Morgunblaðið - 06.09.2005, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þyri Þorláks-dóttir Myers
fæddist í Reykjavík
22. maí 1934. Hún
lést í Reykjavík 27.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Inga Sörensen,
f. í Reykjavík 28.
maí 1911, d. í
Reykjavík 2. nóvem-
ber 1964, og Þorlák-
ur Helgason, f. á Ísa-
firði 17. desember
1904, d. í Reykjavík
15. mars 1982. For-
eldrar Ingu voru Aage Hancke-
Sörensen, f. í Kaupmannahöfn
1882, d. í Baltimore í Maryland í
Bandaríkjunum, og Bertha Jo-
hannessen, f. í Reykjavík 1882, d. í
Reykjavík 1947. Foreldrar Þorláks
voru Helgi Sveinsson, f. á Staðar-
Elísabet Björgvinsdóttir, f. 1908,
d. 1995. Börn þeirra eru: Ragn-
heiður Helga, f. 1943, d. 1944;
Helgi, f. 1945, maki Auður Guð-
jónsdóttir, dóttir þeirra er Kristín
Halla, sonur Auðar er Kári Magn-
ússon; og Ragnheiður Kristjana, f.
1948, dóttir hennar og Gunnars
Karlssonar er Elísabet, sambýlis-
maður Sighvatur Arnmundsson.
Þyri gekk í Landakotsskóla og
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar.
Hún vann hér heima við skrifstofu-
og verslunarstörf. Hun giftist 30.
mars 1957 James Robert Myers
viðskiptafræðingi, f. í Ohio 22.
október 1933, d. í Ohio 23. febrúar
1989; hann er jarðsettur í Hóla-
vallagarði í Reykjavík. Þyri fluttist
með eiginmanni sínum til Banda-
ríkjanna 1957 og átti heima þar á
ýmsum stöðum, lengst í Cleveland
í Ohio. Að eiginmanni sínum látn-
um vann Þyri að verslunarstörfum
og síðast að heimahlynningu.
Fluttist aftur heim til Íslands 1997.
Útför Þyri verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
bakka í Miðfirði 1868,
d. í Reykjavík 1955,
og Kristjana Jóns-
dóttir, f. á Gautlönd-
um í Mývatnssveit
1870, d. á Ísafirði
1908. Alsystir Þyri er
Nanna Þorláksdóttir,
f. 1935, maki Hjörtur
Torfason. Börn
þeirra eru Torfi,
maki Svandís Svav-
arsdóttir, Logi, maki
Ragnheiður Drífa
Steinþórsdóttir, og
Margrét Helga, maki
Ingólfur Bruun. Hálfbróðir Þyri,
sammæðra, er Ingi Sörensen, f.
1944. Faðir hans Joseph R. Buchal-
ter. Maki Inga er Ellen Sörensen.
Dóttir Inga og Jónu Ágústsdóttur
er Ástríður Linda, maki Ólafur
Ólafsson. Seinni kona Þorláks var
Ég sá Þyri mágkonu mína fyrst um
jólin árið 1993. Ég hafði oft talað við
hana í síma og reynt að gera mér
mynd af þessari konu sem kom alltaf
formálalaust að hlutunum, ýmist
hrósaði mér eða gagnrýndi, allt á
sinn fyndna og sérstaka hátt sem
lýsti hlýju og vinsemd, þrátt fyrir
töffaraskapinn. Þetta gerði hún áður
en við hittumst og hélt því áfram á
meðan hún lifði. Málfar hennar var
líka sérstakt. Þrátt fyrir fjörutíu ár í
Bandaríkjunum talaði hún óaðfinn-
anlega íslensku, kryddaða með gam-
alli Reykjavíkurdönsku. Hún brá líka
fyrir sig amerísku slangri og sérstök-
um frösum sem ég hef engan heyrt
nota nema hana. Hvernig var hún svo
þegar hún birtist? Það kom mér ekki
á óvart að hún var sérstök í fram-
göngu. Það var elegans yfir henni,
glæsileg, hávaxin og grönn. Ég áttaði
mig fljótt á því að hún var líka eldklár
og ævinlega fljót til svars og vel að
sér á fjölmörgum sviðum. Hún var
allt í senn, borgaraleg og mikill bóh-
em, siðavönd en afar fordómalaus.
