Morgunblaðið - 06.11.2005, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÓEIRÐIR Í ARGENTÍNU
TIL átaka kom milli lögreglu og
yfir þúsund mótmælenda á götum
Mar del Plata í Argentínu í fyrrinótt
eftir að leiðtogafundur Ameríkuríkja
hófst í borginni. Lögreglan beitti
táragasi gegn mótmælendum sem
köstuðu bensínsprengjum, kveiktu
elda í banka og nálægum verslunum
og brutu rúður um 600 metra frá hót-
eli þar sem fundurinn fór fram.
Réttargeðdeild stækki
Vonir standa til að Réttargeðdeild-
in á Sogni verði að minnsta kosti tvö-
földuð eftir að Jón Kristjánsson, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra,
ákvað að skipa starfshóp til að huga
að uppbyggingu á Sogni. Magnús
Skúlason, yfirlæknir á Sogni, segir
ljóst að ef af stækkun verði þurfi að
fjölga starfsfólki verulega.
„Óviðunandi ástand“
Stjórn Tilraunastöðvar Háskóla
Íslands í meinafræði að Keldum hef-
ur síðastliðin sex ár sótt um fjárveit-
ingu frá menntamálaráðuneytinu til
að koma upp öryggisrannsókn-
arstofu til að greina smitsjúkdóma í
dýrum – en án árangurs. Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir segir
þetta vera „algerlega óviðunandi
ástand“.
Sakfellingum fjölgaði ekki
Fjöldi þeirra mála sem eru til með-
ferðar í opinbera kerfinu og varða
grun um kynferðisbrot gegn börnum
hefur nær tvöfaldast undanfarin tíu
ár. Á þessum tíma hefur þó sakfell-
ingum í slíkum málum ekki fjölgað.
Þetta kemur fram í samantekt á veg-
um Barnaverndarstofu.
Írak verði endurgreitt
Endurskoðunarnefnd á vegum
Sameinuðu þjóðanna hefur lagt til að
Bandaríkin endurgreiði Írak allt að
208 milljónir dollara, sem samsvarar
12,5 milljörðum kr., vegna samninga
við dótturfyrirtæki Halliburton.
Ágóði af sölu íraskrar olíu var not-
aður til að greiða fyrir þjónustu fyr-
irtækisins sem setti upp alltof hátt
verð fyrir þjónustuna eða innti hana
illa af hendi, að sögn nefndarinnar.
Óeirðir í París magnast
Kveikt var í nær 900 bílum í óeirð-
um í Frakklandi í fyrrinótt, níundu
nóttina í röð, og lögreglan handtók
yfir 250 manns. Tjónið var mest í út-
hverfum Parísar en óeirðirnar hafa
breiðst út til nokkurra annarra
borga.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 56
Fréttaskýring 8 Myndasögur 62
Hugsað upphátt 27 Dagbók 62/65
Menning 34, 66/67 Víkverji 62
Sjónspegill 34 Staður og stund 64
Forystugrein 38 Leikhús 66
Reykjavíkurbréf
38/39
Bíó 70/73
Umræðan 40/56 Sjónvarp 74
Bréf 54/56 Staksteinar 75
Minningar 58/59 Veður 75
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÍSLANDSMÓTIÐ í málmsuðu fór fram í
Borgaskóla í gærdag. Voru 23 keppendur
skráðir til leiks og var keppt í sex aðferðum
við málmsuðu, bæði í svörtu stáli og ryðfríu.
Að sögn Jóns Þórs Sigurðssonar, formanns
Málmsuðufélags Íslands, er gefin einkunn fyr-
ir tíma annars vegar og svo hversu góðar
suðurnar eru hins vegar. Eru suðurnar þá
meðal annars sendar í röntgenmyndun svo
hægt sé að greina hvort gallar leynist inni í
þeim. Ísaga er aðalstyrktaraðili keppninnar í
ár.
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Ingvarsson prófdómari fylgist með einum keppendanna, Daða Granz, á Íslandsmeistaramótinu í málmsuðu.
