Tíminn - 03.01.1970, Qupperneq 1
Guðlaugur Rósinkranz svarar gagnrýnendum - bls. 9
í
\
I
% SAMVINNUBANKINN "*
\ «5WINN BANKI ^
%
Ríkísstjórnin breytir lögum um ráðstafanir í sjávarútvegi:
Friður á vertíð eftir
15% hækkun fiskverðs
EJ—Reykjavík, föstudag.
Samkomulag hefur náðst um
kjör sjómanna og um fiskverð, en
í því felst að fiskverðið verður
' 15% hærra en það var á síðasta
. ári. Samkomulag náðist milli sjó-
manna og útvegsmanna eftir að
' ríkisstjórnin hafði lofað að breyta
lögum um ráðstafanir í sjávarút-
vegi á þann veg, að kostnaðarhlut
deild sem ekki kemur til hluta-
skipta eða aflaverðlauna, lækki úr
17% í 11%. f framhaldi af þessu
var fiskverðið sjálft svo hækkað
um 9,5%, en þetta tvennt gerir
samanlagt 15% hækkun á fiskverð
inu.
Það var á gannlaársdaig, að sam-
komulag náðist milli undirmanna
og yfirmanna á bátaflotanum ann
ars vegar og útvegsmanna hins
vegar um nýja kjarasamninga á
ofangreindum grundvelli. Sama
dag úrskurðaði meirihluti yfir-
nefndar Verðlagsráðs sjávarútvegs
ins nýtt fiskverð.
Blaðinu barzt í kvöld eftirfar
andi fréttatilkynning um ákvörð
un yfirnefndarinnar:
„Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar
útvegsins ákvað á fundi sínum á
gamlaársibvöld almenna hæikikun
fiskverðs, og gildir það til maí
loka eða allt árið, hafi hvorugur
aðili sagt því upp fyrir byrjun
maímánaðar. Með ákvörðuninni
var fiskkaupendum gert að greiða
9,5% hærra fisfeverð en þeir
greiddu á síðastliðnu ári.
Á fundi yfirnefndar í dag kom
fram orðsending frá ríkisstjórn
inni þess efnis, að í sambandi
við ákvörðun fiskverðs og nýja
kjarasamninga milii sjómanna og
útvegsmanna hafi báðir samnings
aðilar óskað þess, að lögum um
ráðstafanir í sjávarútvegi nr. 79
31. des. 1968 verði breytt á þann
veg, að kostnaðarhlutdeild, sem
kemur ekki til hlutaskipta eða
aflaverðlauna, lækki úr 17% í
11%, sbr. 3. gr. fyrrnefndra laga.
Fiamihald á bls. 10.
Stúdentar héldu flugeldasýningu fyrir framan Háskólann á gamlárskvöld, og var myndin tekin við það
tækifæri. (Tímamynd—GE)
RÓLEGT UM ÁRAMÓTIN
SB—Reykjavík, föstudag.
Ekki er anr.að vitað, en ára-
mótin hafi viðast gengið róléga
yfir, nema hvað lögregla ýmissa
staða hafði í nokkru að snúast
vegna ölvunar fólks, ein; og geng
ur og gerist á nýársnótt. Veður
var indælt um Iand allt, brennur
margar og mikil flugeldadýrð. Á
ísafirði kveikti flugeldur í bfl-
skúr, en hvergi urðu slys á mönn
um, nema í Reykjavík.
Á ísafirði fóru áramótin vel
fram í ágætis veðri. Þar voru fjór
I
KOMUST EKKI I EIGIN
BRÚÐKAUPSVEIZLU!
GS-fsafirði, föstudag.
Veðurguðirnir hérna fyrir
vestan brugðu á lelk og ollu
því, að tvö brúðkaup urúu nokk
uð söguleg. í öðru tilfellinu
komust brúðhjónin ekki í ".ína
eigin brúðkaupsveizlu, en i
hinu var um að ræða veizlumat
inn sem varð tepptur, svo nærri
má geta, að minna hefur orðið
úr veizluhöldum, en til var ætl-
azt.
