Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 11
FRÉTTIR
SÍLDARSÖLTUNARSTÖÐVUM
hefur farið fækkandi síðustu árin og
mikil breyting hefur orðið á frá því
að saltað var á haustin allt frá
Vopnafirði og suður um alveg vestur
á Snæfellsnes. Fram hefur komið að
síldarsöltun hefur verið hætt á
Djúpavogi og er þá aðeins ein sölt-
unarstöð eftir starfandi á landinu,
eða á Fáskrúðsfirði.
Að sögn Kristjáns Jóhannessonar,
sem lengi sá um síldarsölu fyrir Síld-
arútvegsnefnd og SÍF eftir að síld-
arsölumál færðust þangað, er aðeins
eftir ein stöð á Fáskrúðsfirði hjá
Loðnuvinnslunni hf. og er Iceland
Seafood (SÍF) með einkasölu á
þeirri síld, sem þar er söltuð.
„Trúlega verða þar saltaðar í
kringum 20 þúsund tunnur þannig
að sænska fyrirtækið ABBA, sem
keypt hefur saltsíld af Íslendingum í
ómunatíð, fær líklega sína síld þar
auk þess sem þeir verða að snúa sér
meira að heimamarkaði eða Noregi
og Danmörku. Líklegt er að tveir
eða þrír aðrir kaupendur, danskur
og finnskir, fái saltsíld,“ sagði Krist-
ján.
Þróunin hefur verið yfir í fryst-
inguna og hafa stóru stöðvarnar á
Norðfirði og Höfn í Hornafirði
tækjavætt sig fyrir hana enda er sú
vinnsla ekki eins frek á mannskap og
öll mun einfaldari í framkvæmd.
Nýja stöðin á Vopnafirði sem HB
Grandi er að reisa verður eingöngu í
frystingu.
Ingvar Ágústsson, fyrrum þróun-
arstjóri Síldarútvegsnefndar, hefur
annast innkaup á saltaðri síld fyrir
finnska framleiðendur um nokkurn
tíma og orðið að kaupa hana í Nor-
egi, þar sem síldarsöltun á Íslandi
hefur ekki getað annað eftirspurn.
Hann segir þetta nöturlega þróun
því helst vildi hann geta keypt síld
fyrir Finnland á Íslandi, enda sé
stigsmunur á gæðum.
Ein síldarsöltunarstöð eftir
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fiskvinnsla Síldin söltuð á Fá-
skrúðsfirði. Þar er nú eina starf-
andi söltunarstöðin á landinu.
Eftir Kristin Benediktsson
krben@internet.is
TROLLBÁTURINN Steinunn SF
fór í sinn fyrsta túr fyrir viku og
landar í Reykjavík í dag.
Báturinn hét áður Helga RE og
kemur í stað eldri Steinunnar
sem var smíðuð í Noregi 1975 og
hefur gengið undir ýmsum nöfn-
um hjá nokkrum útgerðum. Skin-
ney-Þinganes hf. á Höfn í Horna-
firði keypti nýja bátinn í sumar
og tók við honum 16. ágúst.
Gunnar Ásgeirsson, stjórn-
arformaður fyrirtækisins, segir
að Steinunn verði á trollveiðum
og reytingur hafi verið í fyrsta
túr.
Ljósmynd/Snorri Snorrason
Steinunn SF fór í sinn fyrsta túr fyrir viku og landar í Reykjavík í dag.
Steinunn SF landar í fyrsta sinn
ÚR VERINU
FORSTJÓRAR Fjármálaeftirlitsins
og Kauphallar Íslands, Jónas Fr.
Jónsson og Þórður Friðjónsson, telja
rétt að skoða þann möguleika að inn-
leiða reglu um að innherjar þurfi að
eiga bréf í sínum félögum í minnst sex
mánuði, líkt og gilt hefur í Bandaríkj-
unum um langt skeið. Þeir eru sam-
mála um að slík regla leysi ekki allt og
komi ekki í veg fyrir það meginmark-
mið leiðbeinandi reglna að innherjar
misnoti ekki aðstöðu sína.
Þórður Friðjónsson í Kauphöllinni
segir að reglurnar í Bandaríkjunum
séu nokkuð sérstakar og gildi sér vit-
anlega ekki í Evrópu. Víðast sé byggt
á þeirri reglu að útgefendur bréfa og
fjármálafyrirtæki setji sér sjálf leik-
reglurnar, að fengnu samþykki stofn-
ana eins og Fjármálaeftirlitsins hér á
landi. Þórður segir sum íslensk fjár-
málafyrirtæki hafa sett sér þá reglu
að innherjar verði að eiga hlutabréf í
minnst þrjá mánuði.
