Morgunblaðið - 04.11.2005, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 04.11.2005, Qupperneq 9
undai framleiðendum eins og Skoda, Volvo, Honda og Mazda. Kia státar af 63,5% söluaukningu á markaðssvæðinu. Kia er þó ekki hálfdrættingur á við Ssangyong sem jók söluna um 180%. Það eru reyndar ekki sérlega háar tölur á bakvið vöxtinn. Ssangyong seldi fyrstu sjö mánuðina í fyrra 5.000 fólksbíla en 14.000 á þessu ári. Daewoo, sem nýlega varð að Chevrolet, stóð í stað á milli ára. Fyrstu sjö mánuðina seldust 95.000 bílar, eða álíka mikið og á þessu ári. Fróðlegt verður hins vegar að sjá hvort þessi umtalaða breyting úr Daewoo í Chevrolet auki söluna þegar til lengdar lætur í Evrópu. Í lok júlí var merkið í 22. sæti, rétt á undan Mitsubishi. Skoda og lúxusmerkin þýsku Skoda frá Tékklandi, sem er í eigu Volkswagen, hefur, eins og kóresku framleiðendurnir, beitt fyr- ir sig slagorðinu „mikill bíll fyrir lítið verð“ í markaðssetningu sinni. Það virðist hafa skilað árangri. Skoda seldi 178.000 fólksbíla fyrstu sjö mánuðina, eða 22.000 fleiri en á sama tíma í fyrra. En það eru greinilega fleiri að- ferðir til við að auka bílasöluna. All- tént hefur BMW og Audi ekki verið þekkt fyrir það í gegnum tíðina að selja ódýra bíla. Aukning í bílasölu hjá þessum framleiðendum er engu að síður athyglisverð. Best gengur hjá BMW sem seldi 392.000 bíla í Vestur-Evrópu fyrstu sjö mánuð- ina, sem er 60.000 bílum meira en á sama tíma í fyrra. Þar með er BMW orðið tíundi söluhæsti fram- leiðandinn í Vestur-Evrópu. Audi hefur á sama tíma selt 375.000 bíla, 42.000 bílum meira en í fyrra. Aðalkeppinautur bæði BMW og Audi í lúxusbílaflokknum er auðvit- að Mercedes-Benz, sem enn sem fyrr er söluhæsti lúxusbílaframleið- andinn í Vestur-Evrópu með 410.000 bíla fyrstu sjö mánuðina. Engu að síður ríkir óánægja með frammistöðuna því þetta er 13.000 bílum minni sala en á sama tíma í fyrra þrátt fyrir að nýir bílar hafi streymt frá Mercedes-Benz á þess- um tíma. Porsche er minnsti fram- leiðandinn á lista yfir 38 söluhæstu merkin í Vestur-Evrópu. Engu að síður er árangurinn afar athygl- isverður. Porsche seldi 31.000 bíla sem er 24% söluaukning frá árinu áður. Þetta þýðir að Porsche er núna stærri en Jaguar í Vestur-Evrópu. Það vekur kannski ekki lengur athygli að Toyota selur stöðugt fleiri bíla í Vestur-Evrópu en þó hefur hægt á söluaukningunni. Fyrstu sjö mánuðina jókst salan um 4,3%. Opel getur líka státað af lítilsháttar söluaukningu, 0,7%, á sama tíma og 3,4% samdráttur er hjá Ford. Volvo, sem er innan vé- banda Ford, gengur hins vegar vel og söluaukningin var 2,6% á tíma- bilinu á sama tíma og Saab mátti stríða við 4,2% samdrátt. Volvo er núna 3,4 sinnum söluhærri en Saab í Vestur-Evrópu. Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson BMW er dæmi um evrópskan framleiðanda sem á velgengni að fanga. Hér sést BMW 6. Morgunblaðið/Golli Hyundai seldi fyrstu 7 mánuðina 195.000 bíla. Myndin er af Tucson-jepplingi. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 B 9 bílar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.