Morgunblaðið - 30.08.2005, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„The Island er
fyrirtaks afþreying.
Ekta popp og kók
sumarsmellur. “
-Þ.Þ. Fréttablaðið.
Hvað myndir þú gera ef þú
kæmist að því að þú værir afrit
af einhverjum öðrum?
Frábær Bjölluskemmtun fyrir alla.
SVALASTA
HJÓLABRETTAMYND ÁRSINS.
S.U.S. XFM
flottur tryllir
-dv-
-S.V. Mbl.
Dramatísk, rómantísk og stórbrotin eðalmynd með Óskarsverðlaunahafanum, Charlize Theron og spænsku blómarósinni, Penelope Cruz.
HANN ER RÖNG HESTATEGUND...
EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN!
SÝND MEÐ ENSKU TALI
DÝRIN TALA OG ÞAÐ MEÐ STÆL. SEBRAHESTUR
ER ÁKVEÐINN AÐ GERAST VEÐHLAUPA HESTUR
HVAÐ SEM TAUTAR.
DÝRLEGT GRÍN OG GAMAN OG
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA.
SÝND BÆÐI
MEÐ ENSKU OG
ÍSLENSKU TALI
Racing Stripes enskt tal kl. 5.50 - 8 og 10
Head in the Clouds kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16
The Skeleton Key kl. 8 og 10.10 b.i. 16
Herbie Fully Loaded kl. 6
The Island kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16
Madagascar enskt tal kl. 6
Batman Begins kl. 8 og 10.30 b.i. 12
Kate Hudson, Gena Rowlands
Peter Sarsgaard og John Hurt
UNNUR Ösp Stefánsdóttir vinnur
nú að undirbúningi þess að setja
upp söngleikinn Footloose, en
stefnt er að því að hann fari á fjal-
irnar í Borgarleikhúsinu fyrir
páska á næsta ári. Unnur leikstýrir
söngleiknum, Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson hefur tekið að sér tón-
listarstjórn og Gísli Rúnar Jónsson
þýðir verkið, sem er nokkurra ára
gamalt og byggt á samnefndri kvik-
mynd frá árinu 1984, með Kevin
Bacon og John Lithgow í aðal-
hlutverkum.
Verið er að ganga frá leikaravali,
en verkið hefur ekki áður verið sett
upp hér á landi, að sögn Unnar Asp-
ar. Þetta verður fyrsta stóra at-
vinnuverkið sem hún leikstýrir, en
þó ekki frumraun hennar við leik-
stjórn, því hún stýrði uppfærslu FG
á Litlu hryllingsbúðinni í fyrrasum-
ar, auk þess að hafa leikstýrt kvik-
myndaverkum. Hún segist vera
mjög spennt fyrir þessu verkefni.
„Þetta er ótrúlega ögrandi og
spennandi verkefni. Ég hef svo
gaman af níunda áratugnum og
tónlistinni frá honum. Það eru al-
veg frábær lög í þessari sýningu,
með Bonnie Tyler og fleirum,“ seg-
ir hún.
Öll lögin í myndinni eru í söng-
leiknum, auk nokkurra sem samin
voru sérstaklega fyrir þessa upp-
setningu. Meðal þekktustu laga
myndarinnar eru titillagið með
Kenny Loggins, „Let’s Hear It for
the Boy“ með Denise Williams,
„Holdin Out for a Hero“ með
Bonnie Tyler, „Hurts So Good“ með
John Cougar Mellencamp og „Al-
most Paradise“ með Ann Wilson og
Mike Reno.
Morgunblaðið/Ásdís
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrir verkinu.
Footloose á fjal-
irnar eftir áramót
Kevin Bacon sló í gegn í Footloose á
sínum tíma.
BANDARÍSKI leikstjórinn Jim Jarmusch á
áhugaverðan feril að baki og er nýrra mynda
frá honum jafnan beðið með eftirvæntingu. Í
nýjustu mynd sinni, Brotin blóm (Broken
Flowers), reynir Jarmusch sig við dýrari og að
margra mati vinsældarvænni framleiðslu en
áður, en útkoman er gráglettin ferðasaga sem
ber öll helstu einkenni Jarmusch: Hún er sér-
vitringsleg, virðist allt að því slitrótt í hrynj-
andi en á sama tíma uppfull af kómík og drifin
áfram af gegnumgangandi vangaveltum um
tilgang eða öllu heldur tilgangsleysi lífsins. Og
tónlistin í myndinni er frábær eins og alltaf.
