Morgunblaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.09.2005, Blaðsíða 16
Mosfellsdalur | Burtfluttir Skagfirðingar með golfbakt- eríuna, búsettir á höfuðborg- arsvæðinu, hafa undanfarin ár komið saman á haustin og att kappi á golfvellinum. Að þessu sinni var leikið á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal á sunnudaginn og aldrei hafa fleiri mætt á mótið, eða um 60 manns. Veðrið lék við Skagfirðingana og voru móts- stjórarnir í miklu stuði, þeir Guðni S. Óskarsson og Gunnar Þ. Guðjónsson. Lagði Gunnar blessun sína á útreikninga Guðna með handayfirlagningu, þegar úrslitin lágu loksins fyrir. Sigurvegari á mótinu var Skarphéðinn Freyr Ingason, körfuboltakappi með KR og fyrrum leikmaður Tindastóls. Fjölmargir kylfingar frá Sauðárkróki létu sig ekki muna um að aka suður yfir heiðar til að hitta gamla kunningja, enda var stemningin líkt og á góðu ættarmóti. Morgunblaðið/Björn Jóhann Skagfirðingar í Bakkakoti Golf Höfuðborgin | Landið | Akureyri | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Við Dvalarheimilið Naust er nú risin myndarleg viðbygging sem verður tilbúin innan skamms en aðeins ár er síðan fyrsta skóflustungan var tekin. Að sögn forstöðukonu er fólk á biðlista eftir plássi og mikil þörf fyrir fleiri rými en bætt verður úr brýnustu þörfinni þegar nýja álman verður tekin í notkun. Í viðbyggingunni eru sjö eins manns her- bergi með baði og snyrtingu en auk þess lít- il íbúð, ætluð fyrir hjón. Eldhús og borð- stofa hafa þegar verið tekin í notkun en eftir er að leggja síðustu hönd á herbergin og búnað í þeim. Á Nausti verður þá rými fyrir 15 manns og skiptist það í hjúkrunar- og dvalarrými en að auki eru þar tvö dagvistarrými. Trésmiðjan Rein í Suður-Þingeyjarsýslu er verktaki viðbyggingarinnar og hafa framkvæmdir gengið vel og hratt fyrir sig. Hrefna Marinósdóttir, forstöðukona Nausts, er ánægð með verktakann; segir umgengni og viðskilnað smiðanna alveg til fyrirmyndar en hverju herbergi skila þeir tandurhreinu og með stífbónuðu gólfi.    Í grunnskólanum á Þórshöfn er skóla- starf í fullum gangi eins og annars staðar en þar eru nú 64 nemendur. Skólastjóri er Arnar Einarsson en auk hans starfa 10 kennarar við skólann, ýmist í hlutastarfi eða fullri stöðu. Samræmdu prófin sem nemendur hér í 10. bekk tóku í maí síðastliðinn komu mjög vel út en það voru íslenska, enska, danska, stærðfræði, náttúrufræði og samfélags- fræði. Meðaleinkunn var yfir landsmeð- altali eða 6,7 hjá Þórshafnarnemendum en hún var 6,4 á landsvísu og 6,2 yfir Norður- land eystra. Þetta telst góður árangur, ekki síst ef lit- ið er til erfiðrar byrjunar skólaárs í fyrra, sem var sex vikna kennaraverkfall. Þrír leiðbeinendur við skólann hófu fjar- nám við kennaradeild Háskólans á Ak- ureyri í haust og fer það að mestu fram um fjarfundabúnað í grunnskólanum á Þórs- höfn. Mikil þörf er á góðri ADSL-tengingu fyrir þá og aðra íbúa Þórshafnar. Úr bæjarlífinu ÞÓRSHÖFN Eftir Líneyju Sigurðardóttur fréttaritara var Guðrún G. Bergmann hótelstjóri á Hellnum og Sigríður Finsen formaður héraðsnefndarinnar setti þingið. Fyrirlesarar voru fjórir landsþekktir fræðimenn. Dr. Haraldur Sigurðsson nefndi sinn fyrirlestur jarðvísindamaðurinn Ju- les Verne, Friðrik Rafns- son bókmenntafræðingur Héraðsnefnd Snæ-fellinga stóð fyr-ir málþingi sem haldið var í glæsilegum sal Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga í Grundarfirði sl. sunnudag. Málþingið var tileinkað aldarminningu franska rithöfundarins Jules Verne og skáldsögu hans Leyndardómar Snæ- fellsjökuls. Málþingstjóri fjallaði um rithöfundinn Jules Verne, dr. Ari Trausti Guðmundsson um ferðasöguhöfundinn Jul- es Verne og Ólafur H. Torfason kvikmynda- gagnrýnandi var með hugleiðingar um kvik- myndir og Snæfellsjökul. Fjöldi manns úr byggðum Snæfellsness sat þingið sem tókst afbragðs vel. Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Þau stóðu að málþinginu um franska rithöfundinn Jules Verne í Grundarfirði um helgina. Frá vinstri: Ólafur H., Guðrún, Sigríður, Friðrik, Ari Trausti og Haraldur. Málþing um Jules Verne Það var við hæfi aðAndrésar H. Val-bergs væri minnst á Landsmóti hagyrðinga sem fram fór sl. laug- ardag. Bjargey Arnórs- dóttir orti: Enn á miða Andrés minn er þér stíluð kveðja, að þú seiddir óðinn þinn okkur til að gleðja. Bjargey minnist einnig Sveinbjörns allsherj- argoða: Áður þekkti aldinn hal, Óðni skál var borin. Götur heim að Grafardal geyma bernskusporin. Sigurjón Valdimar Jónsson orti um Vatns- mýrina: Vatnsmýrin er voða ljót og völlurinn er mesti skaðinn væri nú ekki bragarbót að byggja þarna hús í staðinn. Bjargey var á öðru máli: Eiga þurfum Vatnsmýrina vísa ef veikist fólkið út á lands- byggðinni. Hallirnar sem að heimta að fá að rísa hafa nógan tíma í eilífðinni. Frá Landsmóti hagyrðinga pebl@mbl.is Borgarnes | Undirritaður hefur verið samningur um byggingu á nýrri kjötiðn- arstöð Borgarness kjötvara ehf. Það er BK-fasteignir ehf sem byggir og rekur nýtt iðnaðarhús, alls 1.900 fermetra stál- grindahús, sem er sérhannað fyrir kjötiðn- að. Sólfell ehf. byggir í alverktöku og á hús- ið að vera tilbúið með frysti- og kælibúnaði í byrjun maí á næsta ári. Húsið er teiknað af Nýju teiknistofunni ehf og arkitekt er Sigurður Einarsson sem teiknað hefur fleiri hús hér í Borgarnesi þ. á m. Hyrnu- torgið. Samið hefur verið um fjármögnun lána við Byggðastofnun og Sparisjóð Mýrasýslu um fjármögnun á byggingar- tíma. Húsið sem mun rísa að Vallarási 7-9, mun leiða til bættrar og breyttrar stöðu Borgarness kjötvara, en þarna verður hægt að ná hámarks hagkvæmni í fram- leiðslu, auk þess sem öll aðstaða fyrir starfsfólk verður mjög góð. Í Borgarnesi er um þessar mundir þensla í atvinnulífi og menn afar bjartsýnir á framtíðina. Reisa sér- hannað hús fyrir kjötiðnað Morgunblaðið/Guðrún Vala Samningar innsiglaðir með handabandi, Sigurður Guðmundsson hjá Sólfelli og Guðsteinn Einarsson f.h. BK. Norðfjörður | Unnið er að lengingu við- legukants á togarabryggjunni í höfninni á Norðfirði. Neðan við fiskiðjuver Síldar- vinnslunnar verður sett niður 96 metra langt stálþil og á 80 metra löngum kafla þess verður viðlega með tíu metra dýpi. Gáma- og tækjaleigan á Reyðarfirði sér um gröft, niðursetningu á stálþili, steypta kanta og polla og á verkinu að vera lokið 1. Dýpkunarhlutinn er í höndum Björgunar hf. og á honum að vera lokið 1. desember nk. Dýpka höfnina á Norðfirði ♦♦♦ Prófadeild - Öldungadeild Haust 2005 Grunnskólastig: (danska, enska, íslenska, stærðfræði) Grunnnám Samsvarar 8. og 9. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni. Fornám Samsvarar 10. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa náð tilskildum árangri í 10. bekk. Upprifjun og undirbúningur fyrir nám á framhaldsskólastigi. Kennsla fer fram í Mjódd og hefst 12. september. Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda. INNRITUN Í PRÓFADEILD fer fram 29. ágúst til 8. september kl. 9 - 12 í Mjódd, Þönglabakka 4 og í síma 567 7050. Netfang: nfr@namsflokkar.is - http://www.namsflokkar.is Svo lengi lærir sem lifir Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.