Morgunblaðið - 04.11.2005, Page 7

Morgunblaðið - 04.11.2005, Page 7
orðna sem sitja lítið eitt hærra en ökumaður og farþegi í framsæti. Í öft- ustu sætaröð er hins vegar varla hægt að bjóða fullorðnum að sitja nema í stuttum ferðum. Aðgengið er þröngt og þegar þar er sest finnst að höfuðrými hefur minnkað enn frekar. Þessi hækkun á sætastöðu því aftar sem í bílinn dregur skapar betra út- sýni fyrir aftursætisfarþega en kem- ur líka niður á útsýni bílstjóra um baksýnisspegilinn. Afturhlerinn er opnanlegur í tvennu lagi; annaðhvort eingöngu gluggahlutinn eða allur hlerinn. Far- angursrýmið er afar takmarkað ef öll sjö sætin eru í notkun en stækkar verulega þegar aftasta sætaröðin er felld niður. Varadekkið er óvarið und- ir bílnum. Bíllinn á uppboði Islandus.com er með 3,7 lítra, V6 vél sem skilar 220 hestöflum. Þetta er kröftug vél sem er vinsamlegri við buddu eiganda síns en V8 vélarnar sem bíllinn er líka boð- inn með. Það kom undirrituðum á óvart hve ljúfur Commander er í akstri innanbæjar og meðfærilegur. Vissulega er hann langur sem getur skapað dálítil óþægindi í þröngum bílastæðahúsum en hann er léttur í stýri og leggur nægilega vel á til þess að vera þokkalega lipur í bæjarsnún- ingum. Það að bíllinn er með sítengdu ald- rifi og spólvörn ásamt fremur lítilli veghæð setur honum hins vegar viss- ar skorður þegar komið er út af mal- bikinu. Þannig settist hann fastur á kviðinn þegar reynt var að aka upp slóðann að Úlfarsfelli þar sem tals- verðir snjóruðningar voru. Það þurfti nokkrar tilraunir til að losa hann aft- ur og komast í gegnum slóðann og meðan á því stóð vildi spólvarnarkerf- ið svolítið flækjast fyrir. En þá er bara að slökkva á því og nudda bíln- um fram og til baka þar til hann kemst í gegnum fyrirstöðuna. Fast á eftir komu Suzuki Grand Vitara og Nissan Terrano og fóru þennan sama slóða vandkvæðalaust. Commander er m.ö.o. ekki fullvax- inn í þessari gerð til þess að takast á við erfiðustu aðstæður en hann er liprari og þægilegri í borgarakstri en undirritaður átti von á. Hann leggur sig t.a.m. furðu lítið í beygjum miðað við hve hábyggður hann er. gugu@mbl.is Opnanlegir þakskjáir eru ofan við miðjusætisröðina. Vel búinn með rafstýrðum leðursætum, sóllúgu og skriðstilli. Frágangur og efnisval er gott í nýjum Jeep Commander. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 B 7 bílar                                    !                                                    !! "            #   $     "              %        & %       "        !"# $% &'() $*+, -                       ! " !  !#  $ *+, #        $                ! " !  !#   .' !"# $% &'() %&'   ($) )                                Vél: V6, 3.701 rúmsentimetri. Afl: 210 hestöfl við 5.200 snúninga á mínútu. Tog: 319 Nm við 4.000 snúninga á mínútu. Skipting: Fimm þrepa sjálfskipting. Drif: Quadra-Trac 1 sítengt aldrif. Lengd: 4.787 mm. Breidd: 1.900 mm. Hæð: 1.826 mm. Eigin þyngd: 2.170 kg. Dekk og felgur: 245/ 65R17, álfelgur. Jeep Commander 3,7 Quadra-Trac 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.