„Það er sjálfsagt að skoða þetta og
fara yfir rökin með og á móti. Ekki er
sjálfgefið að leið Bandaríkjamanna sé
betri ef mið er tekið af okkar um-
hverfi, þar sem margt er tekið upp frá
Evrópu. Sex mánaða reglan getur
verið skynsamleg en aðalatriðið er að
svona reglur komi í veg fyrir að inn-
herjar stundi viðskipti á grundvelli
upplýsinga sem almennir fjárfestar
hafa ekki aðgang að. Eignartíminn
skiptir ekki öllu máli, sex mánaða
regla kemur ekki endilega í veg fyrir
að menn geti átt viðskipti þegar ójafn-
vægi ríkir milli fjárfesta. Þó að menn
séu bundnir af því að halda bréfum í
sex mánuði þá er ekki gefið að við-
komandi innherji vilji losna við bréfin
fyrr en eftir lengri tíma en sex mán-
uði,“ segir Þórður.
Stuðningsúrræði
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, segir sex mánaða
eignartíma að lágmarki koma til skoð-
unar, auk sérstakra reglna um lokuð
tímabil í kringum mikilvæga atburði.
Leggja verði áherslu á að slík sjálf-
virk viðmið séu stuðningsúrræði við
meginsjónarmið um jafnræði fjár-
festa og góða viðskiptahætti, auk þess
sem huga verði að heildarsamhengi
regluverksins.
Jónas bendir á að í júlí sl. hafi tekið
gildi reglur, byggðar á tilskipun ESB
um markaðsmisnotkun, þar sem m.a.
sé kveðið á um framkvæmd viðskipta
innherja.
„Í tengslum við innleiðinguna hefur
Fjármálaeftirlitið sett reglur um
meðferð innherjaupplýsinga og við-
skipti innherja. Reglurnar innihalda
lágmarkskröfur sem ber að fylgja við
framkvæmd innherjaviðskipta og
meðferð innherjaupplýsinga. Í hand-
bók með reglunum er bent á að útgef-
endum verðbréfa sé unnt að afmarka
lokuð tímabil, ekki síst til að draga úr
orðsporsáhættu,“ segir Jónas.
Hann segir markmið reglna um
viðskipti innherja fyrst og fremst
vera að tryggja jafnræði fjárfesta og
trúverðugleika útgefenda verðbréfa
og fjármálamarkaðarins í heild sinni.
Með slíkum reglum séu settar marg-
víslegar skorður við viðskiptum inn-
herja, t.d. sé lögð sú skylda á innherja
að leita álits regluvarðar áður en við-
skipti eigi sér stað. Jafnframt beri að
tilkynna Fjármálaeftirlitinu um öll
innherjaviðskipti.
Tilmæli um þrjá mánuði
„Þessu til viðbótar gilda sérreglur
um viðskipti fjármálafyrirtækja fyrir
eigin reikning, um viðskipti stjórn-
enda og annarra aðila í sérstökum
tengslum við fyrirtækið. Þær miða að
því að styrkja svipuð sjónarmið í
sessi, það er jafnræði fjárfesta og trú-
verðugleika fjármálamarkaðar, og
koma í veg fyrir hættu á hagsmuna-
árekstrum. Þetta ber stjórnum fjár-
málafyrirtækja að tryggja, meðal
annars með setningu sérstakra
reglna,“ segir Jónas og bendir á að í
leiðbeinandi tilmælum Fjármálaeftir-
litsins vegna slíkra reglna sé talað um
að gæta þurfi að hagsmunaárekstr-
um, skrá sérstaklega viðskipti og lág-
markseignarhaldstími sé 3 mánuðir.
Forstjórar Fjármálaeftirlits og Kauphallar um reglur um innherjaviðskipti
Sex mánaða regla kemur
til greina en leysir ekki allt
Þórður FriðjónssonJónas Fr. Jónsson
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
MARTA Guðjónsdóttir hefur
ákveðið að gefa kost á sér í
prófkjöri sjálfstæðismanna í
Reykjavík
vegna
borgar-
stjórnar-
kosning-
anna í vor,
og sækist
hún eftir 6.
sætinu á
framboðs-
listanum.
Marta hefur lengst af
kennt við grunnskóla í
Reykjavík frá 1984, sinnti
auk þess ritstjórn og þátta-
gerð við útvarp en kennir nú
íslensku við Tjarnarskóla í
Reykjavík. Hún er í borg-
arstjórnarflokki Sjálfstæðis-
flokksins, hefur starfað á
kjörtímabilinu í umhverfis-
og heilbrigðisnefnd, hverfis-
ráði Kjalarness, velferðarráði
og er varamaður í mennta-
ráði. Hún er formaður Fé-
lags sjálfstæðismanna í Nes-
og Melahverfi, sat í stjórn
Heimdallar á árum áður og
hefur gegnt ýmsum öðrum
trúnaðarstörfum á vegum
Sjálfstæðisflokksins. Þá er
hún varaformaður Alfadeild-
ar Delta Kappa Gamma á Ís-
landi, alþjóðlegra samtaka
kvenna í fræðslu- og menn-
ingarstörfum, og situr í
skólanefnd Fjölbrautaskól-
ans við Ármúla.