Í myndinni segir af Don Johnston, (Bill
Murray) ólæknandi kvennabósa sem kominn
er af léttasta skeiði. Sama dag og kærastan
segir honum upp á þeim forsendum að hún hafi
ekki áhuga á að vera með „Don Juan“ sem er
búinn að vera, fær hann nafnlaust bleikt bréf
inn um lúguna. Bréfið er frá einni af fyrrver-
andi kærustum Dons sem tjáir honum að hann
eigi 19 ára gamlan son sem gæti verið að leita
að honum. Winston vinur Dons hvetur hann til
þess að heimsækja fyrrverandi kærustur sínar
sem gætu komið til greina og reyna að komast
að því hver þeirra sé móðir piltsins. Verkefnið
er vægast sagt óljóst því Don ákveður að ráði
Winstons að reyna fremur að leita að vísbend-
ingum í kringum konurnar en ræða beint við
þær um hinn dularfulla son. Eru þær hrifnar
af bleiku, og eru ummerki um að drengur hafi
vaxið úr grasi á heimili þeirra? Samskipta-
hæfileikar virðast heldur ekki vera sterkasta
hlið Dons og þessari persónu fylgjum við í
ferðalag sem liggur um ónefnda staði í Banda-
ríkjunum sem gætu verið hvar sem er og
hvergi. Og hver veit nema bréfið hafi verið eitt
stórt gabb?
Aðalsögupersónan í myndinni er áhugaverð-
ur miðpunktur í sögu sem virðist fyrst og
fremst fjalla um einmanaleika og glímuna við
tómahljóðið í tilverunni. Andstætt granna sín-
um Winston, sem er fimm barna faðir, hefur
Don annaðhvort hafnað eða misst af þeim val-
kosti að eignast fjölskyldu. Hann þarf litlar
áhyggjur að hafa af brauðstritinu enda græddi
hann á tá og fingri í tölvubransanum og er
sestur í helgan stein. Þannig er ekkert í lífi
Dons sem dreifir huganum og hann fer því að
horfast í augu við þá staðreynd að hann sé ef
til vill ekkert annað en kvennabósi sem er bú-
inn að vera. Þar sem hann stendur einn í
smekklega innréttuðu úthverfishúsinu sínu
verður tómahljóðið í tilveru hans allt að því
áþreifanlegt.
Samspil hinnar lágstilltu en brakandi kóm-
ísku leikframmistöðu Bills Murrays og hinnar
hæggengu hrynjandi myndarinnar undir-
strikar tilvistarlegar vangaveltur hennar.
Myndin er ekki síst áhugaverð vegna þess
hvernig hún skiptist í kafla þar sem frábærar
og reyndar leikkonur stíga (sumar hverjar út
úr algerri gleymsku) fram og spinna af fingr-
um fram sem fyrrverandi kærustur Dons.
Sharon Stone og Tilda Swinton eiga þar frá-
bæran leik, þó svo að hin síðarnefnda komi að-
eins fyrir í stutta stund. Jessica Lange og
Frances Conroy skila líka sínu og Alexis
Dziena er bráðfyndin í hlutverki unglings-
stúlku sem gæti hafa stokkið fullsköpuð út úr
höfði Humbert Humberts, aðalsögupersónu
skáldsögunnar Lolitu.
Ferðalagið sjálft er skrykkjótt í sjálfu sér og
sama er að segja um þær kómísku aðstæður
sem dregnar eru upp – sumt er betur heppnað
en annað. En undirliggjandi pæling Jarmusch
í myndinni er kjarni hennar og er áhugavert
að fylgjast með hvernig hann vinnur úr ferða-
lagsminninu. Þó svo að ferðalagið eigi ef til vill
að tákna einhvers konar breytingu, jafnvel
nýtt upphaf, er það engin töfralausn. Þegar
upp er staðið hefur Don aðeins farið í hringi og
áhorfandinn fær að vita að lífsgátan er mun
flóknari en svo að svarið við henni verði fundið
með því að fara í eitt ferðalag.
Tómahljóðið í tilverunni
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó
Leikstjórn og handrit: Jim Jarmusch. Aðalhlutverk:
Bill Murray, Jeffrey Wright, Sharon Stone, Frances
Conroy, Jessica Lange og Tilda Swinton. Bandaríkin,
107 mín.
Brotin blóm (Broken Flowers) Útkoman er gráglettin ferðasaga sem ber öll helstu einkenni Jarmusch, segir m.a. í dómnum.
Heiða Jóhannsdóttir