Mánudagsblaðið - 21.12.1981, Qupperneq 7
Mánudagur 21. des. 1981 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 7
Þegar Natalie Wood drukknaði
• Hjálp. hjálp”,
heyrðist hrópað
utan úr
myrkrinu.
„Við erum að
koma". var
svarað á móti
Sviplegt fráfall hinnar fögru
og vinsælu kvikmyndaleikkonu
Natalie Wood fyrir skömmu
hefur vakið ýmsar spurningar,
svo sem þá hvers vegna Natalie,
sem var ekki vel synd, skyldi
hafa hætt sér alein út í gúmbát
fyrir ströndum Santa Catalina
eyjarinnar sunnan við Los
Angeles um miðja nótt?
Einnig hafa menn velt því fyrir
sér hvað hafi átt sér stað seinustu
stundirnar, sem leikkonan lifði, og
hvaða ágreiningsefni hafi orsakað
háarifrildi milli Roberts Wagners,
eiginmanns hennar og Christoph-
ers Walken, samleikara Natalie í
myndinni sem þau unnu að þegar
hún fórst.
Eftir þvi sem næst verður komist
sigldi skemmtisnekkja Wagner
hjónanna Splendour til Isthmus
Cove legunnar við norðvestur-
strönd eyjarinnar Santa Catalina
um hádegisbilið þann 28. nóvember
sl. og lagðist þar við festar.
Fðru í land
Síðla sama dags komu Natalie og
Robert í land í léttbátnum ásamt
þeim Christopher Walken gesti
sínum og Dennis Davern skipstjóra
snekkjunnar. Þau lögðu leið sína til
eina veitingahúss staðarins, Doug’s
Harbor Reef, sátu tvo klukkutíma á
barnum en pöntuðu síðan kvöld-
verð. Aðrir getir staðarins könnuð-
6 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 21. des. 1981
Að ofan t.v. Sviðsmynd úr hinni ófullgerðu
kvikmynd „Brainstorm," sem Natalie og
Walken voru að leika í. Til hægri: Þarna sjást
þau Christopher Walken og Natalie Wood.
Myndin er tekin milli atriða við töku
myndarinnar. Neðri mynd t.v.: „Þau voru
greinilega mjög ástfangin. Ég hef aldrei séð
jafn innilegt samband", sagði Ijósmyndarinn
Steve Shapiro, sem tók flestallar myndirnar
hér á síðunni.
Á siglingu á fullri ferð.
Hin glæsilega snekkja, Splendour, þar sem
þau Natalie og Robert undu sér vel og gátu
hvílst frá erfiðu lífi í sviðsljósinu.
Hvað olli hinu hörmulega slysi?
ust við hin þekktu andlit og keppt-
ust við að senda kampavín á borð
leikaranna og fá þá til að skála við
sig.
Veitingamaðurinn á staðnum,
Don Whiting, kveðst hafa orðið
vitni að „snörpum orðaskiptum"
við borðið þegar líða tók á, en um
hálfellefuleytið greiddu fjórmenn-
ingarnir reikninginn sinn, sem var
þá 65 dollarar, bættu við 34 dollur-
um í þjórfé og yflrgáfu staðinn. Þau
voru ekki drukkin, segir Whiting, en
það mikið „í kippnum" að hann sá
ástæðu til að biðja hafnarvörðinn að
gefa því sérstakar gætur að þau
kæmust heilu og höldnu um borð í
léttbátinn af hálli bryggjunni.
Þeir þegja
Ekki er fullljóst hvað gerðist næst.
Þau Wood, Wagner og Walken
munu hafa fengið sér aftur í glas í
káetu snekkjunnar, en svo fóru karl-
mennirnir að rífast. Ágreinings-
efnið vefst fyrir mönnum, og þeir
einu tveir, sem vita, vilja ekki gefa
það upp. Sumir þykjast vita, að rifist
hafi verið um viðskiptamál, aðrir
segja um athygli þá, sem hópurinn
vakti á sér á veitingahúsinu fyrr um
kvöldið, en margir telja ekki
ósennilegt að Natalie hafi verið
þrætuepli herranna.
Hún mun hafa flúið káetuna, en
hvers vegna hélt hún ekki til einka-
káetu sinnar? Hvers vegna sté hún
um borð í léttbátinn, illa synd og
auk þess vatnshrædd. Hún hafði oft
látið í ljós ótta á hafinu og hafði
kallað það „þetta djúpa dökka haf‘,
með ótta í röddinni.
rödd hrópa um nóttina „hjálp, vill
einhver hjálpa mér, hjálp“. Fólkið
segist hafa heyrt konuna hrópa í 25
mínútur, en þegar það heyrði raddir
frá þriðja bátnum svara og segja:
„við erum að koma“, lagðist það
aftur til svefns. Fólkið á þriðja
skemmtibátnum þarna í læginu
harðneitar á hinn bóginn að hafa
heyrt nokkurn skapaðan hlut, og
kannast ekki við nein hróp né köll.
