Morgunblaðið - 06.09.2005, Síða 6

Morgunblaðið - 06.09.2005, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÓLAFUR F. Magnússon, fulltrúi Frjálslynda flokksins í borgarstjórn, ætlar að leggja til að Reykjavíkur- borg leiti eftir viðræðum við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um sameiningu, á fundi borgarstjórn- ar í dag. Málið er eitt af stefnumálum Frjálslynda flokksins í borginni. „Gamaldags hrepparígur á ekkert meira rétt á sér á höfuðborgarsvæð- inu en víða um landið. Við verðum að horfa á þá staðreynd að Reykjavík og nágrannasveitarfélögin eru eitt at- vinnusvæði, og mynda eina skipulags- lega og samgöngulega heild. Ég held það flýti því að þetta sé skipulagt með þeim hætti að það komi heildinni sem best ef við sameinumst og látum heildarhagsmunina ráða,“ sagði Ólaf- ur í samtali við Morgunblaðið í gær. Í dag eru sjö sveitarfélög á höfuðborg- arsvæðinu; Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Álftanes, Seltjarnarnes og Mosfellsbær; sem Ólafur segir hamla því mjög að svæðið sé skipu- lagt í heild. Hags- munir minni ein- inga geti þannig haft áhrif á ná- granna án þess að þeir hafi nokkuð um það að segja. Auk þess megi spara mikið fé í yf- irstjórnum bæjarfélagana með því að hafa eina sveitastjórn yfir sameinuðu sveitarfélagi og draga verulega úr yf- irbyggingu stjórnsýslunnar. Ólafur tekur þó fram að þó sveit- arfélögin myndu sameinast muni þau varðveita sögu og menningarleg sér- kenni hvers sveitarfélags, og íbúalýð- ræði innan sameinaðs sveitarfélag muni tryggja lýðræðislega ákvarð- anatöku. Ólafur viðurkennir að ekki séu miklar líkur til þess að borgarstjórn samþykki tillöguna á fundi sínum í dag: „Djarfar og framsæknar hug- myndir eru oft ekki vinsælar við fyrstu sýn, og því geta sveitarstjórn- armenn verið ragir til að takast á við framtíðina með þessum hætti. En það er það sem almannahagsmunir kalla á og ég hef gefið mig út fyrir það að vinna að almannahagsmunum með því að vera í pólitík.“ Einnig verður að telja líklegt að til- lagan muni mæta andstöðu víða í ná- grannasveitarfélögunum. „Við erum með þessu að höfða til almannahags- muna og heilbrigðrar skynsemi. Það þarf að berjast fyrir þessu, og drop- inn holar steininn, en við teljum okkur vera að gera mikið gagn með því að flytja þessa tillögu, og þess vegna er- um við að því,“ segir Ólafur. F-listinn vill sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Eitt atvinnusvæði og ein skipulagsleg heild Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Ólafur F. Magnússon NJARÐVÍKINGURINN Halldór Gunnars- son, sem búsettur er í Long Beech í Miss- isippi, færir hverja gleðifréttina á fætur ann- arri heim til Íslands með því að hafa uppi á Íslendingum sem saknað hefur verið svo dög- um saman eftir að fellibylurinn Katrín gekk yfir Mexíkóflóa. Í gær hafði hann upp á Karly Jónu Kristjánsdóttur Legere. Í fyrra- dag fann hann Lilju Ólafsdóttur Hanch, en báðar eru þær búsettar í Gulfport í Miss- isippi. Karly er á áttræðisaldri og hefur haldið sig heima hjá sér en vegna sambandsleysis var ekkert vitað um hana. Varð hún geysilega fegin þegar Halldór bankaði upp á hjá henni. Hún býr með manni sínum og sonum og var því ekki ein síns liðs og er í ágætu yfirlæti. Að sögn Péturs