Marta er talsmaður einka-
skóla og stóraukins foreldra-
valds á grunnskólastigi. ,,Ég
vil ekki að grunnskólabörn-
um í Reykjavík sé mismunað
af fræðsluyfirvöldum vegna
rekstrarforms þeirra skóla
sem þau sækja. Allar raun-
verulegar framfarir í skóla-
málum byggjast á fjölbreytni
og margvíslegum saman-
burði. Án slíks samanburðar
eru framfarir óhugsandi og
framfarahugtakið merkingar-
laust,“ segir Marta. Hún
leggur einnig áherslu á stór-
aukna samvinnu og samhæf-
ingu grunnskólans, tónlistar-
skóla og þeirra félaga sem
sinna íþróttaiðkun barna, og
telur að Reykjavíkurborg
eigi að varða leiðina að fjöl-
breyttum, gróskumiklum og
stórbættum grunnskóla á Ís-
landi.
Marta Guð-
jónsdóttir
sækist eftir
6. sæti
VEIÐIN í Þverá – Kjarrá var í há-
deginu í gær átta löxum frá 4.000,
þannig að ljóst má vera að veiði í ís-
lenskri stangveiðiá fer nú í fyrsta
skipti yfir 4.000 laxa múrinn. Veiði er
að ljúka í Kjarrá en veitt verður í
Þverá fram í miðjan mánuðinn. Ríf-
andi gangur hefur verið í veiðinni síð-
ustu daga. Holl sem lauk veiði í Þverá
um mánaðarmótin náði 70 löxum og
var hluti þeirra bjartur göngulax. Á
sama tíma veiddust 45 í Kjarrá. Eldra
veiðimetið, í Laxá í Kjós og Bugðu ár-
ið 1988, var 3.811 laxar, ekki 3.850
eins og áður hafði verið greint frá.
Annað eftirtektarvert veiðimet
hefur verið slegið í Selá í Vopnafirði;
þar eystra var búist við 2.000. lax-
inum á land í gær.
Nýtt met í Norðurá
Veiði er lokið í Norðurá og veidd-
ust 3.142 laxar í sumar. Er það met-
veiði í ánni. Eldra metið var sett sum-
arið 2002 þegar veiddust 2.217 laxar.
Samkvæmt vefmiðlinum votnogveidi-
.is var gamla metið því bætt um tæp
42% en í fyrra veiddust tæplega 1.400
laxar í ánni, í mikilli þurrkatíð. Veiði-
aukningin á milli ára er því um 225%.
Heldur hefur dregið úr veiðinni
víða á Vesturlandi síðustu daga, og
ekki víst að allar ár nái þeim hæðum
sem þeir bjartsýnustu spáðu fyrr í
sumar. Góð veiði er þó víðast hvar og
meiri en í meðalári. Að sögn Ástþórs
Jóhannssonar hafa vel yfir 500 laxar
veiðst í Straumfjarðará þegar enn er
hálfur mánuður eftir af veiðitím-
anum. „Það er því tæplega von að
metið frá 1978, 636 laxar, verði slegið,
en það er aldrei að vita, ef heldur
áfram sem horfir. Bestu hollin sem
hafa verið hér við veiðar undanfarna
daga hafa verið að fá á þriðja tug laxa.
Stærstu laxar sumarsins hafa verið
um 15 pundin, og enn stærri fiskar
hafa sést í hyljunum.“ 475 laxar
veiddust í Straumu í fyrra.
Veiðin í Flekkudalsá á Fellsströnd
hefur verið upp og ofan þótt mikið
sjáist af laxi í ánni. Holl sem lauk
veiðum um mánaðamótin fékk 14
laxa, víða um ána og voru þar á meðal
einhverjir silfurbjartir. Hollið á eftir
landaði hinsvegar sex en missti
marga, enda voru tökurnar nettar og
aðstæður erfiðar; lítið vatn og skjan-
nabirta. Flekkan hefur engu að síður
gefið tæplega 250 laxa en 227 veidd-
ust allt veiðitímabilið í fyrra.
Góð veiði er enn í Eystri-Rangá og
verður fróðlegt að sjá hversu margir
laxar hafa veiðst í ánni þegar upp
verður staðið, en enn eru tæplega
fjórar vikur eftir af veiðitímanum.
Vikan 29.ágúst til 4. september gaf
317 laxa sem er met og þreföld með-
alveiði fyrir þessa viku. Um 3.700 lax-
ar hafa þegar veiðst í ánni og má því
gera ráð fyrir að veiðin verði vel á
fimmta þúsund laxa.
STANGVEIÐI
Yfir 4.000 laxar úr
Þverá – Kjarrá
Morgunblaðið/Einar Falur
Franskur veiðimaður, Marc-Adrien Marcellier, smellir kossi á 12 punda
hrygnu áður en hann sleppir henni aftur út í strauminn í Selá í Vopnafirði.
Veiði í Selá náði 2.000 löxum í gær.
veidar@mbl.is