Morgunblaðið - 06.11.2005, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
s: 570 2790www.baendaferdir.is
til Saalbach-Hinterglemm
4. febrúar - 1 vika / 11. febrúar - 1 vika / 4. febrúar - 2 vikur
Fararstjórar: Sævar Skaptason & Guðmundur K. Einarsson
Skíðaferð Ferðaþjónustu bænda árið 2006 er til Saalbach - Hinterglemm
í Austurríki. Gist verður á 4 stjörnu hóteli í þorpinu Hinterglemm.
Hótelið er vel staðsett í jaðri bæjarins rétt við skíðalyfturnar.
Saalbach - Hinterglemm oft nefnt skíðaparadís Alpanna og hefur verið
valið eitt af 10 vinsælustu skíðasvæðum Austurríkis. Farastjórar eru með
hópnum og skipuleggja daglegar ferðir um skíðasvæðið fyrir þá sem vilja.
Verð: 104.900kr. ámann í tvíbýli í 1 viku
Verð: 154.500kr. ámann í tvíbýli í 2 vikur
Nánari upplýsingar í síma 570 2790 eða á www.baendaferdir.is
– Láttu mig bara fá það sem þið sjálf
mynduð fá ykkur að borða, segi ég
glaðhlakkaleg og fæ mér sæti á fjöl-
förnum veitingastað í Doha í Katar.
Maður verður að gera eins og heima-
fólk. Andartaki síðar siglir kjötkássa
á borðið og með henni brauð og te.
– Takk kærlega. Hvaða kjöt er
annars í þessu? spyr ég þjóninn og
nikka til eldri manns á næsta borði.
– Þetta eru hjörtu og lifur, svarar
þjónninn.
– Já, já, einmitt. Flott er, hiksta ég
og brosi skakkt til gamla mannsins.
Hjörtu og lifur í morgunmat. Gott á
þig stúlka.
Lokað Þjóðminjasafn
Með fullan maga af soðnum inn-
yflum ákveð ég að leita uppi Þjóð-
minjasafnið í borginni. Ég er kort-
laus og spyr mig áfram.
Fornleifafræðingarnir Abdul Aziz
Abdullah og Adel Al Awadi heyra á
tal mitt við verslunareiganda, þar
sem ég spyr til vegar. Þeir taka í
höndina á mér og tilkynna mér að
safnið sé lokað. Unnið sé að endur-
bótum.
„Þjóðminjasöfn eru sem sé lokuð
víðar en á Íslandi,“ muldra ég og
kynni mig. Þetta er vorið 2004. Það
vill til að mennirnir vinna á safninu.
„Okkur þykir voðalega leiðinlegt
að það sé lokað núna en þú getur
komið með okkur og fengið að sjá
skrifstofurnar. Við erum á leiðinni
þangað,“ segja þeir og benda á stórt
hús neðar í götunni. Þetta er safnið.
Þeir halda augljóslega að ég sé for-
fallinn Þjóðminjasafnsaðdáandi sem
þrái að sjá skrifstofur þess. Mér
finnst það bráðfyndið, leiðrétti það
ekki neitt og skelli mér með þeim.
Félagarnir eru nýkomnir frá
Egyptalandi þar sem þeir hjálpuðu
til við fornleifarannsóknir.
Hvenær sé ég sprengjurnar?
Aziz og Adel tala afbragðs ensku
og eru yfirmáta kurteisir. Í útliti eru
þeir hins vegar eins og vestræna
staðalmyndin af hryðjuverkamanni.
Báðir eru í hvítum skósíðum kuflum
með þykkt yfirvaraskegg. Aziz er
með rauðan arabaklút á höfði en
Adel hvítan. Aziz verður stórkost-
lega skuggalegur þegar hann setur
upp svört sólgleraugu og talar arab-
ísku háum rómi við vin sinn.
Á leið á skrifstofurnar tökum við
lyftu með stórum spegli. Ég á erfitt
með að lyppast ekki niður af hlátri
þegar ég sé myndina af mér og
hryðjuverkamönnunum, beygi mig
niður og þykist vera að hósta.
Vettvangskönnun mín á skrifstof-
unum leiðir hvorki af sér sprengju-
kynni né fund á sinnepsgasi, en ég
fæ bæði te og kaffi og er kynnt fyrir
öllu starfsfólkinu. Fleiri menn birt-
ast í kuflum með klúta um höfuðið og
tala arabísku sín á milli. Ég tek í
margar hendur og svara spurning-
um um Ísland.
Að lokum er ég leidd inn á skrif-
stofu yfirmannsins. Hann heitir Mo-
hammed Said Al Bloshi. Þessi lítur
út fyrir að vera heilinn á bak við allt
saman – aðalhryðjuverkamaðurinn.
Hérna hljóta þau að vera, gjöreyð-
ingarvopnin.
Viti menn, hryðjuverkamaðurinn
heimtar að láta mig fá gjöf frá safn-
inu: Bók um Katar á geisladiski.
Fullkomið. Þetta er allt það sem mig
vantar um land og þjóð og ég var ein-
mitt án ferðabókar. Svo er geisla-
diskur líka léttari en bók.
Jólabókaflóð um vor
Ég ljóma upp og þakka fyrir mig.
