Mánudagsblaðið - 05.04.1982, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 5. apríl, 1982
„LATIÐ ekki
SATAN DRAGA
YKKUR OF
HRATT"
DREGINN ÚT 6. APRIL
Framh.
myrtur eftir að hann hafði áfrýjað
dómnum, og það er ekki.fyrr en
fjórum árum síðar, sem hinn
metnaðargjarni Dewey fær mál, sem
gerir hann þjóðfrægan.
Kviðdómur í New York, sem var
að reyna að rannsaka hið ólöglega
happdrættisbrask í borginni, fékk
sig fullsaddan á því, hve málið
sóttist seint og heimtaði nýjan sak-
sóknara. Dewey varð fyrir valinu og
reyndist rétti maðurinn á rétta
staðnum á réttum tíma.
Happdrættisbraskið var að mestu
undir stjórn áðurnefnds Dutch
Schultz. Hann var einn af fáum
glæpaforingjum fyrri daga, sem gat
gortað af því að vera innfæddur
Bandaríkjamaður. Hann var frá
New York. Móðir hans hét Emma
Flegenheimer, og var guðrækin
kona, sem dreymdi stóra drauma
um son sinn og kallaði hann Arthur í
höfuðið á ævintýrakonunginum.En
Frisbygata var ekki heppilegur skóli
fyrir verðandi konunga, og dreng-
urinn varð meðlimur í götuflokki,
sem kallaður var Bergens-flokkur-
inn. Það var ekki fyrr en hann hafði
sannað manndóm sinn með fimmt-
án mánaða fangelsisvist fyrir fjölda
vopnaðra ofbeldisverka og rána, að
Bergenshópurinn gaf honum viður-
nefnið Dutch Schultz eftir þjóð-
sagnakenndum hnefaleikakappa,
sem var talinn illvígasti hnefaleik-
ari í Bronxhverfinu. Seinna átti
Schultz eftir að segja, að hann sæi
eftir að hafa ekki haldið sínu upp-
haflega nafni. Það væri of langt fyrir
blaðafyrirsagnir, og þá hefði enginn
heyrt hans getið. A Bannárunum
stofnaði Schultz sinn eigin glæpa-
flokk og sitt eigið sprúttveldi, en
færði síðan úr kvíarnar og keypti
sinar eigin veðhlaupabrautir, veit-
ingahús og náði undir sig happ-
drættisbraskinu í New York.
Féll á græðginni
Það var græðgin, ekki Dewey,
sem varð Schultz að falli. Hann
ákvað að sölsa undir sig bjórveldi
Waxey Gordons, og sendi hóp af
mönnum sínum til að gera Gordon
fyrirsát í Cartaret-hóteli í Elizabeth
í New Jersey. Gordon slapp út um
glugga, en tveir af mönnum hans,
Max Greenberg og Max Hassel,
sem voru sofandi í næsta herbergi,
voru myrtir. En Schultz átti eftir að
finna fyrir því, að á þessum dögum
einingar, var slíkt einstaklingsfram-
tak litið hornauga af máttarvöldun-
um. Því að nú tók Murder Inc. í
taumana. Þann 23. október 1935 var
Schultz í snyrtiherbergi karla í
Palace Chophouse í Newark í New
Jersey. Meðan hann var að þvo sér
um hendurnar, opnaði sá, sem
talinn er hafa myrt hann, Charles
“The Bug“ Workman, iyrnar og
skaut einu skoti. Þrír af lífvörðum
hans voru líka skotnir til bana.
Meðan Dutch lá í andarslitrunum
minntist hann móður sinnar og
hennar háu drauma. „Mamma er
bezti vinningurinn, og látið ekki
Satan draga ykkur of hratt“ stundi
hann.
Fáum harmdauði
Schultz var bráðlyndur og
ofsafenginn, auk þess sem hann var
illskeyttur og nízkur að eðlisfari.
hann var því fáum harmdauði. Þeir
stóru í Sambandinu skiptu upp
veldi hans, sem var alls ekki lítið.
Það var eitthvað handa öllum og
jafnvel Cleveland sambandið fékk
veðhlaupabraut nálægt Cincinnati.
Dauði Dutch Schultz markar enda-
lok sjálfstæðra styrjalda og taum-
lausrar samkeppni.
En Dewey, sem þóttist illa
svikinn að missa af Schultz, snéri
vopnum sínum að Lucky Luciano,
sem almennt var talinn hinn nýji
höfðingi (capo) „Italska félagsins“,
eins og Mafian var þá kölluð af þeim
fáu, sem voru nógu upplýstir til að
kalla hana nokkuð.
Verðlaunagripir í úrvaii
f7
v
Verðlaunapeningar
m/áletrun.
Mjög hagstœtt verð.
Leftíð uppfýs/nffe.
MAGNÚS E. BALDVINSSON
Laugaveg/8, s/mi22804.
Sýningarbílar á staönum — til afgreiöslu strax Viöurkennd gæöi, viöurkennd þjónusta og valiö er auövelt og öruggt
DAIHATSUUMBOÐIÐ ÁRMÚLA 23, SÍMI85870 - 39179
filæsivagn frá Daihatsu á
ævintýralegu verói
Fyrir 134.800,- kr.
færð þú Daihatsu Charmant MEÐ ÖLLU
(þar meö talin ryövörn og fullur benzíntankur)
Daihatsu Charmant er glæsilegur lúxusbíll meö 103 ha 1600 cc vél, 5 gíra, rúmgóöur 5 manna fjölskyldubíll. Þetta er
deluxe útgáfan og þaö sést hvar sem litið er á bílinn. Þetta er bíll fyrir vandláta kaupendur.