Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 06.09.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 9 FRÉTTIR Silkitré og silkiblóm Laugavegi 63 (Vitastígsmegin), sími 551 2040. Haustblómin komin Erikur • Cyprustré • Kaktusar Boxbum kúlur • Hengiplöntur il it il i l Bankastræti 9, sími 511 1135 www.paulshark.is - paulshark.it Útsölulok næstu daga Haust 2005 Laugavegi 4, sími 551 4473 • www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is SigurstjarnanLomonosov postulín, Rússneska keisarasettið. Handmálað og 22 karata gylling. Opið virka kl. 11-18, lau. kl. 11-15 öðruvísi Full búð af vörum Frábærar gjafavörur Alltaf besta verðið Þriðjudagur 6.9. Dahl m/samósum, tveimur salötum & hýðishrísgrjónum. Miðvikudagur 7.9. Hnetusteik m/Waldorfsalati, tveimur salötum & hýðishrísgrjónum. Fimmtudagur 8.9. Burritos & guacomole m/tveimur salötum & hýðishrísgrjónum. Föstudagur 9.9. Marókóskur pottur & buff m/tveimur salötum & hýðishrísgrjónum. Helgin 10.-11.9. Ítölsk helgi ummmmmmm Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, lau. kl. 10-16 Vestin á kr. 2.900 komin Nýjar haustvörur Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga 11-15 Hlíðasmára 11 • Kópavogi sími 517 6460 • fax 517 6565 www.belladonna.is S M Á R A L I N D • S í m i 5 1 7 7 0 0 7 Ný Sending! Glæsilegt úrval af náttfötum og stökum náttbuxum Vetrarbuxurnar komnar Frábær buxnasnið Grófar peysur BJÖRN Ingi Hrafnsson, formaður fjölskyldunefndar ríkisstjórnarinn- ar, telur að með greiðslum til for- eldra barna 9 til 18 mánaða megi leysa þann vanda sem skapast hjá mörgum foreldrum eftir að fæðing- arorlofi lýkur og fram til þess tíma að börnin komast á leikskóla. Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, segir vegna þessa að ef fjölskyldunefnd ríkis- stjórnarinnar vilji ganga til opinnar viðræðu við sveitarfélögin muni ekki standa á Reykjavíkurborg að leggja sitt til málanna. Björn Ingi segir í grein á heima- síðu sinni að frá því fæðingarorlofi lýkur samkvæmt lögum við níu mán- aða aldur barns og þar til það kemst á leikskóla 18–24 mánaða sé stór eyða í þeirri samfellu sem annars sé komin á í þessum efnum. Þessi tími sé tími óvissu og erfiðleika meðal annars vegna skorts á dagforeldrum. Foreldrar neyðist „oft til að leita á náðir ættingja og vina til að aðstoða með börnin og reyna að bjarga mál- um frá degi til dags, eða bregða á það ráð að lengja fæð- ingarorlofið með því að taka það í hálfu starfi eða að hluta til og verða þar með fyrir um- talsverðum tekju- missi, sem fæstir foreldrar sem reka heimili, mega við“. Hann segist telja að með greiðslum til foreldra barna á þessum aldri megi leysa þennan vanda, en um leið verði tryggt að börn komist inn á leikskóla við 18 mánaða aldur. Greiðslan fylgi hverju barni og foreldrar hafi tals- vert mikið val um það hvernig henni sé varið, hvort þeir séu lengur heima hjá börnunum, hvort þeir fái ætt- ingja eða einhvern nákominn til að gæta barnanna eða nýti féð til að greiða dagforeldrum, en nú greiði Reykjavíkurborg niður þjónustu dagforeldra um 11 þúsund kr. á mán- uði. Björn Ingi segir einnig að fjöl- skyldunefndin hafi ákveðið að kanna með form- legum hætti hvernig foreldrar brúi þetta bil eins og nú sé málum háttað og í fram- haldinu geti verið ástæða til þess að ræða mögulegar leiðir til útbóta. Ástæða til að fagna