Morgunblaðið - 23.09.2005, Page 9

Morgunblaðið - 23.09.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 B 9 bílar BÍLAFRAMLEIÐENDUR verja millj- örðum króna í þróun nýrra sex, sjö eða jafnvel átta gíra skiptinga til þess að ná forskoti á keppinautana. Mikill þróunarkostnaður á þessu sviði er réttlættur með samkeppnissjónarmið- um á hörðum bílamarkaði en ekki síður þörf fyrir aukna sparneytni bílvéla. Unnið að þróun átta þrepa sjálfskiptingar hjá Lexus Mercedes-Benz undirbýr nú að bjóða sjö þrepa sjálfskiptingar í flestar gerðir og valbúnaður í nýjum VW Jetta, sem kemur í stað Bora í Evrópu, er sex þrepa sjálfskipting. Ford mun einnig bjóða sex þrepa sjálfskiptingu í Explorer-jeppanum um leið og nýr og breyttur bíll af þeirri gerð verður kynntur í haust í Bandaríkj- unum. Lexus-armurinn innan Toyota-sam- steypunnar ætlar að gera enn betur. Þar á bæ er unnið að þróun átta þrepa sjálf- skiptingar, að því er fregnir herma innan bílaiðnaðarins. Talsmaður fyrirtækisins vill hins vegar ekki staðfesta þetta. General Motors vill ekki verða eftirbát- ur annarra í nýja „gírastríðinu“. Þess vegna tók GM upp samstarf við Ford um þróun nýrrar sex þrepa sjálfskiptingar sem verður kynnt í bílum GM á næsta ári. Frá og með árinu 2010 hyggst GM framleiða þrjár milljónir sex þrepa sjálf- skiptinga á ári, en strax árið 2008 verður framleiðslan komin upp í eina milljón sjálfskiptinga. Bætt eldsneytisnýting Með fleiri gíra til ráðstöfunar er svig- rúm fyrir bílaframleiðendur að bæta elds- neytisnýtingu bílanna og um leið gefst tæki- færi til að leggja áherslu á sportlegri eiginleika í markaðssetningunni. Í sex þrepa sjálfskiptingum gefur lægsta þrepið meira afl til hjólanna í upptaki en hæstu gírarnir draga úr snúningsálagi á vélina þegar ekið er á þjóðvegahraða og um leið sparast elds- neyti. Craig Renneker, aðalverkfræðingur Ford á sviði sjálfskiptinga, líkir þessari þró- un við það að fara af þriggja gíra hjóli yfir á tíu gíra hjól. Í lægsta gír er hægt að hjóla upp mikinn bratta en í tíunda gír er hægt að ná upp mun meiri hraða en í þriðja gír. Eldsneytissparnaður sem fylgir fleiri gírum er misjafn eftir bílum, en almennt má reikna með 3–7% minni eldsneytis- notkun ef fjögurra þrepa sjálfskiptingu er skipt út fyrir sex þrepa. Bíll sem eyðir 8,4 lítrum á hundraðið fer því niður í 7,81-8,15 lítra á hundraðið. Miðað við 24.000 km akstur á ári getur eldsneyt- issparnaðurinn verið allt að 190 lítrar á ári, eða nálægt 22.800 krónur á ári miðað við að verð á einum bensínlítra sé 120 krónur. Framleiðendur standa frammi fyrir milljarða fjárfestingum vegna þróunar og framleiðslu á nýjum sjálfskiptingum. GM og Ford hafa fjárfest sameiginlega 700 milljónir dollara í verkefni af þessu tagi Talið er að samanlögð framleiðsla á bílum með fimm, sex eða sjö þrepa sjálfskipt- ingum í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan og Suður-Kóreu verði árið 2010 komin upp í 10,8 milljónir en verða á þessu ári 5,7 milljónir. Búist er við að hlutdeild sjö þrepa sjálfskiptinga í Bandaríkjunum fari úr 4% af öllum framleiddum bílum á þessu ári í 40% árið 2010. Framleiðendur greinir þó á um ágæti þess að fjölga þrepum í sjálfskiptingum. Talsmaður Mercedes-Benz, sem er að út- búa nokkra af lúxusbílum merkisins með sjö þrepa sjálfskiptingum, segir að sjö þrepa sjálfskiptingar dragi úr eldsneyt- iseyðslu og auki hröðun bílanna. Jafn- framt verði bílarnir hljóðlátari því með fleiri gírum getur vélin unnið á lægri snúningi í þjóðvegaakstri. Talsmaður GM segir hins vegar að enginn hagur sé í því að hafa fleiri en sex þrep í sjálfskiptingum með tilliti til eldsneytissparnaðar og ein- göngu sé verið að fjölga þeim umfram það í markaðsskyni. Allt gert til þess að draga úr eldsneytiseyðslu Gírastríð í uppsiglingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.