Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 43
UMRÆÐAN
Í VIÐHORFSPISTLI Elvu
Bjarkar Sverrisdóttur 4. nóvember
sl. gerði hún að umfjöllunarefni bók
mína Brosað gegnum tárin sem
fjallar um fegurðar-
samkeppnir á Íslandi
og viðtal sem birtist við
mig í Fréttablaðinu um
síðustu helgi. Þar
gagnrýnir hún útlits-
dýrkandi áherslur
samfélagsins og kýs að
gera mig að einhvers
konar talsmanni þeirra
viðhorfa.
Það sem heillaði mig
mest þegar ég skoðaði
sögu fegurðarsam-
keppna á Íslandi voru
einmitt þau ólíku við-
horf sem fegurðarsamkeppnir hafa
mætt í gegnum tíðina og kristallast
svo vel í skrifum Elvu. Þar er á ferð-
inni kona sem horfir á fegurð-
arsamkeppnir með gagnrýnum aug-
um, svo gagnrýnum að hún hikar
ekki við að fordæma bók sem hún
hefur ekki lesið vegna óbeitar sinnar
á umfjöllunarefninu. Í bókinni er
gagnrýni á fegurðarsamkeppnir
reyndar gerð mjög ítarleg skil þó að
Elva hafi ekki veitt því athygli er
hún blaðaði í henni. Bókin er því
ekki síður saga mótmæla gegn feg-
urðarsamkeppnum, en þess er ávallt
getið ef einhverjar mótmælaaðgerð-
ir fóru fram, auk þess sem fjölda
mynda af mótmælum er að finna í
bókinni.
Elva leggur út af eftirfarandi um-
mælum sem höfð voru eftir mér í
Fréttablaðinu:
„Í dag eru kröfur samfélagsins
um vel útlítandi konu orðnar mun
háværari og á það ekki bara við um
keppni í fegurð heldur í öllu okkar
daglega lífi, hvort sem það er á
vinnustöðum, í félagslífinu eða
heima.“ Ég get ekki séð betur en að
Elva taki undir þau orð. Hún talar
um að hafa orðið fyrir áreiti frá
hrukkukremsframleiðendum sem
biðja konur um að örvænta ekki þó
þær séu orðnar þrítug-
ar. Hún talar um að
ungar og fallegar kon-
ur veljist í sjónvarp á
meðan karlar fái að
vera eldri og hafa
aukakíló. Þetta eru
þær kröfur sem ég vísa
í og þær eru ekki frá
mér komnar. Stað-
reyndin er sú að konur
eru gerðar að skot-
spæni markaðsaflanna
þegar kemur að sölu á
hverskyns snyrtivarn-
ingi og ég þarf varla að
axla ábyrgð á þeirri staðreynd þó að
ég leyfi mér að benda á hana.
Bókin Brosað gegnum tárin fjallar
um sögu fegurðarsamkeppna með
öllu því umstangi og umtali sem því
fylgir, bæði jákvæðu og neikvæðu. Í
bókinni er að finna frásagnir kepp-
enda sem lýsa þátttöku sinni á mis-
munandi vegu. Sumir segja frá
brostnum vonum, illu umtali og brot-
inni sjálfsmynd á meðan aðrir segja
frá sigrum, auknu sjálfstrausti og
nýjum tækifærum. Þegar ég segi frá
því að keppnin hafi reynst sumum
keppenda stökkpallur ýmissa tæki-
færa er ég vísa í frásagnir fegurð-
ardrottninganna sjálfra, enda tel ég
þær dómbærastar á að meta hvaða
áhrif keppnirnar hafa haft á líf
þeirra.
Fegurðarsamkeppnir eru hluti
sögu kvenna hvort sem fólki líkar
það betur eða verr. Í fegurðar-
samkeppnum hafa konur mestan
part verið í aðalhlutverki og framan
af var sá vettvangur sá eini þar sem
konur voru sýnilegar í fjölmiðlum.
Þessi staðreynd er vissulega gagn-
rýniverð, en staðreynd engu að síð-
ur. Í gegnum sögu fegurðarsam-
keppna endurspeglast saga og
tíðarandi hvers tíma og ekki síður
viðhorf almennings til kvenna og
þeirra hlutverks í samfélaginu. Sag-
an er áhugaverð, ekki síst í ljósi þess
hversu umdeildar keppnirnar hafa
verið en einfaldast er að dæma um
það með því að lesa bókina og kynna
sér málið.
Fegurðarsamkeppni er
hluti af sögu kvenna
Sæunn Ólafsdóttir
svarar Viðhorfsgrein Elvu
Bjarkar Sverrisdóttur ’… konur eru gerðar aðskotspæni markaðs-
aflanna þegar kemur að
sölu á hverskyns snyrti-
varningi og ég þarf
varla að axla ábyrgð á
þeirri staðreynd þó að
ég leyfi mér að benda
á hana.‘
Sæunn Ólafsdóttir
Höfundur er höfundur bókarinnar
Brosað gegnum tárin.
!
" #
$
"
%
& '
& &
$ " ($
)
&
$ " #
)
& & & **+" ,&
" -
& &"
,
! . $'
$ '
/"
,)
" 0 & ! & $
& 1
) *' "
2
& "
& 1
) 3'+ "
4 & "
& 1
) ' "
2
& "
! " #$%$$ &&&
IÐNDALUR - VERSLUN
ESSO-STÖÐIN - VOGAR Á VATNSLEYSUSTRÖND
Um er að ræða 166,8 fm matvöruverslunarhúsnæði (Esso-stöðin) í Vogum á
Vatnsleysuströnd. Húsnæðið er með dúk á gólfi og tilheyrandi hillum og
afgreiðsluborði, lager (ca 20 fm), snyrting, starfsmannaaðstaða, skrifstofa og
kæligeymsla. Húsnæðið er almennt í góðu ástandi, bæði að innan og utan.
Að auki er 60,8 fm veitingastaður, salur fyrir 24 manns, bar, pizzastaður. Flísar
og plastparket á gólfum. Hægt er að opna á milli þessara eigna.
Samtals fm því 227,6.
REKSTUR OG HÚSNÆÐI SELST SAMAN. VERÐ 37 millj. 4843
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Hér er um að ræða eina af þessum eftirsóttu sérhæðum í Vesturborginni. Hæðin,
sem er björt og skemmtileg skiptist í stórar, samliggjandi stofur með glæsilegum
frönskum bogaglugga og svölum út af borðstofu. Rúmgott eldhús, hjónaherbergi
með austursvölum, tvö herbergi og flísalagt baðherbergi. Massíft merbauparket á
hæðinni. Í risi er lítil 3ja herbergja íbúð, þ.e. stofa með tveimur kvistum og tvö
svefnherbergi. Eldhús með borðkrók. Baðherbergi með sturtu. Eikarparket. Verið
er að ljúka við að gera við allt húsið að utan og steina að nýju. Viðgerð á kostnað
seljanda. Stutt í grunnskóla, Háskólann og alla verslun og þjónustu. V. 49,8 millj.
Uppl. veitir Ingibjörg í síma 864-8800.
Ingibjörg Þórðardóttir lögg. fasteignasali
MELHAGI - EFRI SÉRHÆÐ
Föt fyrir
allar konur
á öllum aldri
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi,
sími 554 4433
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 10-16