Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frambjóðendur íprófkjöri sjálf-stæðismanna í Reykjavík, sem fram fer 4. til 5. nóvember, vegna komandi borgarstjórnar- kosninga, hafa verið að gefa sig fram að undan- förnu. Tólf hafa þegar gef- ið kost á sér í sex efstu sætin. Fleiri eiga eflaust eftir að stíga fram í dags- ljósið á næstu dögum og vikum. Eins og kunnugt er hafa tveir gefið kost á sér í fyrsta sætið, þeir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson og Gísli Marteinn Baldursson. Ein hefur gefið kost á sér í annað sætið, Hanna Birna Kristjánsdóttir, og einn hefur gefið kost á sér í þriðja sætið, Kjartan Magnússon. Tvær hafa gefið kost á sér í fjórða sætið, þær Jórunn Frímannsdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir. Þrír hafa gefið kost á sér í fimmta sæt- ið, Ragnar Sær Ragnarsson, Kristján Guðmundsson og Steinn Kárason. Sá síðastnefndi gefur reyndar kost á sér í fimmta til sjötta sætið. Marta Guðjónsdóttir og Loftur Már Sigurðsson gefa einnig kost á sér í sjötta sætið. Júlíus Vífill Ingvarsson hefur lýst því yfir að hann sækist eftir forystusæti á listanum. Hann hef- ur þó enn sem komið er ekki til- greint neitt ákveðið sæti, en sagð- ist í samtali við blaðamann í gær myndu tilkynna það fljótlega. Þá hefur Gunnar Dofri Ólafsson ákveðið að gefa kost á sér í tíunda til tólfta sæti listans. Guðlaugur Þór Þórðarson borg- arfulltrúi og þingmaður hefur enn ekki gefið upp hvað hann hyggst fyrir. Annar borgarfulltrúi, Guð- rún Ebba Ólafsdóttir, staðfesti hins vegar í gær að hún gæfi ekki kost á sér áfram. Hún kvaðst hafa tekið þá ákvörðun í sumar að vel yfirlögðu ráði. Ástæðurnar væru persónulegar. Tillaga stjórnar Varðar, full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, um að prófkjörið fari fram í byrjun nóvember var sam- þykkt á fulltrúaráðsfundi í gær. Yfirkjörstjórn Varðar mun hittast í dag og ákveða m.a. framboðs- frest. Prófkjörið verður opið öllum flokksbundnum sjálfstæðismönn- um í Reykjavík. Breytingar á forystusveit Miklar breytingar hafa átt sér stað í forystusveit sjálfstæðis- manna í borgarstjórn eftir að Dav- íð Oddsson sté úr stóli borgar- stjóra sumarið 1991, en þá var hann orðinn forsætisráðherra. Markús Örn Antonsson, þáver- andi útvarpsstjóri, var í borgar- stjórn kjörinn eftirmaður Davíðs og gegndi embættinu fram undir lok kjörtímabilsins. Sjálfstæðismenn efndu til próf- kjörs í aðdraganda borgarstjórn- arkosninganna árið 1994. Markús Örn borgarstjóri hlaut flest at- kvæði í fyrsta sætið. Næstir á eftir voru Árni Sigfússon, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Inga Jóna Þórð- ardóttir. Þegar nær dró borgarstjórnar- kosningunum ákvað Markús Örn hins vegar að draga sig í hlé og gaf þá skýringu að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með fylgi flokks- ins í skoðanakönnunum. Árni Sig- fússon tók við borgarstjóraemb- ættinu og leiddi lista sjálfstæðismanna í kosningunum þá um vorið. Árni átti þó ekki eftir að verða langlífur í borgarstjóra- stólnum. R-listinn hlaut meiri- hluta atkvæða í borgarstjórnar- kosningunum og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir settist í borgarstjóra- stólinn. Árni varð því oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn á kjörtímabilinu. Sjálfstæðismenn efndu aftur til prófkjörs í aðdraganda borgar- stjórnarkosninganna 1998. Árni Sigfússon varð í fyrsta sæti, Vil- hjálmur í öðru og Inga Jóna í því þriðja. Árna tókst heldur ekki að leiða sjálfstæðismenn til sigurs í þess- um kosningum og ákvað í kjölfarið að draga sig í hlé. Hann hætti í borgarstjórn og gerði tillögu um Ingu Jónu sem sinn eftirmann. Hún gegndi oddvitahlutverkinu út kjörtímabilið. Sjálfstæðismenn fóru