikja af
sagi lá yfir öllum gólffletinum undir. Eng-
in voru þó spor eða fótaför sýnileg og
hvergi nokkurt verkfæri. Ásmundur
hringdi til Sigurjóns út til Ameríku og
innti hann eftir hvern hann hefði ráðið til
verksins. Sigurjón kannaðist ekki við að
hafa munstrað neinn eða að nokkur þörf
hefði verið á því yfir höfuð að pússa sal-
arloftið. Svo Ásmundur fór og þreif gólfið
og mönnum er það enn hulin ráðgáta hver
fann sig knúinn til að verja helginni í að
pússa upp gamla viði. „Sagan er sönn,“
segir Sigurjón. „Ef þið hittið einhvern á
förnum vegi sem hefur slípað loftið viljum
við að sjálfsögðu borga honum viðvikið.
Það er þó spurning hvort þetta sé ekki til-
komið af yfirnáttúrulegum sökum.“
Kannski ekki úr lausu lofti gripið, því
menn þekkja til draugagangs á Eiðum.
Héraðsbúar fundu lyktina af haustinu
fyrir allnokkru. Það er eins og lyktin komi
á undan veðurbreytingum, einhverslags
kæluilmur sem drýpur inn í vitundina.
Fólki þykir sumu sem það fari heldur illa
nestað af sumaryl inn í haust og vetur. En
hvort veður er gott eða vont er nátt-
úrulega huglæg afstaða. Haustin eru
gjarnan indæl á Héraði. Og hvað gæti ver-
ið indælla en öll þessi börn sem full til-
hlökkunar streyma að skólahúsum hvern
morgun og setja svo frískan blæ á lífið í
bænum?
Bæjarbúar óttast um félagsheimilið sitt
gamla, Valaskjálf. Frá því að húsið var
selt til einkaaðila hefur það aftur skipt um
hendur og fiskisagan segir að til standi að
gera samkomusalinn að gistiherbergjum.
Kvikmyndasalurinn gufaði upp á sínum
tíma og nú er spurt hvort útilokað verði að
halda böll og aðra mannfagnaði á Egils-
stöðum næstu misserin.
Úr
bæjarlífinu
EGILSSTAÐIR
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
blaðamann
dag. Þegar leið á morg-
uninn braust sólin fram
úr skýjunum og skein á
köflum glatt á stúlkurnar
sem þá öttu þá kappi.
En það skiptust líka á
skin og skúrir inni á vell-
inum, þar var á stundum
Alla Geira-mótið íknattspyrnu fórfram á Húsavík
um helgina en á því keppa
knattspyrnumenn í 6 og 7
flokki drengja og 5,6 og 7
flokki stúlkna. Þetta er í
fjórða skipti sem Völs-
ungur heldur þetta mót
og komin er hefð á það
sem sumar-lokamót liða á
norður- og austurlandi. Á
milli 400 og 500 kepp-
endur voru á mótinu að
þessu sinni.
Það skiptust á skin og
skúrir því á laugardag,
þegar drengjaliðin
kepptu, var stíf norðanátt
með rigningu og kalt í
veðri. Keppendur létu
það þó ekki á sig fá og
kláruðu daginn með stæl.
Veður var betra á sunnu-
hart barist og ekkert gef-
ið eftir. Árangur liðanna
var misjafn eins og geng-
ur, sumir sigruðu aðrir
töpuðu en allir gerðu þó
sitt besta og það er ekki
hægt að gera betur en
það.
Morgunblaðið/Hafþór
Jóney Ósk Sigurjónsdóttir, leikmaður Völsungs,
spyrnir hér boltanum sem örskömmu síðar lá í marki
andstæðinganna.
Skin og
skúrir á
Alla Geira-
móti
Landsmót hagyrð-inga verður hald-ið í Ársal, Hótel
Sögu, á laugardaginn
kemur. Þangað fjölmenna
jafnan hagyrðingar og
áhugafólk um kveðskap.