Jólin eru hins vegar ekki liðin því
hinar ýmsu harðspjaldabækur sigla
nú á borðið. Ég stari á bunkann,
brosið frýs og ég tek ákvörðun á sek-
úndubroti um að minnast ekki einu
orði á að ég ferðist í raun með bak-
poka og þurfi að bera allt á öxlum
mér.
Bókasafn mitt margfaldast að
stærð á einu andartaki. Í bókahillu
framtíðarheimilis míns mun leynast
gullmolinn The Traditonal Arcit-
hecture in Qatar eftir Mohammad
Jassim Al-Kholaifi. Á arabísku. Þar
verður einnig hin níðþunga bók
Architecture of the old Palace, Qatar
National Museum eftir sama höfund.
Eru þá ótaldar bækurnar Mission
archélogique francaise à Qatar á
frönsku – verst að ég tala ekki
frönsku – og A Study of Qatari-Brit-
ish relations 1914–1945 eftir Dr.
Yousof Ibrahim Al-Abdulla.
Ég veit ekki hvað ég á að segja,
íhuga að segja þeim frá íslenska jóla-
bókaflóðinu og að þetta sé bara eins
og það, en hætti mér ekki út í eitt-
hvað „christmas books flood“ og segi
bara takk aftur og aftur. Síðan fáum
við okkur meira te.
Hringdu heim, stúlka
Adel þarf á endanum að ná í dóttur
sína í skólann en Aziz bíður mér í há-
degismat. Hann á eiginkonu og átta
börn. Ég skammast mín fyrir ótukt-
ina í mér en ræð ekki við mig, þar
sem ég rogast hlæjandi að bíl hans
með bókastaflann í fanginu og skima
eftir gjöreyðingarvopnunum.
Næstu daga eyði ég töluverðum
tíma með þeim félögum sem fórna
höndum þegar þeir heyra hversu
langt er síðan ég heyrði síðast í for-
eldrum mínum í síma. Ég malda í
móinn og segi að ég hafi hreinlega
samband í gegnum Netið þegar ég sé
á ferðalögum. Á endanum heimta
þeir að ég hringi úr farsíma Aziz
heim til Íslands og hlæja og skríkja
þegar þeir heyra hvað foreldrar mín-
ir verða glaðir.
Þeir eru nefnilega svo umhyggju-
samir, vinir mínir hryðjuverkamenn-
irnir. Svo skilningsríkir. Svo mjúkir
menn, þessar elskur.
sigridurv@mbl.is
Í lyftu með hryðju-
verkamönnum
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Vinur minn hryðjuverkamaðurinn. Fornleifafræðingurinn og átta barna faðirinn
Abdul Aziz Abdullah í Katar.
Svipmynd frá Katar
Sigríður Víðis Jónsdóttir
’Bílaauglýsingar nú á dögumsnúast aftur á móti meira um
félags- og ástarþarfir vænt-
anlegra eigenda.‘Úr grein Gunnars Hersveins, upplýs-
ingafulltrúa Umhverfissviðs Reykjavík-
urborgar, í Morgunblaðinu þar sem hann
minnir á vitundarvakningu Umhverf-
issviðs: Virkjum okkur!
’En því miður vill danska rík-isstjórnin fyrir alla muni gæta
þess að stjórnvöld í Bandaríkj-
unum séu ánægð með hana.‘Danski þingmaðurinn Frank Aaen um
fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar
CIA. Hann segir að ef Danir aðhafist
ekkert vegna flugsins séu þeir meðsekir
um mannréttindabrot.
’Við værum alveg til í það efeinhver myndi treysta okkur
fyrir laginu sínu. Við höfum
allavega reynsluna.‘Addi Fannar Haraldsson í Skítamóral um
það hvort hljómsveitin gæti hugsað sér
að taka þátt í Eurovision.
’Við neitum að svara.‘Talsmaður bandarísku leyniþjónust-
unnar, CIA, er hann var spurður hvort
rétt væri að stofnunin starfrækti leyni-
leg fangelsi undir meinta hryðjuverka-
menn í átta ríkjum, m.a. í Austur-
Evrópu.
’Eruð þið stjórnmálamenn aðganga af göflunum?‘Forsíðufyrirsögn þýska dagblaðsins Bild
eftir að í l jós kom að enn er mikil óvissa
um myndun samsteypustjórnar stóru
flokkanna í landinu, rúmum sex vikum
eftir þingkosningar.
’Þeir eru ekki endilega aðskjóta til að hræða fólk heldur
hreinlega til að drepa.‘Kristbjörg Gísladóttir, kristniboði í Add-
is Ababa í Eþíópíu, þar sem fjöldi fólks
hefur verið drepinn í átökum lögreglu og
stjórnarandstæðinga.
’Það vaknar upp í manni barn-ið – það er gaman að fá verð-
laun, og það er sú barnslega
kennd sem kviknar hjá mér.‘Ragnhildur Gísladóttir í viðtali við
Morgunblaðið í t i lefni af því að henni
voru afhent Íslensku bjartsýnisverðlaun-
in.
’Það eru ótrúlegir hlutir aðgerast í myndlistinni.‘Gabríela Friðriksdóttir þegar hún tók
við heiðursverðlaunum Myndstefs.
’Mér finnst hún vera gott inn-legg.‘Jón Kristinsson heilbrigðisráðherra í
samtali við mbl. is um stjórnsýsluúttekt
ríkisendurskoðunar á þjónustu við aldr-
aða.
Ummæli vikunnar
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn