Morgunblaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þorsteinn Lúð-vík Þorsteins- son fæddist á Reynivöllum í Suð- ursveit 23. apríl 1929. Hann lést á hjúkrunardeild HSSA miðvikudag- inn 31. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Arelí Þorsteinsdótt- ir, f. 18.11. 1897, d. 2.7. 1975, og Þor- steinn Guðmunds- son, f. 29.7. 1895, d. 20.3. 1984, hreppstjóri á Reyni- völlum. Þorsteinn var elstur í röð þriggja bræðra, þeir eru Sigurð- ur Elís, f. 7.2. 1931, og Ingimund- ur Reynir, f. 19.6. 1934, d. 15.9. 1948. Hinn 18. janúar 1953 kvæntist Þorsteinn Olgu Meckle Guðleifs- dóttur, fædd og uppalin í Þýska- landi. Foreldrar hennar voru Gottlieb og Emilie Meckle. Börn Þorsteins og Olgu eru: 1) Emil Reynir Þorsteinsson, f. 2.8. 1955, kona hans er Lene Brouw Jörg- ensen, f. 14.2. 1959, og börn þeirra eru Anna Brouw, f. 19.12. 1985, og Jens Brouw, f. 6.9. 1989. 2) Ari Þorsteinn, f. 23.3. 1958, kona hans er María Gísladóttir, f. 15.12. 1954, börn þeirra eru Eik Moh- ini, f. 30.8. 1989, og Ásgrímur, f. 19.11. 1992. 3) Anna Erla, f. 16.5. 1962, eigin- maður hennar er Ólafur Vilhjálms- son, f. 17.5. 1960, börn þeirra eru Vil- hjálmur Þór, f. 4.12. 1986, og Frið- rik Gottlieb, f. 30.8. 1990. Þorsteinn ólst upp á Reynivöllum í Suðursveit en fluttist ásamt eig- inkonu sinni á Höfn árið 1954. Þorsteinn starfaði til margra ára hjá Rafmagnsveitu ríkisins og Fjarvarmaveitu Hornafjarð- ar. Hin síðari ár veitti hann Byggðasafni Austur-Skaftafells- sýslu forstöðu. Þorsteinn sinnti félagsstörfum af miklum áhuga og var um langt skeið formaður Verkalýðsfélags- ins Jökuls. Hann sat í hrepps- nefnd og var varamaður á þingi fyrir Alþýðubandalagið. Síðustu ævidagana dvaldi Þor- steinn á hjúkrunardeild HSSA. Útför Þorsteins verður gerð frá Kálfafellsstaðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Nú er góður maður fallinn frá. Þorsteinn tengdafaðir okkar og afi barnanna okkar var einhver sá jafnbesti maður sem um getur. Það þurfti ekki að þekkja hann lengi til að komast að því. Við minnumst hans sem sannkallaðs heiðursmanns og ljúfmennis. Það er af mörgu að taka þegar Þorsteins er minnst. Ekki fór milli mála að Suðursveit og allt sem henni viðkom átti hug hans allan og þá ekki síst vinur hans og lærifaðir Þórbergur Þórðarson. Áhrifa Þór- bergs á Þorstein gætti víða bæði stjórnmálalegu og í daglegu lífi. Þorsteinn var jafnaðarmaður af lífi og sál, ekki bara í orði heldur einn- ig á borði. Um það ber lífsstíll hans og viðhorf vitni. Fyrstu kynni okkar tengda- barnanna af Þorsteini voru á þá leið að eftir hefðbundnar kynningar og kaffidrykkju upphófst húslestur. Þá var gjarnan byrjað á fyrsta kafl- anum í Suðursveitarseríunni, Stein- arnir tala, sem hefst þannig: „Það voru stórkostlegir dagar í Suður- sveit vorið 1886 …“ Það voru allir dagar stórkostlegir dagar í Suðursveit í huga Þor- steins. Þær voru margar bílferðirnar með tengdabörn og barnabörn í Suðursveit, að Reynivöllum og skógræktinni á Steinasandi svo fátt eitt sé nefnt. Barnabörnin gleyma aldrei bíl- ferðunum sem afi bauð þeim í 17. júní í fararbroddi skrúðgöngu á gamla Willys jeppanum sem hann eyddi svo mörgum stundum í að gera upp. Það fannst þeim kon- unglegt og ekki dró rauður kónga- brjóstsykurinn sem afi lumaði á úr hátíðleikanum. Það var erfitt að horfa á Þorstein hverfa inn í gleymskuna sem fylgir Alzheimer-sjúkdómnum. En þó annað gleymdist var hann sjálfum sér samkvæmur þegar hann undir lokin fór með vísuparta eftir uppá- haldsrithöfundinn sinn: Tak frá mér, Guð, allt sósusull, seyddar steikur og þvílíkt drull! Gefðu mér á minn græna disk grautarsleikju og úldinn fisk. Þetta fannst honum fyndið. Það er gott að vita að Þorsteinn er kominn heim aftur þar sem hann fær sína hinstu hvílu í kirkjugarð- inum á Kálfafellsstað. Tengdabörn