Keppa um meistaratitil í málmsuðu
TILLAGA liggur nú fyrir Alþingi um
að hefja almenna leit að ristilkrabba-
meini meðal einkennalausra einstak-
linga en landlæknir lagði á síðasta ári
til við heilbrigðisráðherra að hafin
yrði leit að þessu krabbameini í ald-
urshópnum 55–70 ára. Þetta kemur
fram í grein eftir Kristján Sigurðs-
son, sem er doktor í krabbameins-
lækningum og lýðheilsu og sviðsstjóri
leitarsviðs Krabbameinsfélagsins, í
Morgunblaðinu í dag.
Skipuleg leit að krabbameini áður
en einkenni koma fram hefur borið
árangur eins og komið hefur fram
með brjóstakrabbamein og rann-
sóknir staðfesta að ristilkrabbamein
uppfyllir skilyrði slíkrar almennrar
leitar.
Við upphaf skipulegrar leitar að
leghálskrabbameini hér á landi 1964
var sjúkdómurinn annað til þriðja al-
gengasta krabbameinið meðal
kvenna en er nú níunda algengasta
meinið. Fullsannað þykir að þessi að-
ferð hafi leitt til um 70% lækkunar á
fjölda nýrra tilfella og fjölda þeirra er
deyja af völdum sjúkdómsins hér á
landi.
Ristilkrabbamein er nú þriðja al-
gengasta krabbameinið hjá báðum
kynjum. Fjórar erlendar slembivals-
rannsóknir, þar sem greining blóðs í
hægðum leiðir til tilvísunar í ristil-
speglun, hafa staðfest yfir 16% mark-
tæka lækkun á dánartíðni af völdum
sjúkdómsins.
Almenn leit verði hafin
að ristilkrabbameini
Staða | 14
BÍLL lenti út af Reykjanesbraut,
norðan við Grænás, á öðrum tím-
anum í fyrrinótt. Að sögn lögregl-
unnar í Keflavík kvaðst ökumaður
bifreiðarinnar hafa sofnað undir
stýri og vaknað er hann var kominn
yfir á mölina á vegaröxlinni, á öfug-
um vegarhelmingi.
Ökumaðurinn sagðist hafa reynt
að koma bílnum upp á veginn aftur,
en bifreiðin snerist og rann út af
veginum og stöðvaðist á stóru grjóti.
Vinstri hlið og undirvagn skemmd-
ust mikið. Bíllinn var fluttur burt
með kranabíl en ökumaðurinn, sem
var einn í bílnum, slasaðist ekki.
Sofnaði
undir stýri
ÍSLENSKUR plötumarkaður hefur
í mörg ár skipst í tvo hluta; jóla-
markaðinn sem stendur þrjá síð-
ustu mánuði ársins og svo hina níu
mánuðina sem eftir eru. Eftir því
sem nær dregur jólum fer keppnin
um hylli plötukaupenda að harðna
og þá skiptir öllu að vera sýnilegur
og söluvænlegur. Sena, 12 Tónar,
Smekkleysa og fleiri fyrirtæki hafa
undirbúið útgáfuna sem nú fer í
hönd í marga mánuði. Í listapistli
Morgunblaðsins í dag veltir Hös-
kuldur Ólafsson fyrir sér mismun-
andi áherslum plötufyrirtækjanna
og hlut þeirra á markaðnum. | 68
Hver sigrar
um jólin?
FÆRSLA Sæbrautar til norðurs
meðfram Kleppsvegi fer í útboð
síðari hluta nóvember, en
áformað er að gera Kleppsveg-
inn tvíbreiðan á kafla og færa
strætisvagnaleið til vesturs inn
á hann. Þá verður reistur sér-
stakur hljóðveggur til að bæta
hljóðvist í íbúðarhúsum við
Kleppsveg.
Alls er gert ráð fyrir að Sæ-
brautin fjarlægist íbúðarhús við
Kleppsveg um 10–15 metra, en
við það minnkar hávaði frá um-
ferð á neðstu hæðum umtals-
vert.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir við færslu Sæbrautar
hefjist strax á næsta ári og ljúki
á komandi hausti.
Sæbrautin
verður
færð
TIL stimpinga kom við veitingahús
á Akureyri í fyrrinótt og hafði lög-
reglan afskipti af nokkrum mönn-
um. Ekki munu þó verða eftirmál af
því. Þá voru tveir teknir fyrir ölv-
unarakstur á Akureyri aðfaranótt
laugardags skv. upplýsingum lög-
reglu.
Stimpingar
á Akureyri