Mánudagsblaðið - 05.04.1982, Page 2
2 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 5. apríil, 1982
flotann
Mikið skelfing sem hann Stein-
grímur Hermannsson er mis-
heppnaður sem sjávarútvegsráð-
herra.Hann virðist hugsa um það eitt
að stækka flotann þótt allir sjái að
þetta endar með ósköpum. Eru at-
kvæði einstakra byggðarlaga meira
virði heldur en þjóðarhagur? Er ráð-
herrann svo skammsýnn að sjá ekki
að þessi gegndarlausa stækkun flot-
ans kallar á beina tekjulækkun hjá
okkur sjómönnunum, taprekstri á
útgerðinni og aukinn taprekstur á
þjóðarbúinu í heild?
Menn voru að finna að ýmsu í tíð
Kjartans Jóhannssonar sem sjávar-
útvegsráðherra. En Kjartan þorði þó
að standa fast á sínu gegn þrýstihóp-
unum sem heimtuðu alltaf ný og
stærri skip.
Við skipsfélagarnir erum alveg
búnir að missa trúna á að Steingrím-
ur valdi þessu embætti. Maðurinn
blaðrar í tfma og ótíma um þessi mál
en hann er alltaf í vörn. Og nú er
meira að segja komið upp, að togar-
inn Einar Benediktsson, sem Stein-
grímur samþykkti að mætti kaupa,
var fenginn með sviksamlegum
hætti. Petta er bara allt eins hjá þess-
um manni. Og svo er búið að drepa
alla loðnuna eða svo til. Ætli þorsk-
inum verði útrýmt næst? Alla vega
höfum við nóg af skipum til þess.
Fjórir að norðan.
Ekkert að
marka fagur-
gala Svavars
Svavar Gestsson alþýðubanda-
lagsforkólfur kom fram í sjónvarp-
inu um daginn og lýsti því fjálglega
hvernig flokkurinn hans vildi hafa
sem mest og best samstarf við kjós-
endur.Svavar sagði að fulltrúar
flokksins í bæjarstjórnum fram-
kvæmdu vilja íbúanna, væru þeirra
þjónar. Alla vega var þetta inntakið í
orðmergð ráðherráns.
En hvernig er þetta svo í reynd?
Jú, Reykvíkingar hafa nú aldeilis
fengið að kynnast því undir vinstri
stjórn. Samtök hverfabúa vítt og
breitt um bæinn hafa komið saman
og gert ályktanir um málefni hverfa
sinna. Svo þegar þetta er borið upp
við vinstri höfðingjana sem öllu ráða
þá er fólkinu bara sagt að fara norður
og niður. Ibúar Gnoðavogs mót-
mæltu breytingum á skipulagi. Þeim
var einfaldlega sagt að halda sér
saman því þeir hefðu ekkert vit á
þessu, enga heildaryfirsýn um þessi
mál.
Svona eru þeir meðhöndlaðir sem
leyfa sér að hafa aðra skoðun en
vinstri yfirstéttin í Reykjpvík.
Ég held að það sé fullreynt, að
mun skárra er að hafa íhaldið yfir sér
heldur en kommana. Á þeim bæ er
flokkurinn látinn ráða en ekki fólkið
sem borgina byggir. Burt með kom-
mana úr borgarstjórn.
Reiður hverfabúi.
Hættið að loka
öllu um páska
Enn eru að koma páskar og enn á
að leggjast á fjölda fólks og gera því
lífið leitt um þessa miklu hátíð. Hér
á ég við þetta fáránlega bann við að
halda uppi eðlilegum veitingarekstri
hátíðisdagana. Það er fjöldi manna
sem borðar í mötuneytum fyrirtækja
dags daglega og á ódýrum veiting-
ahúsum um helgar vegna þess ein-
faldlega að þeir hafa ekki aðstöðu til
að elda sjálfir. Páskahátíðin er skelf-
ingartími fyrir þessa menn þar sem
þeir eiga þá yfirleitt ekki í nein hús,
allavega veitingahús, að venda.
Það er löngu kominn fimi til að
breyta úreltum reglum sem eru gjör-
samlega úr takt við tímann. Almenn-
ingur verður að hafa aðgang að ýms-
um nauðþurftum á degi hverjum og
það er varla kirkjunni þóknanlegt að
menn beinlínis líði fyrir hátíð eins og
páska, bara drekka. Það má stíga
dans alla aðra daga. En það er lág-
markskrafa að hægt sé að fá sér í
gogginn á veitingastað á dögum eins
og föstudaginn langa og páskadag. Á
svona frídögum eru líka margar fjöl-
'skyldur sem vilja fara saman út að
borða, þannig að þessi asnalegu
bönn snerta hagsmuni margra.
Einsetukarl.
Það er
talið, að
vikublöð
séu
vandlegar
lesin
en dagblöð,
og þess
vegna er
Mánudags-
blaðið
gott
auglýsinga-
blað
Síminn
er
13496
ÁBYRGÐARTÉKKAR Á ÚTVEGSBANKANN ERU
ÖRUGGUR
GJALDMHMLL
/
Utgeíandinn sýnir þér skilríki sem sannar heimild hans til útgdíu
dbyrgðartékka. Á skírteininu stendur hve hdr tékkinn megi vera.
Bankinn ábyrgist innlausnina.
ÚTVEGSBANKINN
Greinilega bankinn íyrir þig líka.
BRÉF TIL BLADSINS:
Steingrímur
vill stækka