Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
hdl. og lögg. fasteignasali
SANDAVAÐ 5 - ENDAÍBÚÐ
Opið hús í dag frá kl. 14:00-15:00
Glæsileg 4ra-5 herb.
123,8 fm endaíbúð, þar
af 8,8 fm geymsla, á 3.
hæð í fallegu lyftuhúsi,
ásamt stæði í bílskýli.
Fallegar eikarinnrétt-
ingar frá Brúnási, eikar-
innihurðir frá Agli Árna-
syni, tæki í eldhúsi eru
frá Einari Farestveit.
Hreinlætis- og blönd-
unartæki eru frá Tengi, salerni er upphengt með innbyggðum kassa.
Tenglar fyrir síma og sjónvarp eru í öllum herbergjum. Steypt í plötuna fyr-
ir halogenlýsingu. Gólfefni fylgja ekki. Íbúðin er tilbúin til afhendingar.
Ásett verð kr. 28,7 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Fífulind - 4ra Kópavogi
Sérlega falleg endaíbúð á þessum góða stað í Lindahverfinu í Kópavogi. Íbúðin er 111,1 fm
með geymslu og er á þriðju hæð. Skipting eignarinnar: forstofa, hol, eldhús með borðkrók,
þvottahús, baðh og geymsla. Nánari lýsing: Sérinng. af svölum. Góð eign sem hægt er að
mæla með. V. 24,7 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Háhæð 3, Garðabæ
OPIÐ HÚS Í DAG milli kl. 14 og 16.
Í einkasölu glæsilegt ca. 200 fm parhús
ásamt 80 fm rými í kjallara. Vel staðsett á
frábærum útsýnisstað í Hæðarhverfi í
Garðabæ. Eignin skiptist í forstofu, for-
stofuherbergi, hol, hjónaherbergi, eldhús,
stofu, borðstofu, baðherbergi og þvottahús.
Á millilofti er sjónvarpshol, herbergi og
geymslur. Gott 80 fm rými í kjallara sem
býður upp á mikla möguleika. Glæsilegar
sérsmíðaðar innr. og gólfefni. Fallegur garður með sólpöllum og tilheyrandi. Meiri uppl.
veitir Þorbjörn Helgi sölumaður..
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
362 fm verslunarhúsnæði á
góðum stað við Laugaveg.
Húsnæðið er til sölu eða
leigu. Um er að ræða horn-
rými á jarðhæð með mikl-
um verslunargluggum. Frá-
bær staðsetning fyrir
margskonar rekstur, t.d.
veitingahús og ýmsa versl-
unarstarfsemi. Samþykktar
eru teikningar fyrir kaffihús.
5860.
Nánari upplýsingar á
skrifstofu Miðborgar.
Laugavegur
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Vel skipulagt og mikið endurnýjað tveggja hæða raðhús - ekki
pallahús - 276 fm, auk bílskúrs 25,6 fm. Húsið stendur neðan
við götu. Fallegur garður og góð verönd - heitur pottur í garð-
inum, stórar svalir á efri hæð. Mjög góð staðsetning. Í húsinu
eru m.a. 6 svefnherbergi, tómstundaherbergi, tvö baðher-
bergi, stofa, borðstofa og eldhús með kirsuberjainnréttingu.
KÚRLAND 9 - RAÐHÚS
Norðlingaholt -
lóðir/byggingarframkvæmdir.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Til sölu af sérstökum ástæðum, lóðir/byggingaframkvæmdir und-
ir 6 sérhæðir og 3 bílskúra á frábærum stað, innst í lokaðri götu.
Mjög góðar teikningar. Búið að steypa sökkul og plötu.
Til afhendingar strax.
Nánari upplýsingar gefur Ingólfur Gissurarson
lögg. fasteignasali í síma 896 5222
UNDANFARNAR vikur hefur
umræðan um skólagjöld við Há-
skóla Íslands tekið sig upp að
nýju, þótt hún hafi ekki farið ýkja
hátt. Bæði lagði landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins til að nemendur
við opinbera háskóla skyldu bera
aukinn kostnað af sínu námi og
einnig eru einnig raddir innan Há-
skólans, einkum í þeim deildum
sem eru í samkeppni við aðra há-
skóla, sem mæla fyrir upptöku
skólagjalda.
Við viljum því ítreka þá skoðun
okkar, sem áður hefur komið
fram, að Vaka, líkt og aðrar fylk-
ingar sem eiga fulltrúa í Stúd-
entaráði, telja skólagjöld við Há-
skóla Íslands ekki þá leið sem fara
skuli við að leysa fjárhagsvanda
skólans.
