Mánudagsblaðið - 05.04.1982, Blaðsíða 10

Mánudagsblaðið - 05.04.1982, Blaðsíða 10
1 0 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 5. apríl, 1982 POPP eftir sérlegan poppskribent Mánudagsblaðsins Jens Kr. VISSIR ÞÖ...? ...að Siggi pönkari gítarleikari hljómsveitanna Sjálfsfróunar og Biafra Restaurant hefur ekki stillt gítarinn sinn frá þvi á miðju síðasta ári? Einhver myndi nú kannski segja að það væri ekki mikið að stilla þar sem aðeins tveir strengir eru eftir í gítarnum. En sá hængur er ■á að stillingarnar eru ónýtar. Þær eru alveg pikkfastar... ...að Bubbi rokk-kóngur sigraði með yfirburðum i vinsældakönnun Tímans á dögunum. Hann átti bæði besta lag ársins, „Segulstöðvar- blús“, og bestu plötu ársins, ,,Pláguna“. Hurnan League væntanlegir gestir okkar sigruðu aftur á móti útlena stéttarbræður sína... ^effl^ Pílluna á rúðusprautuna Hún er óbrigðult meðal við óhreinum framrúðum! 0 Olíufélasið hf Spiendo pillan fæst á bensínstöóvum ESSO ...að Jóni Ólafssyni skífusala og hljómplötuútgefanda gengur afar illa að leigja út skápirin við hliðina á Skífunni. Enda kannski ekki að furða. Hann vill fá 120.000 kr. i ársleigu fyrir skápinn, eða sem svarar útborgun í íbúð... ...að Karnabær opnar hljómplötu- verslun við Rauðarárstíg áður en langt um líður? ... að gamla góða þjóðlagarokk- sveitin Hellies ætlar að heimsækja okkur í júlí? ...Hljómplötuútgáfan hf. hefur ekki einn einasta listamanna á sínum snærum eins og sakir standa. Þeir hafa allir flúið á sanngjarnari mið. Ja, það er af sem áður var þegar listamenn Hljómplötuútgáfunnar einokuðu sjónvarpið og fl.... ...að það eru Frakkar sem eiga bestu SSv-bárujárnssveit heims ef EGÓ er ekki talin með? Þessi franska súper-grúppa heitir TRUST og hefur sent frá sér a.m.k. tvær breiðskífur... Hnakkar 3 geröir Feldmann tölthnakkur meö dýnu kr. 5.740.- hnakkur kr. 3.700.- Pakistan hnakkur kr. 1.502.- Höfuöleöur og múlar í úrvali. Jí 5^ unuF Glæsibæ, sími 82922. Auglýsing frá Póst og súnamálastofnuninni Ný götu- og númeraskrá fyrir Reykjavik, Bessastaðahrepp, Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavog, Seltjarnarnes og Varmá er komin út og er til sölu i afgreiðslum pósts og sima i Reykjavik, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi og Varmá. Verð skrárinnar er kr. 170 með söluskatti. Póst og simamálastofnunin Auglýsing um aðalskoðun bifreiða og bifhjóla i Kjósar- Kjalarnes- og Mosfellshreppum og á Seltjarnarnesi 1982. Skoðun fer fram sem hér segir: Kjósar- Kjalarnes- og Mosfellshreppur: Þriðjudagur 13.april miðvikudagur 14. april fimmtudagur 15. april föstudagur 16. april Skoðun fer fram við Hlégarð i Mosfelís- hreppi. Seltjarnarnes: Mánudagur 19 april Þriðjudagur 20. april Miðvikudagur 21.april Skoðun fer fram við félagsheimilið á Seltjarnamesi. Skoðun fer fram frá kl. 8.15—12.00 og 13.00—16.00 alla framantalda daga á báðum skoðunarstöðunum. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi, að bifreiðagjöld séu greidd, að vátrygging fyrir hver ja bifreið sé i gildi og að bifreiðin hafi verið ljósastillt eftir 1. ágúst s.l. Athygli skal vakin á þvi að skráningarnúmer skulu vera læsileg Vanræki einhver að koma ökutæki sinu til skoðunar á auglýstum tima, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og ökutækið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu, Bæjarfóget- inn á Seltjarnarnesi 1. april 1982. Einar Ingimundarson.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.