Mánudagsblaðið - 05.04.1982, Side 6
6 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 5. aprfil, 1982
LATIÐ ekki
SATAN
DRAGA
YKKUR OF
HRATT“
- stundi deyjandi Mafíu
gangsterinn, en hann varð fáum
harmdauði, enda illskeyttur
og bráðlyndur, ofsafenginn
og nízkur að eðlisfari
fyrsta fórnarlamb hins nýstofnaða
Murder Inc. Til þess að sýna með
dæmi nauðsyn þess að halda
glæpum í skefjum, benti hann á
ránið á barni Lindbergs flugkappa,.
sem þá var enn óupplýst. Að hér
hefði verið viðvaningur að verki,
kvað hann fullvíst, en málið hafði
vakið svo mikla ólgu, að hann hefði
verið tilneyddur að heita launum
þeim, sem fyndi ræningjann.
Capone og nokkrir meðlimir
Purpuraflokksins, sem sátu inni,
hefðu ekki hjálpað uppá sakirnar,
bætti hann við, með því að bjóðast
til að leysa málið, ef þeim væri
sleppt.
Aðrir ræðumenn lýstu hlutverki
Sambandsins með orðum, sem tekin
voru að láni úr New Deal ræðum
Roosevelts forseta um viðreisn efna-
hagslífsins (Nation Recovery Act).
Komið skyldi á landshlutanefndum
til að hafa eftirlit með glæpastarf-
semi af öllu tagi og allsherjarnefnd,
sem hægt væri að áfrýja til. Komið
yrði upp afmörkuðum svæðum og
svæðatakmörk virt. Innan stórborg-
anna yrðu líka dregnar línur milli
hinna ýmsu sviða: vændi, fjárhættu-
spil, okur, „vernd“, eiturlyf, fjár-
kúgun o.s.frv. Hvatt var til sam-
starfs í þróun nýrra svæða, og
nokkur svæði, eins og t.d. Miami,
átti að flokka sem „opin“ fyrir alla.
Jafnræði á
toppnum
Svo umsvifamiklu fyrirtæki varð
ekki st jórnað af neinum einstaklingi,
þó að hver landshluti nyti töluverðr-
ar sjálfstjórnar. Það átti ekki að vera
neinn höfðingi allra höfðingja. Öllu
heldur átti að vera jafnræði á
toppnum, þar sem landshlutafor-
ingjar og forsprakkar í sérstökum
greinum sætu saman og réðu ráðum
sínum og væru æðsti áfrýjunardóm-
stóll. Hvernig færu þeir að því að
framfylgja úrskurðum sínum? Það
var Louis Buchaltcr sem kvað upp
úr um það efni.
Buchalter, sem gekk undir nafn-
inu Lepke, var lágvaxinn maður,
mjúkeygur, með spékopp í vinstri
kinn, og ljúfmannlegt viðmót, sem
villti engum sýn nema foreldrum
hans, sem voru heiðarlegt fólk.
Hann var fæddur árið 1897 og alinn
upp í New York. Hann var búinn að
sitja tvisvar inni í Sing Sing árið
1922, þegar hann komst í kynni við
glæpaflokk, sem í voru verkfalls-
brjótar að atvinnu. Þaðan lá leið
hans inn í verkalýðsmálabrask, og á
endanum tókst honum að ná undir
sig stjórn á nærri allri klæða- og
bakaraiðn í New York. Hann
kynntist Lansky, sem var góður
kunningi Lucianos. Hver um sig
voru þessir menri voldugir, en ef
þeir lögðu saman L-in þrjú, gátu
þeir sagt New York fyrir verkum.
Aftökusveit
sérfræðinga
Lepke stakk upp á því, að komið
yrði á stofn sveit, sem sniðin væri
eftir gamla Bugs og Meyer-
hópnum. Sveitin myndi vinna sam-
kvæmt eftirspurn og vera alltaf til
taks. Foringjar í hinum ýmsu lands-
hlutum, sem þyrftu að láta drepa
einhvern, myndu draga upp
samning fyrir drápið, sem síðan yrði
framið af sérfræðingum. Þetta
myndi tryggja, að starfið væri vel af
hendi leyst og samtímis draga úr
hættunni og kostnaðinum við að
hver hópur hefði sína aftökusveit.