aðra leið við val á frambjóðendum fyrir kosningarnar 2002. Í fyrstu hafði verið rætt um forystuprófkjör en fallið var frá þeirri hugmynd og frambjóðendum stillt upp á lista án nokkurs prófkjörs. Áður hafði Björn Bjarnason, þá menntamála- ráðherra, lýst því yfir að hann hygðist sækjast eftir fyrsta sætinu og Inga Jóna Þórðardóttir lýst yfir stuðningi við hann. Niðurstaðan varð því sú að Björn skipaði fyrsta sæti listans. Hann var jafnframt borgarstjóraefni sjálfstæðis- manna. Vilhjálmur skipaði annað sætið en Inga Jóna áttunda sætið. Sjálfstæðismenn lutu enn í lægra haldi fyrir R-listanum og varð Björn oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn fyrsta árið, eða þar til hann varð dómsmála- ráðherra stuttu síðar. Við þær breytingar varð Vilhjálmur odd- viti sjálfstæðismanna í borgar- stjórn. Hefur hann gegnt því hlut- verki síðan. Hver verður forystu- maður sjálfstæðismanna í kom- andi borgarstjórnarkosningum kemur í ljós eftir tvo mánuði. Fréttaskýring | Sjálfstæðismenn í Reykja- vík undirbúa prófkjör í nóvember Frambjóðendur stíga fram Prófkjörið verður opið öllum flokks- bundnum sjálfstæðismönnum í borginni Sjálfstæðismenn undirbúa prófkjör. Framboðsfrestur í próf- kjörinu ákveðinn í dag  Tólf manns hafa þegar gefið kost á sér í sex efstu sætin á framboðslista sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarn- ar næsta vor. Þrír bættust í hóp- inn í gær, þau Kristján Guð- mundsson, Marta Guðjónsdóttir og Loftur Már Sigurðsson. Auk þess hefur einn, Gunnar Dofri Ólafsson, gefið kost á sér í 10.–12 sætið. Fleiri frambjóðendur munu stíga fram í dagsljósið á næstu vikum, en framboðs- frestur verður ákveðinn í dag. Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Þjóðleikhúsið – leikhúsið þitt! RAMT-leikhúsið (Leikhús æskunnar) í Moskvu heimsækir Þjóðleikhúsið! Miðasölusími: 551 1200 Miðasala á netinu: www.leikhusid.is Að eilífu eftir Árna Ibsen 10. og 11. september á Stóra sviðinu Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekov 8. og 9. september á Stóra sviðinu FORSVARSMENN Olíufélagsins tóku í gær ákvörðun um að bíða að- eins með frekari hækkun á elds- neytisverði þrátt fyrir hækkunar- þörf þar sem enn sé vonast til, að heimsmarkaðsverð á bensíni og dísilolíu muni lækka. Frekari ákvörðun verður tekin á næstu dögum þegar mál skýrast. Fram kemur á heimasíðu Olíufé- lagsins, að heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkaði mjög mikið í sl. viku. Þannig hafi tonnið af bensíni hækkað á Rotterdam-markaði úr 663 dölum hinn 26. ágúst í 862 dali hinn 1. september eða um 30%. Olíufélagið ákvað í sl. viku að hækka verð á bensínlítra um 4 krónur en segir að hækkunarþörfin hafi verið 8,50 krónur. Þegar sú ákvörðun var tekin var heims- markaðsverðið 763 dalir. Olíufélag- ið segir að ákvörðun um aðeins fjögurra króna hækkun hafi verið tekin í þeirri von að verð myndi lækka fljótlega aftur. Það hafi nú aðeins gengið að hluta til baka og raunar hafi það hækkað enn frekar eftir síðustu ákvörðun. Þess vegna sé aftur þörf á frekari hækkun, sem er núna 7 krónur á bensínlítra og 1,30 krónur á lítra af gasolíuteg- undum. Olíufélagið bíður með frekari hækkanir TÓMAS Hrafn Jóhannesson og Jakob Fannar Magnús- son voru við veiðar á Reykjavíkurhöfn þegar ljósmynd- ari Morgunblaðsins hitti þá að máli. Þeir höfðu veitt einn kola og voru bara nokkuð ánægðir með feng sinn. Félagsskapurinn og spennan eru líka aðalatriðið þegar maður er að veiða, en það spillir að vísu ekki fyrir ef það bítur eitthvað á öngulinn. Svo er bara að reyna aftur og þjálfa veiðitæknina. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tómas og Jakob fengu einn kola

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.