Á sunnudaginn milli jóla o-g
nýárs, bragðu hjónaefni nokk-
ur sér frá ísafirði til Bolungar
víkur, í því skyni að láta gefa
sig saman þar. nvað aert var
Brúðkaupsveizian sjálf átti að
haldast á ísafirði. En þegar
brúðhjónin ætluðu til baka.
hafði vegurinn til ísafjarðar
skyndilega lokast, svo þau kom
ust ekki í sína eigin brúðkaups
veizlu.
Önnur brúðhjón voru geiin
saman í Bolung^rvík og átti
beirra veizla að vera þar á
staðnum en í bað skipt.ið var
það veizlurnaturinn, sem pantað
ur hafði verið frá ísafirði, sem
ekki komst í veizluna vegna ó-
færðar á sama vegi
ar stórar bren.iur, sú stærsta á
íþróttavellinum. Einnig hafði
íþróttafélagið Armann stóra
brennu frammi í dal. Þrír dans
leikir voru í bænum og heilmiklu
var skotið af flugeldum og í því
sambandi lá við að bruni yrði,
sem þó tókst að forða fyrir snar-
ræði. Talið er að flugeldur hafi
kveikt í bílskúr, sem Jón Krist
mannsson byggði við hús sitt að
Seljaiandsvegi 36. í bílskúrnum
voru plasteinangrunarplötur og
eitthvað af lausu timbri og brann
það allt og dyr og gluggi á áföstu
íbúðarhúsinu skemmdust. Oddur
Pétursson bæjarverkstjóri var
nærstaddur og náði hann strax í
slöngu í ahalaahúsið, _en bruna
hani er rétt við núsið í því kom
slökkviliðið og tók við.
I Vesuntnnaeymm fóru ára-
mótin fram meö prýði og ekki ar
þar meira um olvun er um venju
lega helgi Alimikið var þar um
brennui og bar á meðal ein uti
í Löngu. sem er norðan við höfn
ina og er bað nokkuð sérstætt,
því þangað þurfti að róa með
Fvamhaic i ði 10
Tómas
Karlsson
ráiinn
ritstjóri
Tímans
ÞÞ—Reykjavík, föstudag. }
Blaðstjórn Tímans hefur ráSSð
Tómas Karlsson ritstjóra við Tím
ann til eins árs. í fjarveru Indriða
G. Þorsteinssonar. Tekur Tómas
við starfi Indriða við blaðið, þ. e.
við daglegri verkstjórn og frétta
stjóm á ritstjóminni. Jafnframt
mun Tómas áfram rita stjórnmála
greinar blaðsins, ásamt Þórami
Þórarinssyni. Tómas hefur ann-
ast daglega verkstjóra og frétta-
stjórn s. L tvo mánuði. •
Tómas Karlsson er Rjeyfcvikinigur,,
fæddur 20. marz 1937. Stúdent
frá M. R. 1958. Cand. phil frá
Háskóla íslands 1959. Hóf blaða'
mennsku við Tímann 1959. Frétta
stjóri 1960 — 1961 og fulltrúi rit (
stjórnar 1961 og síðan. Tómas;
ritaði um árabil þingfréttir blaðs :
ins og hefur undanfarið ritað
stjórnmálagreinar blaðsins, ásamt \
Þórarni Þórarinssyni.
Veturinn 1965—66 var Tómas
í orlofi frá blaðinu og lagði þá
stund á nám í alþjóðasamskiptum ‘
við London Institut of World
Affáirs, University of London.
Með stuttum hléum hefur Tómas
annast útvarpsþáttinn „Efst á'
baugi“ síðan 1960. Hann hóf einnig,
útvarpsþáttinn „A rökstólum“ og
annaðist hann fyrsta árið. Þá
sá Tómas einnig um fyrsta get- •
raunaþátt sjónvarpsins. .
Blaðstjórn Tímans býður Tóm-
as velkominn í ritstjórastöðuna'
og bindur góðar vonir við störf,
hans við blaðið.
....... ... ■ ■ ........... ■■■;"■'■
. II •
Tómas Karlsson