Ennfremur: enginn, hve háttsettur
sem hann var, mátti drepa utan síns
svæðis. Ef hann hefði yfir einhverju
að kvarta, sem réttmætti dauðadóm,
yrði dómurinn kveðinn upp af hinni
ráðandi nefnd.
Fulltrúunum leizt vel á hug-
myndina, og Lepke var veitt
heimild til að stofna eigin flokk, sem
síðar varð frægur undir nafninu
Murder, Inc. Öll fór ráðstefnan
fram snurðulaust, og var ástæðan
vafalaust sú, að svo margir hinna
hyggnari glæpaforingja vildu halda
því, sem þeir höfðu, og vissu, að
þetta gætu þeir því aðeins að þeir
ynnu saman. Það var gamla Lansky-
Torrio kenningin: Nóg til skiptanna
handa öllum. En nú voru líka ýmsar
blikur á lofti í stjórnmálaheiminum.
Republikana vantaði mann til að
stilla upp á móti Roosevelt, kross-
fara, sem „segði allri spillingu stríð á
hendur“, og í New York kemur nú
fram á sviði maður, sem var meira
en fús til að genga slíku kalli,
Thomas E. Dewey.
Krossfarar
Guðfaðir Deweys, ef svo má að
orði komast, í krossfararhlutverk-
inu var Georg Z. Medalie,
hæstaréttarlögmaður, sem taldi
hinn unga lögfræðing á að ganga í
þjónustu ríkisins í marz árið 1931.
Fimm mánuðum síðar var Dewey
búinn að fá Legs Diamond
dæmdan, útlægan meðal útlaganna
vegna vígfýsi sinnar, en Legs var
Framh. á næstu síðu
Mánudagur 5. apríl, 1982 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 7
Arthur Flegenheimer, sem þekktari var undir nafninu Dutch Schultz, (sá í
dökku fötunum) var „bjórkóngur“ Bronx hverfisins og rak marga nætur-
klúbba í New York um sína daga. Það er lögfræðingur hans, sem með honum
er á myndinni. Að neðan er svo „Lucky“ Luciano, sá þekkti mafíósi, en hann
reyndist ekkert sérlega „lucky“ eða heppinn á árinu 1936, þegar hann var
handtekinn og dæmdur fyrir svo marga glæpi, að dómurinn hljóðaði upp á 50
ára fangelsi. Hann var samt náðaður 1946 og sendur heim til Ítalíu, þar sem
þessi mynd var tekin af honum.
Dutch Schultz, sem talsvert er getið í
greininni og mynd er af annars staðar
í opnunni, hafði jafnan þrjá lífverði
sér til halds og trausts. En það reynd-
ist ekki nægjanlegt og um síðir var
hann veginn.
Hér í fyrri þáttum hefur verið
ymprað á því, að í mótun væri
allsherjarsamband glæpahringa,
sem næði yfir öll Bandaríkin, en
það var ekki fyrr en snemma árs
1934, að þessi „hugsjón“ nokk-
urra hinna slægvitrari meðal
glæpaforingjanna, svo sem
Lansky og Torrio - varð að
veruleika. Slagorð þeirra: Það er
nóg til skiptanna handa öllum,
ávann sér æ meira fylgi, og í einu
hóteli í New York - sumir segja
Waldorf Astoria - sá Landssam-
band glæpafélaga - The Nation-
al Crime Syndicate - loksins
dagsins ljós. Það var að
sjálfsögðu ekki kallað þessu
nafni. Þeir sem ekki voru í Mafí-
unni, kölluðu það einfaldlega
„Sambandið“ (the Syndicate),
“the office“ eða “the outfit“, en
Mafiumenn hölluðust að
„Combineesh*, - afbökun úr
„combination“ (sameining).