Ódýr í rekstri
Í nýlegri skýrslu Ríkisend-
urskoðunar kom fram að Háskól-
inn væri tiltölulega ódýr í rekstri.
Fjármálaráðuneytið virtist þó að
einhverju leyti misskilja skýrsluna
en í vefriti þess sagði, að þar sem
Háskóla Íslands hafi tekist að
halda rekstri sínum innan fjár-
heimilda, hafi hann nægt fjár-
magn. Ráðuneytið virðist því
hvetja ríkisstofnanir til að sanna
fjárþörf sína með því að fara fram
úr fjárveitingum, en það er önnur
saga.
Staðreyndin er sú að fjárveit-
ingar til skólans hafa hækkað um
29%, að raungildi frá árinu 1998, á
meðan nemendum skólans hefur
fjölgað um 65%. Af þessu leiðir að
ef tillit er tekið til fjölda nemenda
og launaþróunar á þessu tímabili
hafa fjárveitingar til Háskólans
minnkað verulega.
Hvati til massakennslu
Því hefur verið gengið nærri
öllu starfi skólans á undanförnum
árum til að halda honum innan
ramma fjárlaga. Háskólinn hefur
m.a. þurft að fækka kennurum,
kennslustundum og valnám-
skeiðum. Kennsluhópar hafa
stækkað í samræmi við þá þróun.
Raunar er í reiknilíkani skólans
innbyggður hvati fyr-
ir stóra kúrsa, eða
svonefnda „massa-
kennslu“, þar sem
allt upp í nokkur
hundruð nemendur
sitja í fyrirlestri hjá
einum kennara. Þar
að auki hefur verið
lítil endurnýjun á
tækjakosti skólans og
er húsnæðisvandinn
orðin það mikill að
kenna þarf sum nám-
skeið langt fram eftir
kvöldi.
Stöndum vörð um HÍ
Við teljum að leysa eigi fjár-
hagsvanda Háskólans, án þess að
seilast ofan í vasa nemenda hans.
Starfsemi Háskóli Íslands er þjóð-
inni afar mikilvæg. Háskólinn býð-
ur upp á fjölbreytt nám í ýmsum
fræðigreinum sem einkareknir há-
skólar ættu erfitt með að bjóða
upp á og því er nauðsynlegt að
samfélagið standi vörð um hann.
Verkefni sem tveir verk-
fræðinemar í skólanum gerðu um
pökkunarvogir fyrir sjávarútveg-
inn fyrir tæpum 30 árum gaf af
sér alþjóðafyrirtækið Marel sem
er starfrækt í 5 heimsálfum með
850 starfsmenn. Þannig hefur Há-
skólinn verið fjöregg þjóðarinnar,
og á að vera það áfram.
Ráðamenn í menntamálum
þurfa fyrst og fremst að byrja á
því að skilgreina hlutverk háskól-
anna í landinu. Það þarf að vera
skýr verkaskipting milli skólanna.
Ef stuðla á að virku samkeppn-
isumhverfi þarf að tryggja að slíkt
umhverfi sé sanngjarnt gagnvart
öllum aðilum. Menntamálaráðu-
neytið þarf einnig að gera sér
grein fyrir að hlutverk þess er að
stuðla að samkeppnishæfni há-
skólanáms á alþjóðlegum vett-
vangi en ekki að stuðla að mörg-
um skólum sem hafa ekki bolmagn
til að stunda það rannsóknarstarf
og framhaldsnám sem nauðsynlegt
er.
Til þess að Háskóli Íslands geti
uppfyllt það hlutverk sem honum
er ætlað þarf að styðja rausn-
arlega við hann og öll mennt-
unarstig landsins. Einungis
þannig höldum við Íslandi
samkeppnishæfu á alþjóðavett-
vangi.
Háskóli Íslands er
fjöregg þjóðarinnar
Sigurður Örn Hilmarsson og
Stefanía Sigurðardóttir fjalla
um fjárhagsvanda HÍ
’… fjárveitingar tilskólans hafa hækkað
um 29%, að raungildi frá
árinu 1998, á meðan
nemendum skólans hef-
ur fjölgað um 65%.‘
Sigurður Örn
Hilmarsson
Höfundar sitja í
Stúdentaráði fyrir Vöku.
Stefanía
Sigurðardóttir