og barnabörn. Þegar aldur færist yfir fækkar óðum liðsmönnunum ljúfu og vösku sem mótuðu upphafsár mín í stjórnmálaþátttöku og áttu með mér trygga og trúfasta fylgd alla þá tíð sem iðjað var á þeim vett- vangi. Fallinn er félaginn trausti á Höfn sem var þar í forystu fremst og átti allra trúnað til sinna mörgu, mætu verka. Þorsteinn vinur minn og félagi á í hornfirzku samfélagi svo fjölmörg farsæl spor, hvarvetna á vettvangi þar sem verk þurfti að vinna lagði hann að sitt góða lið og var að verðleikum metinn. Það var heilsubætandi að hitta Þorstein, finna þessa staðföstu skoðun hans og einlægan vilja til að vinna öðrum gagn. Ráðhollur var hann mjög og ráðagóður, svo í hans smiðju var ævinlega gott að leita, hversu við skyldi brugðist þegar upp komu hagsmunamál sveitunga hans, sveitarfélags sem einstak- linga, enda hann gjörkunnugur mönnum sem málefnum, velviljaður og framsýnn um leið. Hann unni mjög byggðarlagi sínu og vildi veg þess sem mestan. Lengi var hann þar í sveitarstjórn og í félagsmála- forystu annarri og átti til þess öruggt atfylgi félagshyggjufólks á Höfn, sem á sínum tíma valdi hann til setu á framboðslista Alþýðu- bandalagsins til alþingiskosninga. Varð Þorsteinn því varaþingmaður okkar og sat um smátíma á Alþingi sem slíkur og þótti það góð reynsla. Kjördæmisþing okkar eystra sótti hann gjarna og flutti þar mál sitt af þeirri kurteisu einurð sem allir kunnu vel að meta. En litið til baka er mér hugstæð- ust þessi einlægni og hlýja sem hann Þorsteinn bar með sér, smág- lettinn var hann og sagnamaður góður, en var ákveðinn og einarður þegar honum þótti þess þurfa með, en umfram allt tillögugóður og raunsær. Fyrir samfylgdina góðu er nú þakkað heilum huga, þar fór heið- ursmaður sem ætíð var jafngott að- eiga að sem góðvin og félaga. Eftirlifandi eiginkonu og börnum eru einlægar samúðarkveðjur færð- ar. Þökkin hlý um huga fer nú við leiðarlok, yljuð ágætum minningum um mannkostadreng. Blessuð sé sú bjarta minning. Helgi Seljan. Ó hve tíminn er að sjá undarlega skaptur .... Það virðist aðeins andrá síðan Þorsteinn sat og las mér „Vatna- daginn mikla“ meðan ég vann við teikniborðið mitt á Höfn. Nú er hann allur. Þegar ég kom heim frá námi eft- ir langar fjarvistir varð Þorsteinn samstarfsmaður minn á skrifstofu Hafnarhrepps. Hann var meira en 20 árum eldri, en ungur í anda, frjór í hugsun og ævinlega tilbúinn að ræða sérhvert mál af nýjum sjónarhóli og á jafnréttisgrundvelli. Þorsteinn var húmoristi, henti gjarna á lofti og hafði yfir skondin orðatiltæki og bögumæli hvers kon- ar. Hann átti samleið í anda með okkur yngri mönnum, sem þá vor- um við störf hjá sveitarfélaginu. Við urðum nánir vinir og eyddum löngum stundum saman, líkt og námsmenn, við umræður um að- skiljanleg dægurmál, skipulagsmál, stjórnmál og undur alheimsins. Sagnir úr Suðursveit og Austur- Skaftafellssýslu voru Þorsteini hug- leikið efni og var þá Þórbergur frændi hans aldrei langt undan. Hann var „barinn og berfættur“ Skaftfellingur, „sunnsendingur“ eins Þórbergur. Hann sagði mér að það væri einkenni ekta Skaftfell- inga að þeim liði best í „þokusúld og þungu hafhljóði“. Það var „þokusúld“ yfir Þorsteini þegar ég heimsótti hann á Skjól- garð í sumar. Vísast hefur haf- hljóðið vantað, því mér fannst hon- um líða illa, þótt ekki gæti hann tjáð sig. Nú þegar Þorsteinn hefur lagt í sína hinstu ferð kann ég honum þau ráð best, sem dugðu á „kolmó- rautt straumkast“ Skeiðarár forð- um: „Haltu fast í faxið! Horfðu ekki á strauminn! Einblíndu á Lóma- gnúp.