Torrio, maðurinn sem hafði
framkvæmdareynslu bæði frá
Chicago og New York, var í
forsæti lengst af ráðstefnunnar,
en Lansky var því athafnasam-
ari bak við tjöldin. Vinir hans
komu úr öllum áttum. Frá
Cleveland komu Moe Dalitz,
Isadore Blumenfield, hinn
alræmdi “Kid Cann“ bróðir
Yddi Bloom kom frá Minnea-
polis - St. Paul. Philip “Dandy
Phil“ Kastel, fyrrum undirtylla
hjá Arnold Rothstein og nú
annar valdamesti glæpaforingi
í New Orleans, var mættur, svo
og Hymen Abrams, sem hafði
tekið við af “King“ Solomon í
Boston. Harry “Nig Rosen“
Stromberg, fulltrúi Lanskys í
Philadelphiu var þar og Longie
Zwillmann kom frá New Jersey.
Allir þessir voru Gyðingar eins
og Lansky sjálfur. Paul “the
waiter“ Ricca, sem Lansky áleit
heilann á bak við Chicagosam-
bandið, mætti sem áheyrnar-
fulltrúi. Chicago var að áliti
Torrios ekki nógu vel siðuð til
að taka þátt í svona landsfundi,
en kannski mætti mennta hana
með tíð og tíma.
Mafiunefndin var að sjálfsögðu
vel skipuð mönnum eins og
Luciano, Adonis, Frank Costello og
Vito Genovese, en þeir komu frekar
sem meðlimir í New York „kombin-
ationinni" heldur en sem leiðtogar
sérstakrar heildar. Ef Luciano hefði
reynt að sýna vald hins æruverðuga
bræðralags með því að reyna að
drottna yfir fundinum, hefði það
mistekist. Eins og menn á borð við
Albert Anastasia og Anthony
“Little Angie“ Carfano komust að
raun um síðarmeir, þá var vald
Lanskýs ekki minna utan borgar-
marka New York en innan, og menn
hans réðu yfir meiri peningum og
meiri herafla en piltarnir frá stór-
borginni. Sögur af því, sem fram fór
á ráðstefnunni, eru nokkuð á reiki,
en í höfuðdráttum ber mönnum
7. apríl, 1933 opnuðu þúsundir ólögl-
egra vínveitingastaða dyr sínar upp á
gátt og hófu löglegan rekstur. Bann-
inu var aflétt. Þá ríkti mikil gleði á
mörgum börum og var bæði sungið
og kveðið næturlangt eða lengur.
Það var hátíð í bæ og myndin er tekin
í Greenwich Village kránni í New
York.
saman um þessi atriði: Luciano
hafði mál fyrir Mafíunni. Hann
sagði hvernig Mafían hefði verið
„ameríkaníseruð" og lofaði að hún
yrði uppbyggilegt afl i framtíðinni.
Ef einhver ætti sökótt við einhvern
Mafíuhöfðingja (capo), þyrfti hann
framvegis ekki annars en að koma
kvörtun sinni áleiðis til „Stórráðs-
ins“ til þess að fá hlut sinn réttan.
Eftir öllum fréttum að dæma var
gerður góður rómur að máli hans og
hann hylltur vel og lenti.
Halda glæpnum
í skefjum
Adonis lýsti þróun hinna „sjöj
stóru“ (Stórráðsins), þakkaði
Torrio hlut hans, og Dalitz hélt lof-
ræðu um Lansky fyrir þátt hans í
“Molaska“ fyrirtækinu, sem vaf
stórkostlega vel heppnuð tilraun til
að framleiða áfengi við vægu verði,
eftir að Banninu var aflétt. Zwill-
mann lýsti hinni blóðugu, að hans
dómi ónauðsynlegu styrjöld í New
Jersey milli Waxey Gordons og
Dutch Schultz, sem hafði endað
með því að Schultz hafði vegið
helstu menn Gordons, sem slapp
sjálfur, en siðan hafði Schultz orðið
ÞAÐ ER NÓG TIL SKIPTANNA HANDA ÖLLUIVI, SAGÐIHYGGINN MAFÍÓSI
ÚR SÖGU SKIPULAGÐRAR GLÆPASTARFSEMI I BANDARÍKJUNUM