Þátttöku má tilkynna á
netfangið: lands-
mot@hotmail.com.
Landsmótið var síðast
haldið í Reykjavík árið
2000. Þá orti Hjálmar
Gíslason:
Reykjavík við tré og torg
á trausta syni og dætur
hýsir einnig synd og sorg
og súludans um nætur.
Heiðursgestur í ár
verður Kristján Bersi
Ólafsson og veislustjóri
Þór Vigfússon. Fimm
hagyrðingar voru fengnir
til að yrkja um ákveðin
efni. Þeir eru Sigurjón V.
Jónsson, Suðurlandi,
Helgi Zimsen úr land-
námi Ingólfs, Þórdís Sig-
urbjörnsdóttir, Vest-
urlandi, Davíð Hjálmar
Haraldsson, Norðurlandi
og Ragnar Ingi Aðal-
steinsson, Austurlandi.
Landsmótið
um næstu helgi
pebl@mbl.is
Akranes | Nýr kynningarbæklingur um
Akranes, ætlaður ferðamönnum og öðrum
sem vilja kynna sér allt það sem Akranes
hefur upp á að bjóða, er kominn út. Nokkur
ár eru liðin frá því gefið var út kynning-
arefni um Akranes og því var kominn tími
á endurnýjun. Bæklingurinn er gefinn út á
íslensku og ensku. Hann er 20 blaðsíður að
stærð og alfarið unninn hjá Markaðs- og
atvinnuskrifstofu Akraneskaupstaðar,
nema hvað Prentverk Akraness sá um
prentunina.
Í bæklingnum kennir ýmissa grasa en
þar er m.a. fjallað um safnasvæðið, einstök
söfn og nokkra skemmtilega muni sem þar
eru varðveittir, Langasand og golfvöllinn,
útivistarparadísina Akrafjall og margt
fleira. Bæklingnum verður á næstu dögum
dreift á upplýsingamiðstöðvar fyrir ferða-
menn víða um land, til ferðaskrifstofa hér-
lendis og erlendis og að sjálfsögðu til þjón-
ustuaðila á Akranesi. Fyrr í sumar var
gefið út nýtt upplýsingakort af Akranesi
og á næstu dögum verður opnaður nýr
upplýsinga- og kynningarvefur um Akra-
nes á slóðinni www.visitakranes.is. Ferða-
menn og aðrir gestir bæjarins ættu því að
hafa allar tiltækar upplýsingar við höndina
áður en haldið er á Skagann, segir á vef
sveitarfélagsins.
Nýr kynn-
ingar-
bæklingur
Egilsstaðir | Fyrsta einbýlishúsið í Vota-
hvammi á Egilsstöðum hefur verið afhent
en Íslenskir aðalverktakar annast upp-
byggingu á svæðinu. Húsið er við Norð-
urbrún 12 en í heild er gert ráð fyrir 123
íbúðum í Votahammshverfinu þegar það
verður fullbyggt. Búið er að leggja götur í
fyrsta byggingaráfanga hverfisins og lóðir
tilbúnar fyrir næstu hús. Ætlunin er að
ÍAV hefji byggingu á öðru einbýlishúsi í
haust og átta íbúðum fyrir áramót, þ.e.
þremur fjögurra herbergja, þremur
þriggja herbergja og tveimur raðhúsíbúð-
um. Húsin koma í einingum frá Lettlandi
þar sem þau eru framleidd í verksmiðju
ÍAV og BYKO. Af þeim 123 íbúðum sem
koma til með að rísa í Votahvammi verða
10 einbýlishús, 41 íbúð í raðhúsum og 72
íbúðir í fjölbýlishúsum. Í fyrsta áfangan-
um, sem ÍAV annast uppbyggingu á, verða
10 einbýlishús og 16 íbúðir í raðhúsum.
Flutt í fyrsta
húsið
♦♦♦