“ Við sendum Olgu og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Árni Kjartansson og fjölskylda. Kynni okkar Þorsteins hófust þegar ég flutti ásamt fjölskyldunni til Hafnar í Hornafirði, ráðinn til að setja á stofn útibú frá verkfræði- stofunni Fjarhitun. Þá var Þorsteinn rekstrarstjóri Hitaveitu Hafnar, sem nýverið hafði verið byggð upp, og kom í minn hlut að vinna að ýmsum verk- efnum fyrir veituna í samstarfi við hann. Þorsteinn var greindur mað- ur og glöggur og var mikið lán að fá að vinna með honum, því hann þekkti alla rekstrarþætti og upp- byggingu veitunnar öðrum betur. Þorsteinn var gætinn og setti sig vel inn í alla þætti þeirra mála sem hann kom að. Hann stjórnaði mál- efnum veitunnar samviskusamlega og á óeigingjarnan hátt frá upphafi, þar til hún var seld Rarik. Hafn- arbúar geta þakkað Þorsteini öðr- um fremur farsæla uppbyggingu veitunnar sem reyndist skila sveit- arsjóði góðri búbót. Eftir að Þor- steinn hætti að vinna við hitaveit- una, nýttust hæfileikar hans og fjölbreytt áhugasvið prýðilega sem forstöðumaður Byggðasafnsins. Með kynnum okkar Þorsteins þró- aðist traust vinátta, og skipti engu máli þó hvor tilheyrði öndverðum fylkingum stjórnmálanna. Eftir að ég hafði verið kjörinn í sveitar- stjórn Hafnar vorum við Þorsteinn sammála um, að það væri mér hollt að þekkja bakland Hafnar betur; kynnast sveitum sýslunnar og þá ekki síst Suðursveitinni sem Þor- steini var svo kær. Ákváðum við því að nota einn góðan veðurdag til að ferðast um svæðið, þar sem ég naut yfirgripsmikillar þekkingar Þor- steins á því sem fyrir bar. Ferðin var ógleymanleg, til dæmis þegar við stóðum á hlaðinu á bernsku- heimilinu, Reynivöllum, litum yfir Breiðamerkursand, og Þorsteinn lýsti af mikilli nákvæmni aðstæðum eins og þær voru þegar hann var ungur drengur, þannig að stór- brotnar breytingar Breiðamerkur- jökuls stóðu mér ljóslifandi fyrir sjónum. Sveitina sína, og nágranna- sveitirnar, þekkti Þorsteinn gjörla og lýsti af kunnri frásagnarlist. Sennilega hef ég hvorki fyrr né síðar fengið jafnágæta átthaga- fræðslu og þennan sumardag í Suð- ursveitinni. Alltaf var gott að hitta Þorstein; undanbragðalítið glað- lyndan og stutt í húmorinn. Við leiðarlok óskar maður sér þess að stundirnar hefðu getað orðið fleiri, en er þakklátur fyrir þær sem gáf- ust. Við Helga sendum Olgu og fjölskyldu samúðarkveðjur um leið og við kveðjum sómamanninn Þor- stein Þorsteinsson með þakklæti fyrir góðar stundir. Sturlaugur Þorsteinsson. ÞORSTEINN LÚÐVÍK ÞORSTEINSSON Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Sendum myndalista Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, systir og amma, UNNUR EINARSDÓTTIR, Nesbala 70, Seltjarnarnesi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 25. ágúst sl. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 6. september, kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast Unnar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Sigurður K. Brynjólfsson, Einar Sigurðsson, Jarþrúður Guðnadóttir, Auður G. Sigurðardóttir, Tryggvi Svansson, Guðrún Einarsdóttir og barnabörn. Móðir okkar, INGA HANNA ÓLAFSDÓTTIR, Kópavogsbraut 86, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn 3. september. Hulda Björg Sigurðardóttir, Haukur Sigurðsson, Anna Margrét Sigurðardóttir, Ólafur Atli Sigurðsson og fjölskyldur. Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, ÁSGEIR ARNAR JÓNSSON, til heimilis í Urðargerði 4, Húsavík, lést af slysförum fimmtudaginn 1. september sl. Minningarathöfn verður haldin í Fella- og Hóla- kirkju miðvikudaginn 7. september kl. 15.00. Jarðsett verður frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 10. september kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Hrefna Steingrímsdóttir. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR, Hamraborg 30, Kópavogi. Elín Hallgrímsdóttir, Brynja Sigurðardóttir. Lokað Lokað verður vegna útfarar UNNAR EINARSDÓTTUR í dag, þriðjudag. Björn Kristjánsson heildverslun ehf., Grensásvegi 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.