Tíminn - 03.01.1970, Page 6
6
TÍMINN
LAUGARDAGUR 3. janúar 1970
„Landið sjálft og nýting
gæða þess er grundvöilurinn"
ið: íslands óiiaminigju verður
Góðir íslendingar.
í dag óskum vér hver öðr-
um gleðilegs nýjárs. Sú
kveðja er söm og jöfn, en hitt
er síbreytilegt, í hverjum hug,
glöðum eða döprum, hún er
fram borin hverju sinni. Um
síðast liðin áramót var venju
fremur þungt yfir þjóðlífinu á
landi hér, og ollu því óhag-
stæð umskipti í þjóðarbúskapn
um. Svo er fyrir að þakka, að
yfirleitt er nú léttara yfir,
þegar á heildina er litið, en
í sumum byggðarlögum ala
menn þó enn ugg í brjósti
vegna óvissrar afkomu, stopull
ar atvinnu, ónógra fóður-
birgða. Og ekki breytist það
lífsins lögmál, að ýmsir vor á
meðal eigi um sárt að binda
á þessum degi sem öðrum. En
kveðja vor á fyrsta degi árs-
ins, óskin um gleðilegt nýjár,
er óháð því sem yfir hefur
gengið. Hún felur í sér fögn-
uð og þökk fyrir að fá enn
að lifa, starfa og vona, fá enn
að taka þátt í samfylgd manna
á þessari vegferð, sem lífið er.
í dag þökkum vér hver öðr-
um fyrir liðið ár, Sjálfur hef
ég, eins og áður, margt að
þakka landsmönnum, þótt ég
geti ekki notað þessa stuttu
sbund til að telja það upp. Það
er eigi að síður vel í minni
geymt. Aðeins eitt skal nefnt,
því að þar á mikill fjöldi
manna hlut að máli. Ég þakka
af alhug viðtökur þær, sem
kona mín og ég fengum á
kynnisför okkar um Norðlend-
ingafjórðung í sumar sem leið,
fyrstu för okkar af því tagi.
Slíkar ferðir og þau kynni sem
af þeim leiðir, styrkja forset-
ann tii þess hlutverlks, sem
hans er í þjóðlífinu, en þó er
það gildi þeirra mest, ef
þær megna að efla almenna
tilfinnimgiu fyrir einingu þjóð-
arinnar í bæ og byggð. Allt
það sem okkur var gert til
gleði og sóma í þessari ferð,
tek ég sem vott um góðan húg
fólksins í landinu til þess em-
bættis, sem ekki hvað sízt er
tákn þjóðlegrar samstöðu.
Margar myndir úr þessari
kynnisför ber fyrir hugskots-
sjónir, myndir lands og lýðs,
gamalkunnar að vísu, en þó
alltaf nýjar eftir því hvernig
ljós á þær fellur. Við vorum
á Skagaströnd, og þar blasti
við Spákonufell, tignarlegt og
sérkennilegt fjall. Leiðsögu-
maður lét svó um mælt, að
þarna væri hið heilaga fjall
byggðarinnar, sem heima-
mönnum þætti öllum fjöllum
betra, vættur byggðarinnar.
Við vorum í Kelduhverfi, og
þar féllu orð á þá leið, að
fornar fjallvættir, Óttar og Ei-
lífur, vektu yfir byggðum. Það
er grunnt á slíkum hugmynd-
um meðal íslendinga. Þetta er
forn arfur, sem aldrei hefur
alveg fyrnzt yfir. Forfeður vor
ir á landnámsjörð hafa kjörið
sum fjöll öðrum fremur til að
vera bústaðir landvætta. Og
það er skáldleg og hrífandi
hugsun, að goðmögn í náttúr-
unnar ríki vaki yfir hverri
byggð, og áhrifamikið tákn
um samskipti mannanna við
landið, sem er fóstra beirra og
lífgjafi. Eitt sinn var svo kveð-
allt að vopni, eldur úr iðrum
þess, ár úr fjöllum, breiðum
byggðum eyða. Upp er komin
á vorum dögum rík tilfinning
fyrir því, að afstýra beri slíkri
óhamingju héðan í frá. Vér
getum ekki vænzt þess, að
landvættir séu oss hollar, nema
vér séum einnig þeim hollir
og bústöðum þeirra. Á því ári,
sem nú er liðið, hafa mangir
orðið til þess að hvetja þjóð-
ina tii að vaka yfir landinu,
vernda það fyrir spjöllum af
mannanna hendi og eyðandi
öflum þess sjálfs, til að fara
vel mieð landið, bæba fyrir yfir-
sjónir liðinna tíma og gæta
varúðar í öllu, sem varanleg
áhrif hefur á náttúru landsins.