Ásgeirssonar, skrifstofu- stjóra utanríkisráðuneytisins, er nú einnar ís- lenskrar konu saknað, en hún býr í New Or- leans. Hann sagði í gærkvöldi að erfitt væri að finna einhvern til að kanna með afdrif hennar. Hafði ekki hugmynd um landa sinn Halldór Gunnarsson er smiður og múrari og hefur undanfarin ár unnið í nágrenni við Karly án þess að hafa hugmynd um að þar væri landi hans búsettur. Það var ekki fyrr en utanríkisráðuneytið bað hann um að fara heim til hennar að honum varð það ljóst. „Ég hef keyrt fram hjá húsinu hennar í 10 ár án þess að vita að þar byggi Íslendingur,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Halldór sagði að Lilja Aðalbjörg hefði einn- ig verið glöð að sjá hann. „Ég bankaði upp á hjá henni og hún var ótrúlega glöð að sjá mig, trúði varla eigin augum,“ segir Halldór. Um hálftíma akstur er á milli Longbeach og Gulfport og segir Halldór að samgöngur séu að mestu leyti komnar í lag. Enn sé þó rafmagnslaust og ekkert símasamband. Vonast hann til að geta aðstoðað Lilju við að hringja heim til ætt- ingja hennar hér á landi. „Ég spurði hvort hana vantaði eitthvað en hún sagði að sér liði bara vel eftir allar þess- ar hremmingar. Það eru smáskemmdir á hús- inu og vatn flæddi inn en hún var búin að þurrka allt upp og þrífa hátt og lágt,“ segir Halldór um heimsóknina til Lilju. Hún á einn son en eiginmaður hennar er í bandarískri herstöð í Japan. Mikið um innbrot Halldór sagði að líklega hefðu rúmlega 4 þúsund manns farist í Missisippi vegna felli- bylsins. Heimili hans og fjölskylda sluppu vel og er ástandið á svæðinu að skána dag frá degi. En samt er fjarri því að allt sé fallið ljúfa löð. „Maður er vopnaður á kvöldin því það eru allir að reyna að brjótast inn,“ sagði hann. Halldór geymir hlaðna skammbyssu upp í hillu hjá sér ef innbrotsþjófar skyldu ráðast inn en ekki hefur þurft að stugga við óboðn- um gestum hingað til á heimili Halldórs. Inn- brotsþjófar ganga um eftir að skyggja tekur og í fyrrakvöld var reynt að stela rafstöð frá félaga hans neðar í götunni. Halldór gengur vaktir ásamt öðrum félaga sínum til að verj- ast þjófum. Iðulega kemur fólk til að biðja um vistir en Halldór stendur fast á sínu og segist þurfa að fæða sín börn áður en röðin kemur að öðrum. „Matur er farin að tínast inn í búðirnar en biðraðirnar eru mjög lang- ar, sérstaklega við bensínstöðvar þar sem þær eru 5–6 mílna langar. Í dag var sorpið hirt í fyrsta skipti í viku og fnykurinn var orðinn mjög stækur í öllum þessum hita.“ Halldór sagði mjög auðvelt að ferðast á milli staða í björtu en útgöngubannið tekur gildi kl. 18 á kvöldin og stendur til kl. 6 að morgni. Ástandið minnir helst á stríðsástand vegna allra hermannanna og herþyrlna sem sveima um yfir byggðunum. „Það eru her- menn út um allt. Fólk rífst um bensín og slagsmál eiga sér stað hér og þar.“ Hann sagði börnin ekki fá að fara í skólann fyrr en eftir jól þannig að það yrði ekkert frí næsta sumar. Halldór sagði að framundan sé 4–5 ára vinna við enduruppbyggingu á svæðinu og sagðist hann ekki á förum. „Þetta verður allt í lagi. Ég er Íslendingur og við gefumst ekki upp.