Stefán Jón Hafstein segir í at- hugasemd sem hann hefur sent fjöl- miðlum af þessu tilefni að ástæða sé til að fagna því ef fjölskyldunefnd ríkisstjórnarinnar vilji kanna sér- staklega hagi foreldra barna á þess- um aldri. Að hans mati komi einkum til greina í þessum efnum lenging fæðingarorlofs, að ríki og öll sveit- arfélög sameinist um að á næstu ár- um verði í boði gjaldfrjáls leikskóli sem fyrsta menntastigið frá 18 mán- aða aldri þar sem tryggð verði fram- lög til málaflokksins og að bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla verði brúað með blöndu úrræða að vali for- eldra þar sem stuðningur ríkis og sveitarfélaga birtist samtímis með fjárhagslegum úrræðum og fagleg- um stuðningi við þá sem þjónustu veita. Því hljóti skoðun dagforeldra- kerfisins að vera hluti af myndinni. „Ef fjölskyldunefnd ríkisstjórnar- innar vill ganga til opinnar viðræðu við sveitarfélögin mun ekki standa á Reykjavíkurborg að leggja sitt til málanna. Borgin hefur sem kunnugt er sett stefnu á gjaldfrjálsan leik- skóla í áföngum og með fullmönnun leikskóla í haust verður hægt að bjóða öllum 18 mánaða börnum og eldri leikskólavist,“ segir síðan. Björn Ingi Hrafnsson Stefán Jón Hafstein Telur greiðslur til foreldra 9–18 mánaða barna koma til greina FYRIRHUGUÐ sala á Lánasjóði landbúnaðarins og umræða um hugs- anlegar breytingar á Íbúðalánasjóði vekja upp spurningar um hvort hugs- anlegt sé að gagnger endurskoðun fari fram á fleiri opinberum sjóðum. Þetta er mat Viðskiptaráðs Íslands, sem seg- ir að fjármögnun nýsköpunar sé afar þýðingarmikil og spyr hvort einkarek- in fjármálafyrirtæki séu ekki vel í stakk búin til að sinna þeim verkefnum sem Nýsköpunarsjóði er ætlað að sinna. Nýsköpunarstofnun vantar fjár- muni til reksturs og hefur ekki getað lagt fram nýtt fjármagn til nýsköpunar síðustu misserin. Viðskiptaráð bendir á að á sama tíma og íslenskt fjármála- kerfi hafi margfaldast að stærð hafi þessi ríkisstofnun veikst og afskriftir lána og hlutafjáreignar fari vaxandi. Ekki samkeppnisfær Markmið Nýsköpunarsjóðs er að vera „áhættufjárfestir sem tekur virkan þátt í þróun og vexti atvinnu- lífsins með því að fjárfesta í vænleg- um nýsköpunar- og sprotafyrirtækj- um.“ Viðskiptaráð áréttar í fréttatilkynningu mikilvægi þess að lagt sé fjármagn í nýsköpun en hins vegar efast ráðið um að núverandi leið henti best til árangurs. Færa megi rök fyrir því að ríkisreknir sjóð- ir séu réttlætanlegir ef markaður er í viðjum ríkisafskipta. Hins vegar sýni þróun síðustu ára að þegar frjálsræði hafi verið innleitt á fjármagnsmark- aði sé ríkisrekstur einfaldlega ósam- keppnisfær við einkaframtakið. „Nýsköpunarsjóður var á sínum tíma eins konar systursjóður Fjár- festingabanka atvinnulífsins (FBA). Af eigin fé gömlu sjóðanna var ríflega helmingur settur í FBA en afgangur rann til Nýsköpunarsjóðs. Um þessar mundir hefur Nýsköpunarsjóður sannarlega mátt muna fífil sinn feg- urri og eiginfjárstaða hans er lægri en fyrir fimm árum síðan. Á sama tíma er FBA nánast helmingur af Ís- landsbanka sem í dag er tæplega 200 milljarða virði og getur lánað við- skiptavinum sínum til nánast allra verka,“ segir í tilkynningu Viðskipta- ráðs. Viðskiptaráð telur tímabært að endurskoða stöðu Nýsköpunarsjóðs Verður Nýsköpunar- sjóður einkavæddur? Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.