Á alþjóðaþingi hafa íslenzkir
fulltrúar borið fram tillögu um
verndun fiskistofna hafsvæð-
anna gegn ört vaxandi meng-
un hafsins, í endurskoðun eru
lög um níibbúruvernd oig síð-
asta Alþingi samþykkti lög um
verndun þeirra mannaminja í
landinu, sem vér viljum að
verði hluti af þjóðararfinum á
komandi tímum. Þetta er allt
af sömu rót runnið. Lífsbarátt-
an og framvindan krefjast þess
jafnan, að einhverju verði fórn
að, sem þó væri gagn og gam-
an að eiga, en hááki er enginn
á ferðum, ef sá skilningur er
vakandi og almennur, að fara
beri nærgætnum höndum um
það land, sem ekki aðeins er
heimkynni vort, heldur einnig
þeirra niðja vorra, sem eftir
oss koma. Þá verður þeim
vanda, sem oft vill rísa, þegar
um er að ræða verndun lands
og minja, ráðið til eins far-
sælla lykta og auðið er.
En það er fleira en eldur úr
iðrum jarðar og ár úr fjöllum,
sem eytt hefur byggðum á fs-
landi, þótt á annan hátt sé.
Þjóðflutningarnir innanlands
og þó einkum straumur fólks
til suðvesturhluta landsins, tii
höfuðborgarsvæðrsins, á undan
gengnum áratugum, hefur kom-
ið hart niður á mörgum byggð-
arlögum, skilið sumar byggðir
eftir mannlausar, en valdið öðr
um miklum efnahagslegum og
félagslegum vanda, svo að ekki
sé minnzt á persónulegan sárs-
auka, sem þessari þróun hefur
fylgt. Þetta hefur verið tíma-
bil, sem kenna má öðrum
þræði við eyðingu lands, þótt
það hafi vissulega einnig verið
tími gróandi og nýs landnáms
á mörgum sviðum. Vér höfuan
horft á merkilega sögu gerast.
Meðan þjóðin var meira en
helmingi fámennari en hún er
nú, varð hún að gjörnýta
hvern slægan blett í landinu
til þess að sjá sér farborða.
En nú standa forn höfuðból
mannlaus og frægar verstöðvar
auðar og yfirgefnar. Hin nýju
hlutföll í sfciptingu byggðarinn
ar hafa haft gífurleg áhrif á
allt þjóðlífið. Víst voru hinar
fornu félagsheildir smáar og
veikar, en þær fundu eigi að
síður til sín sem mikilvægra
eininga með sinn tilgang og
verksvið í því gamla jafn-
vægi, sem aldalöng reynsla
bændaþjóðfélagsins hafði skap
áð Brottstreymi fólksins hef-
ur svipt mörg byggðarlög
meira en litlu af sínum fyrri
metnaði. En samtímis höfum
vér byggt stóra höfuð-
borg. Hennar metnaður er að
sama skapi mikill og það með
réttu, því að hún er fjölbreyti-
leg miðstöð þjóðlífsins alls.
En margir hafa óttazt þessa
þróun, sagt að vér værum að
verða borgríki eða líkt þjóð-
félaginu við mannveru með of
stórt höfuð en að því_ skapi
veika og valta fætur. Ýmsum
hefur fundizt sem þjóðin
smækkaði með samdrætti
byggðanna, þrátt fyrir síhækk-
Herra Kristján Eldjóm
andi heildartðlu landsmanna,
og þjóðfélagið verða tilbrigða-
snauðara og svipminna en
áður. Þess ber þó vel að minn-
ast, að önnur fjölbreytni, sem
nauðsynleg er í nútíma þjóðfé-
lagi, hefur komið í staðinn.