Lengi skotin
Natalie Wood hét annars réttu
nafni Natasha Gurdin og var af
rússnesku bergi brotin, afi hennar
og amma voru rússneskir innflytj-
endur til San Fransisco. Hún var
þegar komin með 500 dollara
vikulaun í kvikmyndaiðnaðinum
aðeins átta ára gömul, og sá fyrst
Róbert Wagner, sem hún kallaði
alltaf „R.J.,“ íeinhverju Hollywood
stúdíóanna þegar hún var aðeins tíu
ára gömul. Hún var skotin í honum
árum saman, segir í traustum
heimildum, en á unglingaskeið-
inu sást hún opinberlega með Elvis
Presley, Warren Beatty og fleirum.
En Wagner átti hug hennar og
hjarta, og árið 1957 voru þau gefin
saman í hjónaband. Þá var hún 19
ára og hafði þegar leikið í 25
kvikmyndum.
Giftust á ný
Þau skildu fjórum árum síðar,
giftust bæði sitt í hvoru lagi aftur, en
eins og í ævintýrasögu lágu leiðir
Spurning,
sem menn
velta fyrir sér:
Hvers vegna
flúði hún
í léttbátnum,
illa synd
og vatns-
hrædd, um
miðja nött í
svartamyrkri?
Slysfarir
Dómarinn kvað upp úrskurð sinn
um „dauða af slysförum“, og kvað
líkur benda til að leikkonunni hafi
orðið fótaskortur þegar hún reyndi
að komast um borð í léttbátinn
„dálítið undir áhrifum“. Hugsan-
lega hafi hún rekið höfuðið utan i
borðstokkinn í fallinu og misst með-
vitund.
Síðan komu ný vitni fram á
sjónarsviðið. Fólk á annarri
skemmtisnekkju, sem lá við festar í
grenndinni, kvaðst hafa heyrt kven-
þeirra saman aftur ellefu árum
seinna, og þá voru þau gefin saman ó
ný í annað sinn. Hjónaband þeirra
var álitið einkar ástríkt.
„Þau voru greinilega mjög
ástfangin“, segir ameríski ljós-
myndarinn Steve Shapiro, sem tók
flestallar myndirnar hér á síðunni
fyrir skömmu, þegar hann fékk að
dvelja með þeim hjónum á snekkj-
unni Splendour eina helgi til að
mynda daglegt líf þeirra um borð.
„Eg hef aldrei séð jafn innilegt
samband", bætir hann við og ræðir
síðan um Natalie: „Hún var ekki
með neina „stæla“. Hún elskaði
börnin fyrst og síðast og sagði við
mig, að frægð og frami og Oskars
verðlaun skiptu sig nákvæmlega
engu máli en börnin hins vegar
öllu“.
Súperstar
Þrisvar var Natalie Wood
tilnefnd til Oskarsverðlauna og
vissulega var hún stórstirni eða
súperstar, eins og það er kallað.
Sumir halda því fram, að kvikmynd
um ævi hennar sjálfrar myndi slá öll
met, efnið sé þar borðliggjandi.
Þegar hún lést var hún að leika í
kvikmyndinni Brainstorm á móti
Christopher Walken, sem einmitt
var gestur þeirra hjóna, þegar slysið
bar að höndum. Kvikmyndin fjallar
um vísindamann, sem finnur upp
tæki til að taka upp skelfingu dauða-
dæmds fólks, líkt og menn taka upp
mósik á kassettu. Rétt áður en
Natalie lést höfðu verið teknar upp
djarfar ástarsendur í sundlaug.
Robert Wagner samþykkti þær, en
mun hafá farið fram á, að engin tæki
við hlutverkinu og myndin yrði
skilin eftir ófullgerð.
En mennirnir tveir, sem rifust
þetta kvöld, Robert Wagner og
Christopher Walken, hafa ekki gefið
upp hver ágreiningurinn var.
Auðvitað bendir það til þess, að
hann hafi einmitt verið um eitthvað,
sem beint eða óbeint hafði áhrif á
hegðan Natplie. Ef svo væri ekki, ef
herrarnir hefðu t.d. verið að rífast
um fjármál, má telja öruggt, að þeir
hefðu ekki talið ómaksins vert að
halda því leyndu. En þeir þegja og
Natalie er látin. Hún er annar
heimsþekkti leikarinn, sem deyr á
skömmum tíma. Hinn var William
Holden, sem lést fyrir nokkrum
vikum.
Hin 43ja ára gamla kvik-
myndastjarna Natalie Wood,
giftist tvisvar sama mannin-
um, Robert Wagner, sem nú
er 51 árs og lifir hana eftir að
hún fórst í hafinu sem hún
hafði oft látið í Ijósi ótta á.