Mánudagsblaðið - 05.04.1982, Qupperneq 3
Mánudagur 5. apríl, 1982 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 3
Músikalski
bankastjórinn
í Breiðholtinu
- Hér ríkir göður andi, segir
Jön Sigurðsson og leikur á als
oddi eftir þrjátíu ára starf
við tölur og tóna
Jón Sigurðsson, músikalskur útibússtjóri í Breiðholtinu.
- I rauninni var þetta bara
tilviljun, að ég réðist til banka-
starfa. Eg kom til Reykjavíkur á
árinu 1952, eða fyrir réttum
þr játiu árum, og frétti þá á skot-
spónum að það vantaði mann til
starfa í Búnaðarbankann. Ég
sótti um og var tekinn hér inn -
það er allt og sumt. Síðan hef ég
starfað hér. Ég held ég hafí
komið við í flestum deildum, en
alltaf verið í aðalbankanum þar
til ég kom hingað.
Það er Tón Sigurðsson, útibús-
stjóri í hinu nýja útibúi Búnaðar-
bankans í Breiðholti, sem við höfum
tekið stuttu tali:
- Hér hefur starfsemin gengið
aldeilis prýðilega frá byrjun. Okkur
hefur verið tekið mjög vel hér í
miðju íbúðarhverfmu. Fólk er að,
smá finna okkur og hægt og bítandi
að gera sér ljóst, að það getur sparað
mörg sporin, bensínlítrana og ekki
sízt tíma með því að nota sér slíkar
þjónustustöðvar til dæmis til að inna
þar af hendi flest allar greiðslur
venjulegra heimila.
f góðu skapi
- Það ríkir líka afskaplega góður
andi hér innan dyra og starfsfólk
einkar samhent. Hlutirnir ganga
snurðulaust og skapið er gott, segir
Jón ennfremur.
En Jón er líka þekktur af öðru en
bankastörfum. Hann er músikmað-
ur og lagasmiður, kunnur fyrir heil-
mörg dægurlög og texta, sem hann
hefur samið og verið hafa á vörum
þjóðarinnar. Einnig er hann hinn
ágætasti harmónikkuleikari og hefur
leikið fyrir dansi í hjáverkum um
árabil, nú seinustu árin með eigin
hljómsveit.
Að slappa af
- Þetta er mín aðferð til afslöpp-
unar frá aðalstarfmu í bankanum.
Ég hvílist á því að leika mér að tón-
unum. En það er hætt við að tíminn
fari minnkandi til tónlistariðkana
því starfið hér er margþætt. En það
verður aldrei svo að ég sleppi
músikkinni alveg. Það gæti ég ekki,
segir Jón.
En þann 9. apríl næstkomandi eru
nákvæmlega 30 ár síðan Jón Sig-
urðsson réðst til starfa í Búnaðar-
bankanum og við óskum honum og
ekki síður bankanum til hamingju
með daginn.
Seljaútibú er það kallað hið nýja útibú Búnaðarbankans í Breiðholti.
VOLVO
•Ryövörn er innifalin [ veröi. ______________^
343 DL
345 DL
frá 136.000 -
139.000 -
Hji öðnimeru asði nýjungr
HjáVbhmhefð!
Á meðan aðrir bjóða „litla bíla" á
u.þ.b. 150.000 krónurbjóðum
við Volvo 340 í þremur mis-
munandi útfærslum. Þetta eru
dæmigerðirVolvoar, þarsem
gæðin sitja í fyrirrúmi, en verðið
er lægra en flestir gera sér í
hugarlund. Þaðerekkiáhverjum
degi, að þú getur fest kaup á
nýjum Volvo fyrir lægra verð
en almennt gerist og gengur á
bílamarkaðnum.
Volvo 340 bílarnir eru allir fram-
eiddir samkvæmt gæða og
öryggiskröfum Volvo - munur-
inn liggur í hurðum, innrétt-
ingum, hestöflum og gírkassa.
Þú getur valið á milli 2ja vélar-
stærða í Volvo 343 og 345.
Annars vegar er um að ræða
Volvo B14. Það er snörp vél og
lipur, 70 hestöfj DIN. B14 er
hljóðlát og viðbragsðgóð
1,41 vél.
Hinn kosturinn heitir Volvo B19.
Það er kraftmeirj vél, sem margir
sækjast eftir. B19 er 95 hesöfl
DIN og 2 lítra.
Volvo 340 bílarnir eru allir bein-
skiptir, - með 4ra gíra Volvo gír-
kassa. Þá má einnig fá bílana
sjálfskipta. Bæði beinskiptu og
sjálfskiptu gírkassarnireru við
afturöxul, en það er einmitt
lykillinn að frábærum þyngdar-
hlutföllum Volvo 340.