Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 15

Morgunblaðið - 06.09.2005, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 15 ERLENT Jakarta. AP, AFP. | Farþegaþota með 116 farþegum og fimm manna áhöfn hrapaði í gær niður í þéttbýlt út- hverfi í borginni Medan í Indónesíu skömmu eftir flugtak. Lifðu 15 eða jafnvel 16 farþeganna slysið af en síðustu fréttir bentu til að 42 hefðu farist á jörðu niðri. Samkvæmt því fórust 147 menn í slysinu en óttast var að tala látinna ætti eftir að hækka. Antara, hin opinbera fréttastofa Indónesíu, sagði að um hefði verið að ræða Boeing 737-200-þotu frá indó- nesíska flugfélaginu Mandala Air- lines og sögðu yfirvöld í fyrstu að enginn hefði komist lífs af. Síðar kom í ljós að 13 farþegar hefðu komist lífs af. „Það varð mikil sprenging fram- arlega í vélinni, eldur gaus upp og flugvélin hrapaði,“ sagði Rohadi Sitepu, einn þeirra sem komust af, og annar, Freddy Ismail, sagði að vandræðin hefðu byrjað strax eftir flugtak. „Skyndilega varð gífurlegur há- vaði í hreyflunum, flugvélin skókst til og hrapaði,“ sagði Freddy Ismail. Indónesískar sjónvarpsstöðvar sýndu í gær myndir af slökkviliðs- mönnum berjast við elda í flakinu, sem dreifðist yfir allstórt svæði á þjóðvegi skammt frá Polonia-flug- vellinum í Medan. Á myndunum mátti einnig sjá sundurtætt hús, bíla og reiðhjól og lögreglumenn bera burt brunnin og illa farin lík. Talsmaður flugfélagsins, sem er að hluta í eigu indónesíska hersins, sagði í gær að of snemmt væri að geta sér til um ástæðu slyssins. Flugvélin var 24 ára en fór í mikla skoðun í júní síðastliðnum. Sagði hann að líklegt væri að auk áhafnar og farþega hefðu margir farist á jörðu niðri. Embættismenn meðal farþega Nokkrir háttsettir embættismenn voru meðal farþeganna, þeirra á meðal Rizal Nurdin, ríkisstjóri á Norður-Súmötru, og hugsanlega settur ríkisstjóri í Aceh-héraði þar sem manntjónið var mest í flóðbylgj- unni í desember síðastliðnum. Mandala Airlines var stofnað 1969 og er eitt af nokkrum lággjaldaflug- félögum í Indónesíu. Hefur það verið með 15 vélar, aðallega Boeing 737- 200 frá áttunda áratugnum. Flug- félagið hefur átt í fjárhagserfiðleik- um og orðið að fækka ferðum og lækka verð vegna mikillar sam- keppni. Flugslysið í gær er eitt hið mesta í Indónesíu á síðari árum. Í nóvember síðastliðnum hrapaði MD-82-far- þegavél í eigu lággjaldaflugfélagsins Lion Air í borginni Solo á Jövu og fórust þá 26 manns. Mesta flugslys í sögu landsins varð í september 1997 en þá fórst Airbus-þota í fjöllunum við Medan og með henni 232 menn. Mikil flugumferð er um Polonia- flugvöllinn í Medan og var hann mikil miðstöð hjálparstarfs og upp- byggingar eftir hamfarirnar í des- ember. Er völlurinn næstum í borg- inni miðri. Flugslysið í gær er það sjötta á skömmum tíma en þau voru fimm í ágúst, í Grikklandi, Venesúela, Perú og Túnis. Í þeim létust um 334 menn. Auk þess fór Airbus-þota frá Air France út af flugbraut í Toronto í Kanada en þá lést enginn. Kom niður í þéttbýlu úthverfi Á annað hundrað manns fórst er indónesísk þota hrapaði eftir flugtak Reuters Björgunarmenn og íbúar í hverfinu við brunnið flak farþegaþotunnar. 15 eða 16 farþegar lifðu slysið af en tala þeirra, sem létust á jörðu niðri, í fjölmennu hverfi rétt við flugvöllinn, hækkaði stöðugt eftir því sem á daginn leið. Fimmta stórslysið í farþegaflugi á skömmum tíma – nærri 500 manns hafa farist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.