Þessi jól fyrir bráðum 12 árum var
hún hlaðin gjöfum. Upp komu föt á
tveggja mánaða dóttur mína, allt val-
ið af ótrúlegri smekkvísi. Í vetur fóru
þær saman í bæinn frænkurnar, sú
yngri átti að fá að velja sjálf. Helst
átti að kaupa alklæðnað, minna mátti
það ekki vera, og fara svo í dinner á
eftir. Kannski lýsir þessi verslunar-
ferð Þyri vel. Hún var örlát og stór-
tæk, aðeins það besta kom til geina.
Mér fannst Þyri ekki eldast á sama
hátt og aðrir. Vissulega voru árin
orðin rúmlega sjötíu og hárið orðið
grátt og þunnt undir lokin, eftir sí-
endurtekna krabbameinsmeðferð, en
í tali og hugsun fannst mér hún miklu
yngri. Það var alltaf einhver ung-
lingslegur galsi sem fylgdi henni,
hvort sem hún talaði við afgreiðslu-
fólk í búð eða bílstjórana á BSR sem
keyrðu hana um bæinn. „Are you
from you,“ sagði hún þegar þeir opn-
uðu afturdyrnar fyrir henni, auðvitað
settist hún í framsætið til að spjalla.
Og nú er komið að leiðarlokum. Ég
þakka fyrir samfylgdina og sakna
hennar.
Auður Guðjónsdóttir.
Kynni okkar Þyr hófust fyrir hart-
nær 30 árum þegar ég bjó ásamt fjöl-
skyldu minni í Cleveland í Bandaríkj-
unum um nokkurra ára skeið. Við
bjuggum þarna nokkrar íslenskar
fjölskyldur í sömu götu í heldur
óhrjálegu hverfi. Með þessum fjöl-
skyldum myndaðist góð vinátta fjarri
vinum og ættingjum á Íslandi. Fljótt
kynntumst við nokkrum íslenskum
konum sem gifst höfðu Bandaríkja-
mönnum og verið búsettar þarna
lengi. Þyrí var ein af þessum konum
og hafði hún þá búið í Bandaríkjun-
um í um það bil 20 ár. Fljótlega varð
hún góð vinkona okkar og leit oft við
hjá okkur ungu húsmæðrunum. Hún
þekkti borgina vel og gat miðlað okk-
ur nýgræðingunum af reynslu sinni.
Mér er það minnisstætt frá fyrstu
kynnum mínum af henni hvað hún
talaði góða íslensku þrátt fyrir langar
fjarvistir frá Íslandi. Það var ekki
nokkur leið að heyra á málfari henn-
ar að hún hefði ung að árum flutt frá
Íslandi og talað enska tungu árum
saman. Þyri kynntist Jim, eigin-
manni sínum, á Íslandi þegar hún var
um tvítugt, giftist honum og flutti
með honum til Bandaríkjanna. Þau
voru einkar glæsileg hjón, hún há-
vaxin og grönn með ljóst sítt hár.
Hann dökkhærður, bráðmyndarleg-
ur með glettnisbros sem gerði hann
svo sjarmerandi. Það sást langar
leiðir hvað þau voru ástfangin hvort
af öðru og miklir félagar. Þegar ég
kynntist þeim höfðu þau búið víða í
Bandaríkjunum en Þyrí talaði þó
mest um dvöl þeirra í Alabama í Suð-
urríkjum Bandaríkjanna. Frásagnir
hennar af lífinu þar eru mér minn-
isstæðar vegna þess að hún sveipaði
þær dulúð hins ljúfa lífs sem stelpu-
krakki frá Íslandi hafði aðeins kynnst
í skáldsögum. En svona var hún, allt-
af að segja frá einhverju skemmti-
legu á sinn sérstaka hátt og hún hafði
einstakt lag á að gera smáatriðin frá-
sagnarverð og spennandi.
Þyri var mjög sterkur persónu-
leiki, bráðgreind og stálminnug. Hún
hafði skemmtilega en oft svolítið sér-
kennilega kímnigáfu og gat stundum
virkað hrjúf og dómhörð en þeim sem
þekktu hana vel duldist ekki hjarta-
hlýja hennar og manngæska. Hún
var mjög vandvirk og natin við allt
sem hún tók sér fyrir hendur. Henni
leiddist neikvætt umtal um fólk og
kvartanir áttu ekki upp á pallborðið
hjá henni.
Til marks um hjartahlýjuna var
hún dýrkuð og dáð af íslensku börn-
unum í Cleveland. Í henni fundu þau
skemmtilegu og spennandi „töntuna“
sem veitti þeim ómælda athygli. Að
hennar mati voru þau gáfuðust, dug-
legust, fallegust og heimsins best.
Þau hlutu líka alltaf að vera hæst í
bekknum, annað tók hún ekki í mál.