En oss nægir ekki í þessu efni
annað hvort — eða, heldur
verðum vér að hafa hvort
tveggja. Vér verðum að hafa
efni á að eiga nokkuð stóra
höfuðborg, sem er miðstöð
menningar og alls þjóðlífs og
þjónar þar með landsmönnum
öllum. En jafnframt verðum
vér vissulega að byggja land-
ið. Ekki af óraunhæfri róman-
tík eða sögulegri tilfinninga-
semi, þó að slikar kenndir séu
skiljanlegar, heldur til þess að
nytja lífsskilyrðin skynsamlega
efla möguleika til lífs og bú-
setu og auk fjölbrejdni í at-
höfn og mannlífi. Og það er
ástæða til að vona, áð undan-
hald byiggðanna hafi runnið
sitt skeið á enda og jákvætt
viðnám sé hafið. Bændabyggð-
ir munu sennilega ekki drag-
ast mikið saman úr þessu, en
kaupstaðir og sjávarþorp, þétt-
býli landsbyggðarinnar, mun
eflast. Ég kom aftur úr ferð
minni í sumar efldur að trú
á framtíð þeirra byggðarlaga,
sem við fórum um. Sveitar-
stjórnir höfðu víða þurft að
takast á við óvenjulegan vanda
sötkum árferðis, en einmitt í
því ljósi var sérstakt fagnað-
arefni að heyra forystumenn
lýsa þeim áformum, sem þeir
liafa á prjónum, þeim fram-
tíðarsýnum, sem þeir sjá hver
á sínum stað Vonleysi og upp
gjöf er mönnum fjarri. heldur
er einmitt verið að búast fyrir
af bjartsýni og áhuga. menn
setja metnað sinn í að byggð-
in haldi velli og geti boðið
upp á nútímalífskjör, enda
mun fóllkið þá hvengi fara, held
ur búa sér framtíð í heimahög-
um. Þróun byggðanna í land-
inu er sannarlega eitt af sjálf-
stæðismálum þjóðarinnar, og
það er vel, að þetta mál er
nú mjög til umræðu og rann-
sóknar og skilningur vakandi
á mikilvægi þess. Vér skulum
trúa því, að Spákonan, Óttar
og Eilífur og aðrar vættir lands
muni enn halda verndarhendi
yfir byggðum sínum og að fólk
inu í landinu verði að trú sinni
á það sem þær tákna í huga
þess.
Byggðir landsins eru eining-
ar hver í sínu lagi og verða
að huga að sínu, en mynda
þó allar eina heild, sem er hið
íslen2ika þjóðfélag. Svo er og
um þjóðina sjálfa, að hún er
sjálfstæð eining, en þó um leið
hluti af stórri heild, sem er
samfélag þjóða. Samskipti vor
við umheiminn eru margbreyti
leg og sívirk, þar mun ætíð
þurfa að hyggja vel til átta, og
þaðan mun löngum verða tíð-
indasamt. Nú eru þau tíðindi
nýjust og mest, sem öllum eru
kunn, að Alþingi hefur heim-
ilað ríkisstjórninni að gerast,
fyrir íslands hönd, aðili að
Fríverzlunarsamtökum Evrópu.
Umræður og ágreiningur om
þetta mál hafa sett svip sinn á
síðustu mánuði liðins árs.
Slfkt er að vonum, þar sem
um óvenjulegt stórmál er að
ræða, og engum er sú fram-
sýni gefin, að hann kunni fyrir
að sjá allar afleiðingar þess
skrefs, sem fyrirhugað er að
stíga. En að tekinni ákvörðun,
hljóta allir þjóðhollir menn að
óska þess og vona og vinna
að því heils hugar, að hún leiði
til alls þess góðs fyrir þjóðina,
sem efni standa frekast til,
eins og alltaf þegar ný viðhorf
skapast. Víðtækt samstarf
þjóða í milli er sýnilega í ör-
um vexti, sá er nú straumur
tfenans, og hann fer ekki fram
hjá garði neins. í þeim straumi
hljótum vér fslendingar að
keppa að því að halda vorum
hlut, keppa að lífskjörum sam-
bærilegum við þau, sem ná-
grannar vorir njóta, keppa að
því að halda þjóðmenningu
vorri og sjálfstæði fullu. Þær
þjóðir, sem vér göngum nú
væntanlega til nýs samstarfs
við, eru sumar gamalreyndir
grannar vorir, meðal þeirra
þjóðirnar á Norðurlöndum.