“ Halldór sýndi þá fyrirhyggju skömmu áður en Katrín reið yfir svæðið að verða sér úti um litla rafstöð. Hefur hún séð heimili hans fyrir rafmagni á meðan flestallir í kringum hann hafa verið rafmagns- og símalausir. Halldór flutti frá heimabæ sínum, Njarðvík, til Bandaríkjanna fyrir 12 árum og starfar þar sem húsasmiður. Næg eru verkefnin fyrir hann framundan, þar sem þúsundir húsa í kringum hann stórskemmdust eða eyðilögð- ust í fellibylnum og flóðunum sem fylgdu í kjölfarið. Allt horfið skammt frá Hann hefur skotið skjólshúsi yfir móður sína, bræður og tvær fjölskyldur til viðbótar, sem misstu allt sitt í náttúruhamförunum. Móðir Halldórs, Þórdís Jónsdóttir Harvey, bjó í bænum Biloxi í Louisiana. „Hún náði að bjarga nokkrum myndum og pappírum og hafði meðferðis smávegis af fötum. Að öðru leyti er allt farið hjá henni en mikilvægast er að hún slapp lifandi frá þessu,“ segir Halldór. Miðja fellibylsins fór að hluta yfir bæinn Longbeach, þar sem Halldór býr ásamt fjöl- skyldu sinni, bandarískri eiginkonu og þrem- ur litlum börnum. Hann segir tjónið gríð- arlegt allt í kring en sem betur fer hafi húsið þeirra að mestu sloppið. Náði hann að loka kirfilega fyrir hurðir og glugga áður en Katr- ín fór yfir og hafði sá viðbúnaður mikið að segja. „Hefði ég ekki verið heima hefði stór hluti hússins líklega eyðilagst. Við erum það of- arlega í bænum að við sluppum við flóðin en hér fimm kílómetrum fyrir neðan okkur er allt horfið,“ segir Halldór, sem býr í um átta kílómetra fjarlægð frá ströndinni. Halldór Gunnarsson hafði uppi á́ tveimur íslenskum konum á flóðasvæðunum í Bandaríkjunum „Var ótrú- lega glöð að sjá mig“ Reuters Gríðarleg eyðilegging blasir við íbúum flóðasvæðanna sem nú eru sumir hverjir að snúa heim til að kanna skemmdir húsa sinna. Á myndinni dregur Mike Mire, íbúi í New Orleans, bát á leið til síns heima. Byssan er að sjálfsögðu með í för, en mikil óöld hefur ríkt í borginni. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson og Björn Jóhann Björnsson SÉRFRÆÐINGAR Rauða kross Íslands í fjöldahjálp, fimm til tíu manna teymi, eru í viðbragðsstöðu ef óskað verður eftir að- stoð þeirra á flóðasvæðunum í suðurríkjum Bandaríkjanna. Nú þegar eru um 70 slíkir sérfræðingar á vegum Rauða krossins í Evrópu, Mexíkó og Kanada á leiðinni til Bandaríkjanna. Að sögn Konráðs Kristjánssonar, verk- efnisstjóra hjá RKÍ, hefur Rauði krossinn í Bandaríkjunum tekið jákvætt í boð RKÍ um að senda sérfræðinga héðan vestur um haf. Kristján segir RKÍ hafa yfir góðu fólki að ráða með mikla reynslu í fjöldahjálp. Ekki sé ólíklegt að Bandaríkjamenn muni þurfa á aðstoðinni að halda við að hýsa fólk sem misst hefur heimili sín, fæða það og klæða. Konráð segir þetta vera stærstu neyð- araðgerð í 125 ára sögu bandaríska Rauða krossins. Þúsundir sjálfboðaliða starfa á flóðasvæðunum. Hafa samtökin nú náð að hýsa hátt í 100 þúsund manns á 300 stöðum í níu ríkjum Bandaríkjanna. Tekið við fjárframlögum Að sögn Konráðs hefur bandaríski Rauði krossinn fyrsta kastið aðallega óskað eftir fjárstuðningi annarra landa. Af því tilefni tekur Rauði kross íslands við fjár- framlögum á bankareikningi sínum nr. 1151-26-12, kennitala 530269-2649. Einnig er hægt að leggja til fjármagn beint til bandaríska Rauða krossins, á vefnum redc- ross.org Sérfræðingar Rauða kross Íslands í viðbragðsstöðu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.