Svo kom að því að íslensku fjölskyld-
urnar í Cleveland fluttu heim ein af
annarri en þrátt fyrir fjarlægðina
rofnaði ekki sambandið. Þyrí kom í
heimsóknir til Íslands, við heimsótt-
um Cleveland og börnin okkar
stækkuðu og urðu fullorðin. Þyri hélt
sínum sess hjá þeim, skemmtilega
„tantan“ og svo bættust tengdabörn
og barnabörn í hópinn og einnig á
vinsældalista hennar, þau voru líka
fallegust, gáfuðust og best.
Árið 1997 flutti Þyri alkomin heim.
Jim hafði látist nokkrum árum áður
og hún var orðin veik. Það var eins og
hún hefði aldrei flutt í burtu, hún var
strax umvafin gömlu góðu vinkonun-
um og fjölskyldunni sem sameigin-
lega studdu hana á allan hátt í veik-
indunum. En aldrei virtist hún hafa
áhyggjur af framtíðinni né veikind-
ÞYRI ÞORLÁKS-
DÓTTIR MYERS
Hjartans kveðjur sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
PÁLS G. HANNESSONAR
fyrrv. tollfulltrúa,
Ægisíðu 86,
Reykjavík.
Laufey Jensdóttir,
Steinunn Jóhanna Pálsdóttir, Kristján Jón Jónsson,
Guðmundur Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HÖRÐUR GUÐMUNDSSON
fyrrv. bóndi á Kverngrjóti,
Fannafold 185,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 7. september kl. 13.00.
Erna Sörladóttir,
Sigurbjörg Daðey Harðardóttir, Kristján Kristjánsson,
Guðmundur Sörli Harðarson, Ingibjörg Ólafsdóttir,
Þröstur Harðarson, Margrét Kristjánsdóttir,
Steinunn Harðardóttir, Halldór Jóhannsson,
Hörður Harðarson, Heiða Mjöll Stefánsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
STEINUNNAR ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Grund
á Akranesi.
Bjarni Ó. Árnason, Áslaug Hjartardóttir,
Sigríður Árnadóttir, Kristján Kristjánsson,
Þórður Árnason, Sesselja Engilbertsdóttir,
Emilía Petrea Árnadóttir, Guttormur Jónsson,
Ingibjörg Árnadóttir, Sigurður Ingimarsson,
Sigrún Árnadóttir,
Elín Árnadóttir,
Steinunn Árnadóttir, Þorkell Einarsson,
Guðmundur Árnason, Sigrún Traustadóttir,
Hrafnhildur Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Kærar þakkir færum við öllum þeim, sem
auðsýndu okkur vinarhug við andlát og útför
sonar míns, bróður, mágs og föðurbróður,
ÞORSTEINS GYLFASONAR
prófessors.
Guðrún Vilmundardóttir,
Þorvaldur Gylfason og Anna Karitas Bjarnadóttir,
Guðrún Vilmundardóttir og Gunnlaugur Torfi Stefánsson,
Baldur Hrafn Vilmundarson,
Gylfi Þorsteinn og Eyja Sigríður Gunnlaugsbörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug vegna andláts og útfarar ástkærs föður
okkar, sambýlismanns míns, tengdaföður, afa
og langafa,
SIGURJÓNS JÓHANNSSONAR,
Kaplaskjólsvegi 65,
Reykjavík.
Jóhann Sigurjónsson,
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, Marvin E. Wallace,
Katrín Sigurjónsdóttir,
Anna Guðrún Sigurjónsdóttir,
Ingibjörg Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær sonur okkar, unnusti, bróðir og barna-
barn,
FRIÐJÓN HAUKSSON,
Háeyrarvöllum 26,
Eyrarbakka,
lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn
5. september.
Haukur Jónsson, Aldís Anna Nílssen,
Eva Rós G. Hauth,
Eydís Hauksdóttir,
Elvar Hauksson,
Ólöf Hauksdóttir,
Eydís Vilhjálmsdóttir,
Bryndís Sveinsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR KRISTINSSON
málarameistari,
Hringbraut 9,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði sunnudaginn
4. september.
Anna Dagmar Daníelsdóttir,
María Sigurðardóttir, Kristinn Garðarsson,
Dagný Sigurðardóttir, Guðmundur Þórarinsson,
Kolbrún Sigurðardóttir, Elías Rúnar Elíasson,
Albert Sigurðsson,
Daníel Sigurðsson, Ethel Sigurvinsdóttir,
Hafdís Sigurðardóttir, Pálmi Helgason,
Hjördís Sigurðardóttir, Vilhelm Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.