Þar er sú þjóðaheild og menn-
ingarsvæði, sem vér eigum
greiðasta leið að og oss er
eðlilegast og hollast að halla
oss að. í þvi samneyti njótum
vér vor bezt andspænis fjöl-
mennari þjóðum og þjóðaheild-
um. Þess þurfum vér með, ^líkt
er engin minnfcun að viður-
kenna, enda þurfa Norðurlönd
einnig íslands með, svo seru oft
er tekið fram af forustumönn-
um á sviði stjórnmála og menn
ingarmála. íslandi hefur tekizt
að vinna sér virðingu á þingi
allra þjóða, fámennisþjóð flest
um fámennari. sem getur fyrir
þá sök ekki komizt til mikilla
áhrifa En vissulega væri nor-
ræna þjóðaheildin fátæklegri
án íslands. í þeirri heild gtít-
ur þjóð vor örugglega haldið
virðingu sinni fullri og þá um
leið sjálfsvirðingu. En sjálfs-
virðing er lífsnauðsyn, og
hennar ber vel að gæta, þegar
samstarf og samneyti við aðrar
þjóðir verður sífellt nánara og
vér sjáum sjálfa oss æ skýrar
í samanburði við aðrar þjóðir.
Oft og mikið er talað um ís-
lenzka menningu og áhyggjur
látnar í ljós hennar vegna. Að
vísu er orðið menning og í
þrengri skilningi íslenzk menn
ing, eitt af þessum hætitulegu
orðum, sem leiða til hugsana-
ruglings, vegna þess hversu
trauðlega það verður skilgreint
og óskýrt afmörkuð merking
þess. Án bólfcmennita engin ís-
lenzk menning, heyrðist ný-
lega sagt, og bað er rétt að
því leyti að bókmenntaarfjir-
inn og allt sem honum er
tengt, meðal annars íslenzk
tunga, er óaðskiljanlegur hluti
íslenzkrar menningar. En hið
sama á við um margt annað.
Atvinnuvegir þjóðarinnar, sem
vitaskuld eru undirstaða og
forsenda alls lífs í landinu og
verða að þrífast, ef tal vort
um annað á efcki að vera
hjóm eitt, þeir eru einnig hluti
af íslenzkri menningu. Og þá
ekki síður sjálfstæði þjóðar-
innar, vitund hennar um sjálfa
sig sem afmarkaða einingu
meðal þjóða, sjálfsvirðing
hennar. Þetta og margt annað
er samofið og myndar til sam-
ans þetta mannlífsform, sem er
íslenzk menning og vér viljum
búa við og fullkomna og varð-
veiita, hversu náið sem sam-
blendi vort við aðrar þjóðir
verður. Rétt er og skylt
að hafa á sér andvara, en ég
get ekki séð að íslenzk menn-
ing sé á neinu undanhaldi,
nema síður væri .Og ég sé ekki
betur en í landinu sé ung kyn
slóð, sem sé til alls annars l£k-
leg en að afrækja menningar-
arfleifð íslendinga. Það verð-
ur hennar að gæta hlutar ís-
lands í samskiptum við aðrar
þjóðir, gæta þess meðal annars
að íslenzk menning og þjóðar-
vitund eflist að heilbrigðum
metnaði í því samstarfi
við stærri þjóðir, sem allt bend
ir til að fremur vaxi en minnlki
í framtíðinni. Sjálfstæði og
menning þjóðarinnar eru efcki
hnoss, sem höndlað var í eiltt
skipti fyrir 511, heldur sá arin-
eldur, sem því aðeins lifir og
lýsir og vermir, að sífellt sé
að honum hlúð og á hann
bætt. Og hví skyldum vér
ekki vera menn til þess, hér
eftir sem hiiigað til. Oss hætt-
ir til að einblína á háskann
og vandann, og oft mætti ætila
af tali manna, að vér íslend-
ingai- ættum öllum þjóðum
fremur við rammt að rjá. Hitt
er þó sannara, að alls staðar
og ævinlega er við einhver
vandasöm úrlausnarefni að
fást. Bölmóður stoðar lítt,
heldur það eitt að snúast við
vandanum í góðum hugum, og
gleyma þá ekki að gleðjast
yfir því, sem rétt horfir og
fram stefnir. Það er, sem bet-
ur fer. alltaf margt.
Fyrir skemmstu var vígður
Framtialö á bls 10-
Ávarp forseta íslands, herra Kristjáns Eldjárns, á nýársdag